Innlent

Hættir sem for­maður eftir að hafa greinst með heila­æxli

Atli Ísleifsson skrifar
Karl Ágúst Úlfsson tók við formennsku í Rithöfundasambandi Íslands árið 2018. Hann var endurkjörinn á síðasta ári.
Karl Ágúst Úlfsson tók við formennsku í Rithöfundasambandi Íslands árið 2018. Hann var endurkjörinn á síðasta ári. Vísir/Vilhelm

Karl Ágúst Úlfsson hefur ákveðið að láta af formennsku í Rithöfundasambandi Íslands eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir þremur mánuðum.

Karl Ágúst greinir frá þessu í færslu til félaga í Rithöfundasambandinu Íslands á Facebook. Þar segir hann að æxlið hafi verið skorið burt í aðgerð sem hafi heppnast vel og reynst vera góðkynja. Hann segir heilsuna þó vera þannig að hann eigi langt í land með að geta stundað þau störf sem hann hafi tekið að sér.

Karl Ágúst tók við formennsku í félaginu árið 2018 af Kristínu Helgu Gunnarsdóttur og var endurkjörinn formaður til tveggja ára á síðasta ári.

Áhrif aðgerðarinnar erfið viðureignar

Í færslunni segir hann að áhrif skurðaðgerðar á heila manns geti verið mikil og erfið viðureignar. Hann segir aðgerðina hafa dregið stórlega úr líkamlegri getu sinni, en að hann hafi þó náð að endurheimta hana að hluta með sjúkraþjálfun.

„Það er þó einkum og sér í lagi breytt starfsemi heilans sem háir mér og á að öllum líkindum eftir að skila sér til baka á löngu tímabili. Það hefur kveikt hjá mér alvarlegan efa á að ég búi nú um allnokkurt skeið yfir andlegri og vitsmunalegri getu sem mér þykir nauðsynleg til að sinna formennsku sambandsins jafn vel og æskilegt er,“ segir Karl Ágúst og bætir við að af þeirri ástæðu hafi hann óskað eftir að hætta sem formaður Rithöfundasambandsins.

Margrét Tryggvadóttir, varaformaður Rithöfundasambands Íslands. Vísir/Vilhelm

Margrét tekur við skyldum formanns

Margrét Tryggvadóttir, varaformaður Rithöfundasambandsins, mun gegna skyldum formanns þar til að annað verður ákveðið.

„Ég tel það þó rétta ákvörðun og óska eftir að einhver taki við keflinu sem ræður við það betur en ég um þessar mundir. Loks vil ég þakka það traust sem mér hefur verið sýnt og gott samstarf við annað stjórnarfólk, samninganefndir og alla þá sem tekið hafa að sér að þjóna hagsmunum rithöfunda á öllum sviðum,“ segir í lok færslu Karls Ágústs.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×