Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
200 þúsund sáu flugeldasýningu Íslendinga Yfir 200.000 nýttu sér vefmyndavélar Mílu til að fylgjast með flugeldasýningu Íslendinga á gamlárskvöld. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að Míla hafi sett upp vefmyndavélar fyrir áramótin til þess að streyma beint frá áramótunum en vélar voru settar upp í Reykjavík og á Akureyri. Heimsóknir voru víðs vegar að úr heiminum, flestar frá Evrópu og Bandaríkjunum. 25.1.2012 16:54
Rýming á Ísafirði vegna snjóflóðahættu Lögreglustjórinn á Ísafirði, í samráði við Veðurstofu Íslands, hefur ákveðið að láta rýma iðnaðarsvæði undir Seljalandshlíð á Ísafirði vegna snjóflóðahættu. Það hefur snjóað mikið í dag á svæðinu en rýmingu á að vera lokið klukkan 17, samkvæmt upplýsingum frá Almannavörnum. Ákvörðun um frekari rýmingu verður tekin í kvöld. Vegirnir um Súðavíkurhlíð og Eyrarhlíð eru lokaðir vegna snjóflóðahættu og nokkur snjóflóð hafa fallið í dag á Siglufjarðarvegi. 25.1.2012 16:34
Tafir á Reykjanesbraut við Mjódd vegna áreksturs Árekstur varð á Reykjanesbraut nú fyrir stundu til móts við Mjóddina í Breiðholti. Samkvæmt upplýsingum frá árekstur.is eru miklar tafir í suðurátt vegna óhappsins og eru ökumenn beðnir um að sýna þolinmæði. 25.1.2012 16:12
Landsbjörg varar ferðalanga við Slysavarnafélagið Landsbjörg varar fólk eindregið við því að halda á fjöll á norðanverðum Vestfjörðum og á Norðurlandi nú þegar snjóflóðahætta er víða á svæðinu. Í tilkynningu segir að snjóflóð gætu einnig fallið víðar, sérstaklega þar sem fólk er á ferðinni, t.d. á vélsleðum og því ætti enginn að vera á ferð í fjalllendi nema kunna að meta snjóflóðahættu og vera með snjóflóðaýli, stöng og skóflu. 25.1.2012 15:45
Yfirlýsing: Egill vill formlega rannsókn á röngum sakargiftum Egill Einarsson, sem á síðasta ári var kærður ásamt unnustu sinni fyrir nauðgun segir að kæran eigi ekki við rök að styðjast og vísar í rannsóknargögn lögreglu. Hann hyggst fara fram á að lögregla rannsaki nú hvort um vísvitandi rangar sakargiftir á hendur sér hafi verið að ræða. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Egill sendir frá sér í dag. Ríkissaksóknari hefur kæruna á hendur Agli nú til umfjöllunar en á dögunum barst önnur kæra til lögreglu. 25.1.2012 15:27
Vegum víða lokað vegna snjóflóðahættu Nokkur snjóflóð hafa fallið í dag á Siglufjarðarvegi og hefur honum nú verið lokað að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Búast má við snjóflóðahættu víða á vegum á Vestfjörðum í dag miðað við veðurspá. Eins er búist við snjóflóðahættu í Ólafsfjarðarmúla og á norðanverðum Tröllaskaga í dag. 25.1.2012 15:11
Með 53 kannabisplöntur Karlmaður fæddur árið 1983 var dæmdur í sextíu daga fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir fíkniefnalagabrot í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Maðurinn játaði að hafa tæplega hálft gramm af marijúana og fimmtíu og þrjá kannabisplöntur í fórum sínum. Maðurinn þarf að greiða rúmlega 70 þúsund krónur í málskostnað og þá voru ýmis tól og tæki sem notuð eru við kannabisræktun gerð upptæk. 25.1.2012 13:46
Víða hætta á snjóflóðum - óvissustigi lýst yfir á Norðurlandi Veðurstofan hefur í samráði við lögreglustjórana á Vestfjörðum og Akureyri ákveðið að lýsa yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum og mið-Norðurlandi. 25.1.2012 13:44
Volvo V50 saknað Dökkgrænum Volvo V50 station var stolið þaðan sem hann stóð fyrir utan húsnæði KFUM-K á Holtavegi í Reykjavík í gærkvöld, þriðjudagskvöldið 24. janúar. Númerið á bílnum er RD-526. Þeir sem hafa orðið varir við bílinn eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000. 25.1.2012 13:40
Snjókoman heldur áfram í dag - strætó seinkar Snjó hefur kyngt niður í allan dag á höfuðborgarsvæðinu og segir veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands að búast megi við meiri snjókomu á köflum fram eftir degi. 25.1.2012 13:32
Lýtalæknar neita enn að afhenda landlækni upplýsingar Lýtalæknar neita enn að afhenda landlækni upplýsingar um sílíkonaðgerðir á brjóstum. Málið er nú á borði Persónuverndar. Landlæknisembættið ítrekaði í ársbyrjun beiðni sína um gögn frá lýtalæknum og er fresturinn útrunninn. 25.1.2012 12:28
Austfirðingar segja Reykjavík afsala sér hlutverki höfuðborgar Samband sveitarfélaga á Austurlandi segir í bréfi til forsætisráðherra ljóst að Reykjavíkurborg muni afsala sér hlutverki sínu sem höfuðborg allra landsmanna, verði af áformum borgarstjórnar að leggja af Reykjavíkurflugvöll og nauðsynlegt sé að hefjast þegar handa um breytingar á opinberri stjórnsýslu. 25.1.2012 12:15
Hættustigi lýst yfir á Súðavíkurhlíð - veginum lokað Varúðarstiginu á Súðavíkurhlíð hefur nú verið breytt í hættustig og hefur veginum á milli Súðavíkur og Ísafjarðar verið lokað. Nokkur lítil snjóflóð hafa þegar fallið á veginn. Víðar á Vestfjörðum er hætta talin á snjóflóðum og er ófært frá Ísafirði til Flateyrar og Suðureyrar. 25.1.2012 12:09
Yrsu sárnaði gagnrýni Kolbrúnar og Páls Baldvins "Allt sem þau sögðu um mig var svo hrikalega neikvætt að ég varð orðlaus. Þau efuðust meira að segja um söluna á bókinni og að sölulistarnir væru réttir. Hvað með öll hin árin sem þessir listar hafa verið birtir? Mér fannst þau ekki sanngjörn," segir Yrsa Sigurðardóttir en henni sárnaði gagnrýni Kolbrúnar Bergþórsdóttur og Páls Baldvins Baldvinssonar á nýjustu bók hennar Brakinu í Kiljunni fyrir jól. 25.1.2012 12:00
Ólæsir drengir stærsta vannýtta auðlind þjóðarinnar "Í þessum fjórðungi stráka sem ekki geta lesið sér til gagns liggur stærsta vannýtta auðlind þjóðarinnar - tækifærin eru svo mörg að þau fylla heilu bókasöfnin. Ef ekki er brugðist við af krafti blasir við að strákarnir okkar og þjóðin öll - falli niður í þriðju deild," segir Andri Snær Magnason, rithöfundur, í grein í Fréttablaðinu í dag. 25.1.2012 11:53
Ný Vestmannaeyjaferja í síðasta lagi 2015 Gert er ráð fyrir því að ný ferja geti hafið siglingar í Landeyjahöfn í síðasta lagi árið 2015. Þetta kemur fram í tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu en ráðuneytið kynnti áformin á fundi í dag. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur ásamt Vestmannaeyjabæjar, Siglingastofnunar og Vegagerðarinnar farið yfir stöðuna varðandi siglingar í Landeyjahöfn og á þeim fundum hefur verið fjallað um smíði nýrrar ferju, fyrirkomulag siglinga þar til ný ferja verður komin í gagnið, líklega þróun sandburðar við Landeyjahöfn og rannsóknir sem framundan eru. "Við fjármögnun verður litið til verkefnisins í heild sinni, þ.e. smíði nýrrar ferju og aðgerða til aðlögunar Landeyjahafnar að breyttum náttúrulegum aðstæðum.“ 25.1.2012 11:49
Snjóflóðahætta: Varúðarstigi lýst yfir á Súðavíkurhlíð Vegagerðin hefur lýst yfir varúðarstigi á Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu. Geir Sigurðsson hjá Vegagerðinni á Ísafirði segir að veginum á milli Súðavíkur og Ísafjarðar hafi ekki verið lokað, en að mælst sé til þess að fólk fari ekki um hann nema brýnustu nauðsyn beri til. 25.1.2012 11:23
Vetrarvertíðin gengur vel í hvalaskoðuninni Vetrarvertíðin í hvalaskoðun hefur gengið sérlega vel í ár að sögn Rannveigar Grétarsdóttur hjá Eldingu. Hún segir að mikið kapp hafi verið lagt á það að undanförnu að kynna Ísland sem ferðamannastað allt árið en á síðasta ári hófst samstarf opinberra aðila, einkaaðila og sveitarstjórna undir verkefnisheitinu "Ísland - Allt árið". Átakið hefur það að markmiði að jafna árstíðarsveiflu í komu ferðamanna, skapa ný störf í ferðaþjónustu og auka arðsemi af greininni. 25.1.2012 11:08
Mál Baldurs tekið fyrir í Hæstarétti í dag Málflutningur í máli ákæruvaldsins gegn Baldri Guðlaugssyni, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, hófst í Hæstarétti í morgun. 25.1.2012 10:11
Hefur safnað 40 milljónum: "Ótrúlega þakklátur fyrir stuðninginn" "Ég fór út í þetta með það markmið að ég myndi ekki hætta fyrr en þetta myndi takast, en ég vissi ekki hversu langan tíma þetta tæki," segir Guðmundur Felix Grétarsson, sem hóf að safna fyrir handaágræðslu í september síðastliðnum en aðgerðin mun fara fram í Frakklandi. 25.1.2012 09:51
Íslenski hesturinn á toppnum Hestaleigan Íslenski hesturinn er í þriðja sæti ferðavefsíðunnar Tripadvisor yfir hluti sem mælt er með að gera í allri Evrópu. Leigan er eina hestaleigan í Reykjavík og er þjónustan lofuð í hástert af fyrrum viðskiptavinum. 25.1.2012 09:00
Eldsvoði á Ísafirði Nokkurt tjón varð þegar eldur kviknaði í háfi yfir eldavél á veitingastað í verslanamiðstöðinni Neistanum á ísafirði um sex leitið í gærkvöldi þannig að eldur og reykur stóðu upp úr húsinu. 25.1.2012 08:08
Varað við snjóflóðahættu á Vestfjörðum Búast má við snjóflóðahættu víða á vegum á norðanverðum Vestfjörðum í dag miðað við veðurspá. 25.1.2012 08:04
Vonar að línur skýrist bráðlega Línur eru ekki enn farnar að skýrast að ráði í bæjarstjórnarmálum í Kópavogi, en viðræður um meirihlutamyndun hafa nú staðið í rúma viku án árangurs. 25.1.2012 08:00
Ögmundur boðar til blaðamannafundar Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur boðað til blaðamannafundar fyrir hádegi og er fundarefnið siglingar milli Landeyjahafnar og Eyja. 25.1.2012 07:23
Ölvaður ökumaður ók á tvo ljósastaura Ölvaður ökumaður var handtekinn á hlaupum í vesturborginni eftir að hafa ekið á tvo ljósastaura og hafnað á einskonar handriði við Landakotsspítala, þar sem bíllinn festist 25.1.2012 07:08
Reynt að koma húsinu í rétt horf Töluverðar skemmdir urðu á veitingastaðnum Sjávargrillinu á Skólavörðustíg þegar eldur kom upp í þvottahúsi í kjallara staðarins aðfaranótt þriðjudags. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá rafmagnstæki, hugsanlega þvottavél. 25.1.2012 07:00
Sjö helgar kosta 13,5 milljónir Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins áætlar að það kosti 13,5 milljónir að reka skíðasvæðið í Skálafelli í sjö helgar í vetur. Nýtt belti á snjótroðara kostar 5 milljónir að sögn Diljár Ámundadóttur, formanns stjórnar. 25.1.2012 07:00
Lögreglan stöðvaði mannrán á Ártúnshöfða Karl og kona eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir að þau voru stöðvuð á bíl á Ártúnshöfða á ellefta tímanum í gærkvöldi og leikur grunur á að farþegi sem var með þeim í bílnum, hafi verið þar nauðugur, enda skelkaður en ómeiddur. 25.1.2012 06:45
Töluvert tjón í eldsvoða á Bifröst Engan sakaði er töluvert tjón varð þegar eldur kviknaði í mannlausri íbúð í nemendagarði með tíu íbúðum að Bifröst upp úr miðnætti. 25.1.2012 06:43
Dregur úr flutningum þó fleiri fari en komi Enn flytja fleiri frá landinu en til þess, þrátt fyrir að heldur hafi dregið úr brottflutningi. Tölur frá Hagstofu Íslands sýna að árið 2011 fluttu 6.982 frá landinu, en 5.578 til landsins. Árið 2010 fluttu 7.759 frá Íslandi en 5.625 til landsins. 25.1.2012 06:30
Andlát fórnarlambs flækir réttarhaldið Þrír menn neituðu því staðfastlega fyrir dómi í gær að hafa ráðist með hrottalegum hætti á grískan ferðamann í Bankastræti fyrir nærri tveimur árum. Frásagnir þeirra af atburðum næturinnar stangast hins vegar á í veigamiklum atriðum. 25.1.2012 06:00
Hafa minni áhuga á lestri Norræn ungmenni hafa minni áhuga á lestri en áður. Þetta á sérstaklega við um drengi. 25.1.2012 05:30
80% ferða um Þorlákshöfn Herjólfur hefur farið 34 ferðir til Landeyjahafnar síðan í byrjun nóvember og 135 til Þorlákshafnar. Áttatíu prósent ferðanna hafa verið til Þorlákshafnar. 25.1.2012 04:00
Arion lokar líka á stofnun reikninga á netinu Arion banki breytti í gær netbanka sínum svo ekki er lengur hægt að stofna nýja reikninga í netbankanum. 25.1.2012 04:00
Strandsiglingar hefjist næsta ár Tilraunastrandsiglingar gætu hafist í byrjun næsta árs ef áætlanir innanríkisráðuneytisins ganga eftir. 25.1.2012 03:45
Nauðgun enn til rannsóknar hjá lögreglu Ein nauðgun sem kærð var á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í fyrra er enn til rannsóknar hjá lögreglu. 25.1.2012 03:30
Frumvarp er í þingflokkunum Frumvarp innanríkisráðherra um forvirkar rannsóknarheimildir hefur verið kynnt í ríkisstjórn og er nú til umfjöllunar í þingflokkum stjórnarflokkanna. Ögmundur Jónasson sagði á þingi í gær að hann mundi leggja áherslu á að flýta framlagningu þess á þingi. 25.1.2012 03:00
Segir embættismenn hafa ánetjast ESB Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur áhyggjur af því að stofnanaveldið, eins og hann orðaði það, hafi ánetjast Evrópusambandinu. Hann lýsti þeirri skoðun sinni undir glymjandi bjölluhljómi forseta Alþingis í gær, en ráðherra var kominn þó nokkuð fram yfir tímamörk sín. 25.1.2012 02:30
Halldór Helgason gæti orðið brettamaður ársins á ESPN Halldór Helgason snjóbrettamaður frá Akureyri er kominn í úrslit í kosningu ESPN á brettamanni ársins. 24.1.2012 23:04
Réttarhöldin yfirborðskennd tilraun til þess að hvítþvo stjórnmálamenn Ögmundur Jónasson sagði réttarhöldin yfir Geir H. Haarde yfirborðskennda tilraun til þess að hvítþvo stjórnmálin af hruninu. Þetta sagði hann á fjölmennum fundi sem Vinstri Græn í Reykjavík boðuðu til í kvöld en um 60 manns voru á fundinum, þar á meðal Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður. 24.1.2012 22:06
Fasteignagjöld hesthúsa hærri en á híbýlum manna "Kostnaður við hestahald hefur stóraukist á síðustu árum og eitt sem hestamenn eru hvað ósáttastir við er að sveitarfélögin hafi sett hesthúsin í flokk með iðnaðarhúsnæðum og því þarf að borga svívirðilega há fasteignagjöld af hesthúsunum,“ segir Haraldur Þórarinsson, formaður Landsambands hestamanna, sem ræddi við félagana í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. 24.1.2012 21:45
Eldur í verslunarmiðstöð á Ísafirði á háannatíma Allt tiltækt lið Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar var kallað út um sexleytið í kvöld þegar eldur kom upp í eldhúsi á veitingastaðarins Thai-Koon í verslunarmiðstöðinni Neista á Ísafirði, þar sem einnig er verslun Samkaupa, póstafgreiðsla og önnur verslun. Það er vefsíða Bæjarins bestu, bb.is, sem greinir frá. 24.1.2012 21:11
Svona gætu flugbrautir vikið út í Skerjafjörð Hugmyndir um að flytja Reykjavíkurflugvöll að hluta út í Skerjafjörð eiga það sammerkt að þannig losnar mikið landrými og flugvöllurinn verður áfram á sömu slóðum. 24.1.2012 21:00
Talsvert af heimildarlausum dyravörðum Nokkuð ber á því að starfandi dyraverðir á veitinga- og skemmtistöðum eru ekki með heimild lögreglustjóra til starfans en allmargir gátu ekki framvísað dyravarðaskírteini þegar eftir því var leitað af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á dögunum. 24.1.2012 20:56