Fleiri fréttir

Hverjar eru skoðanir unglinga á kynlífi?

Er æskilegt að bíða með að stunda kynlíf þangað til að ákveðnum aldri er náð? Hvernig eiga foreldrar að bregðast við? Ísland í dag spurði nemendur í tíunda bekk Snælandsskóla áleitinna spurninga um kynlíf unglinga.

Vilja Náttúruminjasafn Íslands í Perluna

Fimm félagasamtök á sviði náttúru- og umhverfisverndar og fagfélög kennara hafa sent stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og mennta- og menningarmálaráðherra áskorun vegna hugmynda um nýtingu Perlunnar undir starfsemi Náttúruminjasafns Íslands.

Sakar Ögmund um vanþekkingu

Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir Ögmund Jónasson, innanríkisráðherra, fyrir ummæli sín um að hið opinbera hafi eignarhald á flugvallarsvæðinu í Vatnsmýrinni.

Isavia sér fram á stækkun Leifsstöðvar

Ráðamenn Isavia sjá fram á enn meiri stækkun Leifsstöðvar á næstu árum og jafnvel smíði nýrrar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli. Kostnaður gæti orðið tíu milljarðar króna.

"Forsetinn á ekki að tala í gátum"

Það er ókurteisi af hálfu forsetans að gefa það ekki afdráttarlaust upp hvort hann ætli að sækjast eftir endurkjöri. Forsetinn eigi ekki að tala í gátum segir þingmaður Samfylkingarinnar.

Makrílviðræðum lauk án árangurs

Makrílviðræðum Íslendinga, Evrópusambandsins, Noregs, Færeyja og Rússlands lauk í dag án árangurs. Aðalsamningamaður Íslands í viðræðunum segir það vonbrigði.

Dómur Hæstaréttar gæti snert þriðjung heimila í landinu

Hjónin sem unnu mál gegn Frjálsa fjárfestingarbankanum í Hæstarétti í gær fá nærri 30 prósent af eftirstöðvum lánsins leiðrétt eftir dóminn. Dómurinn í gær gæti snert allt að þriðjung allra heimila í landinu.

Áhrif gengisdómsins ekki jafn mikil og talið var

Seðlabankastjóri segir áhrif gengisdómsins ekki verða jafn mikil og áður var talað um. Bankarnir vita hins vegar ekki enn hvaða samningar falla undir dóm Hæstaréttar eða hvernig eigi að haga endurútreikningi á þeim, mörg vafaatriði þurfi að leysa.

Hvernig er best að hlaða snjallsímann?

„Það er óþarfi að tæma rafhlöðu símans áður en hún er hlaðin á ný," sagði Magnús Viðar Skúlason hjá Hátækni. Magnús var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Vill verðtrygginguna burt og lánin leiðrétt

"Í kjölfarið á niðurstöðu Hæstaréttar er meiri krafa frá almenningi um að verðtryggðu lánin verði leiðrétt.“ Þetta sagði Ólafur Garðarsson hjá Hagsmunasamtökum heimilanna í Reykjavík síðdegis í dag.

Hegðun Isavia starfsmannsins telst ekki kynferðisleg áreitni

Isavia, sem rekur flugvelli á Íslandi, var í Hæstarétti í dag sýknað af kröfu konu sem vann hjá fyrirtækinu vegna vangoldinna launa auk miskabóta vegna kynferðislegrar áreitni sem hún kvaðst hafa orðið fyrir af hálfu yfirmanns síns. Konan byggði kröfu sína á því að viðbrögð fyrirtækisins hefðu ekki verið í samræmi við alvarleika málsins og breytingar hafi verið gerðar á starfi hennar svo að henni hafi verið gert ókleift að sinna því.

Ökufantur á flótta fær tæplega sjö milljónir úr tryggingunum

Hæstiréttur lækkaði bætur manns lítillega sem slasaðist alvarlega þegar hann féll af vélhjóli sínu þar sem lögreglan veitti honum eftirför. Það var Héraðsdómur Reykjavíkur sem dæmdi tryggingafélagið Vörð til þess að greiða manninum 7,3 milljónir króna út af slysinu og þurfti hann því að bera helminginn af skaðanum, en upphaflega áttu bæturnar að vera rúmar 14 milljónir króna.

Fimm ára fangelsi fyrir nauðgun á Þjóðhátíð

Birkir Árnason hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu á útisalerni á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um síðustu verslunarmannahelgi. Þetta er sama niðurstaða og Héraðsdómur Suðurlands hafði áður komist að.

Lýst eftir Helenu Sól

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Helen Sól Fannarsdóttur, 16 ára. Hún er 162 sm á hæð, um 60 kg og með grænblá augu.

Atvinnumenn að verki - tölvum og skjávörpum stolið fyrir milljónir

"Þetta er mjög óþægileg tilfinning," segir Sigríður Ólafsdóttir, skólastjóri Ljósmyndaskólans, en brotist var inn í skólann í nótt og þaðan stolið nánast öllum tækjabúnaði sem þar var að finna. Yfir tuttugu Mac-tölvur og skjávarpar voru teknir en þjófarnir brutu meðal annars upp stálhurð til að komast inn. Tjónið er á milljónum króna.

Ekkert samkomulag um makrílinn - fundi lokið

Lokafundi strandríkjanna fjögurra, Íslands, ESB, Noregs og Færeyja, auk Rússlands um stjórn markrílveiða í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2012 lauk í dag í Reykjavík. "Því miður náðist ekki samkomulag á fundinum,“ segir í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu.

Áhugi á að endurbyggja Eden

Nokkur áhugi virðist vera á að endurreisa Eden í Hveragerði samkvæmt nýjum pistli sem Aldís Hafsteinsdóttir skrifaði á bloggsvæði sitt í gær. Þar segist hún hafa átt nokkur símtöl þar sem rætt var við aðila um uppbyggingu Eden.

Fjölskylduhjálp Íslands óskar eftir notuðum fötum

Fjölskylduhjálp Íslands óskar eftir aðstoð almennings í átaki sínu, Enginn án matar á Íslandi árið 2012. Þannig hvetur fjölskylduhjálpin landsmenn til þess að finna til gömul föt sem þeir eru hættir að nota og gefa fjölskylduhjálp.

Fékk kennsluverðlaun Orators

Hafsteinn Þór Hauksson lektor við lagadeild Háskóla Íslands fékk afhent kennsluverðlaun Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, á hátíðarmálþingi sem fram fór í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunin eru veitt. Það var Kristel Finnbogadóttir, varaformaður Orators, sem afhenti verðlaunin.

Ætlar að taka ár í að hjóla frá Íslandi til Kína

"Ég reikna með að þetta taki svona tíu mánuði upp í ár" segir Símon Halldórsson, hjólreiðakappi, stálsmiður og vélstjóri, sem hyggst leggja í hjólreiðaferð frá Íslandi til Kína nú í lok mars. Símon hefur, að eigin sögn, gengið með þennan draum í maganum í mörg ár. Undirbúningurinn er búinn að taka hann um tvö ár í það heila og enn er fjöldi lausra enda sem á eftir að hnýta.

Þingmenn og stjórnlagaráð ráða ráðum sínum

Stjórnlagaráð verður kallað aftur saman í mars og þjóðaratkvæðagreiðsla um nýja stjórnarskrá fer fram í júní ef tillaga meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis nær fram að ganga.

Óvissan nú ekki ríkisstjórninni að kenna

Árni Páll Árnason, fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, segir af og frá að sú óvissa sem kom upp í gær vegna hæstaréttardómsins sé ríkisstjórninni að kenna. Óvissan sé síst meiri nú en ef engin lög hefðu verið sett til að bregðast við dómum Hæstaréttar sumarið og haustið 2010.

Stundvísi Iceland Express stórbatnar

Stundvísi Iceland Express hefur batnað mikið eftir að fyrirtækið fækkaði áfangastöðum sínum niður í tvo. Síðustu tvær vikur seinkaði aðeins einni af þeim tuttugu ferðum sem félagið fór til London og Kaupmannahafnar. Þetta kemur fram á vefnum Túristi.

Vilja að stjórnlagaráð komi aftur saman

Stjórnlagaráð mun koma aftur saman í fjóra daga í næsta mánuði til þess að ræða tillögur um breytingar á stjórnarskrá. Tillaga þessa efnis var lögð fram í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í morgun. Nefndin mun funda með stjórnlagaráði þegar það kemur saman.

Steingrímur: Alger óvissa um fordæmisgildi dómsins

Dómur Hæstaréttar um vexti frá því í gær er mjög einstaklingsbundinn og erfitt að meta hve víðtækt fordæmisgildi hans er, sagði Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, á Alþingi í dag. Hann flutti skýrslu fyrir Alþingi um dóminn og fara fram umræður um hana.

Vandamál sem verður að tækla

„Í raun kemur þetta mér ekki á óvart. Þetta er það sem við erum búin að vera að reyna að hamra á í allri umræðu,“ segir Árni Grétar Jóhannsson, formaðurSamtakanna "78, um niðurstöður nýlegrar rannsóknar um líðan unglinga á Íslandi.

Brúarfoss hársbreidd frá strandi við Reykjanes

Flutningaskipið Brúarfoss, með ellefu manna íslenska áhöfn,var hætt komið við Reykjanes í nótt þegar bilun varð í vélbúnaði og skipið rak að landi í vestan hvassviðri og sjö metra ölduhæð.

Skinnaiðnaður eflist á Íslandi

Útlit er fyrir að yfirgnæfandi meirihluti alls gæruskinns sem er sútaður hérlendis á árinu, eða um 95 prósent, verði fluttur úr landi. Þannig verða 75 þúsund mokkaskinn seld ytra en það er tæplega helmings aukning miðað við í fyrra.

Ríkisstofnanir skila áætlunum of seint

Ríkisendurskoðun gagnrýnir þann misbrest sem er á því að stofnanir ríkisins skili rekstraráætlunum sínum á réttum tíma. Einnig að tvær af hverjum þremur stofnunum fari inn í fjárlagaárið án samþykktrar rekstraráætlunar.

Innlendir orkugjafar verða efldir

Dregið verður úr innflutningi jarðefnaeldsneytis og framleiðsla innlendra orkugjafa efld. Hugað verður að flutningi raforku til Evrópu um sæstreng og hagkvæmni mun ráða orkuframleiðslu. Þetta kemur fram í skýrslu um orkustefnu Íslands. Gagnrýnendur segja hana leggja til hærra raforkuverð og skorta raunhæfar tillögur.

Íbúar þreyttir á ýlfri frá Norðurturninum

Talsmenn lóðarfélags í Lindasmára segja ýlfur og hvin frá hálfbyggðum turni við Smáralind taka á taugar íbúa í nágrenninu. Fólk hrökkvi upp af svefni þegar hvessi að nóttu til. Vindsveipir feyki nú stöðugt rusli að íbúðarblokkunum.

Gjöld á flug komin að ýtrustu mörkum

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir svo kunna að vera að gjöld á innanlandsflug séu komin á ýtrustu mörk. Hann varar þó við miklum upphrópunum varðandi málið og segir gjöldin hafa hækkað minna en vísitalan síðustu ár. Málið var rætt á Alþingi í gær.

Hending að ekki hlaust af bani

Mál rúmlega tvítugs manns sem stakk annan með hnífi í Kópavogi aðfaranótt 3. febrúar er rannsakað sem tilraun til manndráps. Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði, sem Hæstiréttur staðfesti í fyrradag.

Fjórtán ára og með þrjár háskólagráður

Fjórtán ára piltur í Bandaríkjunum mun á næstu dögum fá sína þriðju gráðu frá háskólanum í Kaliforníu. Hann hefur óbeit á því að vera kallaður snillingur.

Nærmynd af Baltasar Kormáki

Velgengni kvikmyndarinnar Contraband hefur gert leikstjórann Baltasar Kormák að rísandi stjörnu í Hollywood. Nærmynd af kappanum var frumsýnd í Íslandi í dag og hana má sjá hér að ofan.

Sjá næstu 50 fréttir