Fleiri fréttir

Stöðvuðu kannabisrækt í miðborginni

Nokkur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Kannabisræktun var stöðvuð á tveimur stöðum í miðborginni en þar var einnig lagt hald á lítilræði af marijúana og amfetamíni.

Refsiaðgerðir ESB gegn Íslandi ekki lengur fjarlægur möguleiki

Evrópuþingið mun í næsta mánuði fjalla um lagareglur sem heimila Evrópusambandinu að beita Ísland viðskiptaþvingunum vegna makríldeilunnar. Talsmaður sjávarútvegsstjóra ESB segir að þótt Evrópuþingið samþykki reglurnar sé ekki sjálfgefið að þeim verði beitt.

Lést í hlíðum Esjunnar

Maðurinn sem varð bráðkvaddur í hlíðum Esjunnar á sunnudaginn hét Kjartan Jónsson. Hann var 59 ára gamall og starfaði sem rafmagnsverkfræðingur hjá Símanum.

Vigdís tók við nýju Símaskránni

Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og fyrrverandi leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur, tók í dag við fyrsta eintakinu af nýju Símaskránni úr höndum Magnúsi Geirs Þórðarsonar, núverandi leikhússtjóra Borgarleikhússins.

Annþór og Börkur ákærðir

Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson hafa verið ákærðir fyrir sérstaklega hættulegar líkamsárásir og ólögmæta nauðung. Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Sjö sátu í gæsluvarðhaldi vegna málsins þegar mest lét og hefur þeim nú öllum verið sleppt. Annþór og Börkur eru grunaðir um að tengjast tveimur alvarlegum líkamsárásum sem gerðar voru fyrir nokkrum mánuðum í Hafnarfirði og Mosfellsbæ, skipulagðri glæpastarfsemi, innbrotum og þjófnaði, auk annars. Í byrjun þessa mánaðar úrskurðaðir Hæstiréttur að Annþór og Börkur skyldu afplána eftirstöðvar dóma sem þeir hlutu fyrir nokkrum árum. Annþór fyrir fíkniefnasmygl og Börkur fyrir tilraun til manndráps.

Þorgerður Katrín vildi verða forstjóri Hörpu - átök í stjórninni

Fjórir umsækjendur um forstjórastöðu tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu komu helst til greina, eftir langt og strangt ferli. Það voru auk Halldórs Guðmundssonar, sem tilkynntur var sem forstjóri 3. maí sl., Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Þórólfur Árnason, verkfræðingur og Hrönn Greipsdóttir, fyrrverandi hótelstýra.

60 prósent þjóðarinnar notar símaskrána

"Það hafa auðvitað orðið miklar tæknibreytingar á síðustu fimm árum en staðreyndin er samt sú að stór hópur notar símaskrána,“ segir Sigríður Margrét Björnsdóttir, forstjóri Já, sem fagnar útgáfu símaskrárinnar í dag. Sigríður var í viðtali við Reykjavík síðdegis í dag þar sem hún útskýrði fyrir þeim félögum að ekki aðeins lifði skráin góðu lífi, heldur notuðu fleiri bókina árið 2011 en árið 2010.

Fullur og fáklæddur undir stýri

Lögreglan á Suðurnesjum hafði um helgina afskipti af ökumanni sem grunaður var um ölvunarakstur. Maðurinn, sem er á fertugsaldri reyndist vera mjög ölvaður og að auki harla klæðlítill undir stýri. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð. Þar var hann látinn sofa úr sér þar til tekin var af honum skýrsla. Þá kom akandi á lögreglustöð annar karlmaður, sem taldi sig eiga þangað erindi. Af honum lagði megna áfengislykt og var hann handtekinn, grunaður um ölvun við akstur.

Helmingur þeirra sem létust 17 ára og yngri

Helmingur þeirra sem létu lífið í umferðinni á síðasta ári voru 17 ára og yngri, fjórir sautján ára ökumenn og tvær fótgangandi stúlkur. Þetta kemur fram í nýrri nýrri slysaskýrslu Umferðarstofu.

Hells Angels stofnuðu góðgerðarsamtök til að halda utan um "varnarsjóð“

Hells Angels á Íslandi hafa um nokkurt skeið stefnt að því að opna húðflúrstofu á undir merkjum House of Pain en það er alþjóðleg keðja á vegum Hells Angels. Í skýrslu starfshóps lögreglunnar um starfsemi Hells Angels hér á landi segir að þar hafi líka staðið til að selja ýmsan varning og fatnað til stuðnings samtökunum en lögregla telur að sala slíks varnings sé hugsuð til að byggja upp svokallaðan "varnarsjóð“.

Herdís búin að safna undirskriftum

"Þetta gekk bara fljúgandi vel,“ segir Herdís Þorgeirsdóttir, forsetaframbjóðandi, sem hefur nú lokið að safna meðmælendum fyrir forsetakosningarnar 30. júní næstkomandi. Söfnunin um allt land gekk mjög vel að sögn Herdísar. Á vefsíðu sinni þakkar hún þeim sem stóðu að söfnuninni sem og þeim sem tilbúnir voru að mæla með framboðinu.

Braut gegn 4 ára systurdóttur sinni - situr þrjá mánuði í fangelsi

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í sex mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði skilorðbundna, fyrir kynferðisbrot gegn fjögurra ára systurdóttur sinni. Þá var hann einnig dæmdur fyrir að hafa í tölvu sinni tæplega þrjú þúsund myndir sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt.

Vítisenglar safna upplýsingum um lögreglumenn

Lögregluyfirvöld, bæði hér á Íslandi og erlendis, hafa orðið þess áskynja að meðlimir vélhjólasamtakanna Vítisengla safni upplýsingum um lögreglu og starfsmenn hennar. Þetta kemur fram í skýrslu sem lögreglan vann um starfsemi Vítisengla og Vísir hefur undir höndum.

Björn Ingi verður aftur ritstjóri Pressunnar

Steingrímur Sævarr Ólafsson hefur sagt upp störfum sem ritstjóri Pressunnar. Við starfinu tekur Björn Ingi Hrafnsson, stjórnarformaður og útgefandi Vefpressunnar, og jafnframt aðaleigandi fyrirtækisins ásamt Arnari Ægissyni, framkvæmdastjóra. "Þetta leggst bara vel í mig, ég þekki íslenskan fjölmiðlaheim mjög vel og hlakka til að spreyta mig aftur á ritstjórahlutverkinu,“ segir Björn Ingi í frétt á Pressunni.

Útiveitingastaður á flotbryggju

Arkitekt Ráðhúss Reykjavíkur hefur spurst fyrir um það hjá byggingarfulltrúa borgarinnar hvort koma megi fyrir flotbryggju í Tjörninni framan við Ráðhússkaffi.

Hugmyndum um nýjan skatt á lífeyrissjóði vex fylgi

Landssamtök lífeyrissjóða höfnuðu í gær hugmyndum um að færa niður fasteignalán, sem tryggð eru með lánsveðum hjá ábyrgðarmönnum, að 110 prósentum af fasteignamati. Efnahagsráðherra, fjármálaráðherra, innanríkisráðherra og velferðarráðherra lögðu drög að samkomulagi þar um fyrir fulltrúa sjóðanna á fundi í gær. Fulltrúar Íbúðalánasjóðs sátu fundinn einnig.

Hundrað eftirskjálftar við Herðubreið

Hátt í hundrað eftirskjálftar hafa orðið eftir skjálftan sem varð laust fyrir klukkan eitt í gærdag, þrjá til fjóra kílómetra suðvestur af Herðubreið og mældist 3,2 stig.

Forseti gæti tekið völdin af ríkisstjórn

„Vandi núgildandi stjórnarskrár er að í upplausnarástandi gæti forseti hreinlega tekið völdin af ríkisstjórn.“ Þetta segir Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur í grein í nýjasta hefti Skírnis. Greinin fjallar um breytta stöðu forseta Íslands og frumvarp Stjórnlagaráðs.

Gagnrýndi fyrirhugaðar aðgerðir ESB

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra gagnrýndi harkalega hugmyndir sem eru til umræðu innan ESB um refsiaðgerðir gegn Íslandi vegna makríldeilunnar, á fundi EES-ráðsins í gær. Þar voru fulltrúar EFTA-ríkjanna og Danir fyrir hönd ESB.

Jón dregur framboð sitt til baka

Jón Lárusson lögreglumaður á Selfossi hefur dregið framboð sitt til embættis forseta Íslands til baka. Hann segir í tilkynningu að sér hafi ekki tekist að afla tilskilins fjölda meðmælenda og eigi ekki annarra kosta völ en að draga framboðið til baka. Eftir þetta standa sjö frambjóðendur eftir.

Almenningur fái dorgaðstöðu

Stjórn Faxaflóahafna hefur samþykkt tillögu formannsins Hjálmars Sveinssonar um að láta kanna möguleika þess að koma fyrir dorgaðstöðu fyrir almenning í tengslum við uppsátur fyrir smábáta við Eyjarslóð.

Styðja búsetu óháð formi

Nýtt kerfi húsnæðisbóta verður kynnt í dag. Það kemur í stað húsaleigu- og vaxtabóta. Um samtímagreiðslur verður að ræða og verða greiðslurnar óháðar því hvort fólk leigir eða á eigið húsnæði.

Tómlegt eftir fall risatrés

Stóreflis birkitré rifnaði upp með rótum á lóð við Reynimel í hvassviðrinu sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið á aðfaranótt mánudags.

Foreldrar komi að ráðningum

Tekið verður upp samráð við foreldra þegar skólastjórar eru ráðnir, nái tillaga sjálfstæðismanna í borgarstjórn fram að ganga. Hún var lögð fram á síðasta fundi skóla- og frístundaráðs en afgreiðslu frestað.

Almenn niðurfærsla forsenda stuðnings

Samþykki ríkisstjórnin að fara í almennar skuldaniðurfellingar og beita sér í öðrum málum sem þingmenn Hreyfingarinnar vilja að nái fram að ganga mun þingflokkur Hreyfingarinnar verja stjórnina vantrausti.

Bjarni Benediktsson: Undarlegt samstarf og örvæntingafullt

"Já, er það ekki dálítið athyglisvert að við heyrum það frá Hreyfingunni að ríkisstjórnin njóti ekki meirihlutastuðnings á þinginu? Mér finnst það mjög athyglisvert að Jóhanna [Sigurðardóttir] og Steingrímur [J. Sigfússon] telji stöðu sína svo veika, eftir ráðherrakapalinn síðasta vetur, að þau finni sig knúin til þess að funda með Hreyfingunni til þess að verja ríkisstjórnina falli,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Reykjavík síðdegis.

Tíu sótt um tíu störf sem auglýst voru á Suðurnesjum

Einungis tíu hafa sótt um tíu störf sem voru auglýst á Suðurnesjum í síðustu viku. Atvinnuleysi á svæðinu er það mesta á landinu en eigandi fyrirtækisins sem auglýsti undrast áhugaleysi Suðurnesjamanna.

Vildi þyngri dóm yfir dýraníðingi

"Ég fagna því að það sé búið að dæma í málinu, að hann hafi fengið fangelsisdóm, þó hann sé skilorðsbundinn,“ segir Sif Traustadóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands, sem ræddi við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni um nýfallin dóm yfir dýraníðingi á Þingeyri.

Dorrit um keppinautana: "Gott hjá Þóra“

Það er í mörg horn að líta við upphaf kosningabaráttu. Forsetahjónin hófu sína fundarherferð um landið í Grindavík í morgun og Ólafur Ragnar spjallaði þar meðal annars við yngstu þjóðfélagsþegnana. Þannig heillaði Ólafur Ragnar háa sem lága. Hjónin komu svo við í fiskvinnslunni Stakkavík þar sem alvaran tók við.

Ylurinn smýgur inn í moldina

Sumir leggja meiri vinnu í matjurtagarða sína en aðrir. Arnar Tómasson hárgreiðslumeistari á Salon Reykjavík er einn þeirra. Hann hefur smíðað volduga viðarkassa til að bæta ræktunarskilyrðin.

Forsetinn er ekki upp á punt

Andrea Jóhanna Ólafsdóttir telur ekki tímabært að spá fyrir um fylgi hennar. Hún lýsir því fyrir Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur hvernig kjósendur muni fylkjast að baki henni þegar þeir byrja að kynna sér stefnumál forsetaframbjóðenda fyrir alvöru.

Egill fluttur í lífshættu á gjörgæslu

Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillzenegger, var fluttur í bráðri lífshættu á slysadeild Landspítalans í hádeginu á laugardaginn. Samkvæmt upplýsingum Vísis er hann með heilahimnubólgu og hefur verið í einangrun á gjörgæsludeild frá því hann var lagður inn.

Hundaníðingur í skilorðsbundið fangelsi - má ekki eiga hund í 5 ár

Karlmaður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir drekkja hundi á Þingeyri í byrjun desember á síðasta ári. Málið vakti mikla athygli í fjölmiðlum en hundshræið fannst í höfninni í bænum. Maðurinn játaði fyrir dómi að hafa drekkt hundinum. Hann þarf að greiða 100 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs og þá er hann einnig sviptur heimild til að hafa dýr í umsjá sinni í fimm ár.

Bæjarfulltrúa hótað líkamsmeiðingum

"Ég og einnig maðurinn minn höfum fengið símhringingar þar sem honum hefur verið sagt að árásir á mig og mína fjölskyldu séu hafnar og muni fólk ekki hætta fyrr en tekist hafi að flæma okkur í burtu," segir Kolfinna S. Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi í Garði, í samtali við Víkurfréttir.

Þóra óskar Ólafi Ragnari til hamingju með afmælið

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi óskar Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, til hamingju með afmælið á Facebook-síðu sinni í dag. Ólafur Ragnar fagnar 69 ára afmæli sínu í dag, 14. maí. Í færslu á síðu sinni segir Þóra að þau hjónin bíði í rólegheitunum eftir nýjasta fjölskyldumeðliminum en Þóra á von á barni á næstu dögum.

Smyglarar áfram í gæsluvarðhaldi

Þrír karlmenn hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 11. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli almannahagsmuna, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Mennirnir, sem allir eru pólskir, eru grunaðir um aðild að innflutningi á umtalsverðu magni af fíkniefnum, eða 8,5 kg af amfetamíni. Mennirnir voru handteknir um miðjan apríl, sama dag og þeir höfðu komið hingað með flugi frá Póllandi. Það var fíkniefnahundurinn Nelson sem kom upp um smyglið á fíkniefnunum. Í Fréttablaðinu, stuttu eftir fundinn, kom fram að mennirnir hafi áður flutt fíkniefni til landsins.

Sjá næstu 50 fréttir