Fleiri fréttir

Mannkynið er að falla á tíma vegna loftslagsvandans

Mannkynið er að falla á tíma til að afstýra víðtækum og óafturkræfum breytingum á loftslagi heimsins vegna kolefnisútblásturs. Draga verður kerfisbundið úr notkun jarðefnaeldsneytis og hætta því alfarið fyrir næstu aldamót. Þetta eru niðurstöður nýrrar skýrslu vísindanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar.

Heiðar og Vilhjálmur mættust í beinni um undanþágu

Skiptar skoðanir eru um það í ríkisstjórninni hvort veita eigi slitabúi gamla Landsbankans undanþágu frá gjaldeyrishöftum vegna lengingar í skuldabréfi milli Landsbankans og slitabús gamla Landsbankans, LBI.

Ísland hyggst sýna metnað í loftslagsmálum

Christiana Figueres, framkvæmdastýra rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál, átti í gær fundi með Gunnari Braga Sveinssyni og Sigurði Inga Jóhannssyni.

Forsetinn verður í Eyjunni

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands verður gestur Björns Inga í Eyjunni á Stöð 2 í kvöld.

Rannsókn á flugslysinu miðar vel

Þorkell Ágústsson sem stýrir rannsókn á slysinu hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa segir óvíst hvenær skýrsla nefndarinnar um slysið lítur dagsins ljós

Biðin gæti kostað Ísland mikið

Umleitanir breskra stjórnvalda til að ræða mögulegan sæstreng á milli Íslands og Bretlands hafa ekki borið neinn árangur. Íslensk stjórnvöld afþökkuðu fund með breska orkumálaráðuneytinu í fyrrasumar. Þetta sést á tölvupóstsamskiptum á milli breskra og íslenskra stjórnvalda.

Ferðamenn fastir á heiðum

Björgunarsveitarmenn fara til aðstoðar erlendra og innlendra ferðamanna sem sitja fastir á Kaldadal og Arnarvatnsheiði.

Segja reikninga í fjárlögum ranga

BSRB hefur sent Alþingi umsögn um frumvarp til laga um virðisaukaskatt og fleira þar sem fram kemur að útreikningar í fjárlagafrumvarpinu standast ekki.

Nýtt og stærra Barnahús opnað

Barnahús var opnað formlega í nýjum húsakynnum í gær og nú verður hægt að taka á móti fleiri börnum en áður. Aldrei hafa fleiri börn komið í Barnahús en á síðasta ári.

Fóstureyðing í öllum greindum tilvikum

Alls greindust 38 tilvik af Downs-heilkenni við fósturskimun við 12 vikna meðgöngu á árunum 2007 til 2012. Öllum fóstrunum var eytt. Sláandi en kemur ekki á óvart, segir Jóna Ásmundsdóttir, formaður Félags áhugafólks um Downs.

Flestir vilja að Jón Gnarr taki við af Ólafi Ragnari Grímssyni

Jón Gnarr, Ólafur Ragnar Grímsson og Ragna Árnadóttir eru þau nöfn sem fólk nefnir helst þegar það er spurt hvern það vilji helst sjá sem næsta forseta Íslands. Skoðanakönnun Fréttablaðsins sýnir að Jón er vinsælli á meðal karla en kvenna.

Prómeþeifur til stjarnanna á ný

Títaninn Prómeþeifur uppskar eilífa reiði Seifs þegar hann stal eldi, eða samruna, sólarinnar og færði bjargarlausu mannkyni. Kjarnasamruni sólstjarna er eldri en grísk goðafræði og sólin. Hann er jafnaldri alheimsins og maðurinn er enn óhræddur við að ögra höfuðguðinum.

Sjá næstu 50 fréttir