
Fleiri fréttir

Hættir sem formaður eftir að hafa greinst með heilaæxli
Karl Ágúst Úlfsson hefur ákveðið að láta af formennsku í Rithöfundasambandi Íslands eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir þremur mánuðum.

Áhættumat RLS í hæsta stig og öryggismyndavélum fjölgað
Yfirvöld gera ráð fyrir að áhættumat Ríkislögreglustjóra verði hækkað í hæsta stig í aðdraganda leiðtogafundar Evrópuráðsins sem fram fer í Reykjavík dagana 16. til 17. maí næstkomandi. Þétta á net öryggismyndavéla í borginni fyrir fundinn.

Skiptu fölsuðum evru seðlum fyrir íslenskar krónur
Héraðssaksóknari hefur ákært fimm manns fyrir að láta út falsaða evru peningaseðla í Reykjavík árið 2020. Seðlarnir, sem voru 100 og 200 evra, voru að minnsta kosti 63 talsins og fengu fimmmenningarnir rúma milljón króna upp úr krafsinu.

Mögulegt að greinargerð um Lindarhvol verði aldrei birt
Andstaða forseta Alþingis við að birta umtalaða greinargerð um Lindahvol ehf. gæti þýtt að hún komi aldrei fyrir augu þingmanna eða almennings þrátt fyrir vilja meirihluta þingheims, að sögn þingmanns Viðreisnar. Hann saknar þess að heyra forseta rökstyðja afstöðu sína.

Skotmaðurinn handtekinn
Maður sem grunaður er um að hafa skotið af byssu inni á skemmtistaðnum The Dubliner í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi hefur verið handtekinn. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segist ekki ætla að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Skömmuðu ráðherra fyrir að biðja konur á Alþingi að tala lægra
Þingmenn þriggja flokka í stjórnarandstöðunni skömmuðu í dag fjármálaráðherra og innviðaráðherra fyrir að biðja tvo kvenkyns formenn stjórnmálaflokka um að tala ekki of hátt í ræðustól.

Erfitt að meta þjónustuþörfina í gistiskýlum og þörf á fleiri úrræðum
Fjölgað hefur í hópi heimilislausra með fjölþættan vanda sem leita í gistiskýli borgarinnar en takmarkað er hversu mikla þjónustu hægt er að veita þar. Framkvæmdastjóri hjá borginni segir þörf á fleiri úrræðum og kallar eftir aðkomu ríkis og sveitarfélaga. Stórefla þurfi heilbrigðisþjónustu fyrir hópinn en heilbrigðisráðherra boðar meðal annars varanlegt neyslurými.

Níu hjúkrunarfræðingar frá Filippseyjum ráðnir til HSU
Níu hjúkrunarfræðingar og einn geislafræðingur frá Filippseyjum hafa verið ráðnir til starfa hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands og nú er leitað að átta starfsmönnum til viðbótar frá útlöndum.

Telja sig komna á slóð byssumanns
Lögregla er komin á slóð byssumanns sem hleypti af skoti á skemmtistaðnum Dubliner í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi. Yfirlögregluþjónn býst við að maðurinn verði handtekinn áður en langt um líður.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Í kvöldfréttum greinum við frá fjölgun fólks með fjölþættan vanda sem sækir gistiskýli borgarinnar. Bæði Reykjavíkurborg og heilbrigðisráðherra vinna að endurskoðun þjónustu við þennan hóp og er þá meðal annars horft til víðtækari úrræða og varanlegt neyslurými.

Stríðsárasafnið verður ekki opnað í sumar
Stríðsárasafnið á Reyðarfirði verður ekki opnað í sumar með þeim hætti sem hefur verið undanfarin ár vegna tjóns sem varð á húsakosti safnsins síðastliðið haust og uppgötvaðist í byrjun árs. Þó hafa engar skemmdir orðið á sýningarmunum safnsins.

Fjöldi manna í vandræðum á fjallvegum austanlands
Björgunarsveitir á Austurlandi hafa verið við störf í dag á fjallvegum austanlands og aðstoðað fjölda manns sem komust ekki leiðar sinnar sökum veðurs.

Tvinnbíll á Suðurlandsvegi brann til kaldra kola
Þrír farþegar komust undan þegar eldur kviknaði í tvinn-rafbíl á Suðurlandsvegi skömmu fyrir klukkan fjögur í dag.

Tekist á um Lindarhvol á þinginu: „Hvers konar rugl erum við eiginlega komin í?“
Þingmenn stjórnarandstöðunnar streymdu hver á fætur öðrum upp í pontu á Alþingi í dag og gagnrýndu forseta Alþingis fyrir að gera ekki greinargerð um Lindarhvol opinbera. Greinargerðin hefur verið mikið hitamál og furða þingmenn stjórnarandstöðunnar sig á því hvers vegna forseti Alþingis stendur í vegi fyrir því að greinargerðin sé birt.

Samþykktu kjarasamning með minnsta mögulega mun
Flugvirkjar í Flugvirkjafélagi Íslands, sem starfa hjá fyrirtækinu GMT, hafa naumlega samþykkt kjarasamning með átta atkvæðum gegn átta, en sextán félagsmenn vinna hjá fyrirtækinu.

Tekist á um tíu milljóna samkomulag í nauðgunarmáli
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að vísa skuli frá dómi ákæru á hendur manni fyrir nauðgun. Tekist var á um hvort að skjal með samkomulagi sem maðurinn og fyrrverandi sambýliskona hans gerðu, sem fól í sér að hann greiddi henni tíu milljónir króna fyrir þau brot sem hann hafi framið gegn henni, flokkaðist sem nýtt sönnunargagn eða ekki.

Færri leikskólabörn innrituð í Reykjavík í haust vegna framkvæmda
Úthlutun leikskólaplássa í Reykjavík hefst á morgun. Einn leikskóli mun ekki taka við nýjum börnum og endurbætur á húsnæði munu hafa áhrif á innritun sex annarra leikskóla.

Stuðningsmaður Leiknis með þrettán rétta
Ein tippari, sem er stuðningsmaður Leiknis í Reykjavík, var með alla leikina þréttan rétta á Enska getraunaseðlinum síðastliðinn laugardag.

Slagurinn harðnar og bæði saka hitt um ósannindi og óhróður
Enn harðnar kosningabaráttan um formannsstólinn hjá VR en Ragnar Þór Ingólfsson núverandi formaður hefur verið sakaður um að standa fyrir áróðursherferð gegn Höllu Gunnarsdóttur, sem býður sig fram til stjórnar.

Katrín og Þórdís Kolbrún á leið til Úkraínu
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra eru á leið til Kænugarðs í Úkraína til fundar við Volodymyr Zelensky forseta landsins og aðra ráðamenn. Meðal annars verður rætt um þátttöku Úkraínu á leiðtogafundi Evrópuráðsríkja sem fram fer í Reykjavík í maí.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Í hádegisfréttum fjöllum við um skotárásina sem gerð var á The Dubliner í miðborginni í gærkvöldi.

Umfangsmikil leit að skotmanninum: „Ljóst að um hættulegan einstakling er að ræða“
Umfangsmikil leit stendur yfir að byssumanni sem hleypti af skoti á skemmtistaðnum Dubliner í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi. Yfirlögregluþjónn vill ekki gefa upp hvort þau gruni um hvern sé að ræða, en segir háttsemi mannsins benda til þess að þarna sé hættulegur einstaklingur á ferð.

Færri að greinast með inflúensu og innlögnum að fækka
Færri greindust með staðfesta inflúensu í viku níu samanborið við síðustu þrjár vikur. Heildarfjöldi greindra var 38. Þá greindust færri með Covid-19 en hlutfall jákvæðra sýna af var þó svipað og verið hefur.

Hæfi biskups ekki tekið til umræðu í þriðju lotu kirkjuþings
Þriðja þinglota kirkjuþings 2022 til 2023 lauk á laugardag en hæfi biskups, sem hefur verið dregið í efa, var ekki til umræðu. Drífa Hjartardóttir, forseti kirkjuþings, segir málið í höndum kjörstjórnar Þjóðkirkjunnar.

Enn reynt að fá Tálknfirðinga til að sameinast Vesturbyggð
Eftir að hafa ítrekað fellt sameiningu við Vesturbyggð hafa Tálknfirðingar núna samþykkt að hefja viðræður um sameiningu sveitarfélaganna og er stefnt að því að íbúar fái að kjósa um málið fyrir lok þessa árs.

Skotið úr byssu inn á The Dubliner í miðborg Reykjavíkur
Rétt upp úr kl. 19.00 í kvöld fékk lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um að maður hefði komið inn á The Dubliner við Naustina í miðborg Reykjavíkur og hleypt af einu skoti inn á staðnum.

Gul viðvörun á Suðausturlandi
Gul veðurviðvörun verður á Suðausturlandi á morgun. Viðvörunin tekur gildi klukkan 11.

Heilbrigðisráðherra telur þörf á morfínklíník
Heilbrigðisráðherra telur þörf á skaðaminnkandi úrræði þar sem fólk með alvarlegan vímuefnavanda getur fengið og notað morfín undir eftirliti heilbrigðisstarfsfólks. Hann mun stofna starfshóp um aðgerðaáætlun fyrir hópinn og vonast til að geta lagt afraksturinn fyrir þingið næsta vetur.

„Við viljum ekki hægja á umferðinni“
Bæjarstjóri Seltjarnarness gagnrýnir harðlega ákvörðun meirihlutans í Reykjavík um að breyta hringtorgi í vesturbænum í svo kölluð T-gatnamót. Ljósastýrð gatnamót og gönguljós munu reynast farartálmi fyrir Seltirninga á leið til höfuðborgarinnar.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Heilbrigðisráðherra telur þörf á skaðaminnkandi úrræði þar sem fólk með alvarlegan vímuefnavanda getur fengið og notað morfín undir eftirliti. Við ræðum við hann í kvöldfréttum Stöðvar 2 en hann ætlar að stofna starfshóp um aðgerðaáætlun fyrir hópinn og stefnir á að leggja málið fyrir Alþingi næsta vetur.

Edda segir skilið við Eigin konur
Edda Falak mun hætta með hlaðvarpsþættina Eigin konur og þess í stað byrja með nýja þætti á Heimildinni. Þættirnir munu heita Edda Falak og hefja göngu sína í mars.

„Níutíu ára vinna sem reynt er að hafa af okkur“
Landeigendur í Eyjafirði hafa stefnt Skógræktarfélagi Eyfirðinga fyrir Héraðsdóm Norðurlands eystra í því skyni að hafa af félaginu umráðarétt yfir Vaðlaskógi. Skógræktarfélagið er það elsta á landinu.

Leit að Gunnari Svan heldur áfram án þyrlu gæslunnar
Leit að Gunnari Svan Björgvinssyni, sem ekkert hefur spurst til í um hálfan mánuð, heldur áfram í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar verður ekki notuð við leitina, eins og til stóð, vegna bilunar.

Blönduós orðinn þekktur staður á meðal stórborga í Evrópu
Sveitarstjóri Húnabyggðar segir að Blönduós sé orðið þekktur staður á meðal stórborga í Evrópu vegna starfsemi Textílmiðstöðvar Íslands á staðnum. Prjónahátíðin á Blönduósi er hluti af starfsemi textílmiðstöðvarinnar en verður haldin 9. til 11. júní í sumar á Blönduósi.

Sveitarfélögin færi Landsvirkjun milljarðahagnað á silfurfati
Nær engar tekjur skila sér af fasteignagjöldum virkjana, til sveitarfélaga og nærsamfélagsins. Þetta segir sveitastjóri Skeiða og Gnúpverjarhrepps sem vill taka málið til gagngerrar endurskoðunar.

Segir mikil vonbrigði að sjómenn hafi fellt kjarasamninga
Það eru mikil vonbrigði að sjómenn hafi fellt nýgerðan kjarasamning. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Erfitt sé að fullyrða um hvaða atriði það voru sem urðu til þess að kjarasamningurinn hafi verið felldur.

Flugvél Play lenti í Stavanger vegna neyðartilfellis
Flugvél Play á leið frá Berlín til Keflavíkur í morgun þurfti að lenda í Stafangri í Noregi vegna veikinda farþega sem þurfti að komast undir læknishendur.

Segir mönnunarvanda feluorð yfir vanfjármögnun: „Það vantar mannskap vegna þess að það vantar pening“
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, telur þyrlur landhelgisgæslunnar ekki uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til þeirra og hefur áhyggjur af viðbragðsgetu þeirra. Hann telur að þrátt fyrir að á síðustu árum hafi verið gerðar ýmsar úrbætur hafi ferlið ekki þróast í rétta átt hvorki með tilliti til mönnunar né tækjabúnaðar.

Óviss um hvort hann sé enn starfsmaður Twitter
Haraldur Þorleifsson, stofnandi Ueno, segist óviss um hvort hann sé enn starfsmaður Twitter.

Krefjandi aðstæður tollvarða á Íslandi: „Tollgæsla hefur aldrei verið eins veik og hún er núna"
„Farþegafjöldinn er galinn, álagið er sturlað suma daga. Það er ótrúlegt að það gangi svona vel miðað við hvað það er mikið álag og hvað við erum fá.“ Þetta segir íslenskur tollvörður aðspurður um þann veruleika sem tollverðir hérlendis starfa við og og þær áskoranir sem þeir upplifa í störfum sínum.

Með harðsperrur fram á sumar eftir þrekpróf sérsveitarinnar
Sérsveitin hefur aðlagað þrekhluta inntökuprófsins í sveitina að nýjum tímum með breytingum sem eiga að gera möguleika kvenna meiri á því að ná prófinu. Það þýðir samt ekki að það sé verið að slaka á kröfum, meðaljónar geti ekki náð lágmörkum.

Sprengisandur: Virkjanir, iðnaður, flóttafólk og breytingar á verslun
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og hér á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni.

Fluttur á slysadeild eftir gamnislag
Sex gista fangageymslur eftir erilsama nótt lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Á meðal þeirra er aðili sem grunaður er um að hafa verið að stela símum á skemmtistað í miðbænum.

Lifa við stöðugar árásir, hótanir og áreiti: „Það er ekkert gert“
Kona sem hefur mátt þola stöðugar árásir, ógnir, skemmdarverk, hótanir og áreiti af hálfu fyrrum maka segir kerfið hafa brugðist sér. Þrátt fyrir nálgunarbann og fjölda kæra hefur ekkert verið gert. Hún og kærasti hennar óttast hvað maðurinn tekur upp á næst og telja að lögregla sé að bíða eftir því að einhver verði drepinn. Aðgerðarleysið sé algjört.

Leit að Gunnari Svan bar ekki árangur
Leit að Gunnari Svan Björgvinssyni stóð yfir í dag á Eskifirði. Leitað var í fjörum og í sjó sem og í bænum og nágrenni hans. Leit bar ekki árangur.