Fleiri fréttir

Alvarlegt vélsleðaslys á Mosfellsheiðinni

Vélsleðaslys varð á Mosfellsheiðinni skömmu fyrir klukkan fjögur í dag. Um alvarlegt slys er að ræða. Einn maður var fluttur á slysadeild en sérútbúinn sjúkrabíll sótti manninn. Þyrla Landhelgisgæslunnar var í viðbragðsstöðu en ekki þurfti að kalla hana til. Þá voru björgunarsveitir einnig ræstar út en sjúkraflutningsmenn komust sjálfir að manninum upp á heiðinni.

Fangar fá samkeppni - hægt að kaupa bílnúmer frá Túvalúeyjum

Fangar á Litla Hrauni hafa fengið óvænta samkeppni utan úr heimi. Það er nefnilega hægt að kaupa íslensk skráningarmerki á bifreiðar, eða bílnúmer, á vefnum licenseplate.tv. Þar má meira að það segja finna nokkrar útgáfur af íslenskum bílnúmerum sem fyrirtækið framleiðir. Ein þeirra er nokkuð lík skráningarmerkjum hér á landi, og hefur greinilega staðist skoðun fyrir árið 2010.

Brotist inn í Garðaskóla

Brotist var inn í Garðaskóla í Garðabæ snemma í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var engu stolið og því aðeins um eignaspjöll að ræða.

Endurskoða lög um vopn, sprengiefni og skotelda

Innanríkisráðuneytið hefur nú til umsagnar drög að frumvarpi að nýjum lögum um vopn, sprengiefni og skotelda. Reynslan af gildandi lögum hefur ekki verið að öllu leyti góð en af þeim hefur hlotist nokkur óvissa og ágreiningur samkvæmt upplýsingum sem finna má á vef ráðuneytisins.

Varað við hálku

Búast má við að það frysti víða á landinu í dag og hálka myndist þá mjög víða. Aftur hlýnar í fyrramálið og á morgun.

Bátur sökk í Kópavogshöfn

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um klukkan fjögur í nótt út af bát sem hafði sokkið í höfninni í Kópavogi. Slökkviliðið dældi vatni upp úr bátnum og var að næstu þrjá tímana, eða þar til félagar í Hjálparsveit skáta í Kópavogi voru fengnir til þess að aðstoða lögregluna þar á bæ.

Stunginn í bakið að ástæðulausu

Karlmaður á þrítugsaldri kom á slysadeild Fossvogi um miðnætti og kvaðst hafa verið stunginn með hnífi í bakið fyrir utan verslun í Glæsibæ.

Annar alvarlegur bruni vegna etanól-arins

Stúlka um tvítugt brenndist á hendi og líkama þegar eldur blossaði upp í etanól arni á veitingastaðnum Austur í Reykjavík um níuleytið í gærkvöldi.

Máttu vörslusvipta móður í greiðsluaðlögun

Lýsing var í fullum rétti að beita móður í greiðsluaðlögun vörslusviptingu um miðja nótt - ef marka má nýfallinn úrskurð nefndar hjá Fjármálaeftirlitinu. Nefndin klofnaði í afstöðu sinni, en niðurstaða meirihlutans er sú að heimilisbíll þeirra sem sækja um greiðsluaðlögun er ekki í greiðsluskjóli eins og aðrar eignir.

Matvælastofnun harmar gagnrýni vegna iðnaðarsalts

Matvælastofnun (MAST) harmar harða gagnrýni Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur á störf Matvælastofnunarinnar eftir að í ljós kom að Ölgerðin seldi iðnaðarsalt til fyrirtækja sem notuðu það svo í matvælaframleiðslu.

Ölgerðin upplýsti heilbrigðiseftirlitið um kaupendur

Ölgerðin hefur upplýst Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur um kaupendur að iðnaðarsalti, sem fyrirtækið seldi til matvælaframleiðslu, þrjá mánuði aftur í tímann samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Ekki er vitað hvort neytendur verði upplýstir um það hverjir keyptu saltið.

Framboðslistar kynntir

Framboðslistar Röskvu til Stúdenta- og Háskólaráðs voru kynntir á listakynningu hreyfingarinnar í gærkvöldi.

Telur mannréttindi brotin í máli Baldurs

Forseti lagadeildar HÍ telur að meðferð máls Baldurs Guðlaugssonar í réttarkerfinu hafi ekki samræmst Mannréttindasáttmála Evrópu. Fjármálaeftirlitinu hafi verið óheimilt að taka mál hans upp að nýju eftir að hafa fellt það niður.

Framboð til 2. varaformanns Sjálfstæðisflokksins.

Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri og formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, lýsir yfir framboði til embættis 2. varaformanns Sjálfstæðisflokksins, sem kosið verður til á flokksráðsfundi í mars næstkomandi.

Ísland hýsi 1% gagna í Evrópu

Gagnaver Verne Global tekur til starfa í byrjun febrúar. Landsvirkjun stefnir á að árið 2020 verði Ísland eitt af tíu stærstu gagnaverskjarnasvæðum í heimi. Stefnt er að því að 1% gagna í Evrópu verði þá hýst á Íslandi.

