Innlent

Stór jarðskjálfti við Bárðarbungu

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Jarðskjálfti sem mældist 3,9 að stærð varð á tólfta tímanum í dag. Minniháttar skjálfti fylgdi í kjölfarið.
Jarðskjálfti sem mældist 3,9 að stærð varð á tólfta tímanum í dag. Minniháttar skjálfti fylgdi í kjölfarið. Vísir/Vilhelm

Jarðskjálfti að stærð 3,9 varð við Bárðarbungu á tólfta tímanum í dag. Nákvæm staðsetning er 5,0 km SSA af Bárðarbungu. Minniháttar skjálfti fylgdi síðan í kjölfarið.

Laust fyrir klukkan hálf sjö í morgun reið yfir skjálfti á svipuðum slóðum sem mældist 2,4 að stærð og litlu áður en sá stóri reið yfir varð skjálfti sem mældist 2,8 stig. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×