Fleiri fréttir

Skuggaleg aukning á sölu lyfja

Sala á tauga og geðlyfjum hefur þrefaldast á síðustu tveimur áratugum en heimilislæknir óttast að það sé of auðvelt að endurnýja lyfseðla. Svefnlyfin nái aldrei að hreinsast alveg úr líkamanum daginn eftir og valdi oft truflaðri hugsun sem geti reynst hættulegt. Íslendingar nota tæplega helmingi meira af tauga og geðlyfjum en Svíar samkvæmt nýlegri skýrslu velferðarráðuneytisins. Þá eru þessi lyf meira en fjórðungur af lyfjakostnaði hér á landi og hefur sala á þeim þrefaldast á síðustu tveimur áratugum þar með talið sala á svefnlyfjum.

Alma ekki með stýrisblað

Kafarar frá Fáskrúðsfirði athuguðu flutningaskipið Ölmu í dag og í ljós kom að stýrisblað skipsins vantar með öllu. Það hefur að öllum líkindum dottið af þegar skipið var að sigla burt frá Hornafjarðarhöfn í fyrri nótt. Garðar Jóhannsson, framkvæmdastjóri Nesskipa, sem er umboðsaðili Ölmu hér á landi, segir það ráðist eftir helgi hvert framhaldið verður.

Hálkublettir víða á fjallvegum

Spáð er éljum á fjallvegum suðvestan- og vestanlands í kvöld og nótt, en slydduéljum á láglendi. Undir morgun er hætt við ísingu á vegum, einkum á Suðurlandsundirlendinu, höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. En einnig í Borgarfirði, Dölum, við Breiðafjörð og á sunnanverðum Vestfjörðum. Hálkublettir eru víða á fjallvegum. Krapasnjór er á Möðrudalsöræfum á Austurlandi.

Gámur fauk út á haf - myndband

Gámur fauk á haf út í óveðrinu á Stöðvarfirði í morgun. Um er að ræða 40 feta frystigám. Björgvin Valur Guðmundsson, íbúi á Stöðvarfirði náði atvikinu á myndband. Myndbandið má nálgast á þessari síðu: http://vimeo.com/31675022 Gámurinn fýkur eftir rúma eina mínútu og tíu sekúndur af myndbandinu.

Ánægja með fundaferð Hönnu Birnu

Hanna Birna Kristjánsdóttir átti fund með flokksmönnum sínum á Ísafirði í gær. Fundurinn er upphaf fundaferðar þar sem Hanna Birna ætlar sér að ferðast um landið og ræða um framboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins við flokksmenn sína. Halldór Halldórsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar skipulagði fundinn. Hann sagði fólk almennt mjög ánægt með fundinn. "Það sem stóð helst uppúr hjá fólki eftir fundinn var hversu vel Hanna Birna var inni í málum," sagði Halldór og bætti við að fólk teldið það mikinn styrk fyrir flokkinn að fá að velja milli tveggja glæsilegra formannsefna. Halldór er sjálfur stuðningsmaður Hönnu Birnu.

Siglt verður frá Landeyjahöfn

Herjólfur siglir þriðju og síðustu ferð dagsins til Landeyjahafnar. Ákveðið hefur verið að sigla þriðju og síðustu ferð Herjólfs frá Eyjum kl 15:30 til Landeyjahafnar. Áætluð brottför frá Landeyjahöfn er kl. 19:00 í kvöld.

TF-LÍF sækir slasaðan sjómann

Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LÍF er nú á leið að sækja slasaðan skipverja út í skip sem statt er vestan við Vestmannaeyjar. Gæslunni barst aðstoðarbeiðni frá flutningaskipinu Brúarfossi laust eftir klukkan tvö í dag. Þyrlan sem var á leið til Reykjavíkur eftir að hafa tekið þátt í björgunaraðgerðum á flutningaskipinu Ölmu í gær, gerði lykkju á leið sína og mun nú sækja manninn og flytja hann til Reykjavíkur. Reiknað er með að hún komi um fjögur leytið til borgarinnar.

Truflanir á fjarskiptasambandi á Norð-Austurlandi

Bilun kom upp á stofnkerfi Mílu á Norð-Austurlandi. Undirbúningur að viðgerð er hafinn. Ekki er enn vitað nákvæmlega í hverju bilunin felst, en bilanagreining stendur yfir. Bilunin mun bitna á fjarskiptasambandi á svæðinu, jafnt farsímum sem heimasímum, enda selur Míla þjónustu sína til fyrirtækja eins og Vodafone og Símans, sem selja svo þjónustuna áfram.

Leita að rödd Benedikts Gröndal

Bókaútgáfan Crymogea leitar nú að karlmanni sem gæti túlkað rödd Benedikts Gröndal. Sá sem fyrir valinu verður mun lesa lýsingar Benedikts á íslenskum fuglum. Hugmyndin er sú að upptökurnar verði notaðar sem viðbót sem fylgi með stafrænni útgáfu af einu helsta verki hans, Íslenskum fuglum. Þá verður hún einnig notuð í auglýsingar.

Tryggvi Þór spyr hver tilgangurinn sé með framboði Hönnu Birnu

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, spyr hver tilgangurinn sé með framboði Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins og segir að sagan sýnir að hún geti ekki náð betri árangri í kosningum en sitjandi formaður.

Vignir fljótastur íslenskra "járnkarla“

Tólf Íslendingar luku í gær heilum Járnkarli eða Ironman í Florida í Bandaríkjunum. Ekki tókst að slá Íslandsmet en gríðarleg íslensk stemmning myndaðist við endamarkið. Vignir Þór Sverrisson var fyrstur Íslendinganna í mark á 9 klst og 37 mín eftir að hafa lokið 3,8 kílómetra sjósundi, 180 kílómetrum á hjóli og heilu maraþoni eða 42,2 kílómetrum hlaupandi.

Jólabasar á Grand Hótel

Hinn árlegi jólabasar Hringsins verður haldinn á Grand Hóteli í dag. Jólabasarinn er afrakstur ársvinnu félagskvenna en Hringskonur hefja ávallt undirbúning í janúar og hittast svo vikulega allt árið til að föndra, sauma og prjóna. Allur ágóði rennur til góðra málefna Hringsins. Basarinn hefst klukkan 13 en þar verða til sölu hannyrðir, jólaskraut, jólakort og kökur að hætti Hringskvenna.

Deilurnar um Þorláksbúð að leysast

Kirkjuráð hefur ákveðið að gera engar athugasemdir við endurbyggingu fornaldarkirkjunnar Þorláksbúðar í Skálholti en staðsetning kirkjunnar hefur verið gagnrýnd. Biskup sat hjá við afgreiðslu málsins. Málið hefur átt sér langan aðdraganda en síðasta sumar var ráðist í framkvæmdir við að endurhlaða Þorláksbúð kennda við Þorlák biskup helga. Það er Þorláksbúðarfélagið undir forystu Árna Johnsen sem stendur fyrir framkvæmdunum og var það mikið hugðarefni séra Sigurðar heitins Sigurðarsonar fyrrum vígslubiskups í Skálholti. Í sumar kom hins vegar fram gagnrýni á framkvæmdina til dæmis hvað varðar staðsetningu hússins, það er nálægð við Skálholtskirkju en reisa á Þorláksbúð uppvið útvegg kirkjunnar.

Herjólfur frá Landeyjahöfn

Herjólfur sigldi til Landeyjahafnar í morgun og mun sigla frá Landeyjahöfn kl. 12:00 Nú hefur verið ákv. að sigla aðra ferð til Landeyjahafnar kl. 13:00 frá Eyjum og 14:00 frá Landeyjahöfn. Vegna ölduspár og dýpt í höfninni á háfjöru er óvíst um hvort þriðja og síðasta ferð dagsins verði til Landeyjahafnar.

