Fleiri fréttir

Mistök, slæleg vinnubrögð og fölsun

Hlédís Sveinsdóttir segist ekki hafa viljað fara í stríð við kerfið eða vinna mál. Hún hafi vonað að mál sitt yrði til vakningar og leiða til góðs. Þetta kemur fram í pistli sem hún ritaði á Facebook-síðu sína í nótt.

Víða skíðað í dag

Opið er víða á skíðasvæðum landsins í dag og má þar nefna bæði skíðasvæðið í Stafadal þar sem verður opið frá tíu til sextán og í Böggvistaðafjalli við Dalvík til klukkan sautján. Í Oddsskarði verður einnig opið til sextán.

500 útskriftast frá HÍ

Hátt í 500 kandídatar taka á móti prófskírteinum sínum á brautskráningarhátíð Háskóla Íslands í Háskólabíói í dag klukkan eitt. Kandídatarnir eru af öllum fimm fræðasviðum skólans en úr grunnnámi útskrifast um tvöhundruð og áttatíu og hundrað og áttatíu úr framhaldsnámi.

Keimlík rán í Kópavogi og Reykjavík

Tvö keimlík rán voru framin á höfuðborgarsvæðinu rétt fyrir miðnætti. Tveir grímuklæddir menn komu inn í verslun í Kópavogi og höfðu þar í hótunum við starfsstúlku, tóku hana hálstaki og neyddu til að opna sjóðsvél. Þeir hrifsuðu eitthvað af peningum og hurfu síðar á braut.

Tilfinningar ráða gjarnan för

Upplýsingar liggja ekki á lausu um eignarhald á jörðum, kort eru ófullkomin og stjórnvöld hafa ekki skýra stefnu í málaflokknum. Engu að síður hafa allir skoðun á ástandinu og hvert skal stefnt. Stefnan verður hins vegar að byggja á réttum upplýsingum sem

Skilyrði fyrir eignarnámi ekki uppfyllt

Eigendur jarða á Reykjanesi sem Landsnet hefur farið fram á að verði teknar eignarnámi furða sig á kröfunni. Landeigendur telja samninga ekki fullreynda en þeir hafa krafist þess að línan verði jarðstrengur en ekki loftlína.

Menn, tæki og hús á kafi í grútardrullu

Aðstæður til hreinsunarstarfa í Kolgrafafirði eru erfiðar vegna hlýinda og rigningar. Allt er á kafi í grút og lyktin hrikaleg jafnt utan- sem innandyra. Tilraunir til að smala síld úr firðinum báru ekki árangur. Þykkt grútarlag litar fjörðinn gulan.

Hálfníræð skíðar enn á gervimjaðmakúlum

Elín Guðmannsdóttir hefur staðið á skíðum í marga áratugi og er ekki af baki dottin þótt hún sé orðin 84 og sé með gervimjaðmaliði. Sonur Elínar kveðst hafa haft áhyggjur af fyrstu skíðaferð hennar í fjögur ár en það hafi reynst óþarft.

Óborganlegt myndband - svona á ekki að krulla hár

Tori nokkur Locklear frá Bandaríkjunum hefur öðlast heimsfrægð á aðeins nokkrum dögum eftir að hún birti misheppnað kennslumynband á myndbandavefnum YouTube. Þar reynir Tori að kenna rétt handbrögð þegar krullujárn er notað.

Skrautleg ferðalög Ara Jósepssonar

Hann hefur svo sannarlega slegið í gegn á youtube þar sem hann lýsir ævintýralegum ferðalögum sínum um víða veröld á skrautlegan hátt.

Ekkert ómerkt hrossakjöt í íslensku hakki

Svo virðist sem stóra hrossakjötsmálið teygi ekki anga sína hingað til lands ef marka má niðurstöður úr rannsókn Matvælastofnunnar sem birtar voru í dag.

Steingrímur leit yfir farinn veg - "Við hikuðum ekki þegar skyldan kallaði“

Áttundi landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs var settur á Hótel Hilton fyrir stundu. Steingrímur J. Sigfússon sagði í opnunarræðu sinni engann flokk hafa skipt meiri sköpum fyrir stjórnmálaþróun í landinu síðastliðinn fimmtán ár og Vinstri græna. Steingrímur lætur af formennsku á fundinum og leit yfir farinn veg í ræðu sinni.

Bein útsending frá landsfundi VG

Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá Landsfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hér á Vísi. Fundurinn fer fram á Hóteli Hilton í Reykjavík og stendur til sunnudags.

Ármann Kr: Fjárframlög til framhaldsskóla duga ekki til

"Ég veit að þeir tóku til í sínum rekstri og stóðu sig mjög vel þar,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, en bæjarráð samþykkti á fundi sínum í gær ályktun þar sem lýst var yfir áhyggjum vegna þess að gert er ráð fyrir því að Menntaskólinn í Kópavogi verði rekinn með 35 milljón króna halla á næsta rekstrarári.

Bæjarráð Kópavogs lýsir yfir áhyggjum vegna fjárhagsstöðu MK

Meirihluti í bæjarráði Kópavogs samþykkti í gær ályktun þar sem lýst var yfir áhyggjum af því að stjórn Menntaskólans í Kópavogi hefðu gert áætlun fyrir árið 2013 með 35 milljón króna halla. Í ályktuninni segir meðal annars að slíkt geti skapað mikinn rekstrarvanda í framtíðinni. Svo segir orðrétt: "Þá eru gerðar óraunhæfar kröfur um sértekjur skólans eins og fram hefur komið hjá stjórninni.“

Hátt í 500 kandídatar útskrifast á morgun

Hátt í 500 kadídatar taka á móti prófskírteinum sínum á brautskráningarhátíð Háskóla Íslands í Háskólabíói á morgun. Nemendur úr bæði grunn- og framhaldsnámi af fræðasviðunum fimm, Félagsvísindasviði, Heilbrigðisvísindasviði, Hugvísindasviði, Menntavísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði, fá afhent prófskírteni við þetta hátíðlega tilefni. Alls er um að ræða 466 kandídata með 468 próf. Úr grunnnámi brautskrást 284 kandídatar en 182 úr framhaldsnámi.

Bjarni Ben nýtur minnsta traustsins

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, nýtur minna trausts en allir stjórnmálaleiðtogar á Íslandi. Ólafur Ragnar Grímsson nýtur mesta traustsins og Hanna Birna Kristjánsdóttir næstmest.

Viðráðanleg og skýr markmið mikilvæg

Skýrir rammar, rútína, sjónrænar leiðbeiningar, hvatning og hrósskipta miklu máli fyrir börn með ADHD, segir Haukur Örvar Pálmason sálfræðingur. Hann segir börn með ADHD iðulega eiga erfitt með að skipuleggja nám sitt en það hjálpi mjög að búta verkefni niður.

Tólf sagt upp á Vestfjörðum

Tólf starfsmönnum hefur verið sagt upp hjá frystihúsinu Arnfirðingnum á Bíldudal. Hólmgrímur S. Sigvaldason, framkvæmdastjóri Arnfirðings, segir ástæðuna skuggalega erfiða stöðu í bankaviðskiptum eins og hann orðar það.

Ólafía vill verða formaður VR

"Það er rétt - ég var að skila inn framboði í morgun og nú er ég bara komin á fullt í undirbúning,“ segir Ólafía Rafnsdóttir, sem hefur ákveðið að bjóða sig fram sem formaður VR í komandi formannskjöri. Kosið verður um nýjan formann í VR rafrænt þann 7. til 15. mars næstkomandi.

Neitaði sýnatöku og missti réttindin

Lögreglan á Suðurnesjum handtók tvo ökumenn í fyrradag vegna gruns um fíkniefnaakstur, svo og fleiri brota í umferðinni. Annar mannanna var réttindalaus við stýrið og staðfestu sýnatökur að hann hafði neytt kókaíns og kannabis.

Henti þremur kettlingum út úr bílnum

Íbúi í Keflavík hafði samband við lögregluna á Suðurnesjum í vikunni vegna þess að bifreið hafði staðnæmst við lóðina hjá honum og þar henti ökumaður hennar út þremur litlum kettlingum.

Vilja byggja hjúkrunarheimili við Hádegisskarð

Starfshópur bæjarráðs Hafnarfjarðar lagði fram tillögu á Bæjarráðsfundi í gær þar sem lagt var til að bjóða út byggingu hjúkrunarheimilis við Hádegisskarð í Hafnarfirði. Skipuð verður verkefnastjórn sem sjái um útboð vegna þessa og eftirfylgni með þeim.

Logaland kærir innkaupadeild Landspítalans til Samkeppniseftirlitsins

Fyrirtækið Logaland hefur kært innkaupadeild Landspítalans til Samkeppniseftirlitsins vegna vinnubragða í innkaupum á heilbrigðisvörum og –tækjum. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að deildin annist innkaup og útboð fyrir Landspítalann á heilbrigðisvörum, en áætlað er að meirihlutinn af um 9 milljarða árlegri veltu á þeim markaði fari í gegnum innkaupadeildina.

Skíðaskálinn aftur í hendur fyrri eiganda

Skíðaskálinn í Hveradölum er aftur kominn í eigu Svavars Helgasonar eftir að félag sem keypti skálann í september síðastliðnum stóð ekki við greiðslur.

Vill pólitíkusa frá samningaborðinu

Orri Vigfússon, formaður Verndarsjóðs villtra laxastofna, segir ljóst að stjórnmálamönnum hafi mistekist að leysa makríldeiluna. Tími sé kominn til að hleypa hagsmunaaðilum að samningaborðinu.

Mikið hagræði með nýrri hringleið á sjó

Samskip taka upp siglingar frá Vestfjörðum og Norðurlandi beint til Evrópu. Fiskútflytjandi á Ísafirði segir mikinn styrk felast í þjónustunni fyrir landsbyggðina.

Íhugar að leggja vantraustið fram aftur

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, íhugar enn að bera fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina ef frumvarp að nýrri stjórnarskrá kemst ekki til afgreiðslu á þinginu.

Geislafræðingar bíða eftir svari forstjórans

Alls hafa 46 geislafræðingar á Landspítalanum (LSH) sagt upp störfum, þar af eru 42 á myndgreiningardeild og fjórir á geisla- og meðferðardeild. Um 80 slíkir sérfræðingar eru á spítalanum í dag, þó ekki allir í fullu starfi.

Loks festur í lög eftir tuttugu ár

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var formlega festur í lög á Alþingi á miðvikudag, tæpum tuttugu árum eftir að hann var fullgiltur hér á landi þann 28. október árið 1992.

Ljósavél bilaði í fiskibáti

Ljósavél bilaði í fiskibáti sem var á leið til Húsavíkur í gærkvöldi, og slokknuðu öll ljós um borð, meðal annars siglingaljós.

Ríki og borg í viðræður um neyslurými fyrir sprautufíkla

Heiða Kristín Helgadóttir, stjórnarformaður Bjartar framtíðar og varaformaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, segir tímabært að skoða aðrar leiðir en farnar hafi verið til að mæta þörfum sprautufíkla. Í því ljósi hafa forsvarsmenn Besta flokksins rætt um þörfina á sérstöku neyslurými fyrir sprautufíkla í Reykjavík. Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs, telur um færa leið að ræða, að því gefnu að sannað sé að um árangursríka aðferð sé að ræða.

Þessar auglýsingar eru tilnefndar

ÍMARK birti í dag tilnefningar til Lúðursins, Íslensku auglýsingaverðlaunanna sem veitt verða á Íslenska markaðsdeginum í Hörpu 1. mars næstkomandi.

Heimdallur selur Jóhönnuklúta á landsfundi

"Þetta rýkur út eins og heitar lummur,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður Heimdallar en félagið seldi svokallaða gleraugnaklúta á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í dag, sem hafa vakið mikla athygli.

Horfði upp á móður sína sofa á ganginum í tvær nætur

Sonur tæplega áttræðrar konu segist miður sín yfir að hafa þurft að horfa upp á móður sína sofa í rúmi á göngum hjartadeildar í tvo daga fyrir fyrirhugaða aðgerð eftir hjartaáfall. Yfirlæknir deildarinnar segir ástandið erfitt og bara í dag hafi sex sjúklingar þurft að liggja á göngum deildarinnar vegna plássleysis.

Sjá næstu 50 fréttir