Róttækar breytingar á vegamálum 11. júlí 2004 00:01
Hægt er að minnka umferð á þjóðvegum Bretlands um allt að helming með róttækum aðferðum sem breska samgönguráðuneytið er að skoða. Er um nokkurs konar vegatoll að ræða en þó ekki með því móti sem margir þekkja frá Evrópu þar sem ekið verður gegnum sérstök tollhlið. Bretarnir sýna því meiri áhuga að nota gervihnattatækni til að rukka breska ökumenn. Gengur hugmyndin út á að setja sérstakan tölvukubb í allar 30 milljónir bifreiða sem til eru í landinu og eftir það sjá gervihnettir um að telja ekna vegalengd hjá hverjum og einum ökumanni. Verður bíleigendum því næst sendur reikningur fyrir hvern ekinn kílómetra og hefur heyrst að rukka eigi allt að tólf krónum fyrir hvern kílómetra. Mun slíkt kerfi ekki eingöngu bæta milljörðum króna í kistur samgönguráðuneytisins heldur einnig spara ríkinu háar fjárhæðir með bættri umferðamenningu. Vegir í Bretlandi og þá sérstaklega þjóðvegir landsins eru fyrir alllöngu orðnir of litlir fyrir þá gríðarlegu umferð sem um þá fer og kosta tafir og slys á þeim tugi milljarða króna tap á ári hverju. Aðgerða er þörf og samkvæmt ráðleggingum ráðgjafa samgönguráðuneytisins er þetta í raun eina færa leiðin en þó hefur nefndin bent á tíu aðrar tillögur sem ekki eru jafn róttækar. Innan samgönguráðuneytisins gera menn sér ljóst að tillaga á borð við þessu mun valda miklum deilum milli hins almenna ökumanns sem vill fá lækkun á þeim þungu bifreiðargjöldum sem hann greiðir í dag og talsmanna iðnaðar og atvinnu en þeir heimta greiðfæra vegi til að geta komið vörum sínum til skila á réttum tíma. Til gamans má geta þess að yrði slíku kerfi komið á hérlendis yrði ökumaður sem færi frá Reykjavík til Egilsstaða að greiða litlar átta þúsund krónur í vegatolla sé miðað við sömu upphæð og lagt er til að Bretar greiði.
Erlent Fréttir Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira