Erlent

Ræddu nýja þjóðstjórn

Leiðtogar tveggja stærstu stjórnmálaflokkanna í Ísrael hittust í gær og ræddu möguleika á þjóðstjórn þrátt fyrir að mikillar andstöðu gæti við þá hugmynd innan beggja flokka. Búist er við að flokkarnir skipi samninganefndir í dag og að formlegar stjórnarmyndunarviðræður hefjist á næstu dögum. Ríkisstjórnin hefur misst meirihlutastuðning á þingi og í kjölfar þess að atkvæði féllu jöfn í atkvæðagreiðslu um vantraustsályktun á ríkisstjórnina í síðustu viku sá Ariel Sharon, forsætisráðherra og leiðtogi Likud, sitt óvænna og óskaði eftir viðræðum við Shimon Peres, leiðtoga Verkamannaflokksins. Hvorugur leiðtoganna segist vera sérlega spenntur fyrir þjóðstjórn en hvorugur segist eiga mikið val. Sharon segir að sú staðreynd að stjórnarþingmenn séu margir hverjir hættir að styðja stjórnina falli þýði að annað hvort verði að fjölga flokkum í stjórn eða efna til kosninga. Peres segir nauðsynlegt að styðja við bakið á áætlun Sharons um brotthvarf frá Gazasvæðinu og setur sem skilyrði að því verði flýtt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×