Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lögreglan stöðvaði par með þvottavél Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók par sem var að bera þvottavél úr fjölbýlishúsi um klukkan hálfþrjú í nótt. Maðurinn hljóp af vettvangi áður en lögregla kom en gaf sig síðar fram við lögreglu. Parið var vistað í fangageymslu og verður þar þangað til hægt verður að ræða við þau. 18.2.2012 09:04
Pétur Jóhann mætti á Edduna í hlébarðabúningi Pétur Jóhann Sigfússon skemmtikraftur stal senunni á Eddunni í kvöld þegar að hann afhenti bestu leikkonu ársins verðlaun ásamt Þorsteini Guðmundssyni leikara. Pétur fetaði þannig í fótspor Bjarnheiðar Hannesdóttur sem vakti gríðarlega athygli í fyrra þegar hún afhenti verðlaun fyrir vin sinn í þessum sama galla á Eddunni. "Bjarnheiður Hannesdóttir sá sér ekki fært að mæta þannig að ég hringdi í hana,“ sagði Pétur Jóhann og tók fram að hann teldi nú að gallinn hefði farið betur á Bjarnheiði en honum sjálfum. "Því er er ekki að neita,“ sagði hann. 18.2.2012 21:05
Þörf á breyttri stefnu gagnvart arabalöndunum Áhrif Vesturlanda í arabalöndum eru sífellt að dvína að mati Jordi Vaquer i Fanes, forstöðumanns alþjóðamálastofnunar háskólans í Barcelona, sem hélt nýlega fyrirlestur í Háskóla Íslands um stefnu og stöðu Evrópusambandsins í heimshlutanum í kjölfar arabíska vorsins. Stefnubreytingar sé því þörf. 18.2.2012 08:30
Vinna verkefnisstjórnar gildi Samorka – samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi, samþykkti ályktun á aðalfundi sínum í gær þar sem vonbrigðum er lýst af stöðu rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Samorka vill að stuðst verði við faglega röðun verkefnisstjórnar frá því í júní 2011. 18.2.2012 08:30
Trufla starfsemi Leitarstöðvar Konur með aðrar silíkonfyllingar en hina umdeildu PIP púða leita nú í auknum mæli til Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins eftir ómskoðun, segir yfirlæknir á stöðinni. 18.2.2012 08:00
Vilja að ráðherra hlutist til Hópur foreldra barna í Hamra- og Húsaskóla í Grafarvogi óskaði eftir því við Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra á fimmtudag að hún skoði sameiningu skólanna. Unglingadeildir skólanna eiga að sameinast Foldaskóla í haust. 18.2.2012 08:00
Takmarkanir hafa lítil áhrif á RÚV Meðallengd sjónvarpsauglýsinga hjá Ríkisútvarpinu er mun styttri en þær takmarkanir sem eru í nýju frumvarpi. Ráðherra segir frumvarpið geta breyst ef athugasemdir gefa tilefni til þess. Það verður lagt fram í byrjun mars. 18.2.2012 07:30
Rök Íslands skynsamleg Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir að Íslendingar hafi sett fram skynsamleg rök í nýafstöðnum viðræðum við Noreg og ESB um makrílveiðar. 18.2.2012 07:30
Reiðubúin að opna Skálafell Borgarráð hefur samþykkt að verja 2,5 milljónum króna til að unnt sé að opna skíðasvæðið í Skálafelli út veturinn. Tilskilið er þó að hin sveitarfélögin, sem hlut eiga að máli, setji einnig fé í verkefnið. 18.2.2012 07:00
Mun fleiri nota hjól eingöngu Mikil aukning hefur orðið á hjólreiðum í Reykjavík, samkvæmt nýrri og viðamikilli ferðavenjukönnun. 3,8% aðspurðra fara allra ferða sinna á reiðhjóli, en aðeins 0,8% svöruðu á þennan veg árið 2002 þegar sambærileg könnun var gerð. 18.2.2012 07:00
Grænir skyndibílar klárir fyrir sumarið Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Northern Lights Energy (NLE) stefnir á að hefja rekstur skyndibílakerfis á höfuðborgarsvæðinu strax í sumar. Fréttablaðið hefur að undanförnu fjallað um hugmyndir nokkurra fyrirtækja sem hafa áhuga á að koma slíku kerfi á, en Gísli Gíslason, stjórnarformaður NLE, segir í samtali við Fréttablaðið að fyrirtækið hafi unnið lengi að svipuðu verkefni og muni hefja skyndibílarekstur í sumar, bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga. 18.2.2012 06:30
Hófu byggingu stúdentagarða Framkvæmdir hófust í gær við byggingu nýrra stúdentagarða á lóð Háskóla Íslands. Framkvæmdirnar eru stærstu byggingaframkvæmdir á Íslandi frá haustinu 2008, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. 18.2.2012 06:30
Buðu sama 7% kvótann í makríl aftur Noregur og ESB komu ekki fram með neitt nýtt í viðræðum um skiptingu kvóta á makrílfundinum í Reykjavík. Því er blásið á yfirlýsingar ESB og Noregs um skort á samningsvilja Íslands og Færeyinga. 18.2.2012 06:00
Barnabækur rifnar úr hillum bókasafns Fleira fólk leggur leið sína á Amtsbókasafnið á Akureyri en áður. Starfsfólkið tengir fjölgunina við umræðu um lestur barna. Mjög ánægjulegt að fólk skuli bregðast við og lesa fyrir börnin, segir Hólmsteinn Hreinsson amtsbókavörður. 18.2.2012 05:30
Bílum beint um bráðabirgðaveg Umferð um Reykjanesbraut við Straumsvík verður frá og með deginum í dag beint um bráðabirgðarveg. 18.2.2012 05:30
Mattel framleiðir svifbretti Leikfangaframleiðandinn Mattel hefur hafið framleiðslu á eftirlíkingu af svifbrettinu sem Marty McFly notaði í kvikmyndunum vinsælu Back to the Future. Því miður svífa brettin ekki en aðdáendur kvikmyndanna geta eflaust sætt sig við það. 17.2.2012 23:46
Stjarneðlisfræðingar endurskapa "Hin miklu umbrot" Stjarneðlisfræðingar hafa endurskapað risavaxna sprengingu sem átti sér stað fyrir 150 árum. Sprengingin var svo öflug að hún sást frá jörðinni árum saman. 17.2.2012 22:53
Göngumennirnir heilir á húfi Björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, lenti með þrjá göngumenn á Hvolsvelli nú fyrir stuttu. Mennirnir þrír lentu í sjálfheldu í hlíðum Eyjafjallajökuls fyrr í kvöld. 17.2.2012 23:09
Göngumenn í sjálfheldu á Eyjafjallajökli Þrír göngumenn lentu í sjálfheldu í hlíðum Eyjafjallajökul í kvöld. Björgunarþyrlan Kná var kölluð út í kjölfarið og lagði af stað frá Reykjavík stuttu seinna. 17.2.2012 22:39
"Stjórnvöld og fjármálastofnanir beittu efnahagslegu ofbeldi" Hagsmunasamtök heimilanna fagna niðurstöðu Hæstaréttar varðandi gengistryggð lán. Í tilkynningu frá samtökunum segir að stjórnvöld og fjármálastofnanir landsins hafi beitt tugi þúsunda heimila efnahagslegu ofbeldi með verkum sínum. 17.2.2012 20:15
Slást um að kaupa gull af Íslendingum Slegist var um að kaupa gull af Íslendingum á hóteli í Reyjavík í dag. Gullkaupmenn segja óvenjumarga vera að reyna að selja dýrgripina sína. 17.2.2012 19:45
Flugskýli Icelandair hrópar á fleiri flugvirkja Hlutfall Suðurnesjamanna í viðhaldsstöð Icelandair á Keflavíkurflugvelli hefur fimmfaldast frá því flugskýlið var opnað. Skortur er nú á flugvirkjum. Það þótti ekki endilega sjálfsögð ákvörðun hjá Icelandair fyrir rúmum tuttugu árum að byggja upp fullkomna viðhaldsstöð fyrir flugflota sinn á Íslandi. 17.2.2012 19:32
Biður fólk um að sýna þolinmæði vegna dóms Hæstaréttar Efnahags- og viðskiptaráðherra segir svigrúm bankanna til afskrifta ekki vera meira þrátt fyrir að þeir geti tekið á sig tug milljarða tjón vegna gengistryggðra lána. Það sé algjörlega óskylt almennri niðurfærslu lána. Forsætisráðherra segir fólk þurfa að sýna þolinmæði. 17.2.2012 19:30
Gamlinginn verður kvikmyndaður Sigurjón Sighvatsson hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn á metsölubókinni Gamlingjanum. Myndin er væntanleg í kvikmyndahús undir lok næsta árs. 17.2.2012 19:00
Hefur áhyggjur af gerð rammaáætlunar Orkufyrirtækin eru ósátt við hversu langan tíma það hefur tekið að klára rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúruauðlinda og óttast að málið dagi uppi á Alþingi. 17.2.2012 18:29
Ákærðir vegna skotárásar í Bryggjuhverfinu Þrír menn hafa verið ákærðir fyrir aðild sína að skotárás í Bryggjuhverfinu í nóvember síðastliðnum. 17.2.2012 18:14
Steypubíll rann út af vegi á Akureyri Ökumaður steypubíls á Akureyri þvertók fyrir að fara í snemmbúið helgarfrí þegar bíll hans rann út af veginum við Glerá í dag. Atvikið átti sér stað um tvöleytið og var beltagrafa notuð til að koma steypubílnum aftur upp á veginn. 17.2.2012 17:56
Greiðslukortið er á leið í snjallsímann Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor, segir að Ísland sé leiðandi í þróun á greiðslumöguleikum í gegnum snjallsíma. Viðar var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis í dag. 17.2.2012 17:34
Óvægin fjölmiðlaumfjöllun ekki ástæða til refsilækkunar Óvægin fjölmiðlaumfjöllun um mál Baldurs Guðlaugssonar gat ekki haft áhrif til refsilækkunar, segir í dómi Hæstaréttar sem kveðinn var upp í dag. 17.2.2012 15:33
Ríkissaksóknari: Dómurinn skýr og mikilvægt fordæmi Niðurstaða Hæstaréttar í máli ákæruvaldsins á hendur Baldri Guðlaugssyni er í takt við það sem ákæruvaldið lagði upp með. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sigríði J. Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara. 17.2.2012 15:10
Mikil aukning á hjólreiðum í Reykjavík Mikil aukning hefur orðið á hjólreiðum í Reykjavík samkvæmt nýrri og viðamikilli ferðavenjukönnun sem gerð hefur verið fyrir höfuðborgarsvæðið. 3,8% aðspurðra fara allra ferða sinna á reiðhjóli, en aðeins 0,8 % svöruðu á þennan veg árið 2002 þegar sambærileg könnun var gerð. Talan hækkar í 4,6% ef aðeins svör Reykvíkinga eru skoðuð. Flestar ferðir voru farnar á reiðhjóli í Miðborginni, Vesturbæ, Laugardal og Árbæ eða 6-7%. 61% aðspurðra segjast hjóla allt árið um kring eða hluta úr ári, en 39% aldrei. 17.2.2012 14:06
Ólafur Börkur vildi vísa málinu frá Einn dómari skilaði sérákvæði í Hæstarétti í dag í máli Baldurs Guðlaugssonar. Það var Ólafur Börkur Þorvaldsson. Hann vildi vísa málinu frá dómi. Í þeim hluta sératkvæðisins er hann fjallar um efnislega hlið málsins kemst hann jafnframt að þeirri niðurstöðu að ef ekki séu efni til að vísa málinu frá dómi, beri að sýkna. 17.2.2012 13:50
Fjöldi ökumanna ók of hratt á Neshaganum Brot 51 ökumanns var myndað á Neshaga í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Neshaga í vesturátt, við Melaskóla. 17.2.2012 12:47
Jóhanna tók á móti japanskri sendinefnd Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra tók í morgun á móti sendinefnd frá Japan, sem leidd er af hópi japanskra þingmanna, með þátttöku fulltrúa japanskra fyrirtækja og stofnana. Þetta kemur fram á vef forsætisráðuneytisins. 17.2.2012 11:39
Ungir jafnaðarmenn vilja frjálsa opnunartíma skemmtistaða Hallveig Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík, telja að opnun skemmtistaða í miðborg Reykjavíkur eigi að vera gerð frjáls. Þetta kemur fram í ályktun frá félaginu. Þar segir ennfremur að stjórnin Hallveigar UJR telji að það sé ekki í verkahring borgaryfirvalda að stjórna opnun skemmtistaða. 17.2.2012 11:18
Frosti vill fá nefið sitt aftur Sá dularfulli atburður gerðist á dögunum að óprúttinn þjófur stal nefi af risastórum snjókarli sem er staðsettur á Ráðhústorginu á Akureyri. 17.2.2012 09:24
Menningarfylgd Birnu fagnar 10 ára afmæli sínu Á morgun, laugardag, fagnar Menningarfylgd Birnu ehf. tíu ára afmæli. Í tilefni afmælis býður Birna Þórðardóttir upp á klukkutíma afmælisgöngu um ljúfa staði miðborgarinnar. 17.2.2012 19:30
Ungir framsóknarmenn mótmæla hækkun bílastæðagjalda Stjórn félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík mótmælir öllum hugmyndum um hækkun bílastæðagjalda í miðborg Reykjavíkur. 17.2.2012 09:36
Fimm mánaða fangelsi fyrir rangar sakargiftir Rúmlega þrítugur karlmaður var dæmdur í fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Maðurinn varð uppvís af því að aka margsinnis undir áhrifum fíkniefna auk þess sem hann braust inn á veitingastað en þaðan stal hann spilapeningum. 17.2.2012 09:19
Þurftu að laga dóminn yfir Baldri Hæstiréttur hætti við að kveða upp dóm í innherjasvikamáli Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, í gær eins og til hafði staðið samkvæmt dagskrá. Dómurinn verður í staðinn kveðinn upp klukkan 13.30 í dag. 17.2.2012 08:00
Smákökubakstur endaði með útkalli slökkviliðsins Smákökubakstur fór úr böndunum á Akureyri í gærkvöldi sem endaði með því að slökkviliðið var kallað á vettvang. 17.2.2012 07:27
Bílskúr brann til grunna Eldur kom upp í frístandandi bílskúr úr timbri við einbýlishús við Keilufell í Reykjavík um klukkan hálf tvö í nótt. 17.2.2012 07:22
Reyndu að fela fíkniefni í nærbuxunum Lögreglumönnum á Selfossi þótti mannskapurinn eitthvað grunsamlelgur, um borð í bíl sem þeir stöðvuðu við venjulegt eftirlit í gærkvöldi og var kallað eftir fíkniefnahundi til að kanna málið nánar. 17.2.2012 07:17
Vafasamt greiðslumat leysir fólk undan ábyrgð á lánum Héraðsdómur leysir mann undan ábyrgð á láni bróður síns því að Íslandsbanki á engin gögn um greiðslumat. Getur haft áhrif á fjölmarga, segir umboðsmaður skuldara. Fallið frá ábyrgð í þriðjungi vafamála. 17.2.2012 07:00
Ólíkar væntingar um vöxt fjárfestingar Talsverður munur er á nýbirtum hagvaxtarspám Seðlabankans og ASÍ. Seðlabankinn spáir 2,5% hagvexti á þessu ári en spá ASÍ hljóðar upp á 1,5% vöxt. Skýrist munurinn að stórum hluta af ólíkum væntingum um vöxt fjárfestingar í hagkerfinu. 17.2.2012 07:00