Gamlir neyðarkallar hlupu strax í skarðið 6. nóvember 2012 07:00 Stigvaxandi sala hefur verið á Neyðarkallinum frá því að Slysavarnafélagið Landsbjörg hóf sölu hans í fjáröflunarskyni árið 2006. Sá fyrsti sem er lengst til vinstri er uppseldur og sagður eftirsóttur hjá söfnurum. Neyðarkallinn í ár er hér fremstur í flokki. Mynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg
Sala á Neyðarkalli Slysavarnafélagsins Landsbjargar gekk svo vel að sumar björgunarsveitir kláruðu birgðir sínar og gripu þá til eldri gerða af Neyðarkalli. Allt að 75 þúsundum eintaka keypt og tekjurnar fara yfir 100 milljónir króna. „Almenningur tók sölufólkinu mjög vel og margar sveitir seldu upp sinn skammt,“ segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, um söluna á Neyðarkallinum svokallaða um helgina. Þó að sumar björgunarsveitirnar hafi orðið uppiskroppa með Neyðarkalla dóu menn ekki ráðalausir. „Það var verið að draga fram eldri gerðir. Það er líka svolítil eftirspurn eftir þeim því það eru margir byrjaðir að safna og vantar kannski inn í seríuna,“ segir Ólöf. „Þetta voru helst rústabjörgunargæinn, konan með skíðin og eitthvað af sjóbjörgunarmanninum.“ Fyrsti Neyðarkallinn af samtals sjö kom 2006. Sá heldur á talstöð og Ólöf segir hann nú alveg uppseldan og mjög eftirsóttan. „Ég býst við að sjá hann á eBay eftir nokkur ár á hundrað þúsund kall. Ég held að það sé eiginlega ekkert heldur til af fyrstu konunni sem kom 2008. Hún er með bakpoka og ísöxi.“ Neyðarkallarnir hafa allir verið hannaðir af Margréti Laxdal og framleiddir í Kína. Ólöf segir söluna hafa stigmagnast með hverju ári. „Við erum að fara fram úr okkar björtustu vonum. Þessi fjáröflun hefur verið þannig að við höfum selt meira á hverju ári en árið þar á undan,“ segir Ólöf, sem aðspurð segir ekki hægt að segja til að svo stöddu um heildarsöluna í þetta skipti. „Núna erum við einhvers staðar á bilinu 65 til 75 þúsund kallar seldir.“ Hver kall er á 1.500 krónur, þannig að tekjurnar hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg nema líklegast yfir 100 milljónum. „Það var mjög góð sala alls staðar. Við náðum einhvern veginn að komast fram hjá því að þetta óveður setti strik í reikninginn. Víða stukku slysavarnadeildir og unglingadeildir inn og tóku yfir söluna á meðan björgunarsveitin fór í útköll. Það voru allir að hjálpast að,“ segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir. gar@frettabladid.is
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Sjá meira