Kennarar leiðir á skólabjúgum 6. nóvember 2012 07:00 Þegar grunnskólakennarar í Hafnarfirði fengu bjúgu og pakkamús fengu starfsmenn á bæjarskrifstofunni ávaxtafylltan lambaframpart. „
Með góða magafylli er líklegra að umræður á kennarastofunni verði jákvæðar,“ segir stjórn Félags grunnskólakennara í Hafnarfirði, sem í bréfi til bæjarstjóra kveður starfsmönnum bæjarins mismunað varðandi hádegisverð. Í nóvember í fyrra kvörtuðu kennararnir undan því við fræðsluráð Hafnarfjarðar að á sama tíma og sumir bæjarstarfsmenn fengju niðurgreiddan mat á veitingastöðum þyrftu kennarar að gera sér „upphitaðan skólamat“ að góðu. Í kjölfarið var sú breyting gerð að starfsfólk á bæjarskrifstofunni fékk ekki lengur niðurgreiddan mat á veitingahúsum heldur aðsendan mat frá Skólamat. Kennarar segja siðferðið þó enn vera tvöfalt. „Starfsfólk skrifstofunnar hefur sérmatseðil hjá Skólamat. Sá matseðill er tvíréttaður alla daga (súpa og aðalréttur) og mun fjölbreyttari en sá sem stendur kennurum til boða úti í skólunum og er eldaður með smekk og bragðlauka barna í huga,“ segir í bréfi stjórnar kennarafélagsins til bæjarstjórans. „Á meðan skrifstofufólkið fékk ávaxtafylltan lambaframpart með sætkartöflusósu og súpu máttu kennarar gera sér að góðu skólabjúgu með pakkamús,“ lýsa kennararnir, sem enn fremur eru ósáttir við hvernig framleiðslu matarins er háttað. Þeir hafi aðeins þrjátíu mínútna hádegishlé og standi í röð með nemendum sínum. „Í sumum skólum mega kennarar fara fram fyrir nemendur til að sækja sér matinn en þykir það óþægilegt og ekki sýna gott fordæmi. Flestir eru þess vegna með nesti.“ Þá segir stjórnin grunnþarfir hafa áhrif á líðan fólks og að vaxandi óánægja sé á kennarastofum bæjarins. „Ástandið kemur niður á félagslífi kennara, hefur margþætt áhrif á vinnustaðamóralinn og líðan kennara í starfi,“ segir í bréfinu. Þar ofan á annað kemur fram að kennarar borgi meira fyrir matinn en kjarasamningur þeirra segi til um, 650 krónur í stað 552 króna. „Við leggjum fram þá ósk að kennarar fái að sitja við sama borð og annað starfsfólk bæjarins. Að þeim gefist kostur á að kaupa sama mat, á réttu verði og fái hann afgreiddan inn á kennarastofur,“ segir stjórnin í bréfinu sem lagt var fyrir bæjarráð í síðustu viku. Þar var ákveðið að fela Guðrúnu Ágústu Guðmundsdóttur bæjarstjóra að ræða málið við kennarana. - gar
Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira