Fleiri fréttir

Ráðherrar mættir á Seyðisfjörð
Fjórir ráðherrar ásamt fylgdarliði þeirra eru komnir til Seyðisfjarðar þar sem þeir virða fyrir sér aðstæður á Seyðisfirði. Ráðherrarnir lentu á Egilsstöðum rétt fyrir klukkan níu í morgun og héldu þaðan yfir Fjarðarheiðina til að kynna sér stöðu mála eftir skriðuföllin sem skemmdu hús og urðu til þess að rýma þurfti bæinn.

Máli Guðmundar Spartakusar vísað frá MDE
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur vísað frá máli Guðmundar Spartakusar Ómarssonar gegn íslenska ríkinu og hafnað að taka málið til efnislegrar meðferðar.

Bjartviðri og allt að tólf stiga frost
Það er hæð yfir landinu í dag með tilheyrandi hægviðri í flestum landshlutum nema á Austfjörðum þar sem verður norðvestan strekkingur. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Veittist að starfsmönnum verslunar í Vesturbæ
Klukkan 19:43 í gærkvöldi barst lögreglu beiðni um aðstoð frá starfsmönnum í verslun í Vesturbæ Reykjavíkur.

Heimila notkun á bóluefni Pfizer á Íslandi
Lyfjastofnun hefur veitt bóluefni Pfizer og BioNTech gegn kórónuveirunni skilyrt markaðsleyfi hér á landi. Nú verður hægt að hefja bólusetningar hér á landi með bóluefninu þegar það verður tiltækt.

Seyðisfjörður kominn í vetrarbúning eftir hörmungar síðustu viku
Það er búið að snjóa á Seyðisfirði og bærinn allt annar að sjá í dag heldur en síðustu daga. Skriður féllu á bæinn fyrir helgi, sú stærsta á föstudag, með miklu tjóni. Tekin var ákvörðun um að rýma bæinn vegna hættu á frekari skriðum.

Hættustig enn í gildi á Seyðisfirði
Hættustig almannavarna er áfram í gildi á Seyðisfirði og rýmingar að hluta til í gildi í bænum vegna skriðuhættu. Þá er óvissustig almannavarna í gildi á Austurlandi vegna skriðuhættu.

Átta milljarða samningur um heimahjúkrun undirritaður
Átta milljarða samningur um heimahjúkrun í Reykjavík var undirritaður í dag og er hann meðal annars til þess fallinn að fækka sjúkrahúsinnlögnum meðal aldraðra. Ekki er hægt að útskrifa 89 manns vegna skorts á hjúkrunarrýmum.

„Þetta er allt annar bær en fyrir nokkrum dögum síðan“
Kristinn Már Jóhannesson slökkviliðsmaður var að ganga frá búnaði eftir að hafa dælt upp úr kjallara þegar stóra aurskriðan féll á Seyðisfjörð síðdegis á föstudaginn. Hann segir að eftir að drunur fóru að heyrast í bænum hafi hlutirnir gerst hratt og að það sé undarleg tilfinning að snúa aftur í bæinn.

Fjórtán hús hrunin eða horfin á Seyðisfirði
Þrettán hús við Hafnargötu á Seyðisfirði og eitt við Austurveg eru hrunin eða alveg horfin eftir skriðurnar þar. Sérfræðingar segja tjónið vera gríðarlegt og það muni taka mörg ár að meta það. Starfshópur á vegum stjórnvalda hefur verið skipaður til að reyna að ná utan um hversu mikið heildartjónið er.

Myndband sýnir andartökin rétt eftir skriðuna miklu: „Eru allir komnir út?“
Myndefni frá björgunarstörfum á Seyðisfirði sýnir hvernig var umhorfs í bænum augnablikum eftir að stór aurskriða, sem olli verulegum skemmdum á bænum, féll um þrjúleytið á föstudag.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Íbúar á stórum hluta rýmingarsvæðisins á Seyðisfirði fengu í dag að sækja helstu nauðsynjar í fylgd með björgunarsveitum.

Fá að bjóða upp á útiæfingar eftir allt saman
CrossFit-stöðvum er heimilt að verða með útiæfingar fyrir iðkendur sína samkvæmt núgildandi samkomutakmörkunum. Yfirþjálfari hjá CrossFit Kötlu hefur fengið þetta staðfest, en lögregla gerði stöðinni að loka um helgina og sagði útiæfingar óheimilar.

Opnað á staðnám í framhaldsskóla með nýrri reglugerð
Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi á tímum gerir það að mörkum að mögulegt verður að bjóða upp á staðnám í öllum framhaldsskólum, einnig skólum með áfangakerfi.

Átta sig fyrst núna á hve hræðilegt þetta var - og er
Seyðfirðingarnir Bryndís Steinþórsdóttir og Stefán Ómar Magnússon sneru aftur heim til sín í dag eftir að bærinn var rýmdur á föstudag. Þau segja það hafa verið erfitt að koma aftur og sjá það sem blasir við.

Bein útsending: Íbúafundur fyrir Seyðfirðinga
Sveitafélagið Múlaþing boðar til íbúafundar fyrir Seyðfirðinga klukkan 16 í dag. Tilgangurinn með fundinum er að upplýsa íbúa Seyðisfjarðar um stöðu mála og gefa þeim kost á að koma á framfæri fyrirspurnum sem veitt verða svör við á fundinum sé þess kostur.

Ætlar að huga að jólamatnum og „hygge sig“
Hermann Svavarsson Seyðfirðingur beið komu sonar síns á Hótel hérað í dag en til stendur að halda aftur á Seyðisfjörð í dag. Aur og drulla er í námunda við hús hans á Seyðisfirði sem stendur þó enn.

Sakna þess að leika við vini sína á Seyðisfirði
Frændsystkinin Aron Elvarsson tíu ára og Júlía Steinunn Ísleifsdóttir tólf ára reikna með því að mega fara heim til sín á Seyðisfjörð og sækja nauðsynjavörur í dag. Þau voru í heimsókn hjá vinkonu sinni að spila tölvuleik á föstudag þegar skriður féllu í bænum og rafmagnið fór af.

102 milljónir í upplýsingafulltrúa hjá Reykjavíkurborg sem fjölgar enn
Launakostnaður Reykjavíkurborgar vegna upplýsingafulltrúa hjá borginni er 102 milljónir árlega.

Stór jarðskjálfti við Bárðarbungu
Jarðskjálfti að stærð 3,9 varð við Bárðarbungu á tólfta tímanum í dag. Nákvæm staðsetning er 5,0 km SSA af Bárðarbungu. Minniháttar skjálfti fylgdi síðan í kjölfarið.

Nýsmituð tengjast vinahópum
Þau sem hafa verið að greinast með kórónuveiruna síðustu daga tengjast vinahópum, að sögn landlæknis. Vísbendingar eru um að faraldurinn sé á uppleið. Vel má vera að þegar búið er að bólusetja mestu áhættuhópa verði hægt að slaka á sóttvarnaaðgerðum.

Ekki var hægt að fylgjast með hreyfingum sökum rigningar
Hreyfingar höfðu verið við Búðará á Seyðisfirði dagana áður en stóra skriðan féll á föstudag. Spýjur höfðu myndast í fjallinu en ekki var hægt að fylgjast sérstaklega með hreyfingunum því mælar Veðurstofunnar virka aðeins í þurru veðri og góðu skyggni.

„Bitur reynsla sem að fjölmargir þekkja“
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn var kominn á sinn stað á upplýsingafund Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og Embætti landlæknis í morgun. Víðir hafði staðið vaktina í langflestum fundum ársins þar til hann greindist með Covid-19 í nóvember. Fundurinn í dag var sá 148. í röðinni.

Þjóðverjar eflaust ekki allir kátir með „jólagjöfina“
Íslensk stjórnvöld telja sig hafa tryggt bóluefni fyrir alla þjóðina og sjá fyrir sér að hægt verði að bólusetja meginhluta þjóðarinnar á næstu mánuðum. Þá telja stjórnvöld að hagsmunum Íslendinga sé betur borgið í samstarfi við hið fjölmenna Evrópusamband. Einnig hefði verið nær ómögulegt að sjá það fyrir í vor að Pfizer ætti eftir að taka forystuna í bóluefnakapphlaupinu.

Líkur á að íbúar Seyðisfjarðar geti varið jólunum heima
Líkur eru á að hluti íbúa Seyðisfjarðar geti varið jólunum heima en vonir standa til þess að hægt verði að aflétta rýmingu í dag eða næstu daga.

Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar
Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður fjallað um stöðuna á bóluefni og fyrirhuguðum bólusetningum hér á landi.

Friðarsúlan mun loga næstu mánuði „í ljósi aðstæðna“
Ákvörðun hefur verið tekin um að Friðarsúlan i Viðey muni loga næstu mánuði „í ljósi aðstæðna í heiminum“.

Fullvissaði Katrínu um aðgengi Íslands að bóluefni í „góðu símtali“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra átti símafund með Ursulu von der Leyen forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um bóluefni gegn kórónuveirunni í morgun. Von der Leyen lýsti fundinum sem farsælum á Twitter í morgun og kvaðst hafa fullvissað forsætisráðherra að Ísland fengi bóluefni fyrir 27. desember.

Sjö greindust með kórónuveiruna innanlands í gær
Sjö greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Fimm þeirra sem greindust voru í sóttkví, en tveir ekki.

Kláraði stúdentinn á tveimur árum í fjarnámi
Hin átján ára gamla Birta Breiðdal getur farið brosandi inn í jólahátíðina. Hún skráði sig í sögubækurnar á föstudaginn þegar hún lauk stúdentsprófi við Fjölbrautarskólann í Ármúla. Hún er fyrsti nemandinn sem útskrifast við skólann sen stundaði námið alfarið í fjarnámi. Lauk hún auk þess stúdentsprófi á aðeins tveimur árum.

