Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Víða rigning en slydda til fjalla Í dag verður úrkomumeira en í gær og heldur meiri vindur en að mörgu leiti ekki svo frábrugðið. Hiti á Suður- og Vesturlandi verður að sex stigum og víða rigning en slydda til fjalla. 28.11.2021 07:22
Töluvert um akstur undir áhrifum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stóð í ströngu í gærkvöldi og í nótt við að hafa afskipti af ökumönnum sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis. 28.11.2021 07:18
Svipurinn á Alla ríka áður en sonurinn fékk það óþvegið „Þetta er svona svipur sem maður þekkir vel. Þetta var svona kannski rétt áður en maður fékk að heyra það óþvegið,“ segir Kristinn Aðalsteinsson glettinn þar sem hann virðir fyrir sér málverkið af föður sínum, Aðalsteini Jónssyni, á heimili sínu á Eskifirði. 28.11.2021 06:30
Hart tekist á um bílaumferð um nýja miðbæ Selfoss Íbúar Selfoss virðast þurfa að búa sig undir harðan ágreining um álitamál sem íbúar Reykjavíkur hafa deilt um í áraraðir, á að leyfa bílaumferð í miðbænum? 27.11.2021 23:25
Stálheppinn lottóspilari hreppti tæpar 35 milljónir króna Fyrsti vinningur upp á 34,8 milljónir króna gekk út í lottódrætti kvöldsins. Vinningsmiðinn var keyptur í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði. 27.11.2021 22:28
Áhugavert að börn séu hlynnt klámbanni og telur fulla ástæðu að skoða það Forsætisráðherra telur fulla ástæðu til að skoða hvort tilefni sé til að banna klámáhorf barna. Hann segir áhugavert að börn og unglingar séu fylgjandi slíku banni. 27.11.2021 21:39
Öflugt handverksfólk á Suðurnesjum Handverksfólk af öllum Suðurnesjum hefur nú meira en nóg að gera fyrir jólin við að framleiða vörur á markað, sem hópurinn stendur að í Grófinni í Keflavík. Tuttugu og fjórir handverksmenn standa að markaðnum, sem er opinn allt árið. 27.11.2021 21:13
Allir stjórnarflokkar samþykkja áframhaldandi samstarf Fundi Vinstri grænna, þar sem farið var yfir nýjan stjórnarsáttmála, lauk nú rétt fyrir sjö. Sáttmálinn var samþykktur með áttatíu prósent atkvæða. Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn samþykktu sáttmálann fyrr í dag, nánast einróma. 27.11.2021 19:48
Ekkert reyndist að óttast í Leifsstöð Nokkur viðbúnaður lögreglu var við Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrr í kvöld þar sem ferðataska hafði verið skilin eftir. 27.11.2021 19:13
Árekstur tveggja bíla á Suðurgötu Tveir bílar skullu saman við gatnamót Suðurgötu og Hjarðarhaga rétt í þessu. 27.11.2021 18:41
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sjálfstæðisflokkur fær flest ráðuneyti og Framsókn fær heilbrigðisráðuneyti, samkvæmt heimildum fréttastofu og Innherja um nýjan stjórnarsáttmála sem kynntur var flokkunum í dag. Við förum yfir skiptingu ráðuneyta eftir flokkum í kvöldfréttum Stöðvar 2 í beinni útsendingu klukkan hálf sjö. 27.11.2021 18:23
Enginn alvarlega slasaður eftir fimm bíla umferðaróhapp Tólf manns í fimm bifreiðum lentu í umferðaróhappi um tuttugu kílómetra austur af Vík í Mýrdal klukkan rúmlega fjögur í dag. Allir eru flokkaðir „grænir“ að sögn Lögreglunnar á Suðurlandi. 27.11.2021 17:34
Stöðugt streymi fólks í hraðpróf um helgina Gífurlega mikil aðsókn hefur verið í hraðpróf á Suðurlandspróf um helgina. Mat var sett í fjölda þeirra sem mættu í gær og þúsundir hafa einnig mætti í dag. 27.11.2021 16:33
Öllum frá hááhættusvæðum gert að fara í fimm daga sóttkví Þeir sem koma til landsins frá svæðum sem skilgreind eru sem hááhættusvæði munu þurfa að fara í PCR-próf við komuna til landsins. Eftir það munu þau þurfa í fimm daga sóttkví og að því loknu annað PCR-próf. 27.11.2021 15:48
Sjö smitaðir á Grund Sjö heimilismenn hafa greinst smitaðir af Covid-19 á A2 deild hjúkrunarheimilisins Grund í Reykjavík. Þá hafa fjórir starfsmenn greinst smitaðir en fleiri starfsmenn hjúkrunarheimilisins hafa farið í skimun. 27.11.2021 14:45
„Það virðist sem fólk sjái ekki hvert annað“ Of mörg alvarleg umferðarslys hafa orðið á höfuðborgarsvæðinu í mánuðinum, að mati yfirlögregluþjóns. Skammdegið skapi hættuástand. 27.11.2021 13:44
Vinnur að tillögum að hertum aðgerðum á landamærunum Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hyggst skila inn minnisblaði til heilbrigðisráðherra um tillögur að hertum aðgerðum vegna Ómíkrons-afbrigðis kórónuveirunnar. 27.11.2021 13:31
Funda stíft um stjórnarsáttmálann í dag Stofnanir stjórnarflokkanna funda í dag þar sem stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar verður kynntur. Eftir þingflokksfund stjórnarflokkanna á morgun verður stjórnarsáttmálinn síðan kynntur opinberlega en formenn stjórnarflokkanna hafa lítið viljað gefa upp um innihald hans. 27.11.2021 13:30
Börn veikjast við að hristast í skólabíl um Vatnsnesveg Sveitarstjóri Húnaþings vestra segir að skólabörn komi oft veik í skólann á Hvammstanga eftir að hafa hrists í langan tíma í skólabíl, sem keyra Vatnsveginn, sem er nánast ófær vegna lélegs ástands og margra hola. Hópfjármögnunum á Karolinafund er nú hafin fyrir endurbótum á veginum en ætlunin er að safna þar hundrað milljónum króna. 27.11.2021 13:15
Mögulegt að slakað verði á sóttkvíarreglum fyrir þríbólusetta Mögulegt er að þeir sem hafa fengið örvunarskammt sleppi við sóttkví ef breytingar sem nú eru til skoðunar koma til framkvæmda. Sóttvarnalæknir segist binda miklar vonir við örvunarbólusetningu. 27.11.2021 12:50
Telur allar líkur á að nýja afbrigðið komi til Íslands Yfirlæknir á ónæmisfræðideild Landspítala segir allar líkur á að nýtt afbrigði kórónuveirunnar, Ómíkron, komi til Íslands en bindur vonir við að bólusetningar muni veita viðunandi vernd. Afbrigðið breiðist hratt út og er talið hafa greinst í Þýskalandi og Tékklandi í dag. 27.11.2021 12:20
Hádegisfréttir Bylgjunnar Yfirlæknir á ónæmisfræðideild Landspítala segir allar líkur á að nýtt afbrigði kórónuveirunnar komi til Íslands. Afbrigðið breiðist hratt út. Við tökum stöðuna á faraldrinum í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. 27.11.2021 11:54
Ræður Íslendingum frá ferðalögum til ákveðinna landa Afríku vegna Ómíkron Vegna hraðrar útbreiðslu Ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar í Suður-Afríku og greiningar afbrigðisins í löndum utan Afríku í kjölfar ferðalaga ræður sóttvarnalæknir íbúum Íslands, óháð bólusetningu gegn COVID-19, frá ferðalögum til tiltekinna landa Afríku að nauðsynjalausu. 27.11.2021 11:07
128 greindust smitaðir innanlands í gær Alls greindust 128 smitaðir af Covid-19 innalands í gær. Þar að auki greindust svo sex á landamærunum. Af þeim sem greindust innanlands voru 69 í sóttkví. 27.11.2021 10:48
Ævilöng svipting ökuréttinda felld niður Landsréttur hefur fellt niður ævilanga sviptingu ökuréttinda manns sem sakfelldur var fyrir að hafa verið óhæfur til að stjórna ökutæki sínu örugglega vegna áhrifa fíkniefna. 27.11.2021 09:03
Vara við frostrigningu og mögulegri flughálku Aðstæður við suður- og vesturströndina gætu gert það að verkum að von sé á frostrigningu með flughálku. Veðurstofan segir að vegfarendur á þessum slóðum ættu að hafa varan á fram eftir degi. 27.11.2021 07:15
Varð fyrir sérstökum vonbrigðum með forsætisráðherra Þrír frambjóðendur sem kærðu framkvæmd alþingiskosninganna segja það mikil vonbrigði að alþingi hafi staðfest kjörbréf allra þingmanna í gær. Það sé þó ákveðinn léttir að málinu sé lokið í bili. Einn kærenda segist sérstaklega vonsvikinn með afstöðu forsætisráðherra. 26.11.2021 23:28
Freyja sinnir nú sínu fyrsta verkefni Nýjasta varðskip Landhelgisgæslunnar, Freyja, sinnir nú sínu fyrsta verkefni en hún er með flutningaskipið Franciscu í togi áleiðis til Akureyrar. 26.11.2021 20:55
Ekið á mann við Sprengisand Ekið var á mann á miðri götu á við Sprengisand rétt í þessu. 26.11.2021 20:03
Líklegt að Framsókn fái viðbótarráðherra Æðstu stofnanir stjórnarflokkanna á milli landsfunda koma saman á morgun þar sem stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar verður kynntur og borin upp til atkvæða. Ráðherrum verður líklega fjölgað um einn og stofnað verður nýtt innviðaráðuneyti. 26.11.2021 19:27
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ferðabönn hafa verið sett á og hlutabréf fallið í verði um allan heim í dag vegna vaxandi áhyggja af útbreiðslu nýs mjög stökkbreytts afbrigðis kórónuveirunnar. Það hefur nú greinst í að minnsta kosti fimm löndum. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 26.11.2021 18:10
Hringveginum við Bifröst lokað vegna slyss Hringveginum var lokað við Bifröst vegna bílslyss sem varð um klukkan fimm í dag. Engin slys urðu á fólki að sögn Slökkviliðs Borgarbyggðar. 26.11.2021 17:36
Segir traustið til Ísteka brostið Forsendur sem settar hafa verið um blóðmerabúskap hefur ekki verið fylgt eftir að mati Sveins Steinarssonar formanns Félags hrossabænda. Það valdi því að traust til fyrirtækisins Ísteka sé brostið, en það kaupir allt blóð til framleiðslu frjósemislyfs sem notað er í ræktun búfjár erlendis. 26.11.2021 17:09
Læknirinn áfram í þjálfunarferli á Landspítalanum Læknir sem sætir lögreglurannsókn vegna gruns um að bera ábyrgð á dauðsföllum sex sjúklinga sem hann sinnti á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja verður áfram í þjálfunar- og endurmenntunarferli á Landspítalanum. 26.11.2021 16:59
Óttast föður sinn sem eltir þær á röndum Karlmaður á Suðurnesjum hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. desember. Landsréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis. Karlmaðurinn sætir ákæru fyrir fyrir stórfelld brot í nánu sambandi gegn fjórum dætrum sínum og fyrrum eiginkonu. 26.11.2021 16:30
Mun að óbreyttu mæla með bólusetningu fimm til ellefu ára Fyrstu skammtar bóluefnis Pfizer gegn kórónuveirunni, sem sérstaklega er gert fyrir ung börn, munu berast hingað til lands í lok desember. Sóttvarnalæknir telur líklegt að börnum á aldrinum fimm til ellefu ára verði boðin bólusetning, nema eitthvað sérstakt mæli gegn því. 26.11.2021 16:21
Telja nokkra sólarhringa í hlaup Sérfræðingar Veðurstofu Íslands búast ekki við því að fyrr en að hlaup hefjist úr Grímsvötnum í Vatnajökli fyrr en eftir nokkra sólarhringa. Íshellan þar hefur lækkað um 1,4 metra frá því hún stóð hæst og bendir það til að vatns sé byrjað að renna undir jöklinum og leiti sér að farvegi. 26.11.2021 15:52
Grunur um blóðþorra í fyrsta skipti á Íslandi Rökstuddur grunur er um blóðþorra, svonefnda ISA-veiru, í laxi í sjókví Laxa fiskeldis í Reyðarfirði. Veiran uppgötvaðist við krufningu og sýnatöku í kjölfar vaxandi óútskýrðra affalla í sjókví númer sjö hjá Löxum. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir fyrirtækið komið með þykkan skráp fyrir áföllum. 26.11.2021 15:20
„Kominn tími til að hann sé opinberaður“ Kona, sem hefur sakað Megas um að hafa brotið á sér kynferðislega ásamt öðrum manni, segir lagið Litlu ljót eftir Megas fjalla um ofbeldið. Hún var tvítug þegar hún kynntist Megasi en hann sextugur. 26.11.2021 14:54
Stal yfir sjötíu flöskum úr Vínbúðinni Stórtækur þjófur hefur verið sakfelldur fyrir alls 45 þjófnaði úr verslunum ÁTVR, Hagkaups, Lyfju og Elko á tæplega eins árs tímabili. Maðurinn nappaði yfir sjötíu flöskum af áfengi, aðallega sterku víni, úr Vínbúðinni. 26.11.2021 14:18
Ætla að kynna nýja ríkisstjórn á sunnudaginn Formenn Vinstri grænna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks ætla að funda með lykilfólki í flokkunum sínum á morgun og kynna fyrir þeim stjórnarsáttmála. Leggi þeir blessun sína yfir stjórnarsáttmálann verður hann kynntur fyrir þjóðinni á sunnudag. 26.11.2021 13:57
Sækja slasaðan göngumann á Strandir Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð laust eftir klukkan hálf eitt vegna göngumanns sem rann niður fjallshlíð í Norðurfirði á Ströndum og slasaðist. Þetta segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. 26.11.2021 13:33
Bein útsending: Hið umdeilda blóðmerahald á Íslandi í Pallborðinu Blóðtaka úr hryssum til framleiðslu hormóns sem notað er í búfjárrækt erlendis er eitt mesta hitamál vikunnar, eftir að alþjóðlegu dýraverndunarsamtökin AWF/TBS birtu myndband um illa meðferð við starfsemina. 26.11.2021 12:36
Hin látna í Vogunum á sjötugsaldri Konan sem lést þegar strætisvagni var ekið á hana við gatnamót Gnoðarvogs og Skeiðarvogs í gær var á sjötugsaldri, af erlendum uppruna og búsett hér á landi. 26.11.2021 12:14
Eldgos í Grímsvötnum „jóker í stöðunni“ Íshellan í Grímsvötnum hefur sigið stöðugt undanfarna daga og hefur hraðinn á siginu aukist töluvert. Vatn er nú byrjað að fara út úr Grímsvötnum en hefur ekki enn náð jökul jaðrinum. Prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands segir líklegt að merki um slíkt fari að sjást á mælum á næstu klukkustundum eða sólarhring. 26.11.2021 12:09