Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
26 greindust innanlands í gær Alls greindust 26 með kórónuveiruna innanlands í gær. Sextán þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 62 prósent nýgreindra. Tíu voru utan sóttkvíar, eða um 38 prósent. 6.9.2021 10:47
Fimm nýir kjörstaðir í Reykjavík og breytt kjördæmamörkun Alþingiskosningar fara fram laugardaginn 25. september næstkomandi. Kosið verður á 23 stöðum í Reykjavík og bætast fimm nýir kjörstaðir við í þessum kosningum. Þeir eru Frostaskjól (KR-heimilið), Höfðatorg, Álftamýrarskóli, Foldaskóli og Rimaskóli. 6.9.2021 10:29
Lyftu líparíthaugum af veginum heim Grjóhrun hindraði för hópa Ferðamannafélags Íslands en göngugarparnir gerðu sér lítið fyrir og ýttu grjóthnullungum frá og út í á. 6.9.2021 10:23
Boðar áframhald aðgerða á landamærunum Takmarkanir á landamærunum eru forsenda þess að hægt sé að slaka á innanlands. Þetta segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir um stöðu kórónuveirufaraldursins. Hann segir yfirstandandi bylgju á hægri niðurleið. 6.9.2021 08:36
Reikna með hlaupvatni við Sveinstind á allra næstu tímum Starfsmenn Veðurstofunnar gera ráð fyrir að hlaupvatns úr Eystri Skaftárkatli verði vart við Sveinstind á allra næstu klukkustundum. Þegar það gerist mun taka um átta tíma fyrir hlaupvatnið að ná niður að þjóðveginum við Eldvatn. 6.9.2021 07:54
Níu ná manni inn en aðeins fjórir fá yfir 10 prósent Níu flokkar ná mönnum inn á Alþingi í komandi kosningum, ef marka má nýja skoðanakönnun sem MMR gerði fyrir Morgunblaðið og mbl.is. Aðeins fjórir fá meira en 10 prósent fylgi. 6.9.2021 06:38
Sjö stöðvaðir við vímuefnaakstur Um klukkan 19 í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um slagsmál á bar í póstnúmerinu 108. Einn var handtekinn og vistaður í fangageymslu og þolandinn fluttur á bráðamóttöku til skoðunar. 6.9.2021 06:12
Berjaspretta með besta móti víða: „Bara að mæta í móann og byrja að tína“ Það er gósentíð í bláberjatínslu í Dalvíkurbyggð þar sem berjasprettan í ár þykir vera góð. Ein helsta berjatínslukona landsins hvetur landsmenn alla til að drífa sig í berjamó. 5.9.2021 20:55
Sennilegt að Skaftárhlaup nái að þjóðveginum á morgun Óttast er að vatnshæðin í Skaftá rísi verulega þegar hlaup úr eystri Skaftárkatli ratar niður ána á morgun. Vera kann að loka þurfi þjóðveginum við Eldhraun og bændur eru uggandi yfir langtímaafleiðingum ef til hamfarahlaups kemur. 5.9.2021 20:01
Skyndiákvörðun poppara um að bruna í bæinn varð hröktum ferðalöngum mögulega til lífs Tveimur rúmenskum karlmönnum var bjargað eftir miklar hrakningar í vonskuveðri eftir að bifreið þeirra varð alelda á miðri Kleifaheiði í gærkvöldi. Ökumaður sem ákvað að drífa sig suður um kvöldið segir það mildi að hann hafi fundið þá hjálparlausa á heiðinni. 5.9.2021 19:30
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Óttast er að vatnshæð í Skaftá rísi verulega þegar hlaup úr eystri Skaftárkatli ratar niður ána á morgun. Vera kann að loka þurfi þjóðveginum við Eldhraun og bændur eru uggandi yfir langtímaafleiðingum ef til hamfarahlaups kemur. 5.9.2021 18:01
Sérsveitin kölluð á Keflavíkurflugvöll Lögreglan á Suðurnesjum og sérsveit ríkislögreglustjóra voru kölluð á Keflavíkurflugvöll í dag eftir að tilkynning barst flugstöðvardeild lögreglunnar um torkennilegan hlut sem fannst í handfarangri farþega við vopnaleit. Munurinn reyndist að endingu hættulaus. 5.9.2021 16:56
Engin lífshætta nema fólk lendi í sérstökum aðstæðum Gera má ráð fyrir að það taki upp undir sólarhring fyrir vatnið sem nú hleypur úr Eystri Skaftárkatli að ná að jökuljaðrinum. Hlaupið hófst seint í gærkvöldi. Jarðeðlisfræðingur segir hlaupið eiga að ná hámarki á einum til tveimur sólarhringum. Hann segir enga beina lífshættu stafa af hlaupinu. 5.9.2021 15:54
Bílvelta á Reykjanesbraut Engan sakaði þegar bíll valt á Reykjanesbraut við Elliðaárdal í dag. 5.9.2021 15:11
Bændum í Skaftárhreppi stendur hreint ekki á sama um hlaupið Bóndi á Ytri-Ásum í Skaftárhreppi segist hafa áhyggjur af hlaupinu sem nú er hafið úr Eystri-Skaftárkatli. Hann segir að ef hlaupinu myndi svipa til þess sem varð árið 2015 yrði það allt annað en gæfulegt. 5.9.2021 14:07
Gosið í einni lengstu pásunni hingað til Eldvirkni í Fagradalsfjalli hefur legið í láginni frá því á fimmtudaginn. Þetta er ein lengsta pása sem eldgosið hefur tekið sér frá því að það hófst í mars, en er ekki nauðsynlega til marks um að það sé að klárast. 5.9.2021 13:49
Sauðfé fækkar og fækkar í landinu Sauðfé hefur ekki verið jafnfátt og nú í 160 ár. Stofninn telur aðeins um fjögur hundruð þúsund vetrarfóðraðar kindur. Ástæða fækkunarinnar er fyrst og fremst hrun á afurðaverði. 5.9.2021 13:30
Vöknuðu af værum svefni í Hlíðunum við sjúkraflug Íbúar í Hlíðunum vöknuðu af værum svefni við þyrluflug yfir hverfið í nótt. Þarna var þyrla Landhelgisgæslunnar á ferð. Þyrlunni TF-GNA var flogið af stað á öðrum tímanum í nótt til að sækja veikan aðila á Barðaströnd. 5.9.2021 12:27
Búin að kaupa mörghundruð þúsund hraðpróf Hraðpróf ættu að geta farið að liðka fyrir 500 manna viðburðahaldi öðru hvorum megin við næstu helgi. Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu hefur þegar fest kaup á mörghundruð þúsund hraðprófum. 5.9.2021 12:07
Hlaup hafið í Eystri-Skaftárkatli Hlaup er hafið úr Eystri-Skaftárkatli, að því er fram kemur á vef Veðurstofu Íslands. Hlaupið kemur í kjölfar hlaups úr vestari katlinum, sem nú er sagt í rénun. Ef fram heldur sem horfir er útlit fyrir að hlaupvatn nái þjóðveginum annað kvöld. 5.9.2021 12:06
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur fest kaup á mörg hundruð þúsund hraðprófum. Þau ættu að geta byrjað að liðka fyrir 500 manna viðburðahaldi í kringum næstu helgi. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar. 5.9.2021 11:52
22 greindust innanlands í gær Alls greindust 22 með kórónuveiruna innanlands í gær. Tíu voru fullbólusettir og tólf óbólusettir. Fjórtán voru í sóttkví við greiningu en átta utan hennar. 5.9.2021 10:52
Bíllinn alelda og ferðamennirnir blautir og kaldir Tveir erlendir ferðamenn náðu að forða sér úr bíl sínum þegar kviknaði í honum á Kleifaheiði í grennd við Patreksfjörð um miðnætti. 5.9.2021 10:50
Straumar og stefnur kosningabaráttunnar á Sprengisandi Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur í umsjón Kristjáns Kristjánssonar er á dagskrá frá klukkan tíu til tólf í dag. Fyrstu gestir eru Lilja Alfreðsdóttir, Daði Már Kristófersson og Gunnar Smári Egilsson sem ætla að freista þess að draga fram og skýra helstu strauma og stefnur í þessari kosningabaráttu sem yfir stendur. 5.9.2021 09:45
Víða von á vætu í dag Búast má við suðlægum áttum og vætu á landinu í dag og á morgun. Lengst af verður þó þurrt norðaustanlands og tiltölulega heitt. Þá er útlit fyrir að kólna muni fyrir norðan. 5.9.2021 09:23
Þrír réðust á einn og rændu hann Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í nótt tilkynning um rán í miðbænum. Þrír einstaklingar réðust þar á mann, veittu honum áverka og rændu hann. Í dagbók lögreglu segir að málið sé til rannsóknar. 5.9.2021 07:17
Ráðherra sammála um að húsakostur geðdeildar sé ekki fullnægjandi Heilbrigðisráðherra segir að tryggt verði að geðheilbrigðisþjónusta Landspítalans fái viðunandi húsnæði um svipað leyti og nýr meðferðarkjarni sjúkrahússins rís. Hún tekur undir það með sérnámslæknum að núverandi aðstæður sjúklinga á deildunum séu ófullnægjandi. 4.9.2021 21:00
Góð og skemmtileg stemming í Hrútatungurétt Fyrstu fjárréttir haustsins hófust í dag, meðal annars í Hrútatungurétt í Hrútafirði. Þar voru um fjögur þúsund fjár og bændur voru ánægðir með hvað lömbin komu væn og falleg af fjalli. 4.9.2021 20:16
Sprenging í ofbeldistilkynningum til Íþróttabandalagsins Sprenging hefur orðið í tilkynningum um ofbeldismál til Íþróttabandalags Reykjavíkur í ár miðað við árin á undan. Bandalagið hefur tilkynnt alvarlegustu málin til lögreglu og barnaverndar. 4.9.2021 20:00
Fylgjast náið með Öskju og biðja ferðamenn að upplýsa um allt óvenjulegt Almannavarnir fylgjast náið með landrisi og jarðskjálftavirkni í Öskju og biðja ferðamenn að láta vita, taki þeir eftir einhverju óvenjulegu á svæðinu. Jarðeðlisfræðingur segir þetta geta markað upphafið að langtímaferli sem endar með gosi, og telur ástæðu til að taka ástandið alvarlega. 4.9.2021 19:00
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sprenging hefur orðið í tilkynningum um ofbeldismál til Íþróttabandalags Reykjavíkur í ár en þau hafa rúmlega fjórfaldast milli ára. Alvarlegustu málin hafa verið tilkynnt til lögreglu. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 4.9.2021 18:13
Sautján ára brotaþoli í kynferðisbrotamáli þarf að koma fyrir dóm Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra þess efnis að sautján ára brotaþoli í kynferðisbrotamáli þurfi að koma fyrir dóm sem vitni. 4.9.2021 18:00
Segir brandara frambjóðanda Flokks fólksins um Pólverja smekklausan með öllu Brandari sem Eyjólfur Ármannsson, oddviti Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi, lét flakka í Oddvitaáskorun Vísis hefur farið fyrir brjóstið á netverjum, sem segja brandarann vera dæmi um hatursorðræðu í garð Pólverja. Formaður samtaka Pólverja á Íslandi segir brandarann vera smekklausan með öllu, ummælin dæmi sig sjálf. Formaður Flokks fólksins hafði ekki heyrt af málinu en trúir því ekki að brandarinn hafi verið illa meintur hjá oddvitanum. 4.9.2021 17:39
Sáttur við gildandi takmarkanir Forstjóri Landspítala segir gildandi samkomutakmarkanir áfram viðeigandi um sinn. Spítalinn sé áfram á tánum, þrátt fyrir að enginn sé á gjörgæslu. Heilbrigðisráðherra talar fyrir varfærnum skrefum í tilslökunum á næstunni. 4.9.2021 15:00
Þurftu að skilja tveggja mánaða barn eftir þegar þau flúðu frá Kabúl til Íslands Hjónin Zeba Sultani og Khairullah Yosuf, sem flúðu nýverið frá Afganistan til Íslands, þurftu að skilja tveggja mánaða son þeirra eftir í Afganistan. Ungt barn þeirra dó næstum því í öngþveitinu við flugvöllinn í Kabúl, þegar verið var að flytja Afgana sem þykja í hættu vegna yfirtöku Talibana frá landinu. 4.9.2021 14:40
Segir valdarán í Samfylkingunni hafa skorið undan lýðræðinu Birgir Dýrfjörð, stjórnarmaður í flokksstjórn og stjórn fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík, segir hreinsanir á lista flokksins eftir síðustu áramót hafa valdið mestu um fylgistap Samfylkingarinnar í Reykjavík-Suður. 4.9.2021 14:22
Matar og menningarhátíð á Stokkseyri Stokkseyri mun iða af lífi um helgina því þar hefur verið blásið til uppskeruhátíðar matar og menningar. Bændur verða með brakandi ferskt grænmeti á staðnum og listamenn sýna það sem þeir eru að fást við, meðal annars kuklsetur. 4.9.2021 13:05
Björgunarsveitir noti dróna þegar of langt er í þyrluna Óvenjumikið hefur verið um dauðsföll af slysförum á fjallendi í sumar. Sveinn Zoëga, formaður svæðisstjórnar Björgunarsveita á Austurlandi segir björgunarsveitir á Austurlandi hafa farið í þrjú útköll sem hafa endað illa í sumar. 4.9.2021 12:26
Ástæða til að taka atburðarás við Öskju alvarlega Ástæða er til að taka landris í kringum Öskju alvarlega að mati jarðeðlisfræðings. Landið hefur risið um nokkra sentímetra eftir að hafa sigið stanslaust í 40 ár og vísbendingar eru um aukna jarðskjálftavirkni á svæðinu. 4.9.2021 12:22
Hádegisfréttir Bylgjunnar Ástæða er til að taka landris í kringum Öskju alvarlega að mati jarðeðlisfræðings. Vísbendingar eru um aukna skjálftavirkni á svæðinu. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan 12:00. 4.9.2021 11:58
Ráðherra vísar ásökunum Persónuverndar á bug Kristján Þór Júlísson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir ásakanir Persónuverndar, þess efnis að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu hafi leynt upplýsingum eða notað Persónuvernd sem skálkaskjól, hreinan rógburð. 4.9.2021 11:00
Var mættur heim til fyrrverandi og réðst þar á nágrannakonu Karlmaður sem réðst á konu í fjölbýlishúsi í Laugardal skömmu eftir miðnætti í nótt er einnig grunaður um heimilisofbeldi. Hann var mættur á staðinn til að vitja fyrrverandi unnustu sinnar og lét ófriðlega, að sögn lögreglu. 4.9.2021 11:00
52 greindust smitaðir í gær 52 greindust smitaðir af Covid-19 á Íslandi í gær. 36 þeirra voru í sóttkví og sextán voru utan sóttkvíar. 4.9.2021 10:55
Flogið yfir sigkatlana í Skaftárjökli Rennsli virðist fara hægt minnkandi í Skaftá við Sveinstind. Rennslið náði hámarki á miðnætti aðfaranótt 2. september og var þá um 520 rúmmetrar á sekúndu. 4.9.2021 10:08
Bein útsending: Seinni dagur Fundar fólksins Fundur fólksins heldur áfram í Vatnsmýrinni í dag. Stærstur hluti fundarins fer fram í Norræna húsinu og Grósku og verður í beinu streymi hér á Vísi. 4.9.2021 10:01