Fleiri fréttir

Breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes boðin út í næstu viku
Fyrsti áfanginn í breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes verður boðinn út í næstu viku. Miðað er við að framkvæmdir hefjist síðsumars og að verkinu í heild verði lokið eftir þrjú ár.

Þvættuðu milljónir í gegnum snyrtistofuna
Tveir stjórnendur snyrtistofu í Kópavogi voru í Héraðsdómi Reykjaness í fyrradag dæmdar í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Fá átta milljónir vegna mistaka hjá Umboðsmanni skuldara
Íslenska ríkið þarf að greiða hjónum 8,2 milljónir króna í skaðabætur vegna mistaka sem gerð voru hjá Umboðsmanni skuldara þegar starfsmaður stofnunarinnar leiðbeindi þeim ranglega við meðferð greiðsluaðlögunarmáls hjónanna í september 2016.

Stafræna ökuskírteinið uppfærist daglega
Nú er hægt að sækja stafrænt ökuskírteini í snjallsímann. Skírteinið gildir aðeins á Íslandi og segir samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra þetta framfaraskref þrýsta á önnur ríki að fara sömu leið.

Unnu eina og hálfa milljón hver
Þrír unnu rúma eina og hálfa milljón króna hver í Víkingalottói í kvöld.

60 metra brú yfir Eyjafjarðará vígð
Ný brú yfir vestari kvísl Eyjafjarðarár var vígð við hátíðlega athöfn í dag. Á sama tíma var tilkynnt að brúin fái heitið Vesturbrú.

Segir breytingu á eignarhaldi engin áhrif hafa á sjálfstæði íslenskra rithöfunda
Storytel AB, móðurfélag Storytel á Íslandi, hefur keypt 70 prósenta hlut í Forlaginu, stærstu bókaútgáfu landsins. Stjórnarformaður Forlagsins segir að breyting á eignarhaldi muni engin áhrif hafa á sjálfstæði íslenskra höfunda.

Ungir karlmenn sem nauðga vinkonum sínum stærsti gerendahópurinn
Ungir karlmenn sem nauðga vinkonum sínum er stærsti gerendahópurinn hjá Stígamótum. Þeir leita sér sífellt oftar hjálpar hjá Stígamótum eftir að hafa brotið af sér og telur verkefnastýra að skoða eigi þörfina á sérstöku úrræði fyrir þá.

Varað við skriðum á stóru svæði á Norðausturlandi
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra minnir á að óvissustig vegna jarðskjálfrahrinunnar á Norðausturlandi er enn í gildi.

Smitrakning í gangi vegna konu sem kom til landsins fyrir 10 dögum en greindist í gær
Íslendingar þurfa að fara í nokkurra daga sóttkví og tvær skimanir við komu til landsins verði tillögur sóttvarnarlæknis samþykktar. Í gær greindist smit hjá konu sem kom til landsins fyrir tíu dögum.

Gullinbrú malbikuð aftur á morgun
Vegkaflinn var fræstur á mánudag þar sem nýlagt malbik á veginum stóðst ekki staðla um viðnám.

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2
Íslendingar þurfa að fara í nokkurra daga sóttkví og tvær skimanir við komuna til landsins verði tillögur sóttvarnarlæknis samþykktar, en nánar verður fjallað um þetta í fréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Telja að viðvörunarkerfi Icelandair-þotunnar hafi komið í veg fyrir flugslys
Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) telur líklegt að flugstjórinn hafi misst yfirsýn yfir aðflugið á „örlagastundu“.

Nöfn hinna látnu á Kjalarnesi
Fólkið sem lést í umferðarslysinu á Vesturlandsvegi á sunnudag hét Finnur Einarsson, 54 ára, og Jóhanna Sigríður Sigurðardóttir, 53 ára.

Nýr þjónustukjarni fyrir fatlað fólk vígður á Akureyri
Þjónustukjarni fyrir fatlað fólk í Klettaborg á Akureyri var vígður í bænum í dag. Kjarninn var vígður af Höllu Björk Reynisdóttur forseta bæjarstjórnar Akureyrarbæjar og afhenti hún Karólínu Gunnarsdóttur sviðsstjóra búsetusviðs lyklana að húsinu.

Danska herþyrlan aðstoðaði vélarvana bát við Langanes
Óskað var eftir aðstoð björgunarþyrlu danska flughersins vegna vélarvana línubáts norður af Langanesi í dag. Stjórnstöð gæslunnar fékk aðstoðarbeiðni frá línubátnum laust eftir klukkan 13:00.

Tólf þúsund hafa sótt sér stafræn ökuskírteini
Tólf þúsund einstaklingar hafa sótt sér stafrænt ökuskírteini frá því að opnað var fyrir umsóknir í dag.

Humarleiðangur Hafró gekk vel
Fimmtugasti og annar árlegur humarleiðangur Hafrannsóknarstofnunnar fór fram um miðjan síðasta mánuð en 10. til 19. júní var myndað á 85 stöðvum frá Jökuldýpi til vesturs og til Lónsdýpis í austri.

Opna Píetasímann sem verður opinn allan sólarhringinn
Píeta-samtökin opnuðu í dag fyrir nýja þjónustu, Píetasímann, sem verður opinn allan sólarhringinn og er liður í því að auka þjónustu við þá sem eru með sjálfsvígshugsanir og aðstandendur þeirra.

Verður að standa við stóru orðin
Formaður Viðreisnar kveðst ekki eiga von á öðru en að fjármagn verði tryggt vegna laga um að sálfræðiþjónusta falli undir greiðsluþátttökukerfi sjúkratrygginga.

Breyta vinnulagi á landamærunum eftir að smit greindust ekki í fyrstu skimun
Stefnt er að setja á laggirnar vinnulag til þess að koma í veg fyrir að fólk, nýsmitað af kórónuveirunni, geti komið til landsins og ekki greinst jákvætt fyrir kórónuveirusmiti á landamærunum.

Fjárheimild vegna forsetakosninga rúmar 432 milljónir
Endanlegur kostnaður vegna forsetakosninganna sem fram fóru síðastliðinn laugardag mun ekki liggja fyrir fyrr en eftir einhverjar vikur.

Birting draga um breytingar á stjórnarskrá feli ekki í sér skuldbindingu fyrir formenn stjórnmálaflokka
Drög að frumvarpi um breytingar á afmörkuðum hluta stjórnarskrár Íslands voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í gær.

Kallaðar út vegna báts í vanda utan Ólafsfjarðarmúla
Þyrla Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir voru kallaðar út vegna báts í vanda undan Ólafsfjarðarmúla á tólfta tímanum í dag.

Svona var 82. upplýsingafundur almannavarna
Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra hefur boðað til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14 í dag í Katrínartúni 2.

Stopp á ný viðtöl og allir á biðlista hjá Stígamótum
Á fimm árum hefur þeim sem leita til Stígamóta vegna kynferðisofbeldis fjölgað um ríflega fjörtíu prósent. Verkefnastýra segir ráðgjafa vart hafa undan. Biðtími eftir viðtölum hefur lengst töluvert og er nú ríflega tveir mánuðir.

8.700 störf á næstu fimm árum: „Ekki bara karlar í vörubílum, ýtum og gröfum“
„Við leggjum af stað í þessu ríkisstjórnarsamstarfi með þá vitneskju að við höfum gert of lítið. Við höfðum ekki sinnt, í langan tíma, viðhaldi og uppbyggingu eða vexti í kerfinu,“ sagði samgöngu- og sveitastjórnarráðherra um samgöngumál í Bítinu í morgun.

Segir fólk hringja á öllum tímum sólarhrings með ásökunum um mannvonsku
Kolbeinn Óttarsson Proppé segist hafa verulegar áhyggjur af pólaríseringu sem einkenni íslensk stjórnmál.

Stafræn ökuskírteini líta dagsins ljós
Stafræn ökuskírteini voru formlega kynnt til sögunnar á blaðamannafundi í fjármála- og efnahagsráðuneytinu í dag.

Fjórir greindust með veiruna síðasta sólarhringinn
Fjórir greindust með kórónuveiruna síðasta sólarhringinn, þrír við landamæraskimun og einn hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans, samkvæmt nýjum tölum á Covid.is.

Vigdísi blöskrar hispurslausar skreytingar á strætisvögnum
Vigdís Hauksdóttir spyr hvort þeir hjá Strætó séu að missa vitið.

Síbrotakona þóttist vera systir sín
Kona um þrítugt hefur verið dæmd í tæplega tveggja ára fangelsi fyrir að hafa ekið próflaus og undir áhrifum vímuefna.

Einungis fengið gögn úr þremur prósentum af rafrænum gagnakerfum ríkisins
Í nýrri skýrslu Þjóðskjalasafns segir að heilbrigðisstofnanir, dómstólar og lögregluembætti standi sig illa er kemur að því að uppfylla lög og reglur sem lúta að skjalavörslu og skjalastjórn.

Fluttur á og af bráðadeild í járnum
Um stundarfjórðungi eftir að skemmtistaðir borgarinnar lokuðu í gærkvöldi segist lögreglan hafa afskipti af dauðadrukknum karlmanni í Austurstræti.

Skjálfti 2,9 að stærð norður af Siglufirði
Jarðskjálftahrinan við mynni Eyjafjarðar er enn yfirstandandi.

Forseti geti aðeins setið í 12 ár og meðmælendum fjölgi
Meðmælendum forsetaframbjóðenda verður fjölgað og hámark sett á samfellda setu á forsetastóli, verði frumvarpsdrög að breytingum á stjórnarskrá að veruleika

Stafræn ökuskírteini kynnt í dag
Boðað hefur verið til blaðamannafundar í dag vegna útgáfu rafrænna ökuskírteina.