Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sendiherra Íslendinga í Washington: Hátíðisdagur í Bandaríkjunum "Þetta er hátíðisdagur, það er umfram allt það. Maður verður var við það allstaðar að það er kjördagur," segir Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum. "Fyrir gamlan pólitíkus eins og mig er þetta dýrðardagur að upplifa," segir hann jafnframt. Hann bætir því þó við að hann hafi ekki hugmynd um það, fremur en nokkur annar, hvernig niðurstöðurnar verða. 6.11.2012 21:55
Herbert Guðmundsson talar um nýju ástina í lífinu Það er Eurovision að þakka að ástin blómstrar hjá Herberti Guðmundssyni í dag. Þegar Eighties-smellurinn Can't Walk away kom út var kærastan hans, Lísa Dögg Helgadóttir, 5 ára en nú 26 árum seinna eru þau trúlofuð. 6.11.2012 20:40
Tilfinningaþrungin stund í Iowa Hátt í 20 þúsund manns fylgdust með Barack Obama, Bandaríkjaforseta, binda enda á kosningabaráttu sína í Des Moines í Iowaríki. 6.11.2012 20:14
Björn Valur um Eir: Lítur út eins og skipulögð glæpastarfsemi Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, vill að stjórnendur hjúkrunarheimilisins Eirar verði kærðir til lögreglu og segir að staða heimilisins sé ekki bara dæmi um tæra spillingu, heldur lítur út fyrir að um sé að ræða skipulagða glæpastarfsemi. 6.11.2012 19:20
"Auðvitað líður mér ekki vel yfir þessu“ Stjórnarformaður Eirar segist miður sín yfir þeirri stöðu sem upp er kominn hjá félaginu en segist þó ekki ætla að víkja. Hann vissi af fjárhagserfiðleikum fyrir tæpu einu og hálfu ári en tókst ekki að bjarga málum. 6.11.2012 18:43
Marshall aðstoðar í Bandaríkjunum "Kjörsóknin er betri en búist var við, allavega í Norður-Karólínu, þar sem ég er. Þetta er að fara mjög vel af stað hérna,“ segir Róbert Marshall þingmaður sem nú er staddur í Bandaríkjunum við kosningaeftirlit vegna forsetakosninganna þar í landi. 6.11.2012 18:09
Stuðningsmiðstöð fyrir börn opnuð í dag Ný stuðningsmiðstöð fyrir börn með alvarlega, sjaldgæfa sjúkdóma og fjölskyldur þeirra opnaði í dag. Þessa miðstöð gaf þjóðin í söfnuninni Á allra vörum og var opið hús af því tilefni í dag. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra undirritaði viljayfirlýsingu um rekstur hússins eftir að söfnunarféð er uppurið, gospelkór Lindakirkju söng, undir stjórn Óskars Einarssonar og séra Vigfús Bjarni Albertsson blessaði húsið. 6.11.2012 17:02
Skarphéðinn og Margrét ráðin dagskrárstjórar Skarphéðinn Guðmundsson hefur verið ráðinn dagskrárstjóri RÚV. Umsækjendur fengu upplýsingar um þetta í dag. Skarphéðinn hefur starfað sem dagskrárstjóri Stöðvar 2 um árabil. Skarphéðinn leysir Sigrúnu Stefánsdóttur af hólmi en hún lét af störfum á dögunum vegna ágreinings við Pál Magnússon útvarpsstjóra. 6.11.2012 16:29
582 þúsund ferðamenn sótt Ísland heim frá áramótum Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 44.994 erlendir ferðamenn frá landinu í október síðastliðnum eða um sex þúsund fleiri en í sama mánuði árið 2011 samkvæmt tilkynningu sem Ferðamálastofan sendi frá sér. 6.11.2012 16:26
Ferð Herjólfs fellur niður Næsta ferð Herjólfs kl 17:30 fellur niður. Næsta ferð Herjólfs sem vera átti frá Vestmannaeyjum klukkan 17:30 og frá Landeyjahöfn kl. 19:00 fellur niður. Ástæðan er mikil ölduhæð í Landeyjahöfn, 3,0m og 2,8m, og rúmlega 20m/s vindhraði í hviðum. 6.11.2012 16:17
Fimm sóttu um embætti dómara Fimm sóttu um embætti dómara við Hæstarétt Íslands sem auglýst var laust til setningar frá 1. desember næstkomandi til 31. desember 2014. Fjórir umsækjendur eru konur en einn karlmaður. 6.11.2012 15:47
Matarslagur í Hafnarfirði: "Við erum stolt af matnum okkar“ „Ég fagna umræðu um skólamáltíðirnar," segir Jón Axelsson, framkvæmdastjóri Skólamatar ehf., sem sér um að elda mat fyrir grunnskólanemendur, kennara og bæjarstarfsmenn í Hafnarfirði. Stjórn félags grunnskólakennara í Hafnarfirði er ósátt við ákveðinn tvískinnung sem viðgengst hjá bænum eins og Fréttablaðið greindi frá í dag. 6.11.2012 15:40
Meta hættuna á eldgosi í nágrenni Hafnarfjarðar Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hefur fundað með Haraldi Sigurðssyni eldfjallasérfræðingi vegna ummæla hans um hugsanleg eldgos ofan Hafnarfjarðar. Þetta kemur fram í svari Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra við fyrirspurn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi. Haraldur sagði að umbrot á Krýsuvíkursvæðinu í vor gætu hugsanlega leitt til eldgoss fyrir ofan Hafnarfjörð, í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn. 6.11.2012 15:24
Magnúsi Orra bannað að auglýsa bókina sína "Þetta snýst um það að frambjóðendur mega ekki kaupa sér auglýsingar,“ sagði Valgerður Guðjónsdóttir, formaður kjörstjórnar Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi en þeim tilmælum var komið til Magnúsar Orra Schram, þingmanns flokksins, að hann mætti ekki auglýsa bók sína og yrði það gert ógildir hann framboð sitt í prófkjöri Samfylkingarinnar í kjördæminu. 6.11.2012 13:43
Hárkollukona í fimmtán mánaða fangelsi fyrir smygl Erlend kona var í dag dæmd í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að smygla inn 670 grömmum af kókaíni inn til landsins. Hún mun hafa komið til landsins i byrjun ágúst síðastliðins með flugi frá Spáni, falin í pakkningu undir hárkollu sem samuð var við hár konunnar. 6.11.2012 13:15
Upprættu kannabisræktun í Hafnarfirði Kannabisræktun var upprætt í húsi í Hafnarfirði í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fann lögreglan 25 kannabisplöntur, auk græðlinga. Húsráðandi, karl um tvítugt, viðurkenndi aðild sína að málinu. 6.11.2012 11:58
Tólf óku undir áhrifum - sú elsta var sextug Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Lögreglan stöðvaði átta þeirra í Reykjavík, tveir voru í Kópavogi og einn í Hafnarfirði og einn í Mosfellsbæ. 6.11.2012 11:20
Ævisparnaðurinn í hættu: Greinilega mjög alvarlegt mál "Mín skoðun er sú að þetta eigi ekki að bitna að neinu leyti á þjónustu við íbúana á hjúkrunarheimilinu," segir Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara um þá grafalvarlegu stöðu sem er komin upp í hjúkrunarheimilinu Eir. 6.11.2012 10:46
Gestir á Sigur Rós sektaðir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sektaði um hundrað ökumenn sem lögðu ólöglega við Laugardalshöllina síðasta sunnudag. 6.11.2012 10:13
Tollurinn fann 35 þúsund steratöflur Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hefur gert upptækar rúmlega 35 þúsund steratöflur og rúmlega 500 ambúlur sem fundust í farangri farþega sem kom til landsins frá Berlín aðfararnótt 27. október síðastliðins. Í Morgunblaðinu kemur fram að efnin fundust við reglulegt eftirlit tollvarða, en að sögn Kára Gunnlaugssonar, aðaldeildarstjóra hjá tollgæslunni, er um mikið magn af sterum að ræða. Manninum var sleppt eftir að efnin voru haldlögð. 6.11.2012 08:49
Slasaðist við BSÍ Erlend ferðakona slasaðist þegar hún var að stíga út úr rútubíl við BSÍ á ellefta tímanum í gærkvöldi. Hún var flutt á slysadeild þar sem gert var að sárum hennar, sem ekki reyndust meiriháttar. Önnur kona slapp líka vel þegar hún varð fyrir bíl við Hrafnistu í Hafnarfirði á tólfta tímanum í gærkvöldi. Hún fékk kúlu á höfuðið en taldi ekki nauðsyn á að leita til læknis.- 6.11.2012 08:10
Strandsiglingar hefjist á ný Stefnt er að því að hefja strandsiglingar umhverfis landið á ný, eftir margra ára hlé, að því er kom farm í svari Ögmundar Jónasssonar innanríkisráðherra við fyrirspurn á Alþingi í gær. Málið er nú til umsagnar hjá eftirlitsstofnun EFTA, en stefnt er að nokkurra ára tilraunaverkefni. Ögmundur sagðist vonast til að hægt verði að bjóða verkefnið út upp úr áramótum, en stefnt er að því að skip sigli einu sinni í viku umhverfis landið með viðkomu á mörgum höfnum í öllum landshlutum. Vonast er til að þessi flutningamáti muni létta á þungaflutningum um þjóðvegina.- 6.11.2012 07:13
Enn skelfur jörð við Siglufjörð Fimm jarðskjálftar yfir tveimur stigum mældust norðaustur af Siglufirði í gær og fyrradag. Sá snarpasti var 2,6 stig okg síðan haf margir vægari mællst. Skjálftahrynunni á þessu svæði virðist því hvergi nærri lokið. Þessa stundina er jákvæðu fréttirnar að upptökin eru norðaustur af Siglufirði, en ekki út af Gjögurtá, sem gæti verið fyrirboði frekari tíðinda.- 6.11.2012 07:10
Grundarfjörðurinn fullur af síld Síldveiðar eru byrjaðar af fullum krafti eftir bræluna, og er veiðin nú mun líflegri en fyrir bræluna. Skipstjóri, sem fréttastofan ræddi við í morgun þakkar það því, að sjávarhitinn hafi lækkað um tvær gráður í óveðrinu og þá leiti síldinn í ríkari mæli inn í fjörðinn. Hann sagði að Grundarfjörðurinn hafi verið smekk fullur af síld í gær og öll skip fengið góðan afla. Verið er að vinna úr þeim afla um borð í vinnsluskikpunum, en veiðin sjálf er aðseins stunduð í björtu.- 6.11.2012 07:01
Lækka kröfurnar ef ráðuneyti krefst þess Viðskiptaháskólinn í Kaupmannahöfn hafnar ásökunum um mismunun á grundvelli tungumála. Hann muni þó breyta skilyrðum sínum ef yfirvöld ytra úrskurði um slíkt. Íslenskur nemi er tilbúinn að leita réttar síns fyrir dómi. 6.11.2012 07:00
Hætta framleiðslu á vinsælu geðklofalyfi Magnús Haraldsson, geðlæknir á Landspítalanum, segir það grafalvarlegt mál að lyfjaframleiðandinn Merck Sharp & Dome (MSD) ætli að hætta framleiðslu á geðklofalyfinu perfenazíni (Trilafon) í töfluformi. Um gamalt og vinsælt geðlyf sé að ræða, sem um leið sé eitt það ódýrasta á markaðnum og sé notað af hundruðum Íslendinga í dag með góðum árangri. 6.11.2012 07:00
Kennarar leiðir á skólabjúgum Félag grunnskólakennara í Hafnarfirði segir bæinn mismuna starfsmönnum. Á bæjarskrifstofunni sé tvíréttað í hádeginu en kennarar bíði í röð með nemendum til að fá mat miðaðan við bragðlauka barna. 6.11.2012 07:00
Gamlir neyðarkallar hlupu strax í skarðið Sala á Neyðarkalli Slysavarnafélagsins Landsbjargar gekk svo vel að sumar björgunarsveitir kláruðu birgðir sínar og gripu þá til eldri gerða af Neyðarkalli. Allt að 75 þúsundum eintaka keypt og tekjurnar fara yfir 100 milljónir króna. 6.11.2012 07:00
Tónlistarfólk sektað fyrir utan Hörpu „Óánægjan með óliðlegheit bílastæðavarða og annarra er gríðarlega mikil í okkar hópi,“ segir Frank Arthur Blöndal Cassata, gítarleikari hljómsveitarinnar Nóru og einn af tugum tónlistarmanna sem fengu stöðubrotssekt fyrir utan Hörpu um helgina á meðan þeir ferjuðu hljóðfæri og búnað inn í tónlistarhúsið þar sem hátíðin Iceland Airwaves fór fram. 6.11.2012 07:00
Segir mannorð sitt eyðilagt Steinar Aubertsson, sem sætir ákæru fyrir að hafa skipulagt smygl á 570 grömmum af kókaíni til Íslands, segir ákæruna til þess ætlaða að eyðileggja mannorð hans. Við aðalmeðferðina í gær sagði hann að ákæruvaldið ætti að skammast sín. 6.11.2012 07:00
Meira en 40 veik börn á listanum Stuðningsmiðstöð fyrir fjölskyldur og aðstandendur barna með sjaldgæfa og alvarlega sjúkdóma verður opnuð við hátíðlega athöfn í dag. Miðstöðin var stofnuð fyrir féð sem safnaðist í átakinu Á allra vörum. 6.11.2012 07:00
Fyrsta húsið friðað í Kópavogi Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur samþykkt tillögu Húsafriðunarnefndar um að friða gamla Kópavogsbæinn á Kópavogstúni. Bæjarstjórn Kópavogs ákvað nýverið að hefja undirbúning að nauðsynlegum lagfæringum á húsinu, sem er það fyrsta í Kópavogi sem er friðað. 6.11.2012 07:00
Mikið að gera hjá sjúkraflutningamönnum Mikið hefur verið að gera hjá sjúkraflutningamönnum í höfuðborginni síðasta sólarhringinn því yfir 90 sjúkraflutningar eru skráðir hjá varðstjóra hjá slökkviliðinu frá því á miðnætti í gær. Það er vel yfir meðallagi, að sögn varðstjóra. Flestir flutningarnir snúa að veikindum, en þá hafa einhver minniháttar óhöpp átt sér stað. 5.11.2012 23:30
„Blóðgjöf bjargaði lífi sonar míns“ "Blóðgjöf bjargaði lífi sonar míns og blóðbankinn er sá banki sem ég skulda mest" segir Signý Gunnarsdóttir, en sonur hennar Gunnar Hrafn glímdi við hvítblæði og þurfti margoft á blóðgjöf að halda. 5.11.2012 23:04
Rolling Stone um Of Monsters and Men: Salurinn í Hörpu glataður David Fricke tónlistargagnrýnandi Rolling Stone, eins virtasta tónlistartímarits í heiminum, fer fögrum orðum um Iceland Airwaves-hátíðina sem lauk í gær. Fricke þessi hefur komið hingað til lands síðustu ár og heillast mjög af íslenskum tónlistarmönnum og umstangi hátíðarinnar. 5.11.2012 22:08
Hætta með auðkennislykilinn Auðkennislykillinn heyrir nú brátt sögunni til fyrir 100 þúsund Íslendinga því Landsbankinn hefur innleitt nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka sem gerir auðkennislykilinn óþarfan og er fyrsti bankinn á Norðurlöndunum til að gera slíkt. 5.11.2012 19:08
Spáir Obama sigri Á morgun ganga Bandaríkjamenn að kjörborðinu og velja sér forseta til næstu fjögurra ára. Kannanir á landsvísu benda til þess að mjótt sé á munum en bandarískur prófessor segir næsta víst að Barack Obama muni tryggja sér endurkjör. 5.11.2012 18:45
Margar tilkynningar til tryggingafélaga vegna óveðursins Tryggingafélögin hafa tekið við á þriðja hundrað tjóna tilkynningum vegna óveðursins á föstudaginn. Flestar tilkynningar eru vegna skemmda á fasteignum en fokin trampólín og garðhúsgögn fást ekki bætt. 5.11.2012 18:45
Villi er sagður hafa leynt upplýsingum Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eirar og núverandi stjórnarformaður, er sagður hafa leynt upplýsingum um slæma fjárhagsstöðu hjúkrunarheimilsins. Það hafi gert það að verkum að vandamálið uppgötvaðist mun seinna en ella. 5.11.2012 18:30
Er til próf sem sigtar út barnaníðinga? Sigríður Björnsdóttir verkefnisstjóri samtakanna Blátt áfram segir að allir þeir sem starfi í kringum börn fái fræðslu um hvernig sé hægt að sporna við kynferðisofbeldi. 5.11.2012 17:44
Jóhann Einvarðsson látinn Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, flutti minningarorð um Jóhann Einvarðsson, fyrrverandi alþingismann, á þingfundi 5. nóvember 2012. Hann lést síðastliðið laugardagskvöld, 3. nóvember, á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í Keflavík. Hann var 74 ára að aldri. 5.11.2012 17:10
Tvær unglingsstúlkur krotuðu á Oddgeir Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði í nógu að snúast í vikunni sem leið og einna mest í lok vikunnar í tengslum við það norðanóveður sem gekk yfir Eyjarnar, en lögreglan fékk um 20 útköll sem rekja má til veðurhamsins. 5.11.2012 15:52
Einar Bárðarson ráðinn forstöðumaður Höfuðborgarstofu Einar Bárðarson hefur verið valinn úr hópi 27 umsækjenda til að taka við stöðu forstöðumanns Höfuðborgarstofu samkvæmt tilkynningu. 5.11.2012 15:40
Ekki hægt að svipta séra Georg Fálkaorðunni "Við andlát þarf að skila Fálkaorðunni, það er því erfitt að svipta menn einhverju sem þeir ekki hafa,“ segir Örnólfur Thorsson forsetaritari, spurður hvort það komi til álita að svipta séra Ágúst Georg, fyrrverandi skólastjóra Landakotsskóla, Fálkaorðunni. 5.11.2012 15:37
Ekið á átta ára barn Ekið var á átta ára gamalt barn á gatnamótum Langholtsvegur og Laugarásvegar um klukkan tvö í dag. Barnið lenti undir bílnum en náðist fljótt undan honum og að sögn sjúkraflutningamanna virtist barnið ekki hafa slasast alvarlega. Þá voru tveir fluttir á slysadeild þegar árekstur varð fyrir utan Verzlunarskólann um tvöleytið í dag. Þeir fengu nokkuð högg á sig þegar líknarpúðar sprungu út við áreksturinn. 5.11.2012 15:36