Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
36 vilja fá íslenskan ríkisborgarétt Allsherjar- og menntamálanefnd leggur til að þrjátíu og sex einstaklingar fái íslenskan ríkisborgararétt í frumvarpi sem lagt hefur verið fyrir Alþingi. Nefndinni bárust fimmtíu og sjö umsóknir. 11.6.2012 12:30
Milljónamærings leitað - Keyptir þú miða á Akureyri? "Nei, hann eða hún er ekki búinn að hafa samband,“ segir Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár. Heppinn spilari vann rúmar 73 milljónir í lottóinu um helgina. Vinningsmiðinn var keyptur í Leirunesti við Leiruveg á Akureyri . 11.6.2012 11:46
Enn einum hnakknum stolið á Selfossi Brotist var inn í hesthús að Norðurtröð á Selfossi í morgun. Þaðan var stolið hnakk, reiðtygjum og brynningartæki. Þeir sem geta gefið upplýsingar um málið er bent á að hafa samband við lögregluna á Selfossi. 11.6.2012 11:09
Kjálkabraut félaga sinn með barefli í sumarbústað Um klukkan tvö aðfaranótt laugardags var tilkynnt um meðvitundarlausan mann sem hafði orðið fyrir alvarlegri árás í sumarbústað í Grímsnesi. 11.6.2012 11:05
Seldu 113 reiðhjól Hundrað og þrettán hjól seldust á reiðhjólauppboði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem fór fram á laugardaginn. Barnahjólin seldust frá þúsund krónum og upp í fimmtán þúsund en fullorðinshjólin seldust á bilinu sex þúsund og upp í sextíu þúsund, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. 11.6.2012 10:45
Skjálftahrina í Kötlu Jarðskjálftahrina hófst í Kötlu laust fyrir klukkan fimm í morgun. Milli klukkan fimm og sex mældust þar fjórtán smáskjálftar en síðan virðist hafa dregið úr hrinunni og milli klukkan sex og níu mældust þar sex skjálftar, samkvæmt skjálftavef Veðurstofunnar. Sá stærsti mældist 1,6 stig. 11.6.2012 10:30
Grundfirðingar veiða þorsk af bryggjunum Grundfirðingar þurfa ekki lengur að róa eftir þorski í soðið, þar sem góð veiði er af bryggjunum.Undanfarna daga hefur vænn þorskur, upp í að minnstakosti 4 kíló að þyngd, haldið sig við bryggjurnar og stundum er hann svo þéttur að það er eins og að horfa ofan í eldiskví, að horfa niður af bryggjunum, að sögn sjónarvotts. 11.6.2012 10:25
Vildi svigrúm til að semja um lausnir á veiðileyfagjaldinu Ásta R. Jóhannesdóttir forseti Alþingis segir að hún hafi tekið frumvarpið um veiðileyfagjaldið af dagskrá þingsins í dag til að skapa mönnum svigrúm til að finna lausnir á málinu. 11.6.2012 09:04
Þrjú ungmenni á spítala eftir bílveltu Þrjú ungmenni liggja enn á Landsspítalanum eftir að bíll þeirra valt út af útnesvegi á Snæfellsnesi í gærkvöldi. Engin þeirra er þó í lífshættu, en tveir þeirra köstuðust út úr bílnum í veltunni. 11.6.2012 06:42
Trúboð bannað í hafnfirskum skólum Trúar- og lífsskoðunarfélögum hefur nú verið bannað að stunda trúboð innan veggja leik- og grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar á skólatíma. Viðmiðunarreglur þess efnis voru samþykktar í morgun. Sóknarpresturinn kveðst þó ánægður með reglurnar og hrósar bæjarfélaginu fyrir gott samtal. 11.6.2012 20:00
Segir Hannes hafa komið á óvart - 2. kosningaþáttur Stöðvar 2 Þjóðin velur sér forseta næstu fjögur árin eftir tæpar þrjár vikur. Þá þurfum við að ákveða hver heldur utan um neyðarhemilinn, eða öryggisventilinn sem felst í málskotsréttinum, eins og fram kom í ítarlegri kosningaumfjöllun Stöðvar 2 sem birtist í gær. 11.6.2012 10:09
