Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jarðskjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Jarðskjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu um klukkan hálf eitt í nótt. Upptök skjálftans voru í grennd við Helgafell, fyrir ofan Hafnarfjörð. Skjálftinn var af stærðinni 3,2 og var hann á 3,8 kílómetra dýpi. Fyrr í kvöld mældust skjálftar á Norðurlandi, NV af Gjögurtá. Frekari upplýsingar um skjálftann sem varð eftir miðnætti liggja ekki fyrir. 1.3.2012 00:43
Snarpir skjálftar fyrir norðan Jarðskjáflti varð klukkan sex mínútur yfir tíu í kvöld u.þ.b. 10 km NV af Gjögurtá. Hann var 3,5 að stærð og fannst meðal annars á Ólafsfirði, Siglufirði og í Svarfaðardal. Annar skjálfti sem var 3 að stærð varð fimm mínútum síðar. Skjálftar af þessari stærð verða af og til á þessu svæði, segir í tilkynningu frá Veðurstofunni. 29.2.2012 23:46
Fullyrðir að Álfheiður hafi leiðbeint mótmælendum Kjartan Ólafsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaforseti þingsins, fullyrðir að Álfheiður Ingadóttir hafi að minnsta kosti í eitt skipti verið í samskiptum við mótmælendur í Búsáhaldabyltingunni. 29.2.2012 21:03
Yfir tíu óhöpp á höfuðborgarsvæðinu Betur fór en á horfðist á gatnamótum Miklubrautar og Hringbrautar nú undir kvöld þegar bíll rann á hálku og lenti utan í girðingu. Sem betur fer slasaðist enginn við áreksturinn. Talsverð hálka var á götum borgarinnar í dag og höfðu um tíu tilkynningar borist um hálkuóhöpp klukkan sex í dag, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Varðstjóri hjá sjúkraliðinu segir að enginn hafi verið fluttur með sjúkrabíl á slysavarðstofu vegna þessara óhappa. 29.2.2012 19:33
Slökkviliðið kallað að Kex Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Kex veitingastað í miðborginni í kvöld. Þegar fyrsti bíll frá slökkviliðinu kom á staðinn reyndist enginn eldur hafa verið í húsinu en af einhverjum ástæðum lagði reyk frá því. Þeim slökkvibílum sem á eftir komu var því snúið við en nokkrir slökkviliðsmenn urðu eftir til þess að gæta fyllsta öryggis. 29.2.2012 22:27
Neitar að reka kýrnar út úr fjósinu Vestfirskur kúabóndi, sem neitar að hlýta fyrirmælum um að reka kýrnar út úr fjósinu á sumrin, segir þetta ekki snúast um velferð dýra heldur ímynd landbúnaðarins gagnvart húsmæðrum í Vesturbænum. 29.2.2012 19:18
Sóknarprestur rýnir í stöðuna Frægir prestar, rótttækir guðfræðingar og kjörinn vígslubiskup eru meðal þeirra sem gefa kost á sér sem næsti biskup Íslands. Frestur til að skila inn framboði rennur út í dag. Sóknarprestur rýndi í stöðuna fyrir biskupskjör. 29.2.2012 19:13
Ný réttargeðdeild opnuð á Kleppi í dag Nýtt húsnæði réttargeðdeildar Landspítala á Kleppi var formlega tekið í notkun í dag. Íbúar Sogns í Ölfusi þar sem réttargeðdeildin hefur starfað síðustu tuttugu árin flytjast allir í nýja húsnæðið á Kleppi fyrir lok þessarar viku. "Með þessu hefst nýr kafli í réttargeðlækningum á Íslandi" sagði Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra í ávarpi við opnun deildarinnar. 29.2.2012 18:14
Segja málefnalega ástæðu fyrir því að fella niður málið Birgir Ármannsson og Ólöf Nordal telja alveg ljóst að Alþingi geti haft frumkvæði að því að fella niður ákæru gegn Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, og að margar málefnalegar ástæður séu fyrir því. Þetta kemur fram í áliti þeirra sem Birgir gerði grein fyrir á þingfundi í dag. 29.2.2012 17:13
Á ekki að afturkalla ákæruna "af því bara" Valgerður Bjarnadóttir, formaður nefndar sem fjalla á um frumvarp um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra, sagði á Alþingi í dag að ekki væri hægt að fella málið gegn Geir niður "af því bara“. Nefndin vill vísa frumvarpi Bjarna Benediktssonar frá. 29.2.2012 16:09
Þúsund kílómetra bíltúr til að heimsækja nágranna á Vestfjörðum Formaður bæjarráðs Ísafjarðar segir ástand samgöngumála á Vestfjörðum ömurlegt og ríkisstjórnin geti ekki skýlt sér á bak við hrunið þegar loforð um úrbætur séu svikin. Hann nefnir dæmi um starfsmenn fiskeldisstöðvar sem þurfa að aka yfir þúsund kílómetra milli tveggja fjarða þótt aðeins þrjátíu kílómetra loftlína sé þar á milli. 29.2.2012 18:45
Ekki greitt með Katopril, Ramil, Lopress, Presmin og Valpress Vegna mikillar verðlækkunar á blóðþrýstingslyfinu Enalpril frá Lyfis munu nokkur algeng blóðþrýstingslyf, sem nú eru með almennri greiðsluþátttöku sjúkratrygginga, falla út fyrir þann ramma sem greiðsluþátttakan miðast við. Þetta kemur fram í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu. 29.2.2012 15:55
Óttast að upp úr sjóði um mánaðarmótin Lilja Mósesdóttir þingmaður sagði á Alþingi í dag að hún myndi óttast að upp úr syði núna um mánaðarmótin þegar að þeir sem tóku ólögleg gengistryggð lán fá greiðsluseðla senda heim til sín eins og enginn hæstaréttardómur hafi fallið. Þingfundur hófst á Alþingi núna klukkan þrjú. 29.2.2012 15:24
Fyrrverandi ráðherra: Skömmin send til gerandans "Skrif Árna endurspegla einhvern grundvallarmisskilning á eðli málsins sem mig grunar reyndar að sé harla almennur. Í stuttu máli er hann svona: Jón hefur reynt að biðjast fyrirgefningar margsinnis og svo er þetta óþægilegt mál fyrir alla sem ekki er við hæfi að vekja athygli á opinberlega.“ 29.2.2012 14:18
Kona leitaði til lögreglunnar vegna mannránstilraunar Kona leitaði til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærdag vegna atviks þar sem þrír, fjórir karlmenn á sendiferðabíl eiga að hafa reynt að draga hana nauðuga upp í bíl til sín síðasta föstudagkvöld. Lögreglan staðfestir að kona hafi leitað til lögreglunnar vegna málsins í gær, en það á enn eftir að taka skýrslu af henni. Ráðgert er að það verður gert síðdegis samkvæmt upplýsingum lögreglunnar. 29.2.2012 13:36
Deilt um ákæru gegn Geir Alþingi hófst klukkan þrjú en um klukkan hálffjögur hefst síðari umræða um tillögu Bjarna Benediktssonar um afturköllun á ákæru á hendur Geirs H. Haade, fyrrverandi forsætisráðherra. Stefnt er á að atkvæði verði greidd um málið á morgun. 29.2.2012 15:19
Vinsældir Hilton hafa dalað Lítið hefur borið á Paris Hilton undanfarið. Vinsældir hennar hafa dalað í slúðurheiminum... 29.2.2012 15:15
Vestmannaeyjarbær stofnar félag um smíði nýrrar ferju Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti í hádeginu að stofna félag um smíði og eignarhald á nýrri Vestmannaeyjaferju. Auk Vestmannaeyjabæjar verður ríkinu, öðrum sveitarfélögum á áhrifasvæði Landeyjahafnar, lífeyrissjóðum og áhugasömum fjárfestum boðin aðkoma að félaginu að því er fram kemur í tillögunni sem var samþykkt. 29.2.2012 14:08
SFÞ Skora á ríkisstjórn að lækka álögur á eldsneyti Samtök ferðaþjónustunnar skora á ríkisstjórnina að lækka álögur hins opinbera á eldsneyti samkvæmt tilkynningu frá samtökunum. Þar segir að ríkissjóður taki nú til sín um helming útsöluverðs á díselolíu í formi skatta eða um 125 krónur af hverjum seldum lítra. 29.2.2012 14:01
Karlmaður sem varð fyrir líkamsárás úr lífshættu Karlmaður sem slasaðist lífshættulega eftir alvarlega líkamsárás karlmanns í fjölbýlishúsi á Laugaveginum fyrr í vikunni, er kominn úr lífshættu. Árásarmaðurinn var úrskurður í gæsluvarðhald fram á föstudag vegna árásarinnar sem var hrottafenginn. Fórnarlambið þurfti að gangast undir aðgerð á höfði og virðist aðgerðin hafa heppnast vel. 29.2.2012 13:09
Bíll alelda í Þrengslunum Eldur kviknaði í bifreið í Þrengslunum í hádeginu. Talið er að eldur hafi kviknað í mælaborði bílsins. Það voru Brunavarnir Árnessýslu sem réðu niðurlögum eldsins. Lögreglan var einnig kölluð til. 29.2.2012 12:50
Ein hópuppsögn tilkynnt - 20 missa vinnuna í byggingariðnaði Tuttugu manns verður sagt upp núna um mánaðamótin hjá fyrirtæki í byggingariðnaði, en það er eina fyrirtækið sem tilkynnt hefur um hópuppsögn til Vinnumálastofnunar fyrir þessi mánaðamót. 29.2.2012 11:43
Segir málið pólitískt og að vísa eigi því frá Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar vill vísa frá tillögu um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde. Ella eigi að fella málið. Minnihluti nefndarinnar vill láta reyna á hvort nýr meirihluti sé nú á þingi fyrir að afturkalla ákæru. 29.2.2012 11:00
Dæmdir fyrir hrottalega árás Tveir menn, Guðni Guillermo Gorozpe og Halldór Arnar Karlsson, voru í gær dæmdir í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir hrottalega líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur. Sá þriðji hlaut sextán mánaða fangelsisdóm fyrir sinn þátt. 29.2.2012 11:00
Söfnuðu rúmlega 60 milljónum fyrir bágstadda Hjálparstarf kirkjunnar safnaði 61 milljón krónur í gegnum frjáls framlög almennings, samtaka og fyrirtækja í desember og janúar síðastliðinn. Féð rennur til neyðarhjálpar neyðarhjálpar á hungursvæðum Austur-Afríku og til innanlandsaðstoðar samkvæmt tilkynningu frá kirkjunni. 29.2.2012 10:53
Áfram réttað yfir Agné Framhald aðalmeðferðar fer fram í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli gegn Agné Krataviciuté, sem hefur verið ákærð fyrir að bana nýfæddu sveinbarni sínu í júlí á síðasta ári, veita því skurðáverka í andliti og koma líkama þess fyrir í ruslageymslu Hótel Frón, þar sem Agné starfaði við þrif. 29.2.2012 09:26
Vilja almenna niðurfærslu á verðtryggðum lánum Þingmenn Hreyfingarinnar hafa lagt fram þingsályktunartillögu um almenna niðurfærslu á verðtryggðum fasteignaveðlánum heimila og afnám verðtryggingar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hreyfingunni. 29.2.2012 09:15
Ákært fyrir manndráp af gáleysi Gefin hefur verið ákæra á hendur tveimur mönnum fyrir manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot vegna banaslyss sem varð að kvöldi 27. desember 2010. Þá rákust saman tveir vöruflutningabílar með tengivagna á Norðurlandsvegi í Húnavatnshreppi. 29.2.2012 08:00
Flutningsbíll fullhlaðinn fiski valt skammt frá Ólafsvík Ökumaður á stórum flutningabíl með tengivagni, slapp með skrámur þegar bíllinn og vagninn ultu út af þjóðveginum austan við Ólafsvík laust fyrir miðnætti og höfnuðu á hvolfi. 29.2.2012 07:51
Elsta hlaupársbarn þjóðarinnar 22 ára Ragnheiður Hildigerður Hannesdóttir á einungis afmæli á fjögurra ára fresti og heldur því upp á 22 ára afmælið sitt í dag. Hún er elsti Íslendingurinn fæddur á hlaupári 29. febrúar og hefur lifað í 88 ár, þrátt fyrir að hafa átt mun færri afmælisdaga. „Það er oft sagt í gríni að ég sé svona ung. En ég hef upplifað ýmislegt á minni ævi sem 22 ára manneskja hefði sennilega ekki getað,“ segir Ragnheiður. Fyrir um tíu árum byrjaði hún að missa sjónina og er lögblind í dag. 29.2.2012 07:30
Bensínþjófar á ferð í Breiðholti Lögreglu var tilkynnt á þriðja tímanum í nótt, um að ungir menn væru að stela bensíni af bílum í Breiðholti. 29.2.2012 07:25
Grænlandsferðir til hreindýraveiða í boði Nú er farið að bjóða upp á ferðir til Grænlands til hreindýraveiða, þar sem spurn eftir veiðileyfum hér á landi er orðin fjórfalt meiri en framboð. 29.2.2012 07:21
Fundu tvær stolnar fólksbílakerrur Lögreglumenn á Selfossi fundu tvær stolnar fólksbílakerrur við húsleit í gærkvöldi. 29.2.2012 07:09
Undrandi á að engir kjarasamningar séu til fyrir smábátasjómenn Fundur smábátasjómanna lýsir yfir undrun sinni yfir að aldrei hafi tekist að ganga frá kjarasamningi fyrir smábátasjómenn. 29.2.2012 07:03
Yfir 200 Íslendingar eiga afmæli í dag, hlaupársdag 208 Íslendingar eiga afmæli í dag, hlaupársdag, en fjögur ár eru síðan að þeir gátum haldið upp á afmælið á réttum degi. 29.2.2012 06:55
Óvirkir nemendur áhyggjuefni Margir kennarar í Háskóla Íslands hafa áhyggjur af áhugaleysi nemenda og segja þá koma ólesna í tíma auk þess sem þeir mæti illa. Kennslumiðstöð Háskóla Íslands er í miklu samstarfi við kennara og deildarstjóri þar segir vandann margbreytilegan og flókinn. 29.2.2012 06:00
Tveir menn sáust forða sér frá húsinu lögreglumálLögreglan rannsakar nú tilraun til íkveikju í Hafnarfirði á mánudag þar sem eldsprengju var kastað á íbúðarhús tveggja meðlima vélhjólagengisins Outlaws. Vitni sá tvo menn forða sér af vettvangi í kjölfar atviksins. 29.2.2012 03:30
Opnaði vef um íslenskar kvikmyndir Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, opnaði formlega á föstudaginn gagnagrunn með ítarlegum upplýsingum um íslenskar kvikmyndir. Kvikmyndavefurinn hefur verið í smíðum um nokkurt skeið og hefur nú þegar að geyma nöfn um 8.000 manns, 700 fyrirtækja og ríflega 1.200 kvikmyndatitla, eftir því sem fram kemur á vef ráðuneytisins. 28.2.2012 23:22
Niðurskurður hafði hvorki áhrif á álag starfsmanna né þjónustu Þótt opinberar fjárveitingar til hjúkrunarheimila hafi dregist saman að raungildi milli áranna 2008-2010 verður ekki sé að álag á starfsmenn heimilanna hafi aukist á tímabilinu, né að þjónusta hafi skerst. Þetta eru niðurstöður Ríkisendurskoðunar sem vann skýrslu að beiðni forsætisnefndar Alþingis. 28.2.2012 21:08
Tillaga Bjarna rædd á morgun Þingsályktunartillaga Bjarna Benediktssonar um að afturkalla ákæru á hendur Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verður tekin til annarrar umræðu á morgun. Samkvæmt upplýsingum Vísis verða svo greidd atkvæði um hana á fimmtudaginn. 28.2.2012 20:50
Erfitt að örva vöxt Það er lítið hægt að gera til þess að örva skeggvöxt, en menn geta gert ýmislegt til þess að gera skeggið fallegra. Þetta segir Torfi Geirmundsson hársnyrtir. Það styttist í að marsmánuður gangi í garð og það þýðir að Mottumars hefjist, en það er átak sem blásið hefur verið til árlega til að vekja athygli á þeim krabbameinum sem herja á karla. 28.2.2012 20:19
Sakar þingmann um að reiða til klámhöggs Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna, sakaði Jón Gunnarsson, þingmann Sjálfstæðisflokks, um að fara með ósannandi þegar hann hélt því fram að þingkonan hafi haft óeðlileg afskipti af störfum lögreglunnar í mótmælunum 2009. Jón tók til máls undir liðnum störf þingsins og vísaði til umræðunnar um að nokkrir þingmenn hafi stýrt fólki fyrir utan alþingishúsið þegar mótmælin á Austurvelli stóðu sem hæst. Álfheiður greip þrívegis fram í fyrir Jóni og kallaði hann lygara. 28.2.2012 19:26
Lögreglumenn styðja frásögn meints höfuðpaurs Stærsta fíkniefnamál síðasta árs, Straumsvíkurmálið svonefnda, var tekið til aðalmeðferðar í dag. Þar báru tveir lögreglumenn að ekkert benti til þess að annar af meintum höfuðpaurum hefði vitað nokkuð af fíkniefnunum. 28.2.2012 19:03
Sprengimaður á Suðurnesjum handtekinn Karlmaður sem handtekinn var með vopn og sprengiefni á Suðurnesjum aðfararnótt mánudags, var yfirheyrður í dag. Ekki er útilokað að hann hafi sprengt upp fiskikar til prófa virkni sprengiefnisins. 28.2.2012 18:49
Angaði af kannabislykt - 220 plöntur gerðar upptækar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 220 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. 28.2.2012 16:22
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent