Verjandi Einars ekki fengið nein gögn um "Veiðileyfið“ 16. mars 2012 11:11 Einar "Boom“ Marteinsson leiddur fyrir dómara.
Verjandi Einars „Boom" Marteinssonar, forseta Hells Angels, segist engin gögn hafa fengið er varðar smáskilaboð frá Andreu „slæmu stelpu" Unnarsdóttur, sem innihaldi skilaboð um svokallað „veiðileyfi". Þá er rétt að vara við lýsingum sem finna má í þessari grein. Þetta kemur fram í greinagerð verjanda Einars sem fréttastofa hefur undir höndum. Þar er því haldið fram að forseti Hells Angels hafi ekki skipulagt hrottalega líkamsárás á konu í Hafnarfirði í desember síðastliðnum. Fjórir hafa verið ákærðir vegna málsins, þar á meðal karlmaður sem á að hafa beitt fórnarlambið kynferðislegu ofbeldi á meðan Andrea á að hafa misþyrmt konunni. Árásin er vægast sagt hrottafengin. Þannig sinnaðist Andreu við fórnarlambið en þær voru vinkonur áður. Samkvæmt frétt DV um málið í dag má rekja ósættið til farsíma þar sem finna mátti nektarmyndir af Andreu. Andrea segist hafa viljað endurheimta símann og hótanir gengið á víxl með þeim afleiðingum að gengið var tvívegis í skrokk á fórnarlambinu. Það sem gerir málið athyglisvert er að forseti Hells Angels er sakaður um að hafa hafa skipulagt árásina og gefið árásarmönnunum leyfi til þess að ráðast á konuna. Sjálfur heldur Einar því fram að fórnarlambið hafi haft í hótunum við sig og fjölskyldu sína. Einar, sem hefur margsinnis komið fram í fjölmiðlum og haldið því fram að Vítisenglarnir tengist ekki skipulagðri glæpastarfsemi, heldur því fullum fetum fram að hann hafi ekki átt aðkomu að árásinni. Einar hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins og það svo margframlengt, meðal annars á þeim forsendum að hann á að hafa gefið út svokallað „veiðileyfi" á fórnarlambið. Verjandi Einars segir í greinagerð sinni að gögn um þetta skeyti sé ekki að finna í gögnum sem verjandi varnaraðila, það er að segja Einars, hafi fengið afhent hjá lögreglu. Þá hefur Einar þvertekið fyrir að hafa gefið slíkt leyfi eða að orðalag á borð við þetta hefði verið notað í tengslum við vélhjólasamtökin Hells Angels. Aðför árásarmannanna er vægast sagt ógeðfelld. Þannig lýsir DV því að grímuklæddur maður hefði stungið hönd sinni inn fyrir buxur og nærbuxur fórnarlambsins og stungið fingrum inn í leggöng og endaþarm þess og kreist fingurna saman. Hann hafi þá hvíslað að henni: „Ég er ekki jafn góður strákur og þú hélst að ég væri," og spurt hana hvort hún vildi að hann klippti á milli endaþarms og legganga. Á meðan þetta gekk á hafi Andrea ítrekað sparkað í höfuð hennar. Síðan hafi hann rifið niður buxurnar og þá hafi hún misst þvag af hræðslu. Þá hafi hann togað buxurnar aftur upp. Það fer því ekki á milli mála að árásin var heiftarleg. Í frétt DV er greint frá því að konan hafi ekki þorað af sjúkrahúsinu eftir árásina, þar sem hún taldi sig vera í lífshættu. Því hafi hún óskað eftir því að lögreglan tryggði öryggi hennar. Hún væri verulega hrædd um líf sitt. Svo virðist sem hræðsla konunnar um líf sitt hefði verið á rökum reist því lögreglu bárust upplýsingar stuttu eftir árásina um að ráða ætti henni bana henni. Þá lá hún enn á slysadeild. Því var brugðið á það ráð að senda lögregluþjón á sjúkrahúsið til að gæta öryggis konunnar. Búið er að ákæra þá sem komu að árásinni. Ekki er ljóst hvernær málið verður tekið fyrir.
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Sjá meira