Fleiri fréttir Skjálftavirkni við Hveragerði Mælar Veðurstofunnar hafa numið fjóra jarðskjálfta með upptök skammt norð-austur af Hveragerði það sem af er degi. 6.6.2020 12:13 Vísa deilu fjögurra BHM-félaga til sáttasemjara Fjögur aðilarfélög Bandalags háskólamanna (BHM) hafa vísað kjaradeildu sinni við Samband íslenskra sveitarfélaga til ríkissáttasemjara. Viðræðurnar hafa staðið yfir í tæpt ár án árangurs. 6.6.2020 11:53 Þunglyndiseinkenni tvöfalt tíðari í heimahjúkrun en á öldrunarheimilum Tíðni þunglyndiseinkenna hjá öldruðum er nær tvöfalt hærri á meðal þeirra sem fá heimahjúkrun en á öldrunarheimilum. Tíðni þunglyndislyfja á öldrunarheimilum er aftur á móti 55% samanborið við 32,% prósent í heimahjúkrun. Þetta leiðir ný rannsókn í ljós. 6.6.2020 11:45 Um 700 jarðskjálftar við Þorbjörn frá því í síðustu viku Vísindaráð almannavarna ætla að funda til að meta stöðuna eftir að vísbendingar komu fram um að landris sé hafið á ný við fjallið Þorbjörn við Grindavík. Um 700 jarðskjálftar hafa í nágrenni bæjarins undanfarna viku, flestir þeirra smáskjálftar. 6.6.2020 09:40 Bændur á Suðurlandi eru byrjaðir að slá Sláttur er hafin hjá bændum á Suðurlandi og lítur vel út með grasspretti og heyfeng í sumar. 5.6.2020 23:34 Segir flugskýlið sem borgin vill rífa með merkustu flugminjum Íslands Höfundur bókarinnar um Flugsögu Íslands hefur óskað eftir því að Minjastofnun grípi til skyndifriðunar til að koma í veg fyrir að borgin rífi flugskýli í Skerjafirði. Hann segir skýlið einhverjar merkustu minjar um upphaf atvinnuflugs á Íslandi. 5.6.2020 21:34 Tripical-deilan komin á borð lögmanna Eigandi ferðaskrifstofunnar Tripical er ósammála um að henni beri skylda að endurgreiða nemendum Menntaskólans á Akureyri útskriftarferð þeirra. Málið er komið í hendur lögmanna og foreldri skoðar að höfða dómsmál. 5.6.2020 21:00 Nágrannar hjálpuðu við að slökkva sinueldinn Mikill gróðureldur geisar nú við Ásvelli í Hafnarfirði. Allt tiltækt slökkvilið og aðrir viðbragðsaðilar eru nú á staðnum að reyna að ráða niðurlögum brunans. 5.6.2020 20:28 Þrisvar sinnum fleiri Íslendingar taldir hafa fengið veiruna en greindust með hana Niðurstöður úr Covid-mótefnamælingum Íslenskrar erfðagreiningar benda til þess að þrisvar sinnum fleiri Íslendingar hafi fengið veiruna en greindust með hana. 5.6.2020 19:53 Óttast að fíkniefnabangsarnir finnist víða Hlaupbangsar sem innihalda fíkniefni eru í umferð á Norðurlandi vestra. Óttast er að bangsarnir séu víðar á landinu. Ekki hefur fundist bein tenging við hlaupbangsamálið á Suðurnesjum. 5.6.2020 19:16 Sinubruni hjá Ásvöllum Tilkynning barst um klukkan 18:30. 5.6.2020 18:51
Sjá næstu 50 fréttir
Skjálftavirkni við Hveragerði Mælar Veðurstofunnar hafa numið fjóra jarðskjálfta með upptök skammt norð-austur af Hveragerði það sem af er degi. 6.6.2020 12:13
Vísa deilu fjögurra BHM-félaga til sáttasemjara Fjögur aðilarfélög Bandalags háskólamanna (BHM) hafa vísað kjaradeildu sinni við Samband íslenskra sveitarfélaga til ríkissáttasemjara. Viðræðurnar hafa staðið yfir í tæpt ár án árangurs. 6.6.2020 11:53
Þunglyndiseinkenni tvöfalt tíðari í heimahjúkrun en á öldrunarheimilum Tíðni þunglyndiseinkenna hjá öldruðum er nær tvöfalt hærri á meðal þeirra sem fá heimahjúkrun en á öldrunarheimilum. Tíðni þunglyndislyfja á öldrunarheimilum er aftur á móti 55% samanborið við 32,% prósent í heimahjúkrun. Þetta leiðir ný rannsókn í ljós. 6.6.2020 11:45
Um 700 jarðskjálftar við Þorbjörn frá því í síðustu viku Vísindaráð almannavarna ætla að funda til að meta stöðuna eftir að vísbendingar komu fram um að landris sé hafið á ný við fjallið Þorbjörn við Grindavík. Um 700 jarðskjálftar hafa í nágrenni bæjarins undanfarna viku, flestir þeirra smáskjálftar. 6.6.2020 09:40
Bændur á Suðurlandi eru byrjaðir að slá Sláttur er hafin hjá bændum á Suðurlandi og lítur vel út með grasspretti og heyfeng í sumar. 5.6.2020 23:34
Segir flugskýlið sem borgin vill rífa með merkustu flugminjum Íslands Höfundur bókarinnar um Flugsögu Íslands hefur óskað eftir því að Minjastofnun grípi til skyndifriðunar til að koma í veg fyrir að borgin rífi flugskýli í Skerjafirði. Hann segir skýlið einhverjar merkustu minjar um upphaf atvinnuflugs á Íslandi. 5.6.2020 21:34
Tripical-deilan komin á borð lögmanna Eigandi ferðaskrifstofunnar Tripical er ósammála um að henni beri skylda að endurgreiða nemendum Menntaskólans á Akureyri útskriftarferð þeirra. Málið er komið í hendur lögmanna og foreldri skoðar að höfða dómsmál. 5.6.2020 21:00
Nágrannar hjálpuðu við að slökkva sinueldinn Mikill gróðureldur geisar nú við Ásvelli í Hafnarfirði. Allt tiltækt slökkvilið og aðrir viðbragðsaðilar eru nú á staðnum að reyna að ráða niðurlögum brunans. 5.6.2020 20:28
Þrisvar sinnum fleiri Íslendingar taldir hafa fengið veiruna en greindust með hana Niðurstöður úr Covid-mótefnamælingum Íslenskrar erfðagreiningar benda til þess að þrisvar sinnum fleiri Íslendingar hafi fengið veiruna en greindust með hana. 5.6.2020 19:53
Óttast að fíkniefnabangsarnir finnist víða Hlaupbangsar sem innihalda fíkniefni eru í umferð á Norðurlandi vestra. Óttast er að bangsarnir séu víðar á landinu. Ekki hefur fundist bein tenging við hlaupbangsamálið á Suðurnesjum. 5.6.2020 19:16
Þórunn Anna tekur við Neytendastofu Þórunn Anna Árnadóttir hefur verið sett í embætti forstjóra Neytendastofu frá 1. júlí til 31. desember. 5.6.2020 18:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu Lögreglunni á Norðurlandi Vestra hefur borist áreiðanlegar upplýsingar þess efnis að hlaupbangsar sem innihalda fíkniefni séu í umferð á svæðinu. Óttast er að bangsarnir séu víðar á landinu. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 5.6.2020 18:00
Hjólar í Reykjavíkurborg og segir „sómakær sveitarfélög“ ekki taka eignir af íbúum bótalaust Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitastjórnaráðherra segir ekki annað koma til greina en að Reykjavíkurborg virði samkomulag ríkisins og borgarinnar um uppbyggingu á landi ríkisins við Skerjafjörð. 5.6.2020 17:39
Þórhallur „miðill“ í 18 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot Landsréttur staðfesti í dag átján mánaða fangelsisdóm yfir Þórhalli „miðli“ Guðmundssyni vegna kynferðisbrots gegn skjólstæðingi sem kom til hans í heilunarmeðferð fyrir tíu árum. Þórhallur neitaði allri sök í málinu en tekið var tillit til hversu langan tíma málið dróst þegar refsing hans var ákvörðuð. 5.6.2020 16:42
Ólafur William Hand sýknaður fyrir Landsrétti Ólafur William Hand, fyrrverandi upplýsingafulltrúi og forstöðumaður markaðsmála á alþjóðasviði Eimskips, var í dag sýknaður af kæru um ofbeldi í garð barnsmóður sinnar fyrir Landsrétti. 5.6.2020 16:06
Upplifði létti á samstöðumótmælunum og vonar að þau marki upphafið að allsherjar vakningu Sigrún hefur ítrekað orðið fyrir fordómum fyrir það eitt að vera brún á hörund. Hún segir að fordóma gegn svörtu fólki sé sannarlega að finna á litla Íslandi. Sigrún biðlar til foreldra að fræða börnin sín. 5.6.2020 14:48
„Það sem er á borðinu í dag virðist ekki duga, það er ljóst“ Félagsmenn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga samþykktu í dag verkfallsboð með 85,5 prósentum greiddra atkvæða. 5.6.2020 14:37
Inga Sæland telur að Lilja eigi að segja af sér Formaður flokksins segir gamla spillingarkerfið blómstra hér sem aldrei fyrr 5.6.2020 14:02
Hjúkrunarfræðingar samþykkja verkfallsaðgerðir Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur boðar til verkfallsaðgerða hjúkrunarfræðinga sem starfa hjá ríkinu. Málið var lagt til atkvæðagreiðslu sem lauk nú á hádegi og tóku 82,2 prósent þeirra hjúkrunarfræðinga sem starfa á ofangreindum samningi. 5.6.2020 13:38
Fimmtán prósenta samdráttur hjá Vogi vegna tekjubrests Sjúkrahúsið Vogur hefur þurft að draga úr meðferðarplássum um fimmtán prósent vegna tekjuskorts. Verulega þurfti að draga úr meðferðarplássum frá miðjum mars þar til í lok maí vegna kórónuveirufaraldursins og er biðtími fyrir suma allt að margir mánuðir. 5.6.2020 13:25
Hönnuðir ósáttir við Handprjónasambandið og Vísi Stæk óánægja er meðal hönnuða á Íslandi vegna fréttar um afstöðu Handprjónasambandsins til markaðsherferðar. 5.6.2020 13:03
Fleiri en þúsund nú í sóttkví en ekkert nýtt smit Áfram fjölgar fólki í sóttkví vegna kórónuveirunnar lítillega á milli daga. Fjöldinn er nú yfir þúsund manns og hafa rúmlega tvö hundruð bæst við á undanförnum þremur sólarhringum. Ekkert nýtt smit greinist þó, sjötta daginn í röð, samkvæmt upplýsingum landlæknis og almannavarna. 5.6.2020 12:58
Næst besti árangur í lækkun kolesteróls frá 1980 Ný rannsókn sem birtist í nýjasta hefti vísindatímaritsins Nature sýnir að slæmt kólesteról, það er kólesteról sem eftir er þegar svokallað góða HDL kólesterólið hefur verið dregið frá, hefur hækkað mest í Asíuríkjum og lækkað mest á Vesturlöndum. 5.6.2020 12:37
Lilja segir flokksaðild ekki hafa skipt máli við skipan ráðuneytisstjóra Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra segir flokksaðild Páls Magnússonar ekki hafa skipt máli þegar hún skipaði hann í stöði ráðuneytisstjóra í menntamálaráðuneytinu í fyrra. 5.6.2020 12:07
Skimun á landamærum gjaldfrjáls fyrstu tvær vikurnar og kostar svo 15 þúsund krónur Skimunin gjaldfrjáls fyrstu tvær vikurnar og kostar svo 15 þúsund krónur. 5.6.2020 12:05
Tripical mun ekki endurgreiða nemendum MA vegna útskriftarferðar Ferðaskrifstofan Tripical mun ekki endurgreiða nemendum Menntaskólans á Akureyri vegna útskriftarferðar sem raskaðist vegna heimsfaraldurs. Formaður neytendasamtakanna segir að ferðaskrifstofunni beri að endurgreiða nemendum ferðina. Ferðafélag Menntaskólans á Akureyri hefur sett sig í samband við lögfræðing. 5.6.2020 12:04
Fíkniefnahlaup á Norðurlandi vestra Lögreglan á Norðurlandi vestra segir áreiðanlegar upplýsingar hafa borist þess efnis að hlaupabangsar eða hlaupkubbar sem innihalda fíkniefni séu í umferð á svæðinu. 5.6.2020 11:57
Laganna vörður hafði betur gegn Verði Tryggingafélagið Vörður var í gær dæmt af Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða lögreglumanni bætur eftir að hann slasaðist við störf sín í október árið 2014 þegar ekið var í veg fyrir lögreglubifreið sem hann ók. 5.6.2020 11:32
Framdyrnar opnast aftur á mánudaginn Svæði inn í strætisvögnum verður ekki lengur skipt í tvennt. 5.6.2020 10:25
Snjóþekja á Fjarðarheiði Snjóþekja er nú á Fjarðarheiði og er þar unnið að hreinsun. Sömuleiðis eru hálkublettir víða á Austurlandi og Norðausturlandi. 5.6.2020 10:06
Sýknuð í meiðyrðamáli sem foreldrar ráku fyrir hönd látins sonar síns Kona var í fyrradag sýknuð í héraðsdómi Reykjaness af miskabótakröfu sem foreldrar látins manns kröfðust fyrir hönd dánarbús sonar síns. 5.6.2020 08:00
