Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Facebook segir mistök að hafa ekki fjarlægt mynd af Þórlaugu Talsmaður Facebook á Norðurlöndum, Jan Frederiksson, viðurkenndi í danska ríkissjónvarpinu síðasta sunnudag að það hefðu verið mistök að fjarlægja ekki mynd af Þórlaugu Ágústsdóttur, sem óprúttinn aðili hafði breytt með þeim hætti að hún virtist vera með áverka eftir ofbeldi. 9.1.2013 14:50
Of Monsters and Men fær EBBA verðlaunin EBBA verðlaunin 2013 (European Border Breakers Awards) verða afhent með pomp og pragt á Eurosonic Noorderslag hátíðinni í kvöld, einum af hápunktum tónlistariðnaðarins í Evrópu. Íslenska hljómsveitin Of Monsters and Men er ein þeirra heppnu hljómsveita sem hljóta þessi eftirsóttu verðlaun í ár, en þau eru afhent tíu nýliðum á tónlistarmarkaði sem hafa vakið athygli og náð árangri út fyrir sinn heimamarkað. 9.1.2013 14:27
Krefjast tveggja vikna varðhalds yfir Karli Vigni Farið verður fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir Karli Vigni Þorsteinssyni síðar í dag. Þetta er fullyrt á fréttavef RÚV. Karl Vignir er grunaður um að hafa brotið gegn tuga barna á fimmtíu ára tímabili. 9.1.2013 14:06
Kostnaður vegna geðrofslyfja nemur hundruðum milljóna Útgjöld Sjúkratrygginga Íslands vegna geðrofslyfja fara lækkandi en samkvæmt upplýsingum fyrir nýliðið ár um notkun þeirra lækkuðu útgjöld um 83 milljónir króna á sex mánaða tímabili. Þennan árangur má rekja til reglugerðarbreytingar sem tók gildi þann 1. júní síðastliðinn. Breytingarnar fólu í sér að Sjúkratryggingar Íslands taka nú einungis þátt í greiðslu hagkvæmustu pakkninga geðrofslyfja. 9.1.2013 13:21
Nauðgunin ekki framin af hópi manna Nú þykir ljóst að nauðgun sem tilkynnt var um helgina var ekki framin af hópi manna eins og fyrstu fréttir hermdu. Lögregla telur þó ekki útilokað að annar aðili hafi staðið hjá og horft á árásina án þess að aðhafast. 9.1.2013 13:01
Karl Vignir gisti fangageymslur í nótt Það ræðst síðar í dag hvort lögregla krefst gæsluvarðhalds yfir barnaníðingnum Karli Vigni Þorsteinssyni. Skýrslutöku yfir honum er nú lokið í bili að sögn yfirmanns kynferðisbrotadeildar lögreglunnar. Karl Vignir gisti fangageymslur lögreglunnar í nótt og er hann nú enn hjá lögreglu. 9.1.2013 12:03
Myndband af flugdólgnum komið á netið: "Þessi á eftir að dúsa lengi í fangelsi“ Myndband af flugdólgnum sem farþegar Icelandair yfirbuguðu með þeim afleiðingum að hann var reyrður við sæti sitt, er komið á netið. Meðal annars hefur AP fréttastofan birt myndbandið. 9.1.2013 11:32
Kópavogsbær vill kanna möguleikann á frjálsum hugbúnaði Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi, hefur óskað eftir því að forstöðumaður upplýsingatæknideildar bæjarins mæti til næsta fundar, sem verður haldinn á morgun, og ræði um notkun opins hugbúnaðar og möguleikans á því að koma upp slíkum búnaði í tölvum bæjarins. 9.1.2013 10:56
Segja búfénaði ekkert meint af vegna bilunar í mengunarbúnaði Búfénaður í grennd við Fjarðarál hefur ekki orðið meint af þrátt fyrir bilun í mengunarvarnarbúnaði álversins í Reyðarfirði, samkvæmt rannsóknum dýralækninum Freydísi Dönu Sigurðardóttur og flúorvöktun Tilraunastöðvar HÍ á Keldum, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Náttúrustofu Austurlands. 9.1.2013 10:16
Hundrað manns fá vinnu við endurbætur á Leifsstöð Um það bil hundrað manns, einkum iðnaðarmenn, fá á næstunni vinnu við breytingar og endurbætur í Leifsstöð, sem á að ljúka fyrir háannatímann í sumar. Vel á þriðju milljón farþega fóru um stöðina í fyrra. 9.1.2013 09:11
Þrjú ungmenni beittu Karl Vigni líkamlegu og andlegu ofbeldi heila nótt: Bundu Karl Vigni við stól og píndu "Við fórum með stráknum upp til karlsins og földum okkur þegar hann opnaði hurðina. Þá stóð hann nakinn með handklæði utan um sig. Þeir fara að tala saman og þá stökkvum við vinur minn á hann, handklæðið dettur af honum og við setjum hann á stól og bindum hann. Hann verður ógeðslega hræddur, strákurinn brjálaðist og sagði honum að staðfesta það sem karlinn hefði gert honum. Hann viðurkenndi allt. Þá verðum við alveg brjáluð og byrjum að lemja hann og rústuðum öllu í íbúðinni hans. Við börðum hann samt ekki illa, það sást ekkert á honum.“ 9.1.2013 08:00
Mikla fýlur leggur af rotnandi síld í Kolgrafarfirði Megn óþefur er nú ríkjandi við Kolgrafarfjörð á norðanverðu Snæfellsnesi, eftir síldardauðann þar í desember. 9.1.2013 07:27
Urðu að aflífa hest eftir að keyrt var á hann í Kömbunum Lögreglumenn urðu að aflífa stór slasaðan hest á vettvangi, eftir að hann varð fyrir bíl neðst í Kömbunum á móts við Hveragerði í gærkvöldi. 9.1.2013 07:24
Fíkniefni til staðar í öllum málum lögreglunnar í nótt Fíkniefni komu við sögu í nær öllum málum sem komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. 9.1.2013 07:23
Stór og góð loðna við Langanes Loðnuskipin landa nú eitt af öðru fyrstu loðnuförmunum og komu tvö skip HB Granda, Faxi RE og Ingunn AK, til Vopnafjarðar í gærmorgun með rúmlega tvö þúsund tonn. Fékkst sá afli aðallega í flottroll á togsvæðinu norður af Langanesi. 9.1.2013 07:00
Milljón Sýrlendingar svelta Ein milljón Sýrlendinga er við hungurmörk og hjálparvana eftir 22 mánaða borgarastyrjöld í landinu. Þetta er mat Sameinuðu þjóðanna. 9.1.2013 06:00
Allur að koma til eftir krabbameinsuppskurð og ætlar sér að spila í febrúar "Ólíkt oft áður þá er enginn heimsendir þó ég nái ekki bikarleiknum í Febrúar.“ Þetta segir Hannes Jón Jónsson, fyrrum landsliðsmaður í handbolta og atvinnumaður í Þýskalandi sem var skorinn við krabbameini á þremur stöðum í þvagblöðru í október. Hann fer í lyfjameðferð nú í janúar en segir að líkaminn sé allur að koma til. 8.1.2013 22:47
Fá úrræði fyrir þá sem þjást af barnagirnd "Það er hægt að koma í veg fyrir að fólk fremji brot gegn börnum, en það er ekki endilegt hægt að breyta hugsunarferli fólks,“ segir Annar Kristín Newtown, sálfræðingur. Um fátt annað er rætt þessa dagana en brot barnaníðingsins Karls Vignis Þorsteinssonar, sem tíunduð voru Kastljósi Ríkisútvarpsins. 8.1.2013 22:17
„Samfélagið allt var í afneitun á þessum tíma“ "Ég að við þurfum að hafa í huga það tímabil sem er verið að fjalla um í þessum efnum, það hefur mikið vatn runnið til sjávar á þessum tíma. Það sem kemur við mann í þessum málum eru þessi ítrekuðu brot. Ég ætla rétt að vona að slíkt sé ekki mögulegt í dag. En þáttur Kastljós í gær var góð áminning um það sem getur gerst þegar samfélagið heldur ekki árverkni sinni.“ 8.1.2013 21:11
Fórnarlamb Karls Vignis lýsir áhugaleysi lögreglu - "Þetta er sálarmorð“ "Þetta er sálarmorð," segir Henry Ragnarsson en hann greindi frá því í Kastljósi Ríkisútvarpsins í kvöld þegar hann lenti í klónum á Karli Vigni Þorsteinssyni sem viðurkennt hefur að hafa beitt allt að 50 börn kynferðislegu ofbeldi síðustu áratugi. 8.1.2013 20:17
Stjórnvöld í Suður-Kóreu með ítök í sérleyfi á Drekanum Ríkisolíufélag Suður-Kóreu er komið í lykilstöðu á Drekasvæðinu, sem stærsti eigandi Faroe Petroleum. Forstjóri Faroe vonast til að koma með borpall á Drekann eftir þrjú til fjögur ár og segir félagið nægilega sterkt til að standa fyrir borunum. Olíufélag sem stofnað var í Færeyjum fyrir fimmtán árum þykir einhverjum kannski ekki líklegt til stórræðanna á Drekasvæðinu en það er engu að síður orðinn handhafi 67 prósenta í stærsta sérleyfi til olíuvinnslu á landgrunni Íslands. 8.1.2013 19:15
Síminn hjá Stígamótum hefur verið rauðglóandi Síminn hefur varla stoppað hjá Stígamótum í dag, í kjölfar umfjöllunar Kastljóss um barnaníðinginn Karl Vigni Þorsteinsson. Sóknarprestur Áskirkjuprestakalls segir að viðurkenning sem veitt var Karli Vigni hafi orkað tvímælis á sínum tíma. 8.1.2013 18:15
Blindrafélagið rannsakar störf Karl Vignis Karl Vignir Þorsteinsson, sem viðurkennt hefur að hafa beitt allt að 50 börn kynferðislegu ofbeldi síðustu áratugi, var sjálfboðaliði fyrir Blindrafélagið á tíunda áratug síðustu aldar. 8.1.2013 17:39
Grunuð um aðild að fjórum innbrotum Par, karlmaður og kona, sem var handtekið á fimmtudag eftir innbrot í hús á höfuðborgarsvæðinu mun sæta gæsluvarðhaldi fram á föstudag. Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjaness vegna málsins í dag. 8.1.2013 16:44
Slökkviliðið fór í 25 þúsund útköll Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) sinnti yfir 25 þúsund útköllum á árinu 2012. Þar af voru rúmlega 1.200 útköll vegna slökkviliðs en yfir 24 þúsund útköll vegna sjúkraflutninga, eða í kringum 95% allra útkalla SHS. Heildarfjöldi útkalla jókst um 618 á milli ára. 8.1.2013 16:19
Myndaði fjölda háhyrninga í Grundarfirði - návígið ótrúlegt "Ætli þetta hafi ekki verið um 15-20 hvalir þar sem við vorum, þeir voru,“ segir björgunarsveitarmaðurinn, bjórsafnarinn Tómas Logi Hallgrímsson, sem náði ótrúlegu myndbandi af háhyrningum sem leituðu ætis í Grundafirði síðasta sunnudag. 8.1.2013 16:05
Um 1,2 milljarðar greiddir úr sjúkrasjóði VR greiddi um 1,2 milljarða króna úr sjúkrasjóði félagsins á nýliðnu ári. Þetta er það mesta sem greitt hefur verið úr sjóðnum á einu ári. Sjúkradagpeningar voru ríflega helmingur upphæðarinnar og hafa aukist um þriðjung frá árinu 2011. Stefán Einar Stefánsson, formaður VR, segir þessa aukningu áhyggjuefni en fagnar sterkri stöðu sjóðsins sem geti veitt félagsmönnum öflugan stuðning þegar þörf er á. 8.1.2013 14:34
Dópuð með börnin í aftursætinu Kona var stöðvuð við akstur á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld. Hún var undir áhrifum fíkniefna samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. 8.1.2013 14:17
Dæmd í 17 ára fangelsi fyrir morðið á syni sínum Indversk móðir, búsett í Bretlandi, var á dögunum dæmd til 17 ára fangelsvistar fyrir að berja sjö ára son sinn til dauða með spítu. Atvikið átti sér stað í júlí 2010 og kvað móðirin, Sara Ege ástæðuna vera þá að drengnum gekk illa að læra utanbókar texta úr heilagri bók múslima, Kóraninum. Eftir hrottalegt morðið brenndi Sara svo lík sonar síns til að fela sönnunargögnin. 8.1.2013 13:56
Þefaði af öllum jólapóstinum Lögregluhundurinn Klettur, sem starfar hjá ríkislögreglustjóra, var fenginn til þess að þefa af öllum jólapóst sem sendur var með flugi frá Keflavíkurflugvelli í desember. 8.1.2013 13:06
Sjá eftir að hafa heiðrað barnaníðing vegna umfjöllunar Kastljóss Í yfirlýsingu frá Áskirkju kemur fram að það hafi verið rangt hjá kirkjunni að veita Karli Vigni Þorsteinssyni viðurkenningu fyrir störf sín í þágu kirkjunnar sem sjálfboðaliði. 8.1.2013 12:48
Foreldrar standa vörð við Foldaskóla Foreldrar barna í Foldaskóla hafa tekið sig saman um að standa umferðarvakt við skólann. Þeir vilja minna ökumenn á umferðarreglurnar og draga úr hættu á slysum. 8.1.2013 11:38
Nítján ára piltur búinn að kæra hópnauðgun Nítján ára piltur hefur lagt fram kæru vegna hópnauðgunar sem hann á að hafa orðið fyrir um helgina. Maðurinn hafði samband við lögreglu við tónlistarhúsið Hörpu en ekki er ljóst nákvæmlega hvar árásin á að hafa átt sér stað. 8.1.2013 11:32
Hreinsun lauk í gærkvöldi Slökkviliðsmenn á Sauðárkróki luku við hreinsun hafnarsvæðisins um klukkan átta í gærkvöldi, eftir að fimm þúsund lítrar af eitraðri saltsýru láku úr gámageymi þar í fyrrinótt. Miklu af sjó og fersku vatni var dælt fyir mengaða svæðið og síðan var um tonni af vítisóta dreift yfir. Þetta var endurtekð þar til Ph gildi sýndu að efnin voru orðin skaðlaus, samkvæmt kröfum heilbrigðisyfirvalda, og höfðu breyst í salt og vatn. 14 slökkviliðsmenn höfðu þá verið að störfum vegna lekans í hátt í sólarhring. Vinnueftirlitið mun nú rannsaka gáminn og fylgiskjöl hans, en tæring í honum olli lekanum. 8.1.2013 10:52
Dæmdur fyrir að svíkja fé af Magnúsi Ármann - þarf að endurgreiða um 40 milljónir Sextugur karlmaður var dæmdur í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að hafa svikið hátt í fjörtíu milljónir króna út af greiðslukorti í eigu athafnamannsins Magnúsar Ármann. 8.1.2013 10:24
Jón Bjarnason gefur ekki kost á sér í komandi þingkosningum Jón Bjarnason hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér á framboðslista VG í Norðvesturkjördæmi í komandi Alþingiskosningum. 8.1.2013 09:21
Snemmbær kynþroski eykur sjúkdómahættu Eftir því sem stúlkur verða fyrr kynþroska eru meiri líkur á að þær látist af völdum hjarta- og æðasjúkdóma á fullorðinsaldri, samkvæmt nýrri rannsókn. Offita og ofþyngd hafa ekki áhrif. Rannsóknin náði til yfir þúsund íslenskra kvenna. 8.1.2013 07:00
Umræðan hefur opnað augu foreldra Viðtölum vegna transmála hjá Samtökunum 78 hefur fjölgað mikið. Unnið er að nýjum verkferlum innan BUGL vegna kynáttunarvanda barna og unglinga. 8.1.2013 07:00
Reif alla hliðina úr jeppa eins og að opna sardínudós Stór dráttarbíll með tengivagn rakst á fullri ferð utan í kyrrstæðan og mannlausan jeppa í vegkantinum á þjóðveginum í Hörgárdal í gærkvöldi. 8.1.2013 06:31
Fundu kannabisplöntur í bílskúr í Breiðholti Karlmaður var handtekinn í fjölbýlishúsi í Breiðholti í gærkvöldi, eftir að nokkrar kannabisplöntur fundust í bílskúr hans. Lögregla lagði hald á plönturnar, sem verður eytt, og var manninum sleppt að yfirirheyrslu lokinni. 8.1.2013 06:28
Tveir með áverka eftir líkamsárás í Fákafeni Ráðist var á þrjá unga menn við Fákafen í Reykjavík um klukkan hálf tólf í gærkvöldi og hlutu tveir þeirra áverka í andliti. 8.1.2013 06:23
Átta börn á BUGL síðustu tvö ár vegna kynáttunarvanda Átta börn og unglingar hafa fengið meðferð á barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL) vegna kynáttunarvanda á síðustu tveimur árum. Börnin eru á aldrinum 8 til 17 ára, jafnt af báðum kynjum. 8.1.2013 06:00
Allir lýsa sig saklausa af Aurum-ákærunni Fjórmenningarnir sem ákærðir eru fyrir umboðssvik í Aurum-málinu sögðust saklausir við þingfestingu í gær. Lárus Welding telur óréttlátt að saksóknari ákæri hann fyrir eitt mál í einu en safni ekki upp öllum þeim sem eru til rannsóknar. 8.1.2013 06:00
Leystir út og settir í 25 ára lántökubann Hafnarfjarðarbær kaupir fimmtungshlut Hauka í íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum fyrir 271 milljón króna. Félaginu er bannað að stofna til nýrra skulda næstu 25 ár. Gengu alltof langt, segir formaður bæjarráðs. Mjög mun létta á rekstri Haukanna. 8.1.2013 06:00
Hyggst kæra hópnauðgun í dag Nítján ára piltur leitaði til lögreglu um helgina og tilkynnti um að honum hefði verið nauðgað af hópi karlmanna. Pilturinn var í annarlegu ástandi þegar árásin átti sér stað, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, og gat ekki sagt til um hversu margir árásarmennirnir hefðu verið, að öðru leyti en að þeir hefðu verið fleiri en einn. 8.1.2013 06:00