Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óskarsverðlaunadraumurinn enn á lífi Kvikmyndin Djúpið í leikstjórn Baltasars Kormáks hlaut ekki tilnefningu til Óskarsverðlaunanna í ár. Baltasar segir það vissulega vonbrigði að hljóta ekki tilnefningu en myndin hafi fengið mikla athygli fyrir að komast svona langt. 10.1.2013 20:51
Stefnir í inflúensufarald hér á landi Fjöldi greindra tilfella inflúensu hefur tvöfaldast á fyrstu dögum þessa árs og segir sóttvarnarlæknir að nokkuð skæður inflúensufaraldur sé framundan. Hann hvetur fólk til að vera heima ef það finnur fyrir einkennum til að koma í veg fyrir smit. 10.1.2013 19:45
Fórnarlamb Karls Vignis óttaðist að vera barnaníðingur - þriðja kæran barst í dag Þrír hafa lagt fram kæru á hendur Karli Vigni Þorsteinssyni vegna kynferðisbrota. Þriðja kæran var lögð fram í dag. Maður sem Karl áreitti kynferðislega á níunda áratugnum kallar eftir málefnalegri umræðu um barnaníðinga til að þolendur þori að segja frá og þjóðfélagið sé í stakk búið til að takast á við frásagnir þeirra. 10.1.2013 19:11
Dagur hættir sem varaformaður Samfylkingarinnar Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, ætlar ekki að sækjast áfram eftir embættinu á næsta landsfundi. 10.1.2013 18:44
Biskup segir Áskirkju ekki hafa fylgt siðareglum "Það er þyngra en tárum taki að slíkt skuli hafa viðgengist og það um áratugaskeið," segir Agnes M. Sigurðardóttir, biskup, um mál Karls Vignis Þorsteinssonar, barnaníðings. 10.1.2013 18:15
Ísland eina landið þar sem kynferðisbrot gegn börnum eru ófyrnanleg "Þetta mál sem nú tröllríður samfélaginu undirstrikar það hversu mikilvægt það var að ná lagabreytingum í gegn um afnám fyrningar í kynferðisbrotum gegn börnum,“ segir Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrverandi þingmaður og formaður allsherjarnefndar. 10.1.2013 17:37
Skrambi veit allt um málið Leiðréttingarforritið Skrambi er afrakstur nokkurra rannsóknarverkefna, meðal annars meistaraverkefnis Jóns Friðriks Daðasonar tölvunarfræðings. Skrambi hlaut Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands 2012. 10.1.2013 17:00
Semja um stuðning við afganskar flóttafjölskyldur Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Jón Gnarr borgarstjóri undirrituðu í dag samning sem kveður á um aðstoð og stuðning sem Reykjavíkurborg mun veita þremur afgönskum flóttafjölskyldum frá Íran sem komu til landsins í lok nýliðins árs. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá ráðuneytinu og borginni. 10.1.2013 16:42
Telja að álagið við vinnu hafi aukist Tveir þriðju hlutar félagsmanna BSRB telja að álag þeirra við vinnu hafi aukist síðasta árið. Þetta kemur fram í kjarakönnun bandalagsins. Í pistli um málið á vef BSRB segir að tölurnar sýni glöggt fram á að heilt yfir hafi álag á starfsfólk aukist til muna. Þetta útskýri efalítið hvers vegna greiðslur úr sjúkrasjóðum verkalýðsfélaganna hafi aukist svo mikið á allra síðustu árum. 10.1.2013 16:30
Með 1200 kannabisplöntur í tveimur iðnaðarhúsnæðum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði á tveimur stöðum í Hafnarfirði í gær. Við húsleitir fundust samanlagt um 1200 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. 10.1.2013 16:30
Stór vörubíll valt á Lækjargötu Bílvelta varð við N1 við Lækjargötu i Hafnarfirði um klukkan hálffjögur í dag. Þar fór stór vörubíll á hliðina með þeim afleiðingum að salt rann úr honum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni urðu sem betur fer engin slys á fólki en eins og sjá má á þessari mynd sem Verónika Sif Sigurðardóttir sendi Vísi fór töluvert magn af salti á götuna. Því var slökkviliðið fengið á staðinn til að hreinsa það upp og til að grípa til viðbragða ef olía læki. 10.1.2013 15:55
Töluverðar hækkanir á gjaldskrám leikskóla milli ára Verðlagseftirlit ASÍ kannaði breytingar á gjaldskrám leikskóla og fæði hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins frá 1. febrúar 2012 til 1. janúar 2013. 10.1.2013 15:48
Fíkniefni í jólapakkanum Tollgæslan í Reykjavík stöðvaði í nóvember og desember á nýliðnu ári, fimmtán sendingar, sem reyndust innihalda fíkniefni. 10.1.2013 15:09
Flensutilfellum fjölgar Inflúensutilfellum fer nú fjölgandi, segir á vef Landlæknis. Meðalaldur þeirra sem greinast er um fertugt og hefur flensan verið staðfest í öllum landshlutum nema í Vestmannaeyjum og á Vestfjörðum. 10.1.2013 14:56
Hobbitinn náði sjöunda sætinu á einni viku Kvikmyndin Hobbitinn er í sjöunda sæti yfir þær kvikmyndir sem fengu mesta aðsókn hér á landi samkvæmt tilkynningu frá Smáís. Athygli vekur að 35 þúsund manns sáu myndina á einni viku. Myndin þénaði þannig tæplega 45 milljónir á viku. 10.1.2013 14:28
Ásatrúarfélagið fagnar söfnun þjóðkirkjunnar Ásatrúarfélagið fangar fyrirhugaðri landsöfnun þjóðkirkjunnar og hvetur hana til góðra verka í ályktun sem samþykkt var á fundi lögréttu á þriðjudaginn í tilefni af umræðum um fyrirhugaða fjársöfnun þjóðkirkjunnar til tækjakaupa fyrir Landspítalann. 10.1.2013 13:58
Djúpið hlaut ekki tilnefningu til Óskarsins Íslenska myndin Djúpið er ekki á meðal þeirra fimm mynda sem tilnefndar eru til Óskarsverðlauna í flokknum besta erlenda myndin. Djúpið komst í hóp níu mynda sem komu til greina í tilnefningunum. Fimm myndir voru tilnefndar. 10.1.2013 13:47
Myndefnið óljóst og krafðist ítarlegrar skoðunar Myndefni, sem lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst rétt fyrir jól, þar sem Karl Vignir Þorsteinsson viðurkennir kynferðisbrot var óljóst og krafðist ítarlegrar skoðunar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem lögreglan sendi frá sér í hádeginu. Með yfirlýsingunni bregst lögreglan við gagnrýni sem kom fram í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gær. Í yfirlýsingunni kemur fram að lögreglan sótti gögnin til RÚV fimmtudaginn 20. desember. Efnið hafi verið óklippt og tekið nokkurn tíma að yfirfara það allt, en það var að mestu gert á milli jóla og nýárs. 10.1.2013 12:26
Vonast eftir yfirvegaðri umræðu um kynferðisbrotamál "Það sem ég vona bara innilega er að þessi umræða sem hefur komið upp á þessum þremur dögum skili því að við sem samfélag getum farið að takast á við þetta," segir Gunnar Hansson leikari. Hann er einn þeirra sem hefur, í samtali við Kastljósið á RÚV, lýst brotum Karls Vignis Þorsteinssonar gegn sér. Um fátt hefur verið meira rætt í þessari viku en þá umfjöllun og kynferðisbrot Karls Vignis. "Viðbrögðin hafa verið 10.1.2013 12:17
Bein útsending - Fær Baltasar Óskarstilnefningu? Hægt er að fylgjast með í beinni útsendingu hér á Vísi þegar tilnefningar til Óskarsverðlaunanna verða kynntar í dag klukkan 13.30. 10.1.2013 11:15
Kostnaður vegna geðrofslyfja fer lækkandi Útgjöld Sjúkratrygginga Íslands vegna geðrofslyfja fara lækkandi. Í fyrra lækkuðu útgjöldin um 83 milljónir kr. á sex mánaða tímabili. 10.1.2013 10:44
Tillaga um að gera hlé á aðildarviðræðum lögð fram Formleg tillaga um að gera hlé á aðildarviðræðum við Evrópusambandið var lögð fram formlega á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í morgun. Eins og fram kom í fréttum fyrir jól mynduðu Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur meirihluta í nefndinni með Jóni Bjarnasyni, þingmanni VG, um að leggja tillöguna fram. 10.1.2013 10:27
Plástra vanda vegna myglusvepps Mögulega þarf að seinka ákveðnum breytingum sem fyrirhugaðar voru á húsnæði Landspítalans til að bregðast við myglusvepp sem upp er kominn við leka glugga í elsta hluta spítalans. 10.1.2013 09:00
Sigurður Rósant kominn í leitirnar Pilturinn sem lýst var eftir í gær Sigurður Rósant Júlíusson hefur gefið sig fram. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 10.1.2013 08:27
Lítill ábati af kauphækkunum Miklar hækkanir launa við endurskoðun gildandi kjarasamninga munu ekki bæta kaupmátt launafólks heldur einungis kynda undir verðbólgu. Þetta segir Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, í grein í Fréttablaðinu í dag. 10.1.2013 08:00
Lífeyrissjóður opnar snjallvef Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur opnað nýja útgáfu af vefsíðu sinni www.live.is. Vefsíðan er þar með orðin sú fyrsta sinnar tegundar sem er sniðin fyrir snjallsíma og spjaldtölvur auk hefðbundinna tölva. 10.1.2013 08:00
Tveir teknir með tæpt kíló af kókaíni Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú tvö fíkniefnamál, þar sem tveir karlmenn reyndu að smygla til landsins tæpu kílói af kókaíni. 10.1.2013 07:22
Gullgrafaraæði á gistimarkaði Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir mikla fjölgun ferðamanna undanfarin ár hafa valdið gríðarlegri aukningu á ósamþykktu gistirými, sérstaklega í miðborg Reykjavíkur. „Það er gullgrafaraæði í gangi. Það hefur komið mikil viðbót á gistirými til að taka við þessari fjölgun sem hefur orðið. Miðbærinn er orðinn fullur af íbúðum sem eru leigðar út til ferðamanna. Þetta er algjörlega eftirlitslaust og virðist að miklu leyti vera leyfislaust. Menn geta þá ímyndað sér hvernig skattskil eru.“ 10.1.2013 07:00
Hafnar ásökunum fórnarlamba Róbert R. Spanó, fyrrum formaður vistheimilanefndar forsætisráðuneytisins, hafnar ásökunum Ernu Agnarsdóttur og Maríu Haraldsdóttur um að orð þeirra um að Karl Vignir Þorsteinsson hafi beitt þær og fleiri börn á vistheimilinu Kumbaravogi kynferðisofbeldi hafi ekki verið tekin trúanleg. 10.1.2013 07:00
Mikill vatnsleki á hjúkrunarheimili, rúm vistmanna umflotin vatni Slökkviliðið á Akureyri ásamt ýmsum öðrum aðilum, sem hafa verið ræstir út, vinna nú að því að dæla vatni út úr hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð við Vestrusíðu á Akureyri, eftir að sver vatnsleiðsla sprakk þar um klukkan fimm í morgun og kalt vatn tók að flæða um allt. 10.1.2013 06:49
Tilraun til innbrots í skartgripaverslun á Akureyri Maður gerði tilraun til að brjótast inn í úra- og skartgripaverslun í miðbæ Akureyrar í nótt. 10.1.2013 06:45
Þyrla Gæslunnar þurfti að hverfa frá sjúkraflugi vegna veðurs Þyrla Landhelgisgæslunnar varð frá að hverfa vegna veðurs og aðstæðna, þegar til stóð að sækja veikan sjómann um borð í togara norður á Halamiðum í gærkvöldi. 10.1.2013 06:43
