Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ekki talin þörf á endurtalningu í Suðurkjördæmi þó mjótt sé á munum Formaður kjörstjórnar í Suðurkjördæmi segir ekki ástæðu til að ráðast í endurtalningu á atkvæðum í umdæminu þrátt fyrir að afar mjótt sé á munum. Gerð var úttekt á vinnubrögðum og verkferlum í dag og kom engin villa upp þegar tíu prósent kjörseðla höfðu verið skoðaðir. 26.9.2021 16:14
Þrír fluttir með þyrlu eftir árekstur og bílveltu á Holtavörðuheiði Þrír slösuðust í umferðarslysi á Holtavörðuheiðinni á þriðja tímanum í dag. Voru þeir fluttir á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar sem lenti við spítalann á fimmta tímanum. 26.9.2021 15:04
Telja öll atkvæði aftur í Norðvesturkjördæmi Öll atkvæði í Norðvesturkjördæmi verða talin aftur vegna þess hversu lítill munur var á jöfnunarþingmönnum á milli kjördæma. Yfirmaður kjörstjórnar þar segir að við endurtalninguna gætu orðið hreyfingar á jöfnunarsætum flokka. 26.9.2021 14:57
Kynningin frekar en Klaustur sem kostaði Miðflokkinn Miðflokkurinn þarf að kanna hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis í kynningarmálum sínum fyrir Alþingiskosningarnar, að mati Karls Gauta Hjaltasonar, eins þriggja fulltrúa hans sem náðu sæti á þingi. Hann telur ekki að Klaustursmálið hafi skemmt fyrir flokknum. 26.9.2021 14:40
„Stjórnarandstaðan skíttapaði einfaldlega“ Samfylkingarfólk veltir fyrir sér hvað hafi eiginlega gerst í kosningunum? Óhætt er að segja að vinstri menn vita vart hvaðan á þá stendur veðrið en þeir gengu vonglaðir til kosninga eftir að skoðanakannanir höfðu gefið fyrirheit um betri tíð með blóm í haga. Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, segir stjórnarandstöðuna einfaldlega hafa skíttapað kosningabaráttunni. 26.9.2021 14:40
Heimspressan fjallar um sögulegan sigur kvenna í kosningunum Erlendir fjölmiðlar hafa fjallað um Alþingiskosningarnar þar sem sérstaklega hefur verið einblínt á þá staðreynd að konur verði í fyrsta sinn í meirihluta á þingi. Með þessu verður Ísland fyrsta landið í sögu Evrópu til að verða með lýðræðislega kjörið þing þar sem konur eru í meirihluta. 26.9.2021 13:37
Guðmundur Franklín kominn með nóg Kjósendur mega ekki búast við því að Guðmundur Franklín Jónsson verði á lista Frjálslynda lýðræðisflokksins í sveitarstjórnarkosningum næsta árs. Hann segist ætla að taka sér hlé eftir að flokkurinn náði ekki hálfu prósentustigi atkvæða í Alþingiskosningunum í gær. 26.9.2021 13:27
Fundu fyrir að þau væru litli kallinn innan um þau stóru dagana fyrir kjördag Gunnar Smári Egilsson, oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, segir að flokknum hafi reynst erfitt að keppa við „vellauðuga flokka“ í kosningabaráttunni. Sérstaklega hafi flokksmenn fundið fyrir því að þeir væru „litli kallinn“ innan um þau stóru síðustu dagana fyrir kjördag. 26.9.2021 12:59
Sú yngsta inn og Brynjar út: „Ég hef bara aldrei séð hana áður“ Þau Lenya Rún Taha Karim og Sigmar Guðmundsson voru öllu ánægðari með niðurstöðu kosninganna í nótt en Brynjar Níelsson. Brynjar hafði skipti við Lenyu sem þingmaður í Reykjavík en kennir henni ekki um. Enda hafi hann aldrei séð hana áður. 26.9.2021 12:22
Enginn hasar á Bessastöðum í dag Engir leiðtogar verða boðaðir á fund forseta Íslands í dag þar sem ríkisstjórnin missti ekki meirihluta sinn. Forsetinn metur það svo að með tilliti til niðurstaðna sé hægt að stimpla Framsókn og Flokk fólksins sem sigurvegara kosninganna. 26.9.2021 11:50
Gunnar Smári sagður hafa rekið glæsilega kosningabaráttu fyrir Ingu Sæland Daði Már Kristófersson varaformaður Viðreisnar telur ekki ólíklegt að Flokkur fólksins hafi notið góðs af kosningabaráttu Sósíalistaflokksins. 26.9.2021 11:43
Æsispennandi kosninganótt og 23 nýir þingmenn 23 nýliðar taka sæti á Alþingi samkvæmt lokatölum úr öllum kjördæmum. Brynjar Níelsson og Guðmundur Andri Thorsson eru dottnir út af þingi en Lenya Rún og Arndís Anna fara inn fyrir Pírata. 26.9.2021 11:30
Aukafréttatími Stöðvar 2 í tilefni kosninga Úrslit Alþingiskosninganna eru ljós eftir spennandi nótt. Atburðarásin verður gerð upp í aukafréttatíma klukkan 12 á Stöð 2. 26.9.2021 11:08
Ríkisstjórnin heldur og situr líklega áfram: „Eðlilegast að við setjumst niður saman“ Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins, sem er sigurvegari kosninganna, segist maður orða sinna. Og hann hafi sagt að ef stjórnin héldi væri eðlilegast að þau sem að henni standi tali saman. Flest bendir nú til að ríkisstjórnarsamstarfið haldi. 26.9.2021 11:00
Þorgerður Katrín tekur upp hanskann fyrir Katrínu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segir ljóst að Vinstri græn geti ekki farið í ríkisstjórn nema að gera kröfu um forsætisráðherrastólinn. Viðreisn bætti við sig einum þingmanni en Þorgerður Katrín virkaði ekkert sérstaklega ánægð með niðurstöðu flokksins á Sprengisandi í morgun. 26.9.2021 11:00
Afglæpavæðingin og innflytjendur brenna á yngsta kjörna þingmanni sögunnar Óhætt er að segja að Lenya Rún Taha Karim, nýr þingmaður Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður, hafi verið steinhissa þegar í ljós kom að hún náði kjöri á Alþingi. Lenya Rún er 21 árs og brennur fyrir málefni útlendinga og innflytjenda. 26.9.2021 10:32
Inga Sæland gat ekki sofið fyrir brosi Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir sigur síns flokks ekki hafa komið sér á óvart. 26.9.2021 10:31
Konur í fyrsta sinn í meirihluta á þingi í Evrópu Konur eru nú í fyrsta sinn í sögunni í meirihluta á Alþingi Íslendinga. 33 konur voru kjörnar á þing í gær og 30 karlmaður. Í kosningunum 2017 voru 24 konur kjörnar á þing. Þetta er í fyrsta skipti í sögu Evrópu sem konur eru fleiri en karlar á lýðræðiskjörnu þingi. Svíar höfðu áður komist næst því með 47 prósenta hlut kvenna. 26.9.2021 10:19
„Já, fínt“ Brynjar Níelsson lögmaður og fyrrverandi Alþingismaður er dottinn út af þingi þrátt fyrir að hans lið, Sjálfstæðisflokkurinn, teljist meðal óvíræðra sigurvegara kosninganna. 26.9.2021 09:40
Úrslit á landsvísu: Þessi sitja á þingi næsta kjörtímabil Sitjandi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna hélt velli og bætti við sig þingmönnum í Alþingiskosningunum sem fór fram í gær. Framsókn bætti við sig fimm þingmönnum. 26.9.2021 09:26
Lokatölur úr Norðausturkjördæmi: Framsókn með mikinn sigur og ná fyrsta manni Framsóknarflokkurinn vann mikinn sigur í Norðausturkjördæmi í þingkosningunum í gær. Flokkurinn nær inn þremur mönnum og er Ingibjörg Ólöf Isaksen fyrsti þingmaður kjördæmisins. 26.9.2021 09:25
Formennirnir mættu á Sprengisand Spennandi kosninganótt er að baki og fram undan áhugaverður dagur með viðræðum forystufólks flokkanna sem eðli máls samkvæmt er missátt við niðurstöðurnar í Alþingiskosningunum. 26.9.2021 09:15
Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Framsókn bætir við sig manni Sjálfstæðisflokkurinn nær inn fjórum kjördæmakjörnum mönnum í Suðvesturkjördæmi, en lokatölur úr kjördæminu bárust um klukkan 8:50 í morgun. Framsókn bætir við sig öðrum kjördæmakjörnum manni og Vinstri græn missa einn kjördæmakjörinn þingmann. 26.9.2021 08:59
Stjórnmálamenn út, pítsur og súkkulaði inn Rís þá í okkur dagur eftir langa nótt, sagði skáldið… Ásýnd miðbæjarins var strax önnur þegar hjólað var til vinnu úr miðbænum og í Laugardal á sjöunda tímanum, þegar tekið var að grána fyrir fyrsta degi nýs pólitísks veruleika á Íslandi að afloknum þingkosningum 2021. 26.9.2021 08:31
Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Framsókn bætir við sig manni en Miðflokkur og Samfylking missa menn Framsóknarflokkurinn bætti við sig þriðja kjördæmakjörna þingmanninum í Norðvesturkjördæmi og er stærsti flokkurinn eftir að lokatölur fyrir birtar á áttunda tímanum í morgun. 26.9.2021 08:02
Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Framsókn bætir við manni og Píratar missa sinn Vinstri græn missir sinn kjördæmakjörna þingmann í Suðurkjördæmi og Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins, nær inn sem kjördæmakjörinn. 26.9.2021 07:38
Sameiningu hafnað í Ásahreppi en naumlega samþykkt annars staðar Tillögu um sameiningu Skaftárhrepps, Mýrdalshrepps, Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Ásahrepps var hafnað með miklum mun í Ásahreppi í kosningum sem fram fóru samhliða þingkosningum í gær. 26.9.2021 07:16
Bíður milli vonar og ótta: „Ég skil ekkert í þessum tölum“ Sigmar Guðmundsson, sem situr í öðru sæti Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi, er einn þeirra jöfnunarmanna sem eru afar tæpir inn á þing. Hann hefur verið inni í jöfnunarsæti í síðustu tveimur tölum sem birtar voru úr kjördæminu en hvort hann komist inn sem kjördæmakjörinn þingmaður mun ráðast þegar lokatölur úr Suðvesturkjördæmi verða birtar, líklega á næsta klukkutímanum. 26.9.2021 06:46
Ók á þrjá bíla og missti framdekkið undan bílnum Ökumaður var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur á þriðja tímanum í nótt eftir að hann hafði ekið á þrjá bíla og misst annað framdekkið undan bíl sínum. Maðurinn er grunaður um ölvunarakstur. 26.9.2021 06:07
Þrír handteknir vegna líkamsárásar í Árbæ Þrír karlmenn voru handteknir á tólfta tímanum í gærkvöldi grunaðir um líkamsárás í Árbæ. Mennirnir eru nú vistaðir í fangageymslum lögreglu fyrir rannsókn málsins. Einn maður var fluttur á slysadeild til aðhlynningar fyrir vistun en ekki er vitað um áverka. 26.9.2021 06:05
Lokatölur úr Reykjavík norður: Ásmundur Einar þingmaður í Reykjavík Ásmundur Einar Daðason er nýr þingmaður Reykvíkinga eftir eftir stórbætingu flokksins frá því í kosningunum fyrir fjórum árum. Framsókn fékk 5,3 prósenta fylgi í kjördæminu fyrir fjórum árum en 12,3 prósent í ár. Um er að ræða langþráðan þingmann flokksins í kjördæminu. Píratar náðu tveimur mönnum inn á þing í kjördæminu. 26.9.2021 04:55
Ásmundur fyrsti þingmaður Framsóknar í Reykjavík norður síðan 2013 Ásmundur Einar Daðason, barna- og félagsmálaráðherra, er fysti Framsóknarmaðurinn sem kemst á þing í Reykjavíkurkjördæmi norður síðan árið 2013. Ásmundur segist hæstánægður með framgang flokksins í kosningunum. 26.9.2021 04:53
Lokatölur úr Reykjavík suður: Birgir náði inn en Miðflokkurinn tapaði manni Fylgi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður var á pari við fyrir fjórum árum en flokkurinn bætti engu að síður við sig þingmanni í kjördæminu. Samfylkingin missir mann en Vinstri græn halda sínum tveimur. 26.9.2021 04:41
„Við hefðum viljað sjá meira“ Tilfinningar formanns Viðreisnar við tölunum eins og þær standa núna eru blendnar. Flokkurinn er að fá mun minna upp úr kjörkössunum heldur en flestar skoðanakannanir gerðu ráð fyrir en er þó einn þriggja flokka sem hafa bætt við sig þingmanni. 26.9.2021 03:17
Verið í samskiptum við Facebook vegna umdeildrar kosningaáminningar Líkt og í fyrri kosningum birti Facebook á kjördag sérstaka kosningaáminningu sem var ætlað hvetja Íslendinga til að nýta kosningarétt sinn. 26.9.2021 02:40
Bein útsending: Talningarfólk vinnur af kappi í Laugardalshöll Starfsfólk í kjörstjórnum Reykjavíkurkjördæma norður og suður stendur vaktina í Laugardalshöll langt fram eftir nóttu. Talið er í öllum kjördæmum fram á nótt en í Laugardalshöll er beint streymi. 26.9.2021 02:36
„Rífandi traustsyfirlýsing“ við stjórnina Staða ríkistjórnarflokkanna á þingi miðað við núverandi stöðu er „rífandi traustsyfirlýsing“ við stjórnina að mati Eiríks Bergmanns Einarssonar, stjórnmálafræðings. 26.9.2021 02:32
Konur í meirihluta á Alþingi í fyrsta sinn? Eins og sakir standa eru fleiri konur en karlar inni á þingi. Ef kynjahlutföllin haldast óbreytt verður þetta í fyrsta sinn sem konur eru í meirihluta á Alþingi. 26.9.2021 01:59
Sigmundur Davíð: „Ekki tilefni til að fara á taugum“ Þegar fyrstu tölur liggja fyrir í öllum kjördæmum stefnir í að Miðflokkurinn missi alla sína þingmenn fyrir utan formann sinn Sigmund Davíð Gunnlaugsson. 26.9.2021 00:51
Ekki verður af sameiningu fimm sveitarfélaga á Suðurlandi Ekkert verður af sameiningu fimm sveitarfélaga á Suðurlandi eftir að Ásahreppur kolfelldi tillögu um að sameinast Rangárþingi ytra, Rangárþingi eystra, Mýrdalshrepp og Skaftárhrepp. 26.9.2021 00:36
Fyrstu tölur í öllum kjördæmum: Stefnir í stórsigur ríkisstjórnarinnar Helstu tíðindi eftir að fyrstu tölur hafa borist úr öllum kjördæmum landsins eru þau að hvorki Sósíalistaflokkur né Miðflokkur ná manni inn á þing og þá bæta ríkisstjórnarflokkarnir samtals við sig sex mönnum. 26.9.2021 00:30
Inga snortin yfir stuðningnum: „Ég er nú ekki að fara að skæla eins og áður“ Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist hæstánægð með þann stuðning sem hún hefur fundið fyrir, og hefur komið fram í nýjustu tölum í kvöld. Miðað við fyrstu tölur og með þeim fyrirvörum sem fylgja, er Flokkur fólksins með 11,7% á landsvísu, og átta þingmenn. 26.9.2021 00:23
Ásmundur inni í fyrstu tölum: „Takk Reykjavík“ Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra og oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, nær inn á þing miðað við fyrstu tölur úr kjördæminu. 26.9.2021 00:18
Katrín sátt við fyrstu tölur Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, segist sátt með fyrstu tölur. Samkvæmt fyrstu tölum eru Vinstri græn með um 11% fylgi. 25.9.2021 23:41
Rak eiginmanninn út á gaddinn til að upplifa töfrabragð kjörstjóra Dagný Guðjónsdóttir þurfti að hafa aðeins meira fyrir því að nýta kosningaréttinn í dag en flestir aðrir. Kjördagur lenti á sjöunda degi einangrunar og áður en hún vissi af var fresturinn til að sækja um heimakosningu runninn út. 25.9.2021 23:29