Fleiri fréttir

Óvissustigi Almannavarna aflétt
Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórana á Suðurlandi, Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu aflýst óvissustigi Almannavarna á svæðinu. Sömuleiðis hefur samhæfingarstöð Almannavarna sem opnuð var í nótt, verið lokað.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri maður ársins
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er maður ársins hjá fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Valið var kunngjört í beinni útsendingu í Kryddsíldinni rétt í þessu. Ljóst er að Ásgeir hefur með ákvörðunum sínum haft gríðarleg áhrif á daglegt líf Íslendinga á árinu.

Lét ríkisstjórnina heyra það: „Voga þú þér ekki að gera það þarna rasistinn þinn“
Inga Sæland formaður Flokks fólksins lét ríkisstjórnina heyra það í Kryddsíldinni í dag. Hún sagði grundvallarmannréttindi vanvirt, fjölmargir Íslendingar lepji dauðann úr skel. Galið sé að halda því fram að hægt sé að opna faðminn fyrir hverjum þeim, sem koma vill hingað til lands.

Þriðjungur vill sjá Kristrúnu sem fjármálaráðherra
Maskína spurði í nýlegri könnun um frammistöðu formanna stjórnmálaflokkanna á Alþingi á yfirstandandi kjörtímabili og niðurstöðurnar voru um margt forvitnilegar. Þá var spurt hver eigi að vera forsætisráðherra og hver fjármálaráðherra.

Brennum og flugeldasýningu á Selfossi aflýst
Vegna veðurs hefur áramótabrennum og flugeldasýningu Árborgar verið aflýst.

Stjórnvöld þurfi að opna augun
Sjötíu prósent Íslendinga ná endum saman hver mánaðamót þrátt fyrir talsverða verðbólgu og erfiðar markaðsaðstæður. Tæp 30 prósent eiga í erfiðleikum með að ná endum saman og hluta þeirra tekst það alls ekki og er farinn að safna skuldum. Forseti Alþýðusambandsins segir stjórnvöld þurfa að opna augun fyrir stöðu fólks.

Bein útsending: Hádegisfréttir Stöðvar 2 og Bylgjunnar
Gamlársdagsveðrið á suðvesturhorninu er heldur skaplegra en búist var við en óvissustigi almannavarna var lýst yfir í gær og mikill viðbúnaður settur af stað. Gular veðurviðvaranir eru áfram í gildi á suður- og vesturlandi og hringveginum við Vík var lokað í morgun.

Haraldur maður ársins hjá lesendum Vísis og hlustendum Bylgjunnar
Haraldur Ingi Þorleifsson er maður ársins 2022 að mati lesenda Vísis og hlustenda Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Valið var kunngjört í þættinum Reykjavík árdegis á Bylgjunni rétt í þessu.

Brennur staðfestar með fyrirvara
Brennufundur var haldinn rétt í þessu í Skógarhlíðinni þar sem ákveðið var að áramótabrennur megi fara fram í dag samkvæmt fyrri áætlun. Þó er fyrirvari til staðar vegna veðurs.

Annálar ársins 2022: Stríð, dauði drottningar, mygla, mistök og tásumyndir
Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar rifjaði í desember upp það helsta sem gerðist á árinu sem er að líða í formi tuttugu annála sem birtir voru alla virka daga. Hér að neðan má finna alla annála ársins.

Sæbraut lokuð vegna gamlárshlaups ÍR
Sæbraut verður lokuð frá kl. 11:00-13:30 vegna Gamlárshlaups ÍR.

Loka hringvegi milli Markarfljóts og Víkur
Vegagerðin hefur lokað hringvegi á milli Markarfljóts og Víkur.

Sló mann í höfuðið með pönnu
Lögreglan á höfuðborgarsvæði var kölluð til í gærkvöldi í úthverfi Reykjavíkurborgar vegna meiriháttar líkamsárásar þar sem maður hafði slegið annan mann í höfuðið með pönnu.

Ísþoka við Elliðaár í 25,3 stiga gaddi
Frostið í Víðidal í Reykjavík í dag mældist mest 25,3 gráður, samkvæmt tölum Veðurstofu Íslands. Þetta er mesta frost í borginni í kuldkastinu til þessa en fáheyrt er að svo mikill kuldi mælist innan borgarmarkanna.

„Maður hefur nú sennilega ekki séð það svartara“
Óvenjumiklum snjó hefur kyngt niður á Eyrarbakka síðustu daga, íbúum til mismikillar ánægju.

Segir skárra að fá í sig rafstraum en kylfuhögg
Formaður Landssambands lögreglumanna segir lögreglumenn fagna ákvörðun dómsmálaráðherra um að breyta reglugerð til þess að heimila lögreglunni að bera svokölluð rafvarnarvopn, sem í daglegu tali eru kölluð rafbyssur.

Mikil tilhlökkun fyrir nýjum miðbæ á Höfn
Mikil eftirvænting er hjá íbúum á Höfn í Hornafirði fyrir nýjum miðbæ, sem er nú búið að teikna upp og er verið að undirbúa að byggja. Nýi miðbærinn verður í gömlum stíl líkt og miðbærinn á Selfossi.

Rannsaka andlát hreyfihamlaðs manns í Breiðholtsslaug
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur andlát hreyfihamlaðs manns í Breiðholtslaug til rannsóknar. Talið er að hann hafi legið hreyfingarlaus á botni heits potts í um þrjár mínútur áður en sundlaugargestur kom að honum. Maðurinn var á áttræðisaldri þegar hann lést í byrjun desember.

Samfylkingin orðin stærsti flokkur landsins samkvæmt könnun
Samfylkingin er stærsti flokkur landsins, með örlítið forskot á Sjálfstæðisflokkinn, samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofu. Stjórnmálafræðingur segir þetta mikil tíðindi - og allt Kristrúnu Frostadóttur að þakka.

Hugsanlegt að þjónusta Strætó verði skert á morgun
Vegna veðurs og færðar á morgun gæti verið að þjónusta Strætó skerðist á morgun, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni.

Ríkissjóður kaupir meirihluta Landsnets á um 63 milljarða króna
Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Landsvirkjun, RARIK og Orkubú Vestfjarða hafa náð samningum um kaup ríkisins á 93,22 prósent eignarhlut fyrirtækjanna í Landsneti hf.. Eftir stendur 6,78 prósent hlutur Orkuveitur Reykjavíkur í Landsneti.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Almannavarnir lýsa yfir óvissustigi vegna óveðurs sem gengur yfir á morgun. Flugi verður seinkað og aðrar samgöngur gætu farið úr skorðum. Við ræðum við Víði Reynisson yfirlögregluþjón hjá almannavörnum í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30.

Óvissustigi Almannavarna lýst yfir: Útilokar hvorki brennur né flugelda
Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið að lýsa yfir óvissustigi Almannavarna í samráði við lögreglustjórana á Suðurlandi, Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu, vegna óveðurs sem hefst í nótt. Yfirlögregluþjónn segir þó ekki útséð um að unnt verði að halda áramótabrennur annað kvöld.

Appelsínugul viðvörun á morgun og Vegagerðin í viðbragðsstöðu
Appelsínugul viðvörun tekur gildi klukkan sjö á gamlársmorgun á Suðurlandi og gular viðaranir verða víða í gildi á morgun. Vegagerðin er í viðbragðsstöðu vegna hugsanlegra lokana á Reykjanesbraut í nótt.

„Við verðum að leyfa kerfinu að fá aðeins að anda“
Mannekla er helsta áskorunin þegar kemur að uppbyggingu leikskólakerfisins í Reykjavík að sögn borgarfulltrúa Samfylkingarinnar en fjölmargir leikskólakennarar hafa flutt sig yfir í grunnskólana. Formaður Félags leikskólakennara segir leikskólastigið ekki ráða við mikið meira og að kerfið hafi stækkað allt of hratt. Jafna þurfi starfsaðstæður, til að mynda með styttingu vinnuvikunnar.

Borholuhús sem hefur áhrif á heita vatnið á höfuðborgarsvæðinu brann í nótt
Eldur kviknaði í borholuhúsi Veitna í Mosfellssveit í nótt með þeim afleiðingum að stór og öflug borhola er dottin úr rekstri tímabundið. Frá þessu er grein á vef Veitna. Viðbúið er að íbúar í einhverjum hverfum á höfuðborgarsvæðinu finni fyrir þrýstingsfalli heita vatnsins.

Talsvert um nauðung á hjúkrunarheimilum og lagt til að þrengja heimildir
Talsvert er um að nauðung sé beitt á hjúkrunarheimilum og eru læsingar og fjötrun algengustu aðferðirnar. Samráðshópur skipaður af heilbrigðisráðherra leggur til að þrengja heimildir til beitingu nauðungar og setja auknar skorður við framkvæmdina.

Seinka öllu flugi í Keflavík á morgun
Öllum flugferðum Icelandair frá Keflavíkurflugvelli verður seinkað á morgun, gamlársdag, vegna veðurs. Útlit er fyrir erfið akstursskilyrði á Reykjanesbraut og í Reykjanesbæ í fyrramálið.

Lögreglan óskar eftir vitnum að banaslysi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Höfðabakka í Reykjavík aðfaranótt laugardagsins 10. desember síðastliðinn, þar sem ekið var á gangandi vegfaranda sem lést.

Steinhissa á boðuðum rafbyssum án frekari umræðu
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur ákveðið að gera breytingar á reglugerðum sem myndu heimila lögreglumönnum að bera rafvarnarvopn, eða svokallaðar rafbyssur. Þingkona Vinstri grænna segir ákvörðunina koma sér verulega á óvart. Skoða ætti aðrar leiðir. Fleiri landsmenn eru andvígir auknum vopnaburði lögreglu en fylgjandi.

Jólagóðverk á Akureyri: „Ég opnaði bréfið við kassann og fór strax að gráta“
„Þetta var svo ótrúlega fallegt. Ég er bara 18 ára og var svakalega brugðið,“ segir Katrín Sylvía Brynjarsdóttir starfsmaður Bónuss á Akureyri. Stuttu fyrir jól fékk Katrín óvæntan glaðning, frá viðskiptavini verslunarinnar sem hún þekkir ekki neitt en hefur þó oft afgreitt.

Áramótin gætu „horfið í dimmt él“
Áramótin á höfuðborgarsvæðinu gætu horfið í dimmt él, að sögn veðurfræðings, en gular hríðarviðvaranir taka gildi á suður- og vesturhluta landsins á morgun - og Vegagerðin varar við vegalokunum. Þá ríkir enn óvissa um hvort gamlársbrennur, þær fyrstu frá upphafi faraldurs, verði tendraðar á höfuðborgarsvæðinu.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Í hádegisfréttum fjöllum við um ákvörðun dómsmálaráðherra að heimila lögreglu að nota rafbyssur.

Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2022
Fjölmargir þjóðþekktir Íslendingar kvöddu á árinu 2022 sem senn líður undir lok.

Lögregla kölluð til vegna öskrandi aðila á bílskúrsþaki sem reyndist vera að losa um spennu
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í nótt um öskrandi aðila á bílskúrsþaki, beran að ofan. Þegar lögregla kom á vettvang og gaf sig á tal við manninn kom í ljós að hann hafi farið út að öskra til að losa um spennu. Þá var tilkynnt um nágranna sem rifust vegna snjómoksturs og sofandi aðila í snjóskafli.

Allt um Kryddsíld 2022: Gestir í sal, húsband á staðnum og ólíkur hópur frá því í fyrra
Kryddsíld Stöðvar 2 verður á sínum stað í beinni útsendingu klukkan tvö á síðasta degi ársins, 31. desember. Þar koma saman leiðtogar allra stjórnmálaflokka á Alþingi og gera upp árið 2022 hvort tveggja á sviði stjórnmálanna og í hinu persónulega lífi.

Bak við tjöldin: Hrakfarir og hlátursköst
Fréttamenn að mismæla sig, viðmælendur í hláturskasti, spaugilegar hrakfarir og fyndnar aðstæður. Við skyggnumst á bak við tjöldin í síðasta annál þessa árs.

Hyggst heimila lögreglumönnum að bera rafvopn
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur ákveðið að gera nauðsynlegar reglugerðarbreytingar til að heimila lögreglu að hefja innleiðingarferli að því er varðar notkun rafvopna.

Öskrandi á bílskúrsþaki, sofandi í snjóskafli og snjóerjur nágranna
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í heldur óvenjulegt útkall í gær þegar hún var kölluð til vegna manns sem var sagður standa uppi á bílskúrsþaki, ber að ofan og öskrandi.

Forval verktaka að hefjast vegna nýrrar Ölfusárbrúar
Forval vegna smíði nýrrar Ölfusárbrúar verður auglýst í janúar og er stefnt að því að framkvæmdir hefjist síðla næsta árs. Brúarsmíðin verður þó talsvert seinna á ferðinni en búið var að lofa kjósendum.

„Vonandi helst ljósið á“
Neyðarástand skapaðist þegar Reyðarfjörður og nágrenni var án hita og rafmagns í fimm klukkustundir í dag, að sögn framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Rariks. Bæjarfulltrúi segir íbúum hafa brugðið enda mikið frost á svæðinu. Vísbendingar eru um að bilunar gæti enn og rafmagn gæti því dottið aftur út tímabundið.

Fólk hvatt til að vera sem minnst á ferðinni á gamlársdag
Veðurstofa Íslands spáir vonskuveðri á síðasta degi ársins og mælist til þess að fólk nýti morgundaginn í útréttingar fyrir veisluhöld á gamlárskvöld og til að ferðast á milli landshluta.

Mikil ánægja með heimsókn Geðlestarinnar í Flóaskóla
Geðlestin hefur nú lokið heimsóknum sínum í grunn- og framhaldsskóla landsins en alls voru 174 skólar heimsóttir. Tilgangur heimsóknanna var að kynna mikilvægi þess að leggja stund á geðrækt frá fæðingu og út allt lífið.

Ætla ekki að láta kyrrt liggja fyrr en fullnægjandi svör hafa borist
Einungis ófullnægjandi gögn hafa borist ríkislögreglustjóra frá lögreglunni í dóminíska lýðveldinu í máli Hrafnhildar Lilju sem myrt var fyrir fjórtán árum. Þetta segir yfirlögregluþjónn sem ætlar ekki að láta kyrrt liggja fyrr en fullnægjandi svör hafi borist.

Ísfirðingar fengu loksins dýpkunarskip
Dýpkunarskip Björgunar kom loksins til Ísafjarðar í gær til þess að dýpka Sundahöfn. Dýpkun hafnarinnar átti upphaflega að hefjast í maí síðastliðnum. Hafnarstjórinn kveðst ánægður með að unnt verði að hefjast handa á réttu ári.