Bloomberg uppfærir Íslandstölur í bóluefnaúttekt
Fréttaveitan Bloomberg hefur uppfært tölur fyrir Ísland í úttekt sinni um hversu mikið bóluefni fyrir kórónuveirunni ríki heims hafa tryggt sér. Ísland er nú sagt hafa tryggt sér bóluefni fyrir 61 prósent íbúa, sem er þó öllu minna en heilbrigðisráðuneytið gaf út í gær í kjölfar úttektarinnar.

Telur ekki ástæðu til að grípa til harðari aðgerða á landamærum
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, telur ekki ástæðu á þessu stigi til þess að grípa til harðari aðgerða á landamærum hér þrátt fyrir nýtt afbrigði kórónuveirunnar sem greinst hefur í Bretlandi og virðist vera meira smitandi en önnur afbrigði.

Svona var 148. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11:03 í dag. Alma D. Möller landlæknir fer yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi ásamt Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er sem kunnugt er í sóttkví.

Sérfræðingar meta stöðuna í birtingu
Rýmingar eru enn í gildi á Seyðisfirði vegna hættu á aurskriðum og 276 íbúar bíða þess að snúa heim. Allt virðist hafa verið með kyrrum kjörum á svæðinu í nótt, að sögn ofanflóðasérfræðings, og úrkoma hefur verið lítil síðasta sólarhring. Staðan verður metin þegar líða tekur á daginn.

Zuism nýtti sér þekkta veikleika á lögum um trúfélög
Ríkislögreglustjóri varaði við því að ófullnægjandi lög um trú- og lífsskoðunarfélög sköpuðu hættu á að þau væru misnotuð í þágu brotastarfsemi meira en ári áður en stjórnendur Zuism voru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti.

Vetrarsólstöður í dag og daginn fer að lengja á ný
Vetrarsólstöður eru í dag og þar með stysti dagur ársins. Frá og með morgundeginum tekur því daginn að lengja.

Allmikil lægð í kortunum á aðfangadag
„Eftir erfið veður síðustu daga, þótt sunnan- og vestanvert landið hafi sloppið ágætlega frá þessu, taka við mun rólegri dagar.“

Virtu ekki sóttkví á hóteli í miðbænum
Laust fyrir klukkan hálfníu í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um einstaklinga á hóteli í miðbæ Reykjavíkur sem virtu ekki sóttkví.

Þjónustumiðstöð almannavarna verður opnuð á Seyðisfirði
Almannavarnir munu fljótlega opna þjónustumiðstöð fyrir íbúa á Seyðisfirði. Verkefni slíkrar miðstöðvar felst meðal annars í upplýsingagjöf til almennings og þjónustu við þá aðila sem hafa orðið fyrir tjóni og þá sem hættan hefur haft önnur bein áhrif á. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum.

Þrettán ára fiðlusnillingur í sveitinni
Eyrún Huld Ingvarsdóttir, Þrettán ára stelpa í uppsveitum Árnessýslu gerði sér lítið fyrir og sigraði fiðlukeppni, sem Pólska sendiráðið efndi til. Æðsti draumur Eyrúnar er að spila í Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Seyðfirðingar sneru heim í dag: „Mann langar bara að vera heima hjá sér“
Íbúar utan hættusvæða á Seyðisfirði hafa fengið að snúa aftur til síns heima, tveimur sólarhringum eftir að bærinn var rýmdur. Þó er áfram hætta á frekari skriðuföllum. Íbúar segjast hlakka til að komast heim en kvíða því að sjá eyðilegginguna í bænum.

Segja bóluefni fyrir 87 prósent þjóðarinnar tryggt
Íslensk stjórnvöld hafa þegar tryggt bóluefni sem dugir fyrir 87% þjóðarinnar í gegnum samstarf Evrópuþjóða með samningum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, að því er fram kemur í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.

„Við erum ekkert að fara á taugum yfir þessu núna“
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir ekki hafa komið til skoðunar að leggja til að gripið verði til sérstakra ráðstafana vegna nýs afbrigðis kórónuveirunnar sem komið hefur upp í Bretlandi, og er talið meira smitandi en önnur afbrigði.

Fjórtán ára Selfyssingur fundin heil á húfi
Fjórtán ára gömul stelpa sem leitað var að á Selfossi í dag er fundin. Frá þessu greindi Lögreglan á Suðurlandi frá á Facebook-síðu sinni.

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2
Belgía og Holland hafa aflýst flugi frá Bretlandi og þá er lestum frá Bretlandi bannað að koma til Belgíu. Samkvæmt breska ríkisútvarpinu íhuga Frakkland og Þýskaland að grípa til sambærilegra aðgerða sem og Ítalía.Þetta er vegna nýs afbrigðis kórónuveirunnar í Bretlandi.