Fleiri fréttir

Segir stöðu Íslands frábrugðna stöðunni í öðrum Evrópuríkjum
Efnahags- og viðskiptaráðherra segir ríkissjóð spara milljarða í vaxtakostnað með því að hefja endurgreiðslur lána frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum á undan áætlun. Ísland sé í sérstöðu hvað varðar fjármögnun næstu árin samanborið við önnur Evrópuríki.

HH íhuga stofnun landssambands
Andrea J. Ólafsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hún ræddi þar um framtíðaráform samtakanna og baráttuna við verðtrygginguna.

Þóra stendur við umfjöllun Nýs lífs
"Ég stend við hvert orð í umfjöllun Nýs lífs um Jón Baldvin," segir Þóra Tómasdóttir, ritstjóri Nýs lífs, í fréttatilkynningu. Hún svarar þar gagnrýni Jóns Baldvins Hannibalssonar og Bryndísar Schram á umfjöllun Nýs lífs um bréfaskrift hans til Guðrúnar Harðardóttur.

Ekki hægt að útiloka að eldri gerðir af PIP fyllingum séu gallaðar
Samkvæmt nýjum upplýsingum sem frönsk yfirvöld hafa gefið út er ekki unnt að útiloka að PIP brjóstafyllingar sem framleiddar voru fyrir árið 2001 séu gallaðar. Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa því ákveðið að fyrra tilboð stjórnvalda um heilbrigðisþjónustu við konur með PIP brjóstafyllingar taki til allra kvenna sem fengið hafa slíkar fyllingar frá því að byrjað var að framleiða þær árið 1992.

Hljóðupptökur úr Landsdómi verða gerðar opinberar
Samkvæmt ákvörðun Landsdóms og með samþykki málsaðila verður veittur aðgangur að hljóðritunum af munnlegum skýrslum ákærða og vitna, sem gefnar voru við aðalmeðferð málsins, svo og að hljóðritunum frá munnlegum flutningi þess. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsdómi.

Spennandi að sjá hvernig þetta fer hjá Frökkunum
"Ég veit ekki hvað skal segja, það er auðvitað margt sniðugt við þetta hjá Frökkunum en þeir eru að bregðast við almennu ástandi í menningu sem hefur litið á það sem sjálfsagðan hlut að neyta áfengis daglega," segir Einar Magnús Magnússon, hjá Umferðarstofu, aðspurður hvort að það væri mögulegt fyrir Íslendinga að taka upp sömu lög og Frakkar gera þann 1. júlí næstkomandi. Þá verður öllum ökumönnum í landinu skylt að hafa áfengismæla í bílum sínum.

Geir segist feginn að málflutningi sé lokið
Geir H. Haarde segist feginn að málflutningi í Landsdómi sé lokið. Þetta kom fram þegar hann ávarpaði fréttamenn eftir að mál hans var lagt í dóm.

Aðalmeðferð gegn Geir lokið
Aðalmeðferð í máli Alþingis gegn Geir H. Haarde lauk klukkan hálfþrjú í dag. Markús Sigurbjörnsson, forseti Landsdóms, sagði þegar hann greindi frá því að málið yrði lagt í dóm að tilkynnt yrði um það með fyrirvara hvenær dómsuppsaga færi fram. Þetta er fyrsta málið sem ráðherra er ákærður fyrir brot á lögum um ráðherraábyrgð og dreginn fyrir Landsdóm. Um 40 vitni komu fyrir dóminn og tók aðalmeðferð um tvær vikur.

Sigurður Einarsson mætti fyrir dóm - lýsir yfir sakleysi sínu
Fyrirtaka í Al Thani málinu svokallaða fór fram fyrir stundu í Héraðsdómi Reykjavíkur. Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, mætti einn í dómssal. Hann lýsti sig saklausan af þeim ávirðingum sem á hann væru bornar, eins og hann orðaði það.

Rafmagn komið á að nýju
Samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun er rafmagn komið á að nýju alls staðar í Kórahverfinu en rafmagn sló út rétt eftir klukkan hálf tvö í dag.

Andri: Ekki hægt að skipa mönnum í sjálfsmorð
„Það er ekki hægt að skipa mönnum í sjálfsmorð," sagði Andri Árnason, verjandi Geirs. H. Haarde, þegar hann ræddi lið 1.4 í ákæru gegn Geir. Andri sagði að sala eigna hafi verið afar torsótt í aðdraganda bankahrunsins. Brunaútsala hefði orðið svo mikið áfall fyrir efnahagsreikninga bankanna að það hefði orðið þeim að falli.

Skúla enn haldið sofandi - sýnir jákvæða svörun
Framkvæmdastjóri Lagastoða, sem var stunginn margsinnis í árás á skrifstofu lögmannsstofunnar fimmta mars síðastliðinn, liggur enn þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Samkvæmt upplýsingum frá ættingja mannsins er honum haldið sofandi en sýnir jákvæða svörun og stefnt er að því að vekja hann hægt og rólega. Hann er þó ennþá talinn í lífshættu.

Verjandi Einars ekki fengið nein gögn um "Veiðileyfið“
Verjandi Einars "Boom“ Marteinssonar, forseta Hells Angels, segist engin gögn hafa fengið er varðar smáskilaboð frá Andreu "slæmu stelpu“ Unnarsdóttur, sem innihaldi meldingar um svokallað "veiðileyfi“.

Blóðugur þjófur leitaði læknishjálpar eftir innbrot
Brotist var inn í tvö fyrirtæki í umdæmi Lögreglunnar á Suðurnesjum nú í vikunni. Í öðru tilvikinu var rúða fyrir ofan hurð brotin með því að kasta gangstéttarhellu í gegnum hana.

Spor í snjónum komu upp um þjóf
Lögreglan á Suðurnesjum handtók síðastliðna nótt karlmann sem grunaður er um að hafa brotist inn í sautján bíla í umdæminu, alla í sömu atrennunni. Lögregla fékk tilkynningu um að maður væri að reyna að komast inn í bíla á tilteknu svæði og fór þegar á staðinn. Ný spor í snjónum leiddu lögreglumenn að bíl einum og undir honum reyndist maður liggja í felum. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð. Viðurkenndi hann að hafa brotist inn í bíla á umræddu svæði. Hann hafði töluvert af smámynt upp úr krafsinu, en einnig fundust hjá honum munir sem grunur leikur á að séu þýfi. Lögreglan brýnir fyrir fólki að ganga vel og tryggilega frá bílum sínum, læsa þeim og láta ekki verðmæti liggja á glámbekk í þeim.

Andri: Bankamálin voru rædd í ríkisstjórn
Andri Árnason, verjandi Geirs H. Haarde, lauk málflutningi sínum fyrir Landsdómi nú rétt fyrir klukkan tvö í dag.

Nýtt samkomulag um framtíðaruppbyggingu Landspítala og Háskóla
Jón Gnarr, borgarstjóri, Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra og Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra undirrituðu í dag samkomulag um lóðir og skipulagsmál í tengslum við framtíðaruppbyggingu Landspítala Háskólasjúkrahúss og Háskóla Íslands norðan Hringbrautar.

Rafmagnslaust í Kópavogi - unnið að viðgerð
Rafmagnslaust varð í stórum hluta Kórahverfisins í Kópavogi vegna háspennubilunar skömmu fyrir klukkan hálf tvö í dag. Vinnuflokkar Orkuveitu Reykjavíkur vinna að viðgerð og vonast er til að rafmagn komist á að nýju innan stundar

Jóhanna sendir samúðarkveðjur til Belgíu
Forsætisráðherra sendi í gær forsætisráðherra Belgíu, Elio Di Rupo, samúðarkveðjur til belgísku þjóðarinnar, fjölskyldna og aðstandenda þeirra sem fórust í hörmulegu rútuslysi í Sviss á þriðjudag.

48 keppa í Músíktilraunum
Alls keppa 48 hljómsveitir á Músíktilraunum 2012 sem standa yfir í Austurbæ frá 23. til 31. mars. Mikill áhugi var á keppninni í ár og sóttu tæplega sextíu hljómsveitir um þátttöku.

Einar Már fær "litla Nóbelinn“
Í morgun tilkynnti Sænska akademían að Einar Már Guðmundsson fái Norrænu bókmenntaverðlaunin í ár fyrir framlag sitt til bókmennta. Einar Már mun veita verðlaununum viðtöku í Stokkhólmi 11. apríl nk. Norræn bókmenntaverðlaun Sænsku akademíunnar hafa verið veitt árlega frá 1986.

Buster fann 600 grömm af grasi
Lögreglumenn á Selfossi lögðu hald á 600 grömm af kannabis í húsleit á Selfossi á miðvikudag. Í tilkynningu frá lögreglu segir að grunur hafi verið uppi um að í húsinu væri stunduð kannabisræktun. Því var fíkniefnahundurinn Buster sendur á vettvang og gaf hann vísbendingu um að í húsinu væru fíkniefni.

Beint tjón ríkisins á ábyrgð Seðlabankans
Eina beina tjónið sem ríkið hlaut af bankahruninu má rekja til Seðlabankans, en ekki til Geirs H. Haarde forsætisráðherra. Þetta sagði Andri Árnason, verjandi Geirs, fyrir Landsdómi í morgun.

Andri: Sönnunarbyrðinni snúið við
Rannsóknarnefnd Alþingis kannaði ekkert hvort aðgerðir, eins og selja eignir bankanna hafi verið raunhæfar. Ekki var heldur kannað hvaða áhrif slíkar aðgerðir myndu hafa á orðspor eða eiginfjárstöðu bankanna. Þetta sagði Andri Árnason, verjandi Geirs Haarde, í málflutningi sínum sem hófst fyrir Landsdómi í morgun.

Bryndís Schram: Hef ekki búið með barnaníðing í hálfa öld
"Að halda því fram fullum fetum, að ég hafi búið í meira en hálfa öld með barnaníðing mér við hlið (líklega án þess að hafa hugmynd um það – eða hvað?) er ekki bara lítilsvirðing við mig. Það er bull og þvaður. Hreint út sagt – uppspuni.“

Andri: Ákæruatriðin falla ekki undir forsætisráðherra
Fjármálaeftirlitið, bankarnir og tryggingasjóður innistæðueigenda heyrðu undir viðskiptaráðuneytið en ekki forsætisráðherra, sagði Andri Árnason, verjandi Geirs H. Haarde, fyrir Landsdómi í morgun. Hann hóf málflutning sinn fyrir dómnum klukkan níu í morgun en Sigríður Friðjónsdóttir lauk málflutningi sínum í gær. Andri sagði að það væri því byggt á því af hálfu ákærða, að ákæruatriðin falli alls ekki undir forsætisráðherra.

Þór úr viðgerð í byrjun apríl
Viðgerðir Rolls Royce á vélum varðskipsins Þórs eru á áætlun, að því er fram kemur á vef Landhelgisgæslunnar. Skipið er í viðgerð í Noregi.

Stefna að opnun fjögurra nýrra kafla
Stefnt er að því að opna fjóra nýja samningskafla í aðildarviðræðum Íslands og ESB á ríkjaráðstefnu í lok mánaðarins. Þar verður einnig leitast við að loka sem flestum köflum. Þá munu viðræður í lykilköflum, til dæmis fiskveiðum og landbúnaði, hefjast í ár. Þegar hafa ellefu kaflar af 35 verið opnaðir og átta þeirra hefur þegar verið lokað.

Segir rétt staðið að brottvikningu
Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, segir að rétt hafi verið staðið að brottvikningu Gunnars Þ. Andersen úr starfi forstjóra FME. Þetta kom fram í viðtali við hann í Kastljósi í gærkvöldi.

Stálu fimm stórum tölvuskjám úr verslun í nótt
Þjófur, eða þjófar stálu fimm 27 tommu tölvuskjám úr verslun við Síðumúla á þriðja tímanum í nótt og komust undan.

Fimm afbrotamenn kærðu gæsluvarðhald til Hæstaréttar
Fimm af sex afbrotamönnum, sem voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær, hafa kært úrskurðina til Hæstaréttar.

Skandia byrjað að dæla sandi úr Landeyjahöfn
Dæluskipið Skandia byrjaði í gær að dæla sandi frá mynni Landeyjahafnar, eftir viðamiklar viðgerðir á skipinu efitir að það lenti utan í hafnargarði í höfninni fyrir nokkrum vikum og laskaðist.

Tjaldurinn kominn til Vestmannaeyja
Tjaldurinn er kominn til Vestmannaeyja, aðeins seinna en vant er. Jóhann Guðjónsson fyrrverandi starfsmaður hafnarinnar, sem fylgst hefur með fulgalífinu í Eyjum í áratugi, staðhæfir vð Eyjafréttir að þetta séu fuglar, sem ekki hafi vetursetu hér, og þeir séu því ótvíræðir vorboðar.

Sagði Geir sekan um alvarlega vanrækslu
Brot Geirs H. Haarde á ráðherraábyrgð í aðdraganda hrunsins telst alvarlegt og viðurlög allt að tveggja ára fangelsi, sagði saksóknari í málflutningi sínum í gær. Hún sagði Geir hafa sýnt alvarlega vanrækslu á skyldum sínum sem forsætisráðherra. Málflutningur heldur áfram í dag þegar verjandi Geirs á sviðið.

Á slysadeild eftir fólskulega líkamsárás
Karlmaður var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild eftir fólskulega líkamsárás fyrir utan veitingahús við Smiðjustíg um klukkan eitt í nótt.

Kona í fyrsta skipti formaður
Svana Helen Björnsdóttir var í gær kjörin formaður Samtaka iðnaðarins. Hún tekur við af Helga Magnússyni, sem hefur verið formaður síðan árið 2006.

Kæru MP Banka vísað frá
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest úrskurð Samkeppniseftirlitsins um að heimila samruna Íslandsbanka og Byrs. MP banki kærði á sínum tíma ákvörðunina og krafðist þess að hún yrði felld úr gildi.

Klúbbar kæra nýjan golfvöll í Grímsnesi
Golfklúbbar kæra Grímsnes- og Grafningshrepp til innanríkisráðuneytisins vegna byggingar sveitarfélagsins á golfvelli við Minni-Borg. Oddvitinn segir engan hafa einkarétt á golfvöllum. Sveitarfélagið muni ekki sjálft reka völlinn.

Innrita nemendur án samþykkis ráðuneytis
Byrjað er að innrita nýja nemendur í Menntaskólann Hraðbraut þrátt fyrir að námið sé ekki samþykkt af menntamálaráðuneyti. Óvíst er um upphæð námsgjalda og jöfnunarstyrki. Ráðuneytinu hafa borist fyrirspurnir frá foreldrum.

Hætt við niðurskurð á fé
Hætt hefur verið við að skera niður allt sauðfé á bænum Merki á Jökuldal. Riða greindist í einu heilasýni úr kind þaðan sem slátrað var á Vopnafirði í haust.

Greiðir út rúma 100 milljarða
Slitastjórn Glitnis greiðir í dag forgangskröfuhöfum jafngildi 105,6 milljarða króna. Greiðslurnar verða í myntkörfu sem styðst við gengi krónunnar hinn 22. apríl 2009.

Gengisdómur kostaði Arion 13,8 milljarða
Arion banki birti fyrstur allra áætlað tap sitt vegna gengislánadóms. Tapið byggir á einum af fjórum sviðsmyndum FME. Útlán bankans jukust mikið vegna kaupa á lánasafni þrotabús Kaupþings. Farinn að huga að lánshæfiseinkunn.

Ekki má fara of geyst í lánveitingar
Húsnæðisverð á Íslandi er líklegt til að hækka um samanlagt 16% á næstu tveimur árum. Að teknu tilliti til verðbólguspár jafngildir það um 8,5% hækkun að raunvirði. Þetta er mat greiningar Íslandsbanka sem birt hefur spá um þróun íbúðaverðs.

Fjórir kostir í boði í gjaldmiðilsmálum
Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra segir ekkert standa í vegi fyrir því að Ísland uppfylli Maastricht-skilyrði evrusamstarfsins á næsta kjörtímabili. Lang farsælast sé fyrir Ísland að stefna að inngöngu í ESB og upptöku evru. Oddný var meðal ræðumanna á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins í gær.

Rýnt í vinsældir Of Monsters and Men
Íslenskur námsmaður í Chicago í Bandaríkjunum hefur birt afar áhugaverða glærukynningu um hljómsveitina Of Monsters and Men. Í kynningunni fjallar hann um þær ástæður sem liggja að baki vinsældum hljómsveitarinnar og varpar hún ljósi á mikilvægt samspil internetsins og lukku.