Innlent

Líklega eldur í ræsinu - eldsupptök ókunn

Slökkviliðsmenn að athafna sig á Öldugötunni.
Slökkviliðsmenn að athafna sig á Öldugötunni.
Ekki reyndist nein hætta á ferð á Öldugötunni en allt tiltækt slökkvilið var kallað á vettvang um hálf fimm vegna gruns um eldsvoða á Öldugötu 58.

Í ljós kom að eldurinn reyndist ekki vera í húsinu og þegar nánar var að gáð, þótti líklegast að reykur hefði borist úr brennandi laufum eða rusli úr ræsinu.

Slökkvilið og lögregla voru því á leiðinni af vettvangi nú skömmu fyrir fimm þar sem engin hætta þótti vera á ferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×