Rannsóknarsetri á Laugarvatni lokað eftir að HÍ sagði sig frá samningi Háskóli Íslands er búinn að segja sig frá samningi við samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytið um rekstur þéttbýlisseturs og rannsóknarseturs um sveitarstjórnarmál Laugarvatni. 5.6.2020 07:48
Gæsluvarðhald vegna heimilisofbeldis fellt úr gildi Landsréttur felldi í dag úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tvítugum karlmanni sem var handtekinn á sunnudag grunaður um heimilisofbeldi. 4.6.2020 23:20
Skipaði Einar í stað Halldóru þvert á tillögu sérfræðinga Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra fór á svig við tillögu sérfræðinga í menntamálaráðuneytinu þegar hún skipaði Einar Huga Bjarnason formann fjölmiðlanefndar í nóvember. 4.6.2020 21:28
Fá minna en sólarhring til að ákveða hvort þau vilji fara í útskriftarferð til Ítalíu á mánudag Ferðaskrifstofan Tripical hefur gefið útskriftarnemendum við Menntaskólann á Akureyri minna en sólarhring til að ákveða hvort þau séu reiðubúinn til þess að fara í áætlaða útskriftaferð til Ítalíu næstkomandi mánudag 4.6.2020 21:18
Telur Ísland ekki vera að heltast úr markaðssetningarlestinni Ferðamenn sem líklegir eru til millilandaferðalaga næstu mánuði telja Ísland einn af öruggustu áfangastöðum sem völ er á með tilliti til kórónuveirufaraldursins. 4.6.2020 20:42
Helgi Björns segir að í laxveiði beri sig allir vel Helgi Björnsson söngvari og Vilborg Halldórsdóttir leikkona opnuðu Norðurá í Borgarfirði klukkan átta í morgun. Fyrsti laxinn kom á land um klukkan 10 og segir Helgi að í laxveiði beri sig allir vel, eins og segir í lagatextanum. 4.6.2020 20:30
Borgin tilkynnir Flugfélaginu Erni að rífa eigi viðhaldsstöð félagsins Reykjavíkurborg hefur tilkynnt Flugfélaginu Erni að rífa eigi viðhaldsstöð félagsins á Reykjavíkurflugvelli bótalaust vegna nýs skipulags. Forstjórinn Hörður Guðmundsson kallar þetta árás á innanlandsflugið enda geti þetta leitt til þess að starfsemi félagsins leggist af. 4.6.2020 20:20
Búast við allt að þremur ungmennum á viku á nýja afeitrunardeild Búist er við allt að þremur ungmennum á viku á nýja afeitrunardeild fyrir ólögráða ungmenni sem opnuð var á Landspítalanum í vikunni. Forstöðumaður geðþjónustu spítalans segir mikla þörf á að efla þjónustu við ungmenni með alvarlegan fíknivanda. 4.6.2020 20:00
Gagnrýna rannsókn á meintu kynferðisbroti nágranna gegn þriggja og sex ára systrum Lögmaður gagnrýnir rannsókn lögreglu á meintu kynferðisbroti gegn þriggja og sex ára systrum. Grunur leikur á að teknar hafi verið kynferðislegar myndir af stúlkunum en málið var látið niður falla eftir rúmlega ár í rannsókn. Fjölskyldan hefur kært málið til Ríkissaksóknara. 4.6.2020 19:00
Gerir ekki ráð fyrir að frumvarp um inneignarnótur verði afgreitt Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra telur nú blasa við að frumvarp hennar um inneignarnótur frá ferðaskrifstofum hafi ekki meirihlutastuðning á Alþingi. 4.6.2020 18:42
Guðmundur Franklín sækir nánast allt sitt fylgi til Miðflokksins Guðmundur Franklín Jónsson fengi 9,6 prósent atkvæða ef kosið yrði til forseta nú samkvæmt könnun Gallup. Hann sækir nánast allt sitt fylgi til þeirra sem segjast myndu kjósa Miðflokkinn í Alþingiskosningum. 4.6.2020 18:40
Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu Lögmaður gagnrýnir rannsókn lögreglu á meintum kynferðisbrotum gegn þriggja og sex ára systrum. Rætt verður við hann í kvöldfréttum Stöðvar 2. 4.6.2020 18:00
Ísland veitir hálfum milljarði í þróun á bóluefni Þetta tilkynnti Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á ráðstefnu bólusetningarbandalagsins Gavi í dag. 4.6.2020 17:37