Loks festur í lög eftir tuttugu ár 22. febrúar 2013 07:00 Alþingi lögfesti Barnasáttmála SÞ í vikunni, tæpum tuttugu árum eftir að hann tók formlega gildi hér á landi. fréttablaðið/Valli
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var formlega festur í lög á Alþingi á miðvikudag, tæpum tuttugu árum eftir að hann var fullgiltur hér á landi þann 28. október árið 1992. Samningurinn var undirritaður af hálfu Íslands þann 26. janúar árið 1990 og öðlaðist gildi hér á landi 27. nóvember 1992. „Þetta er mikil réttarbót fyrir börn á Íslandi,“ segir Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Sáttmálinn hafi verið álitinn leiðarljós samtakanna sem hafa lengi barist fyrir lögfestingu hans hér á landi. „Það er því mikið fagnaðarefni að nú sé Barnasáttmálinn loksins orðinn löggiltur og að hægt sé að beita ákvæðum hans fyrir íslenskum dómstólum sem settum lögum.“ Alþjóðasamtök Barnaheilla, Save the Children, sendu frá sér tilkynningu vegna málsins í gær þar sem fram kom að samtökin hefðu frá upphafi barist ötullega fyrir réttindum barna og segja mætti að saga samtakanna væri samofin sögu Barnasáttmálans og baráttu fyrir réttindum barna. Þá sendi Unicef á Íslandi frá sér tilkynningu í gær þar sem áfanganum er fagnað og þingmönnum færðar þakkir. Samtökin segja að um tímamót sé að ræða. - sv
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira