Deilan leysist ekki án viðbótarfjármagns 10. janúar 2013 05:00 Björn Zoëga
Landspítalinn hefur ekki bolmagn til þess að endurráða hjúkrunarfræðinga sem sagt hafa upp störfum á betri kjörum án þess að til komi viðbótarfjárframlag frá ríkinu. Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, bendir á að spítalinn hafi síðustu ár orðið fyrir fimmtungsniðurskurði sem komið hafi niður á allri starfseminni. Blessunarlega hafi þó náðst sú nýbreytni að reka spítalann innan fjárheimilda nú þrjú ár í röð. „En það eru engir aukapeningar til,“ segir hann. Björn segist hins vegar ekki viss um að nota orðið kjaradeila um uppsagnir hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum. „Þeir eru ekki á leiðinni í verkfall og gildur kjarasamningur í gangi. En það er töluverður fjöldi sem sagt hefur upp störfum vegna óánægju með kjörin sín. En það er ekkert að frétta af því í bili,“ segir hann. Stjórnendur spítalans hafi engu að síður miklar áhyggjur af þeirri stöðu sem upp sé komin. „Við vitum ekki almennilega hvernig við sem stofnun eigum að leysa þetta. Greinilegt er að það þarf fé til þess að fólkið vilji koma hér aftur til starfa. En það höfum við ekki og þurfum að sækja annars staðar eins og margoft hefur verið bent á.“ Um leið segist Björn vita til þess að málið sé í skoðun innan ráðuneyta heilbrigðis- og fjármála. - óká
Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Fleiri fréttir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Bein útsending: Kristrún með ávarp vegna atkvæðagreiðslunnar Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Sjá meira