Útlendingur rændur, neyddist til að sofa í fangaklefa í nótt Útlendingur leitaði á náðir lögreglu upp úr miðnætti og sagðist hafa verið rændur á Laugaveginum í Reykjavík. 10.1.2013 06:35
Feðgar vilja byggja tíu hótel Hermann Hreiðarsson knattspyrnumaður og faðir hans Hreiðar Hermannsson trúa á áframhaldandi vöxt í ferðaiðnaði og hyggjast reisa tíu hótel með samtals 1.001 herbergi. Áætlaður kostnaður er sex milljarðar króna. 10.1.2013 06:00
Fá ekki bætt tapið á almenningssímum Póst- og fjarskiptastofnun hefur hafnað 40 milljóna króna kröfu Símans um framlag úr sjóði vegna taps á rekstri almenningssíma í alþjónustu. Forsvarsmenn Símans eru ósáttir við niðurstöðuna og íhuga að fara lengra með málið. 10.1.2013 06:00
Fólk veikt vegna myglusvepps á LSH Starfsfólk á Landspítalanum hefur fundið fyrir ofnæmiseinkennum af myglusveppi sem greinst hefur í einni af eldri byggingum spítalans. Ekki greinst á nærliggjandi gjörgæsludeild. Viðgerðir hafa ekki áhrif á áætlun um tækjakaup. 10.1.2013 06:00
Engin merki um flúor í beinum Engin merki eru um flúoreitrun í grasbítum í Reyðarfirði þrátt fyrir flúormengun í grasi í sumar í kjölfar bilunar í mengunarvarnarbúnaði Fjarðaáls. Þetta er niðurstaða rannsóknar dýralækna á beinsýnum grasbíta. 10.1.2013 05:00
Deilan leysist ekki án viðbótarfjármagns Landspítalinn hefur ekki bolmagn til þess að endurráða hjúkrunarfræðinga sem sagt hafa upp störfum á betri kjörum án þess að til komi viðbótarfjárframlag frá ríkinu. 10.1.2013 05:00
Rýnt í árið framundan Meiriháttar breytingar á efnahagskerfi heimsins, og ferskir vindar í íslenskri pólitík er meðal þess sem koma skal að mati stjörnuspekingsins Gunnlaugs Guðmundssonar. 9.1.2013 23:48
Lýsir kynnum sínum af Karli Vigni og Helga Hróbjartssyni - „Nú tek ég blaðið frá munninum“ "Ég hef undanfarna daga séð Kastljós, eftir það ákvað ég að segja mína sögu. Sögu mína sem hef lent í kynferðisbrotamönnum." Þetta ritar Gunnar Páll Gunnarsson, kokkur, á vefsvæði sínu í dag. 9.1.2013 23:06
Lögreglan sat aðgerðarlaus - fengu myndband af Karli Vigni fyrir jól Þær Erna Agnarsdóttir og María Haraldsdóttir kvikmynduðu barnaníðinginn Karl Vigni Þorsteinsson á laun og afhentu lögreglu afrit af upptökunni þann 21. desember síðastliðinn. Þar má sjá Karl Vigni játa á sig fjölmörg brot gegn börnum. 9.1.2013 21:59
„Verðum að tryggja að þetta geti ekki gerst aftur“ "Ég held að mörg tár hafi fallið síðustu daga,“ segir Þorgerður Katrín, þingkona í allsherjar- og menntamálanefnd. "Geðshræringin er mikið og margir eru auðvitað í áfalli eftir þessa umfjöllun. 9.1.2013 20:54
Flugdólgurinn fer víða - Letterman sér spaugilegu hliðarnar Fregnir af hinu örlagaríka ferðalagi Guðmundar Karls Arnþórssonar frá Keflavík til New York hafa dúkkað upp í fjölmörgum fjölmiðlum heimsins síðustu daga og í dag birti AP fréttastofan myndband af atvikinu sem farþegi tók. 9.1.2013 20:00
Störf Karls Vignis hjá Reykjavíkurborg rannsökuð Karl Vignir Þorsteinsson, sem viðurkennt hefur að níðst á hátt í fimmtíu börnum síðustu áratugi, starfaði um tíma við heimaþjónustu fyrir aldraða hjá Reykjavíkurborg, eða á tímabilinu 1989 til 2002. 9.1.2013 19:52
Hlýtur Djúpið tilnefningu? - Kvikmyndaáhugamenn ekki bjartsýnir Kvikmyndaáhugamenn eru ekki bjartsýnir á að kvikmynd Baltasars Kormáks, Djúpið, hljóti tilnefningu til Óskarsverðlauna á morgun miðað við óformlega könnun fréttastofu. Einungis ein heimasíða spáir því að Djúpið fái tilnefningu. 9.1.2013 19:30