Erlent

Þrír dæmdir til dauða

Í Karbala hafa þrír menn verið dæmdir til dauða. Þetta eru fyrstu dauðarefsingarnar sem írösk stjórnvöld hafa fellt yfir þegnum sínum frá því Bandaríkin og bandamenn þeirra létu af stjórninni í Írak í lok júní. Tveir mannanna voru dæmdir fyrir morð á sex fjölskyldumeðlimum. Hinn þriðji var dæmdur fyrir að nauðga og myrða dóttur sína. Hernámslið Bandaríkjanna felldi dauðarefsingar úr gildi á meðan hún fór með stjórn í landinu en yfirvöld í Írak hafa gefið sterklega í skyn að harðari refsingar verði teknar upp að nýju nú þegar sjálfsstjórn hefur verið komið á.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×