Fleiri fréttir

Tölvuleikjagerð kennd á nýrri námsbraut

Keilir á Ásbrú vinnur að því að stofna nýja námsbraut í tölvuleikjagerð. Samþykkis menntamálaráðuneytisins er beðið og stendur ekki á neinu öðru. Áætlað að taka inn 60 nemendur í haust. Samstarf við erlenda háskóla í farvatni

Fordæmalaus aukning á útblæstri hér á landi

Líklega eru fá eða engin dæmi um jafn mikla fyrirsjáanlega aukningu í losun gróðurhúsalofttegunda til 2030 hjá öðrum þróuðum ríkjum og Íslandi, samkvæmt skýrslu umhverfisráðherra. Hver Íslendingur losar um14 tonn af CO2.

Skipverjinn fluttur á Hólmsheiði til að verjast ofbeldi

Áhyggjur fangelsismálastofnunar af öryggi skipverjans leiddu til þess að ákveðið hefur verið að vista hann í fangelsinu á Hólmsheiði. Stemningin á Litla Hrauni benti til þess að þar væri öryggi hans ógnað. Sex vikna einangrunarvist mannsins lauk í dag.

Skipverjinn ekki lengur í einangrun

Skipverjinn sem situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa banað Birnu Brjánsdóttur verður látinn laus úr einangrun í dag.

Leikskólasveit tefldi á móti grunnskólasveita í fyrsta sinn

Tugir barna á leikskólanum Laufásborg tefla skák á degi hverjum í skólanum. Fyrrverandi landsliðsþjálfari kvenna hefur veg og vanda af kennslunni. Kennari barnanna segir að skákin nýtist til að kenna stærðfræði og landafræði.

Slökkviliðið treystir á 34 ára gamlan bíl

Aðalbíll slökkviliðsins á Tunguhálsi þessa dagana er 34 ára gamall. Slökkviliðsmaður segir ófremdarástand ríkja. Slökkviliðsstjórinn segir efnahagshrunið hafa tafið fyrir endurnýjun á flotanum.

Alvarleg vísbending um kennaraskort

Um þriðjungur stöðugilda við kennslu, umönnun og uppeldi barna í leikskólum er nú skipaður leikskólakennurum en lög kveða á um að þeir skuli að lágmarki vera tveir af hverjum þremur.

Erla segir niðurstöðu endurupptökunefndar vera ansi mikið högg

Erla Bolladóttir segist hafa verið undir miklum þrýstingi frá lögreglumönnum þegar hún bar fjóra mönnum röngum sökum í Guðmundar- og Geirfinssmálinu í ársbyrjun 1976. Niðurstaða endurupptökunefndar um að synja máli hennar um endurupptöku hafi verið ansi mikið högg.

Læknir segir farsíma krabbameinsvaldandi

Krabbameinslæknir staðhæfir að farsímanotkun valdi heilakrabbameini en segir heiminn ekki tilbúinn að heyra fréttirnar. Geislavarnir ríkisins starfa eftir viðmiði alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar og er ekki kunnugt um að hættustigið sé orðið svo mikið.

Vísindamenn öðlast nýja sýn á sjúkdóma með CRISPR

Þó svo að stutt sé síðan CRISPR-erfðatæknin leit dagsins ljós er hún núna í notkun í tilraunastofum vítt og breitt um heiminn. Tæknin boðar byltingu á skilningi okkar á erfðum og erfðabreytingum og möguleikar hennar eru nær óþrjótandi. Hvergi mun hún þó hafa jafn mikil áhrif og í læknisvísindum.

Sjá næstu 50 fréttir