Fleiri fréttir

Hefur óskað eftir fundi með vinnumarkaðsráðherra vegna útspils sáttasemjara
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar hefur óskað eftir fundi með félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra en hún birti bréf þess efnis á Facebook síðu sinni. Hún segir traust verkalýðsfélaga til ríkissáttarsemjara skert og framferði hans óþolandi.

Undarleg hljóð reyndust húsráðandi að berja svínakjöt með hamri
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í gærkvöldi vegna háværra dynkja sem bárust frá íbuð í hverfi 105. Þegar á vettvang var komið kom í ljóst að dynkirnir áttu sér eðlilegar skýringar. Húsráðandi var að berja svínakjöt með kjöthamri með tilheyrandi látum.

Sprengisandur: Ný þjóðarhöll, kjaradeilur og hatursorðræða
Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu. Kristján Kristjánsson mun byrja á því að ræða við Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóra Íslandsbanka. Hann ætlar að rekja starfssögu sína.

Landsréttur sneri sýknu vanhæfa dómarans við
Landsréttur hefur dæmt Reykjavíkurborg til að greiða fyrrverandi starfsmanni skaðabætur vegna blöðruboltaslyss. Landsréttur hafði áður sýknað borgina en einn dómara við Landsrétt var talinn vanhæfur vegna þess að hann var borgarlögmaður þegar slysið var tilkynnt til embættisins. Málið rataði til Hæstaréttar og svo aftur til Landsréttar, sem hefur nú komist að annarri niðurstöðu.

„Hraðakstur er dauðans alvara“
Betur fór en á horfðist þegar tveir bílar, sem komu úr gagnstæðri átt, lentu saman á Seltjarnarnesi. Sjónvarvottar telja að annar þeirra hafi verið á hátt í hundrað kílómetra hraða. Varðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar biðlar til fólks að aka varlega og eftir aðstæðum.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Í kvöldfréttatíma Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö segum við frá glæfraakstri sem endaði með árekstri tveggja bíla þar sem fimm þurftu að fara á spítala. Að sögn lögreglu var hluti farþega ekki í bílbelti en enginn slasaðist alvarlega.

Sá bílinn sinn í miðri umferð en þekkti ekki ökumanninn
Eigandi bíls rakst á bílinn sinn í miðri umferð á höfuðborgarsvæðinu í dag en kannaðist ekki við ökumanninn. Hann hringdi á lögreglu og í ljós kom að bílnum hafi verið stolið.

Fordæma framgöngu ríkissáttasemjara
Sósíalistaflokkur Íslands hefur bæst í hóp þeirra sem fordæma framgöngu ríkissáttasemjara í yfirstandandi kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Í ályktun félagsfundar Sósíalistaflokssins er ríkissáttasemjari sagður leggja alla áherslu á að ganga frá samningum við önnur félög en láta kjaradeilu Eflingar sitja á hakanum.

Brotnaði gjörsamlega eftir netníð og persónuárásir
Helga Gabríela Sigurðardóttir, kokkur og eiginkona Frosta Logasonar fjölmiðlamanns, segist sjá eftir því hvernig hún tók til varna á Twitter í vikunni. Síðasta ár hafi reynst henni gríðarlega erfitt eftir að fyrrverandi kærasta Frosta sakaði hann um andlegt ofbeldi fyrir áratug. Hún hafi aldrei viljað tjá sig en einfaldlega brotnað vegna netníðs og persónuárása í garð eiginmannsins.

Lýsir aðdraganda bílslyssins á Seltjarnarnesi
Kona sem varð vitni að alvarlegum árekstri á Seltjarnarnesi í gærkvöld segir betur hafa farið en á horfðist þegar tveir bílar skullu saman eftir kappakstur tveggja ungra ökumanna.

Telur brottkastið enn umfangsmeira og fagnar auknu eftirliti
Sviðsstjóri hjá Fiskistofu fagnar ákvörðun matvælaráðherra um að styrkja stofnunina til aukins eftirlits með brottkasti. Hún telur brottkast meira en fram hefur komið. Nánast annað hvert skip sem drónar Fskistofu hafi flogið yfir hafi verið staðið að brottkasti.

Atkvæðagreiðslan skrumskæling á lýðræði
Forysta Eflingar mun í dag heimsækja félagsmenn sína, sem munu leggja niður störf verði verkfallsaðgerðir samþykktar, og hvetja þá til að hafna miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Þingmaður Samfylkingarinnar segir tíma til kominn að Alþingi endurskoði reglur um miðlunartillgöru ríkissáttasemjara.

Bein útsending: Hvað er hugsun?
Hvað er hugsun? er heitið á fræðslufundi Íslenskrar erfðagreiningar þar sem fjórir fyrirlesarar velta fyrir sér hvernig hugsun fæðist og hvaða þýðingu fyrirbærið hugsun hefur fyrir alla okkar tilveru.

Áreksturinn varð eftir kappakstur ungra manna
Alvarlegt bílslys varð á Seltjarnarnesi í gærkvöldi eftir kappakstur tveggja ungra ökumanna. Fimm voru fluttir á slysadeild í kjölfarið.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Alvarlegt slys varð í gær eftir að tveir ungir ökumenn kepptu í svokallaðri spyrnu í Vesturbænum. Hiti færist í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins og fara fulltrúar stéttarfélagsins á hótel í dag til að hvetja félagsmenn til að hafna miðlunartillögu ríkissáttasemjara.

Kýrin Fata mjólkar mest allra kúa á Íslandi
Afurðahæsta kýr landsins á nýliðnu ári er Fata á bænum Gunnbjarnarholti í Skeiða og Gnúpverjahreppi. Fata, sem er að verða átta ára og hefur eignast fimm kálfa, þar af tvær kvígur mjólkaði tæplega fimmtán þúsund lítra af mjólk á 11 mánaða tímabili.

Beit lögreglumann þegar afskipti voru höfð af honum
Einstaklingur var handtekinn grunaður um hótanir og líkamsárás í Hlíðum í Reykjavík. Beit sá lögreglumann þegar afskipti voru höfð af honum, af því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Einstaklingurinn var í kjölfarið vistaður í fangageymslu í tengslum við rannsókn málsins.

Alvarlega slasaður eftir harðan árekstur á Seltjarnarnesi
Fimm slösuðust eftir harðan tveggja bíla árekstur á Norðurströnd á Seltjarnarnesi á tólfta tímanum í kvöld, þar af einn alvarlega. Unnið er að því að koma fólki á sjúkrahús.

„Það er það sem maður óttast“
Borgarland Reykjavíkurborgar minnkar um meira en 200 fermetra ef borgarráð samþykir nýtt deiliskipulag fyrir umdeilt tún við Vesturbæjarlaug. Borgarfulltrúi minnihlutans segir slæmt ef málið verður fordæmisgefandi.

Gægjuþörfin meiri hjá þeim sem fylgjast með raunveruleikasjónvarpi
Sálfræðikennari segir fólk sem fylgist vel með samfélagsmiðlastjörnum og raunveruleikasjónvarpi hafa meiri „gægjuþörf“ en aðrir. Forvitnin skýrist af áhuga fólks á því að fylgjast með öðrum. Suma dreymi jafnvel um að feta í fótspor áhrifavalda.

Galdurinn að langlífi: „Ég er búin að spila bridds í 60 ár“
Múlabær, dagþjálfun fyrir aldraða og öryrkja er 40 ára á árinu og í tilefni af því var slegið til heljarinnar samkvæmis í húsakynnum félagsins í Síðumúla í dag. Tugir nýta þjónustuna á hverjum degi en það þarf fleiri slík úrræði segir forstöðukona Múlabæjar. Notandi segir þjónustuna mjög góða.

Grasrótin hristir upp í VG fyrir fund um útlendingamál
Hópur fólks innan Vinstri grænna segir nýtt frumvarp um útlendinga einkennast af útlendingaandúð. Frumvarpið virðist hafa það að markmiði að neita fleirum um hæli á enn meiri hraða en áður.

Forseti bæjarstjórnar á Akureyri ákærður vegna hoppukastalaslyssins
Heimir Örn Árnason, forseti bæjarstjórnar á Akureyri, er meðal fimm ákærðra í máli vegna slyss í hoppukastala á Akureyri fyrir einu og hálfu ári síðan. Sakborningarnir eru taldir hafa sýnt af sér aðgæsluleysi og vanrækslu.

Ríkissáttasemjari vísar deilu um kjörskrá Eflingar til héraðsdóms
Ríkissáttasemjari hefur óskað eftir liðsinni Héraðsdóms til að fá kjörskrá Eflingar afhenta í tengslum við atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu hans í kjaradeilu félagsins og Samtaka atvinnulífsins. Fjölmenn stéttarfélög opinberra starfsmanna og stjórn Starfsgreinasambandsins hafa ályktað gegn framlagningu miðlunartillögu og segja hana grafa undan rétti stéttarfélaga.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Heimir Már Pétursson fréttamaður hefur fylgst með kjaradeilu Eflingar og SA í dag. Ríkissáttasemjari hefur óskað eftir liðsinni Héraðsdóms til að fá kjörskrá Eflingar afhenta í tengslum við atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu hans í kjaradeilu félagsins og Samtaka atvinnulífsins.

Erlendur risi í samkeppni við íslenska aðila um nýja Björgunarmiðstöð
Níu arkitektastofur tóku þátt í forvali fyrir samkeppni um húsnæði löggæslu- og viðbragðsaðila. Þátttökubeiðnum var skilað þann 17. janúar. Meðal þátttakenda eru stórir erlendir aðilar. Þetta kemur fram í ný fréttabréfi Framkvæmdasýslunnar.

Sátti sameinar stéttarfélögin: Keppast við að gagnrýna ákvörðun ríkissáttasemjara
Fjögur stéttarfélög hafa gagnrýnt ríkissáttasemjara fyrir inngrip hans í kjaradeilu Eflingar og SA. Starfsgreinasambandið segir ákvörðunina ótímabæra og þrjú félög gera alvarlegar athugasemdir við hana.

Oddviti tekur við verkefnum sveitarstjórans eftir uppsögn
Gerði Sigtryggsdóttur, oddvita sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar, hefur verið falið að taka tímabundið við starfi sveitarstjóra þar til nýr hefur verið ráðinn í starfið. Jón Hrói Finnsson, sem tók við starfi sveitarstjóra síðasta sumar, lagði á dögunum fyrir sveitarstjórn uppsagnarbréf sitt.

Rak höfuðið í lögreglubíl við störf og fær bætur
Íslenska ríkið þarf að greiða lögreglumanni sem slasaðist er hann rak höfuðið í þegar hann settist í lögreglubíl tæpar sex milljónir í bætur vegna slyssins.

Esther, Kristín og Jóhanna heiðraðar af Kvenréttindafélagi Íslands
Þrjár konur sem hafa látið sig kvenréttindi varða svo áratugum skiptir voru heiðraðar á 116 ára afmæli Kvenréttindafélags Íslands í Iðnó í Reykjavík í hádeginu.

Gerði eggvopn úr gaffli og notaði AA-fund til að komast að fórnarlambinu
Fangi í gæsluvarðhaldsfangelsinu á Hólmsheiði notaði sérútbúið eggvopn til þess að ráðast að manni fyrr í vikunni. Hann nýtti sér AA-fund til að komast að fórnarlambinu sem var vistað á öðrum gangi. Árásin tengist deilu tveggja hópa í tengslum við hnífstunguárás á Bankastræti Club. Fangelsismálastjóri segir að nokkuð sé um haldlagningar á heimagerðum vopnum.

Segir atburði síðustu helgar ekki hafa áhrif á aflýsingar dagsins
Öllu flugi Icelandair í morgun var aflýst vegna veðurs en mikið hvassviðri var á landinu í nótt og í morgun. Verklag félagsins er óbreytt eftir að farþegar þurftu að sitja í vélum félagsins tímunum saman um síðustu helgi.

Átök um næstu skref í Íslandsbankamálinu
Minnihlutinn í stjórnskipunar-og eftirlitsnefnd Alþingis óskaði í vikunni eftir því að fengið yrði lögfræðiálit á sölunni á Íslandsbanka. Meirihlutinn felldi tillöguna. Formaðurinn lýsir vonbrigðum með að málið hafi farið ofan í hefðbundnar skotgrafir.

Atkvæðagreiðsla um miðlunartillögu í algjöru uppnámi
Ríkissáttasemjari segir engan lagalegan vafa leika á um skýra heimild hans til að leggja fram miðlunartillögu og aðgang hans að kjörskrá Eflingar. Efling ætlar ekki að afhenda Advania fyrir hönd ríkissáttasemjara félagatal sitt svo hægt verði að framkvæma atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu hans.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Í hádegisfréttum fjöllum við um kjaradeilu Eflingar og gagnrýni félagsins á störf Ríkissáttasemjara. Efling ætlar ekki að afhenda honum félagatal sitt svo hægt sé að efna til atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu sáttasemjara.

Arnar Már skipaður nýr ferðamálastjóri
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur skipað Arnar Má Ólafsson til að gegna embætti ferðamálastjóra. Hann tekur við stöðunni af Skarphéðni Berg Steinarssyni.

Borgarlandið umdeilda sem stækkar við að minnka
Borgarland Reykjavíkurborgar mun minnka um 236 fermetra samþykki borgarráð nýtt deiluskipulag Sundlaugartúnsins í Vesturbæ borgarinnar. Engu að síður er ákvörðunin kynnt þannig að svokallað „opið borgarland“ muni með breytingunni stækka, þrátt fyrir að skipulag svæðisins hafi fyrir breytinguna gert ráð fyrir að um opið leiksvæði væri að ræða.

Mynd náðist óvænt af bófanum sem braust inn í bíl prófessorsins
Sigríður Þorgeirsdóttir prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands, lenti í heldur í óskemmtilegri reynslu í vikunni. Ekki var sjón að sjá volvo-bifreið hennar þegar hún kom þar að nú um miðja vikuna. Búið var að smalla rúðu í bílnum og hafa allt fémætt úr bílnum.

Hæstiréttur hafnar beiðni aðgerðarsinna
Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Elínborgar Hörpu- og Önundarburs, aðgerðarsinna og baráttukvár fyrir réttindum flóttafólks, um að taka fyrir dóm Landsréttar frá í nóvember síðastliðinn þar sem Elínborg var dæmt í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þrjú brot.

Doktor og fyrrverandi bæjarstjóri vilja taka við af Skúla Eggerti
Sjö sóttu um embætti ráðuneytisstjóra menningar- og viðskiptaráðuneytisins, en staðan var auglýst þann 27. desember 2022 og umsóknarfrestur rann út þann 23. janúar síðastliðinn.

HÍ vantar milljarð til viðbótar á þessu ári til að ná endum saman
Háskóli Íslands hefur þurft að skera niður kennslu vegna fjárskorts en skólann vantar milljarð til viðbótar á þessu ári til að ná endum saman. Staðan er sérstaklega slæm hjá Heilbrigðisvísindasviði og Menntavísindasviði og enn meiri niðurskurður í vændum á næsta ári verði ekki gripið til aðgerða.

Ekki á þeim buxunum að afhenda félagatalið
Forsvarsmenn stéttarfélagsins Eflingar telja nauðsynlegt að dómstólar leysi úr lögmæti ákvörðunar ríkisáttasemjara um að leggja fram miðlunartillögu í kjaradeilu félagsins og Samtaka atvinnulífsins. Félagið virðist ekki á þeim buxunum að afhenda embættinu félagatal sitt svo halda megi rafræna kosningu um miðlunartillögu.

Ekki á dagskrá að afnema stimpilklukku fyrir grunnskólakennara borgarinnar
Meirihlutinn í borgarráði Reykjavíkurborgar hefur vísað frá tillögum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Flokks fólksins að unnið verði að því að afnema notkun stimpilklukku fyrir kennara sem starfa í grunnskólum borgarinnar.

Lögreglumenn óöruggir og framleiðandinn firrir sig ábyrgð
Sérfræðinga sem hafa látið sig rafbyssur varða greinir á um hvort vopnin eru banvæn eða ekki. Fyrir þessu eru að minnast kosti tvær ástæður; vísindasiðareglur gera rannsóknir ómögulegar og þá hefur reynst erfitt að rekja dauðsföll í kjölfar rafbyssuskots til einnar afmarkaðrar orsakar.

Lögreglumenn fagna nýjum reglum ráðherra um vopnanotkun
Stjórn og trúnaðarmannaráð Landssambands lögreglumanna fagnar ákvörðun dómsmálaráðherra um útgáfu reglna um valdbeitingu lögreglumanna og meðferð og notkun valdbeitingartækja og vopna.