Erlent

Hvernig varð til líf á jörðinni?

Kviknaði líf á jörðinni eða barst það hingað með halastjörnu? Þetta er meðal spurninga sem margir af virtustu vísindamönnum heims í stjörnulíffræði velta upp á ráðstefnu sem nú er haldin í Reykjavík. Ráðstefnan ber heitið „Byggilegir hnettir“ og hana sækja á þriðja hundrað vísindamenn, af ýmsum fræðasviðum, frá um 30 löndum.Stjarnfræðingar kynna nýjustu niðurstöður leitar að lífvænlegum heimum, „Marsfræðingar“ segja nýjustu fréttir af niðurstöðum frá NASA og líffræðingar ræða hvernig líf kviknar, þrífst og þróast. Svör þeirra við þeirri spurningu eru allt önnur en þau sem kristinfræðin kennir. Hugtakið geimvera fær til dæmis á sig öllu jarðbundnari blæ ef gengið er út frá kenningum Pascale Ehrenfreund stjarnfræðings um að mannkynið hafi þróast út frá lífi sem barst til jarðar utan úr geimnum með halastjörnu.  Um 90 fyrirlestrar verða fluttir á ráðstefnunni sem stendur til föstudags en þess má geta að annað kvöld verða tveir fyrirlestrar opnir almenningi í Háskólabíó. Þeir hefjast klukkan 20.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×