Milljarðakrafa Reykjavíkur lifir

Hæstiréttur hefur blásið lífi í rúmlega 1,2 milljarða kröfu Reykjavíkurborgar í bú Landsvaka, sem Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður vísað frá dómi. Hæstiréttur felldi niðurstöðu héraðsdóms úr gildi á fimmtudag og vísaði málinu aftur heim í hérað.

Petra Sveinsdóttir látin

Petra Sveinsdóttir, steinasafnari á Stöðvarfirði, er látin. Petra lést á þriðjudag á hjúkrunarheimilinu Uppsölum á Fáskrúðsfirði. Petra safnaði steinum frá tvítugsaldri, og opnaði steinasafn á heimili sínu fyrir almenningi þegar eiginmaður hennar lést árið 1974.

Stækkun virkjunar á að hefjast á þessu ári

HS Orka ætlar að ljúka nýjum orkusölusamningi og byrja að stækka Reykjanesvirkjun í ár. Framkvæmdum á að ljúka á fyrri hluta ársins 2014. Verið er að ræða við Norðurál. Áformin voru kynnt á fundi með fjárfestum í síðustu viku.

Getur tekið fram fyrir hendur lögreglu

Ríkissaksóknari ætlar að setja lögregluembættum verklagsreglur til að tryggja að þegar heimild er veitt til að hlera síma verði þeim sem hlerað er hjá tilkynnt um eftirlitið innan eðlilegra tímamarka. Virði lögregla ekki tímamörkin mun ríkissaksóknari grípa inn í.

AGS aðstoðar við gerð laga um fjármál hins opinbera

Í nýrri skýrslu starfshóps AGS eru ráðleggingar til stjórnvalda við setningu nýrrar rammalöggjafar um fjármál hins opinbera. Fjármálaráðuneytið bað um skýrsluna. Frumvarpsdrög eiga að verða til fyrir þinglok.

Draumur rafvirkjans knúinn af vindinum

Hrafnkell Guðjónsson og Eyjólfur Jóhannsson, rafverktakar á Héraði, vona að kínverskar vindmyllur lækki rafmagnsreikninga verulega hjá þeim sem ekki hafa hitaveitu. Tilraunamylla verður farin að snúast um næstu mánaðamót.

Skýrsla um Vaðlaheiðargöng falin á Háskólavef

Skýrsla um Vaðlaheiðargöng sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vann fyrir samgönguráðuneytið árið 2010 var aldrei birt opinberlega af hálfu ráðuneytisins. Þetta kom fram í Morgunblaðinu í gær.

Game of Thrones snýr aftur 1. apríl

Sjónvarpsstöðin HBO tilkynnti í dag að önnur sería af sjónvarpsþættinum vinsæla Game of Thrones verði frumsýnd 1. apríl næstkomandi.

Formaður Vítisengla í gæsluvarðhaldi

Formaður Vítisengla, Einar Marteinsson, var handtekinn í dag og úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við alvarlega líkamsárás á unga konu. Fimm vítisenglar eru nú í einangrun vegna málsins.

Stöðuvatn á bílastæði í Hafnarfirði

Nú þegar hlýnað hefur í veðri hafa myndast stórir pollar víðsvegar um land. Í morgun myndaðist mikið stöðuvatn við Ásvallalaug í Hafnarfirði í hlákunni. Bæjarstarfsmenn voru fengnir til þess að koma á vettvang til þess að kafa eftir niðurföllum og laga ástandið. Fólki er bent á að losa snjó og klaka frá niðurföllum til að koma í veg fyrir að svona pollar myndast.

12.700 atvinnulausir

Tæplega 12.700 einstaklingar voru atvinnulausir í lok desember 2011. Alls fjölgaði atvinnulausum um rúmlega 400 að meðaltali frá því í nóvember eða um 0,2 prósentustig.

Fullyrða að hafa greitt svart fyrir sílikonaðgerðir

Velferðarráðuneytinu hafa borist ábendingar um að læknar sem bjóða heilbrigðisþjónustu án greiðsluþáttöku sjúkratrygginga gefi ekki tekjur sínar að fullu upp til skatts. Nokkrar konur sem fréttastofa hefur rætt við fullyrða að þær hafi greitt svart fyrir brjóstaígræðslur sem þær fengu frá Jens Kjartanssyni.

Bíllinn tekinn í skjóli nætur

Tveggja barna móður rak í rogastans í morgun þegar hún hugðist keyra börnin sín í skólann. Bíllinn var horfinn. Lýsing lét vörslusvipta bílinn í skjóli nætur. Ömurleg vinnubrögð segir konan, óeðlileg vinnubrögð segir Umboðsmaður skuldara. Við erum í fullum rétti segir talsmaður Lýsingar.

Kannabisræktandi stal rafmagni frá annarri íbúð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti í fyrradag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 150 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar en þær vógu um 22 kg. Einn var handtekinn í þágu rannsóknarinnar en við hana kom jafnframt í ljós að rafmagnið sem var notað við ræktunina var fengið með því að stela því frá annarri íbúð í húsinu.

Ölvaður ökumaður ók greitt framhjá lögreglubíl

Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Annar var stöðvaður í Hafnarfirði en hinn í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru þetta tveir karlar, 25 og 43 ára. Afskiptin af þeim eldri voru þannig tilkomin að hann ók mjög greitt framhjá lögreglubifreið og vakti það grunsemdir. Honum var veitt stutt eftirför en maðurinn reyndist ölvaður eins og áður sagði.

Gunna Dís á batavegi - fékk kökur frá Andra

Fjölmiðlamaðurinn Andri Freyr Viðarsson kom færandi hendi til Gunnu Dísar vinkonu sinnar nú á fjórða tímanum í dag með kökur og kræsingar. Fjölmiðlafólkið vinnur saman við þættina Virkir morgnar á Rás 2, en það brá mörgum í brún í gær þegar Gunna Dís fékk aðsvif í beinni útsendingu í útvarpinu í gær, þegar útsending á Gettu betur fór fram.

Íbúar hafa fengið 100 tonn af salti

Stöðugur straumur íbúa hefur verið á hverfastöðvarnar í dag að ná í sand og salt til að bera á einkalóðir og innkeyrslur. Starfsmenn stöðvanna hafa þegar afgreitt yfir 100 tonn af salti og sandi til íbúa síðustu daga, samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg. Á morgun geta íbúar komið á hverfastöðvarnar milli klukkan hálfellefu og þrjú vanti þá salt eða sand. Hverfastöðvarnar sem verða opnar eru við Njarðargötu, við Flókagötu, í Jafnaseli og við Stórhöfða.

Fjarlægðu skráningarnúmer af 100 bílum

Skráningarnúmer voru fjarlægð af um eitt hundrað ökutækjum víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu í gær og fyrradag. Ökutækin voru ýmist ótryggð eða óskoðuð, jafnvel hvorutveggja. Mikið er um ótryggð og óskoðuð ökutæki á höfuðborgarsvæðinu en lögreglan hvetur eigendur og umráðamenn þeirra til að gera þar bragarbót á. Lögreglan hefur undanfarna daga verið með eftirlit með slíkum ökutækjum og mun vera með slíkt eftirlit áfram. Lögreglan hvetur ökumenn til að passa upp á þetta svo ekki þurfi að koma til fyrrnefndra aðgerða.

Maðurinn látinn

Maðurinn sem slasaðist í hlíðum Helgafells í nágrenni Hafnarfjarðar í gær lést í nótt á Landspítalanum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Ekki er hægt að greina frá nafni mannsins á þessari stundu en hann var rúmlega þrítugur. Þyrla Landhelgisgæslunnar fann manninn mikið slasaðan í hlíðum fjallsins síðdegis í gær eftir að björgunarsveit hafði leitað hans um nokkra stund.

Mál Más ekki á borði Steingríms

Steingrímur J. Sigfússon segir efnahags- og viðskiptaráðuneytið ekki eiga eftir að skipta sér af deilu Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra, og seðlabankans. Allir eigi rétt á að bera ágreining undir dómstóla.

Tæpur þriðjungur hunda í Reykjavík óskráðir

Talið er að uppundir 30% hunda í Reykjavík séu óskráðir - og það leysir engan vanda að skylda hundaeigendur til að sækja námskeið, segir formaður heilbrigðisnefndar Reykjavíkur. Í nýrri hundasamþykkt borgarinnar er hundum á bannlista fjölgað um níu tegundir.

Fékk grýlukerti á sig

Grýlukerti á þakbrún á húsi við Dalbrekku féll á mann í Dalbrekku í Kópavogi um níuleytið í morgun. Hann er ekki alvarlega slasaður en sjúkrabifreið var kölluð til, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eftir klukkan tíu í morgun féll maður utandyra á Álfhólsvegi við Álfhólsskóla. Sjúkrabíll var kallaður til en ekki er vitað nánar um meiðsl hans.

Forsetahjónin fagna með drottningunni

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff forsetafrú munu um helgina taka þátt í hátíðardagskrá í Kaupmannahöfn í tilefni af því að 40 ár eru liðin frá því að Margrét Þórhildur varð drottning Danmerkur.

Lítið um vatnsflóð enn sem komið er

Tíðindalítið hefur verið hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu þrátt fyrir leysingarnar sem gengnar eru í garð. Þar á bæ beina menn þó eindregnum tilmælum til borgarbúa að þeir hreinsi vel frá niðurföllum við kjallara og á svölum sérstaklega. Eins minna þeir forsvarsmenn fyrirtækja sem verða lokuð yfir helgina að ganga vel frá þannig að vatn eigi örugglega greiða leið í niðurföll.

Sjá næstu 50 fréttir