Sala óhollustu hrundi eftir átak Neysla Vopnfirðinga á gosdrykkjum og sælgæti hefur dregist saman um tugi prósenta síðan í apríl, en sala á ávöxtum og grænmeti hefur aukist mikið á sama tíma. Heilsuátak á vegum sjávarútvegsfyrirtækisins HB Granda á staðnum er talið sennileg ástæða þessa. 11.6.2012 08:00
Slitastjórn vill rifta kaupum á eigin skuldabréfum Slitastjórn Kaupþings hefur sent út tugi riftunartilkynninga í tengslum við endurkaup Kaupþings á eigin skuldabréfum frá því á árinu 2008. Kaupin áttu sér stað síðustu sex mánuðina áður en Kaupþing féll og sum þeirra áttu sér stað mjög nálægt falli bankans, samkvæmt Feldísi 11.6.2012 07:00
Búið að taka veiðileyfagjaldið af dagskrá Alþingis Veiðileyfagjaldið hefur verið tekið af dagskrá Alþingis samkvæmt heimasíðu Alþingis, en umræðunni um frumvarpið, sem staðið hefur í sjö daga, er ekki lokið. 11.6.2012 06:49
Fundu töluvert magn af fíkniefnum Töluvert magn af fíkniefnum fannst í heimahúsi í vesturbæ Reykjavíkur þegar lögreglumenn þurftu að hafa afskipti af íbúum þar upp úr miðnætti. Nánari upplýsingar er ekki að hafa af málinu. 11.6.2012 06:46
Óvenjumikill fjöldi báta og skipa á miðunum Yfir sjö hundruð skip og bátar voru að veiðum umhverfis landið um klukkan sex í morgun, sem er óvenju mikill fjöldi. Þar af voru nokkur hundruð strandveiðibátar, enda er nú gott sjóveður á öllum miðum. 11.6.2012 06:43
Magntollur á sykur það eina sem virkar Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS, segir að skattleggja þurfi óhollustuna burt eins og nágrannalöndin hafi gert. Leiðbeiningaskiltum um hóflegt magn komið fyrir við nammibari Krónunnar. Nammibarnum lokað hjá Víði. 11.6.2012 06:00
Ganga landshorna á milli í annað skipti Sex vaskar konur undirbúa nú göngu þvert yfir landið í annað sinn. Lagt verður af stað frá Hornvík á Vestfjörðum á miðvikudag og endað í Hornsvík á suðausturhorni landsins um miðjan júlí. Áætlað er að gengnir verði um það bil 650 kílómetrar. 11.6.2012 05:00
Vilja skýringu á boðsferð WOW Fulltrúar Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks í borgarráði hafa óskað eftir áliti innri endurskoðanda á boðsferð flugfélagsins WOW Air með hliðsjón af siðareglum og góðum starfsháttum kjörinna fulltrúa og embættismanna borgarinnar. 11.6.2012 05:00
Búist við mikilli aðsókn í flug Gert er ráð fyrir því að um 2.500 ferðamenn muni í sumar nýta sér flugleið Icelandair á milli Akureyrar og Keflavíkur. Flugfélagið hóf flug á milli bæjanna í síðustu viku og verður flogið fjórum sinnum í viku út sumarið. Um er að ræða tilraunaverkefni Icelandair til að auðvelda Norðanmönnum að komast til útlanda sem og að bregðast við auknum vinsældum Norðurlands hjá erlendum ferðamönnum. 11.6.2012 04:00
Blandar metangasi við olíuna Tekinn hefur verið í notkun nýr flutningabíll sem gengur bæði fyrir dísilolíu og metangasi. Hann keyrir milli Reykjavíkur og Akureyrar og er fyrsti ?græni? trukkurinn í flota Landflutninga, að því er fram kemur í tilkynningu Landflutninga-Samskipa. 11.6.2012 03:15
Slösuðust í bílveltu Þrír voru fluttir á slysadeild Landspítalans í Fossvogi eftir bílveltu á Útnesvegi á Snæfellsnesi í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á slysadeild Landspítalans er fólkið ekki í lífshættu en beinbrotið. Þremenningarnir verða á Landspítalanum í nótt að minnsta kosti. 10.6.2012 23:51
Fjölmenni á tónleikum hjá Elvis Costello Elvis Costello hélt tónleika fyrir fullum Eldborgarsal í Hörpu í kvöld og hlaut góðar undirtektir viðstaddra. Hann tók alla sína helstu slagara. Upphaflega stóð til að Costello héldi tónleika sína í nóvember en hann frestaði þeim vegna mikilla veikinda föður síns. Faðir hans lést skömmu seinna. Costello hafði orð á því á tónleikunum hve góðar móttökur hann hefði fengið en þetta er í annað sinn sem hann kemur hingað til lands. 10.6.2012 23:17
Risastórar "hamstrakúlur“ fyrir börn Nýtt skemmtitæki fyrir börn var tekið í notkun í Fjölskyldugarðinum um helgina. Skemmtitækið minnir á hlaupakúlur fyrir ofvaxna hamstra. Börn geta svo skriðið inn í kúlurnar og hlaupið innan í þeim yfir vatnstjörnina í garðinum. 10.6.2012 20:23
Búið að slökkva eldinn Eldsvoðinn við Ljósafossvirkjun reyndist minniháttar og slökkvilið hefur þegar ráðið niðurlögum hans. 10.6.2012 20:18
Eldur við Ljósafossvirkjun Eldur er laus í bílskúr við húsnæði við Ljósafossvirkjun. Dælubílar slökkviliðs eru á leiðinni á svæðið. Enn er hvorki nokkuð vitað um upptök eldsvoðans né hefur tekist að ráða niðurlögum hans. 10.6.2012 19:52
Þóra: Forseta má ekki þykja vænt um völd Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi telur ekki heppilegt að forseti sé manneskja sem þykir vænt um völd. Valdsvið embættisins hafi haldist óbreytt frá stofnun lýðveldisins og að ekki sé þörf á breytingum. 10.6.2012 19:00
Sjónarspil að sjá 430 manns hjóla af stað Bláalóns þrautin fór fram í dag þegar 430 manns hjóluðu saman frá Hafnarfirði og að Bláa Lóninu. Leiðin er 60 km. Ljósmyndarinn Vilhelm fór á stúfana og myndaði keppendur á leiðinni. 10.6.2012 18:32
"Ómaklegar, órökstuddar og feiknalega ósanngjarnar" Steingrímur J. Sigfússon segir ómaklegt og fáránlegt hjá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins að kenna núverandi ríkisstjórn um óvænt útgjöld vegna yfirtökunnar á Sparisjóðnum í Keflavík. Ríkið hafi þar fengið vanda í fangið sem skapaðist vegna þess hvernig sparisjóðnum var stýrt. 10.6.2012 18:30
Björgunarsveitir fylgja skemmtibáti í land Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út í dag þegar menn á skemmtibáti lentu í vandræðum skammt frá Kjalarnesi. Þrír menn voru á bátnum og áttu við gangtruflanir í vél að stríða. Bátur frá björgunarsveitunum var sendur út til móts við bátinn rétt fyrir klukkan fimm í dag. Honum var svo fylgt í land. 10.6.2012 17:38
Hjálpa viðskiptavinum að borða ekki ofgnótt sælgætis Ákveðið hefur verið að setja upp merkingar við nammibarina í öllum búðum Hagkaupa sem hjálpa neytendum að kaupa ekki óhóflegt magn af sælgæti. 10.6.2012 16:27
"Starfsfólk í skólamötuneytum kaupir almennt hollan og góðan mat“ Inga Lind Karlsdóttir fór á dögunum og lét rannsaka næringargildi í skólamáltíð í Salaskóla í Kópavogi og komst að þeirri niðurstöðu að skyndibitamatur væri hollari. 10.6.2012 14:31
Farsælasti forsetinn Kristjáni Eldjárn tókst hvort tveggja, að láta til sín taka á hinu pólitíska sviði þegar nauðsyn krafði en vera um leið sameiningartákn sem langflestir kunnu að meta. Guðni Th. Jóhannesson fjallar um farsælasta forseta lýðveldisins. 10.6.2012 12:55
Brotið blað í íslenskri flugsögu Í gær frumsýndi Þyrluþjónustan nýja þyrlu sem notuð verður í skoðunarferðir ferðamanna um Ísland. Þetta er í fyrsta sinn sem þyrla er keypt til landsins gagngert til farþegaflugs og því ákveðið skref sem Þyrluþjónustan steig með þessu uppátæki. 10.6.2012 12:02
Búið að ræsa hjólagarpana Reiðhjólakeppnin Bláalónsþrautin var ræst klukkan 10 í morgun. Fjöldi litríkra keppenda hafði safnast saman við rásmarkið í Hafnarfirði. Þeir munu hjóla að Bláa Lóninu. 10.6.2012 10:57
Ólafur með hreinan meirihluta í nýrri könnun Ólafur Ragnar Grímsson hefur mestu fylgi að fagna miðað við könnun sem gerð var fyrir útvarpsþáttinn Sprengisand á Bylgjunni. Ólafur mældist með 50,2% fylgi, eða hreinan meirihluta. Þóra Arnórsdóttir kemur næst á eftir Ólafi með 33,2% fylgi. 10.6.2012 10:43
Skákuppboð aldarinnar í dag Uppboð á tveimur sögulegum taflsettum úr fórum Friðriks Ólafssonar, fyrsta stórmeistara Íslendinga, fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Uppboðið, sem kallað hefur verið Skákuppboð aldarinnar, er liður í uppskeruhátíð Skákakademíu Reykjavíkur sem haldin er í dag. 10.6.2012 10:30
Ari Trausti í fjallgöngu Forsetaframbjóðandinn Ari Trausti bauð öllum áhugasömum með sér í fjallgöngu. Gangan hófst klukkan tíu í dag en göngutíminn verður alls um 3 klukkutímar. 10.6.2012 10:20
Eitraður kræklingur við Ísland Matvælastofnun varar við neyslu á kræklingi sem safnað er í Hvalfirði og Eyjafirði. Tekin voru sýni af sjó á þessum stöðum í síðustu viku til greiningar á eitruðum þörungum. Í Eyjafirði var PSP eitur yfir mörkum, en það getur valdið lömun, og í Hvalfirði mældist DSP eitur yfir mörkum, sem sem getur valdið uppköstum og niðurgangi. 10.6.2012 10:03
Tala eins og forsetaframbjóðendur í sitthvoru ríkinu Það er stórhættulegt fyrir Ísland að losarabragur sé á hugmyndum forsetaframbjóðenda á valdsviði forseta, segir stjórnmálafræðingur sem rætt er við í öðrum þætti Stöðvar 2 um forsetakosningarnar. 10.6.2012 20:32
Bílslys við Skipanes Bílslys varð við Skipanes nálægt Borgarnesi seinnipartinn í dag. Tveir strákar voru í bílnum sem tók veltu og hafnaði utanvegar þegar ökumaður missti stjórn á honum. Hvorugur mannanna slasaðist alvarlega en þeir voru sendir á slysavaktstofuna á Akranesi til aðhlynningar. Grunur leikur á að bílstjórinn hafi verið undir áhrifum áfengis. 9.6.2012 20:51
Stærsta hjólreiðakeppni ársins á morgun Stærsta hjólreiðakeppni ársins, hin svonefnda Bláalóns-þraut, fer fram á morgun. Aðstandendur keppninnar segja hana vera stærsta hjólamót sem haldið hefur verið á Íslandi. 9.6.2012 20:39
Hreyfihamlaður ofurhugi klífur Hvannadalshnjúk Leifur Leifsson, ungur maður sem hefur verið bundinn við hjólastól alla ævi, hefur æft níu til tíu sinnum í viku síðastliðna mánuði og styrkt hendur sínar í því skyni að komast upp á hæsta tind landsins. 9.6.2012 20:00
Vann yfir 73 milljónir í Lottó Einn einstaklingur var með allar tölur réttar í Lottó í kvöld. Hann hlaut í vinning rúmar 73 milljónir króna. Vinningsmiðinn var keyptur í Leirunesti við Leiruveg á Akureyri. 9.6.2012 19:27
Álver opnað á Reyðarfirði Stærsta kersmiðjan í stærsta álveri landsins, álveri Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði, var opnuð klukkan þrjú í dag að viðstöddum iðnaðarráðherra, þingmönnum og starfsmönnum fyrirtækisins. Kersmiðjan mun skapa 60 ný störf á Reyðafirði. Vinna hófst við smiðjuna á árinu 2010 en heildarfjárfesting vegna hennar nemur þremur og hálfum milljarði króna. Ker í álverum þarf að endurnýja á 5-7 ára fresti. Í nýju kersmiðjunni verður mögulegt að fóðra þrjú ker í einu, en opnun kersmiðjunnar er lokahnykkurinn í byggingu álversins sem var reist fyrir 5 árum. 9.6.2012 18:29