Landeyjahöfn „ekki neitt vandræðabarn“

Í útvarpsþættinum Á Sprengisandi ræddu þingmenn um kjördæmapot og hvað í því hugtaki fælist. Sigurjón M. Egilsson, þáttarstjórnandi, rifjaði upp að fyrir 20 árum þegar hann starfaði á þinginu hafi almenningur gjarna hringt í landsbyggðarþingmenn og beðið þá að ýta á eftir sínum persónulegu málum á þinginu. Hann spurði hvort það viðgengist ennþá? Það tóku gestir Sigurjóns alveg fyrir, en gestirnir voru Tryggi Þór Herbertsson, Kristján Möller og Eygló Harðardóttir.

Hálka víða um land

Og samkvæmt upplýsingum frá vegagerðinni eru hálkublettir á Hellisheiði og Sandskeiði. Á Vesturlandi eru hálkublettir á Holtavörðuheiði en á Vestfjörðum eru hálkublettir á öllum helstu leiðum. Þá er hálka á Gemlufallsheiði og Hálfdáni. Á Norðurlandivestra er hálka frá Staðarskála í Gljúfurá eins á Þverárfjalli og Vatnsskarði. Á Norðausturlandi eru hálkublettir á Öxnadalsheiði, Hólasandi, Mývatnsöræfum og mjög víða í Eyjarfirði og sömuleiðis í Víkurskarði og í Mývatnssveit. Austurlandi eru hálkublettir á Vopnafjarðarheiði, Fjarðarheiði, Breiðdalsheiði og á Öxi.

Alma komin í höfn

Togskipið Haffel dró flutningaskipið Ölmu að bryggju í Fáskrúðsfirði laust fyrir klukkan hálffjögur í nótt. Upphaflega stefndi Hoffellið á að draga Ölmu í var í Reyðarfirði en í gærkvöld og nótt tók að hvessa meðfram austurströnd landsins. Skipstjórinn á Hoffelli óskaði því eftir að draga Ölmu inn á Fáskrúðsfjörð í staðinn. Alma missti stýrisblað sitt í gær og landhelgisgæslan var kölluð út í umfangsmiklar björgunarðagerðir sem tvö varðskip og tvær þyrlur tóku þátt í. Togskipið Hoffel dró hins vegar ölmu að landi. Laust fyrir klukkan fjögur í nótt heyrðist svo bljúgt þakkarskeyti ölmu til Hoffellsins í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar.

Lokaði skemmtistað - handtók hnífamann

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af gleðskap í heimahúsi í Kópavogi um klukkan sex í morgun. Slagsmál höfðu brotist út en lögreglu tókst að stilla til friðar án þess að handtaka neinn. Þá lokaði lögrelgan skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í nótt þar sem staðurinn var ekki með tilskilin leyfi. Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur í höfuðborginni í nótt. Lögreglan á Akureyri lokaði tvo menn inni í nótt fyrir ölvun, óspektir og leiðindi. Þá voru tveir teknir fyrir fíkniefnaakstur. Að öðru leyti fór nóttin ágætlega fram, þrátt fyrir mikinn fjölda fólks í bænum.

Bílvelta í Þrengslunum

Bílvelta verð í Þrengslunum um hálf sex leytið í dag. Tveir voru fluttir á slysavarðstofu með minniháttar meiðsli. Snjóþekja var á veginum og talið að ökumaðurinn hafi misst stjórn á bílnum vegna hálkunnar. Bíllinn lenti utanvegar og gjöreyðilagðist.

Íslenski hesturinn í útrás

Nú stendur yfir undirbúningur fyrir heimsmeistaramót íslenska hestsins í Berlín tvöþúsund og þrettán. Búist er við hátt í tvö hundruð þúsund gestum á mótið og yfir þúsund íslenskum hestum. Heimsmeistaramót íslenska hestsins eru haldin á tveggja ára fresti, síðast í Austurríki í sumar, en undirbúningur fyrir næsta mót í Berlín árið 2013 hefur staðið yfir í tvör ár. "Þetta er í fyrsta skipti sem að heimsmeistaramótið er haldið í stórri borg. Það eru fimm milljón manns í Berlin, og við ætlum með þessu öllu að færa íslenska hestinn til fólksins. Það er meira að segja talað um að þúsund hestar ríði í gegnum Brandenborgarhliðið ef það tekst þá er það mesta auglýsing sem nokkurn tíman hefur verið gerð fyrir íslenska hestinn,“ segir Herbert Ólafsson, hestamaður.

Reyndu að svíkja fé af Vodafone

Vodafone varð fyrir barðinu á svikahröppum sem misnota inneignarkort. Fyrir árvekni starfsmanna tókst að koma í veg fyrir að fyrirtækið yrði fyrir milljóna króna tapi. Að minnsta kosti einn var handtekinn vegna málsins í vikunni. Fyrr í vikunni sendi Vodafone frá sér tilkynningu þar sem fram kom að fyrirtækið væri hætt að selja stórar pantanir af símkortum og Frelsisinneignum eftir að upp komst um umfangsmikla svikastarfsemi sem nota átti til að svíkja peninga.

Dráttartaug komin í Ölmu - mikill viðbúnaður á svæðinu

Dráttartaug hefur nú verið komið á ný milli flutningaskipsins Ölmu og togskipsins Hoffells. Taugin slitnaði um ellefuleytið í morgun, og hefur síðan verið unnið að því að koma henni fyrir aftur. Það tókst laust fyrir klukkan fjögur í dag og er nú stefnan tekin á Reyðarfjörð. Mikill viðbúnaður er á svæðinu, enda fer veður versnandi þar og full ástæða til að vera við öllu búinn. Þyrlur Landhelgisgæslunnar TF-LIF og TF-GNÁ eru báðar í viðbragðsstöðu, önnur á Höfn í Hornafirði og hin í Reykjavík.

Konur búa til karlrembusvín

Feigð, tíunda skáldsaga Stefáns Mána , er komin í bókabúðir. Þar er höfundur á kunnuglegum slóðum - í myrkraheimunum sem heilla hann meira en sumar og sóleyjar. Stefán Máni sagði Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur meðal annars frá aðalpersónunni Herði Grímssyni, sem höfundurinn sjálfur er yfir sig heillaður af. Svo mjög að hann hefur tryggt honum sess í næstu bók líka.

Herramenn þakklátir fyrir fjárstuðning

Þrír framtakssamir piltar stefna að því að gefa út 64 blaðsíðna leiðarvísi fyrir herramenn fyrir jólin. Útgáfuna fjármagna þeir á frumlegan hátt sem þeir kalla hópfjármögnun. Á tveimur vikum hafa safnast 250 þúsund krónur með framlögum almennings. Bókin mun bera heitið Litla herramennskukverið. Með henni vill Kristinn Árni Lár Sigfússon, sem skrifar bókina, berja inn í samlanda sína fágaða og "séntilmannlega" framkomu.

Stefnir í að Þorláksbúð verði reist

Kirkjuráð mun ekki standa því í vegi að Þorláksbúð í Skálholti verði endurgerð. Þetta var ákveðið á fundi ráðsins á miðvikudaginn var. Þorláksbúð á að vera eftirlíking af hinni fornu búð, reist á tóftum hennar og skal standa nærri Skálholtskirkju.Miklar deilur hafa verið um byggingu búðarinnar að undanförnu, enda vilja menn meina að hún muni skyggja á Skálholtsdómkirkjuna.Nú liggur hins vegar fyrir að byggingarleyfi verður gefið út, enda ákvað ráðið með atkvæðagreiðslu að gera ekki athugasemdir við bygginguna. Þess er vert að geta að biskup sat hjá við atkvæðagreiðsluna.

Enn hlýtur Eldfjall verðlaun

Theódór Júlíusson var í fyrrinótt útnefndur besti leikarinn á kvikmyndahátíð í Sao Paulo fyrir leik sinn í Eldfjalli, kvikmynd Rúnars Rúnarssonar. Þetta er í annað sinn sem hann er verðlaunaður sérstaklega, en áður hafði kvikmyndahátíð Evrasíu í Kazakhstan veitt honum fyrstu verðlaun fyrir hlutverk sitt í myndinni. Sýning Eldfjalls í Sau Paulo markaði frumsýningu myndarinnar í S-Ameríku. Eldfjall hefur hlotið dæmalaust góðar viðtökur og unnið til allnokkurra verðlauna. Fyrir viku hlaut Eldfjall aðalverðlaunin í Valladolid. Þá hlaut hún fyrir hálfum mánuði aðalverðlaunin, Gullna úlfinn, á kvikmyndahátíðinni í Montréal. Og helgina þar á undan hlaut hún silfurverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Chicago.

Leyfum hænsnahald í borginni

Betri Reykjavík er nýr samráðsvefur höfuðborgarbúa, þar sem þeir geta lagt fram hugmyndir um málefni borgarinnar og haft með því bein áhrif á ákvarðanatöku. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skoðaði nokkrar af á fjórða hundrað tillagna á vefnum. Reykjavíkurborg tók um mánaðamótin sextán tillögur til umfjöllunar af vefnum Betri Reykjavík, www.betrireykjavik.is, eins og hún hafði skuldbundið sig til.

Þór lagður af stað til björgunar

Ennþá er unnið að því að koma upp dráttartaug milli togskipsins Hoffells og flutningaskipsins Ölmu. Búist er við því að þær tilraunir beri árangur á næstu stundum. Mikið hvassviðri er á svæðinu, og meðan tauginni hefur ekki verið komið fyrir rekur flutningaskipið stjórlaust utan við landið. Varðskipið Þór hefur verið sent af stað til að taka þátt í björgunaraðgerðum. Siglingin er hins vegar nokkuð löng og ekki er gert ráð fyrir því að Þór komi á svæðið fyrr en klukkan sex í fyrramálið.

Borgarstjóri ánægður með lögregluna

Jón Gnarr, borgarstjóri, sat í lögreglubíl í nótt og fylgdist með störfum lögreglunnar á helgarvakt. Á facebook-síðu sinni, Dagbók borgarstjóra, segir hann frá þolinmæði lögreglumanna og náungakærleika. "Fékk að hanga með í lögreglubíl í nótt. Það var merkileg lífsreynsla. Löggan á hrós og virðingu skilda fyrir sitt merkilega og oft erfiða starf. Ég varð vitni að ótrúlegri þolinmæði við fulla rugludalla, fagmennsku og kurteysi við úrlausn vandamála og almenna hlýju og náungakærleika sérstaklega gagnvart því fólki sem minnst sín má í samfélaginu og er utangarðs. Annars virtist fólk bara almennt glatt og sátt. Sýnum lögreglunni virðingu og stuðning! Takk fyrir mig." sagði hann á síðunni.

Hvetja sem flesta til að tjalda á Austurvelli

Mótmælendur sem kalla hreyfingu sína Occupy Reykjavík, og kenna sig þannig við hina sístækkandi bandarísku hreyfingu Occupy Wall Street, gistu í tjöldum á Austurvelli í nótt. Mótmælendurnir hafa nú fengið leyfi yfirvalda til að tjalda á svæðinu, en eftir því sem fréttastofa kemst næst er það í fyrsta sinn sem nokkur fær leyfi til að tjalda á Austurvelli.

Bændur engir dýraníðingar

"Mjög ómakleg umræða hefur verið í fjölmiðlum undanfarið vegna hreindýra sem hafa verið að flækjast og festast í girðingum síðustu vikur í landi Flateyjar á Mýrum," skrifar Grétar Már Þorkelsson fyrir hönd Búnaðarsambands Suðurlands. Í pistli sínum réttir Grétar sitt framlag fram í umræðuna sem hefur að hans mati helst snúist um að bændur eigi sök á málunum og standi á sama um dýrin. Í pistlinum dregur Grétar fram aðrar hliðar málsins.

Dráttartaugin slitnaði - Þór í jómfrúarútkallið

Dráttartaug á milli togskipsins Hoffells og Ölmu, hundrað metra flutningaskips frá Kýpur, slitnaði nú laust fyrir hádegi eftir að Landhelgisgæslan kom því til bjargar í nótt. Stýrisbúnaður skipsins bilaði og gæslan var því kölluð út í umfangsmiklar björgunaraðgerðir. Í þeim var Þór sendur í jómfrúarútkallið sitt.

Skipi bjargað við Hornafjörð

Í nótt barst Landhelgisgæslunni aðstoðarbeiðni frá Birni, dráttarbátnum á Höfn í Hornafirði vegna flutningaskipsins Ölmu, sem er um hundrað metra langt skip, skráð á Kýpur. Alma óskaði eftir aðstoð þegar í ljós koma að stýri skipsins virkaði ekki þegar dráttarbáturinn aðstoðaði skipið út fyrir Ósinn á Hornafirði. Lóðsinn tók skipið í tog og óskaði samstundis eftir allri aðstoð. Ingibjörg, björgunarskip Landsbjargar á Hornafirði og togskipið Hoffell voru þá kölluð til. Einnig voru dráttarbátarnir á Reyðafirði og Vestmannaeyjum settir í viðbragðsstöðu. Þyrlur gæslunnar voru einnig kallaðar út og Þór er í viðbragðsstöðu. Vindar tóku að snúast í SV hvassviðri nú í morgunsárið og því var nauðsynlegt að koma skipinu austur fyrir stokksnes. Um kl. sex var komin dráttartaug á milli Ölmu og Hoffells og þá var hættuástandi aflýst. Björgunarskipum var jafnframt snúið til hafnar. Flutningaskipið verður nú dregið í var í Berufirði eða Reyðarfirði.

Íslenskir járnkarlar leggja í þrekraunina

Núna klukkan tólf á hádegi hófu Íslendingar tólf keppni en Ironman eða Járnkarl samanstendur af þriggja komma átta kílómetra sundi sem fram fer í mexíkóflóa, hundrað og áttatíu kílómetra á hjóli og að lokum heilu maraþoni eða fjörutíu og tveggja komma tveggja kílómetra hlaupi. Íslendingarnir hafa margir hverjir æft undir viðburðinn í heilt ár og var góð stemmning í hópnum þegar fréttastofa náði tali af þeim á leið á keppnisstað í morgun. Einn Íslendinganna, Vignir Þór Sverrisson, stefnir að því setja nýtt íslandsmet í Ironman í dag en núgildandi metið, níu klukkustundir og tæpar tuttugu og fimm mínútur á Steinn Jóhannson frá því í Iron Man í Köln í fyrra. Hægt er að fylgjast með keppendum á heimasíðunni ironmanlive punktur com.

Þjófnaður eykst á Íslandi

Skipulagður þjófnaður hefur aukist hér á landi en verið er að rannsaka hvort alþjóðleg glæpastarfsemi tengist þessum kerfisbundnu þjófnuðum eins og í tilviki kvenna sem voru handteknar nýlega grunaðar um stórfelldan þjófnað úr verslunum á höfuðborgarsvæðinu, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir áttatíu til nítíu prósent búðaþjófa vera útlendinga. Hann spyr hvers vegna sé ekki tekið jafn föstum tökum á skipulagðri glæpastarfsemi af þessu tagi og á mótórhjóla- og glæpasamtökunum Vítisenglum.

Líkamsárás í Reykjavík

Tilkynnt var um eina líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Þar var maður laminn með flösku og náði lögregla að góma árásarmanninn á leið af vettvangi. Hann var fluttur niður á lögreglustöð en síðan leyft að fara að skýrslutökum loknum. Að öðru leyti var nóttin róleg, einungis tveir gistu fangageymslur og einn var kærður fyrir ölvun við akstur.

Ákært í Kvíabryggjumálinu

DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur fyrrum forstöðumanni fangelsisins á Kvíabryggju, Geirmundi Vilhjálmssyni, svo og öðrum karlmanni til viðbótar.

Bylting í samgöngum

Einhver hafði á orði nýlega að íbúar Grindavíkur og Þorlákshafnar væru búnir að fá sín jarðgöng. Þar er vísað til nýs Suðurstrandarvegar á milli staðanna tveggja sem var opnaður almennri umferð á dögunum og þeirra möguleika sem hann gefur í atvinnu- og byggðamálum almennt. Varla er ofsagt að þessi tenging Suðurnesja og Suðurlands sé bylting sem er samanburðarhæf við tengingu byggða með jarðgöngum. Gunnar V. Andrésson ljósmyndari og Svavar Hávarðsson fóru á rúntinn einn dagpart og komust að því að ekki einungis er sunnanvert Reykjanes náttúruperla heldur ekki síður forvitnilegt fyrir áhugamenn um sögu og jarðfræði.

Krafist sextán ára fangelsis

Saksóknari í Mandal í Noregi krefst sextán ára fangelsisvistar yfir morðingja Heidi Thisland Jensen. Réttarhöldum lauk í gær. Heidi Thisland var stungin til bana af kærasta sínum, sem er 25 ára gamall og hefur játað á sig morðið. Átta ára gamall sonur Heidi fluttist til fjölskyldu sinnar í Vestmannaeyjum þegar móðir hans var myrt. "Það eru hrottalegar lýsingar sem ég hef fengið þegar réttarlæknirinn var að lýsa áverkum Heidiar, gömlum og nýjum sárum, en það er ekki lýsingarhæft,“ segir Óskar P. Friðriksson, afi drengsins

Úraræningjarnir eru þekktir glæpamenn

Úraræningjarnir sem rændu verslun Michelsen að morgni mánudagsins 17. október eru þekktir brotamenn í sínu heimalandi, Póllandi. Þrír þeirra komust úr landi og eru eftirlýstir af alþjóðalögreglunni Interpol. Sá fjórði hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 27. október og sætt yfirheyrslum. Hann hefur lítið viljað tjá sig, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins.

Hlutverk forsetans skýrara í tillögunum

Tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á hlutverki forseta Íslands eru að mörgu leyti til bóta. Til að mynda er formlegt hlutverk forseta, sem bar keim af stöðu konungs í gömlu dönsku stjórnarskránni, afnumið og því gefa tillögurnar betri mynd af því hvar framkvæmdarvaldið liggur en núverandi stjórnarskrá. Tillögurnar skortir hins vegar að tekist sé nægilega á við þá staðreynd að forseti fer með virk og raunveruleg völd í stjórnskipuninni. Þá eru ýmis ákvæði vanhugsuð.

AGS ekki með reglur um kynferðisáreitni

Segja mætti að það sé aðeins heppni að ekki hafi komið upp hneyksli tengt kynferðislegri áreitni innan Alþjóðagjaldeyrissjóðnum fyrr en mál Dominique Strauss-Kahn kom upp í vor. Þetta segir Cynthia Enloe stjórnmálafræðingur og prófessor við Clark-háskóla í Bandaríkjunum. Enloe hélt fyrirlestur á málþingi Rannsóknarstofu í kvenna- og kynjafræðum í Háskóla Íslands í gær.

Segja umræðu vera einhliða

Bæjarstjórn Hornafjarðar er ekki sátt við þá mynd sem dregin hafa verið upp af vandræðum hreindýra sem hafa verið að flækjast í girðingar bænda í sveitarfélaginu. Að sögn bæjarstjórnarinnar verður að nálgast málefni hreindýra bæði út frá velferð dýranna og hagsmunum bænda. „Mikill ágangur hefur verið á ræktað land og álag á girðingar því mikið. Ljóst er að hlutaðeigandi stofnanir verði að vinna með bændum að úrlausn þessara mála, til að koma í veg fyrir tjón bænda og tryggja um leið velferð

Rífur í sig frumvarp samflokksmanna

„Hvað sem mönnum finnst um staðsetningu flugvallarins er það óþolandi ríkisforsjá að lögfesta flugvöll í Vatnsmýri." Svo skrifar Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sína um nýtt lagafrumvarp sem níu samflokksmenn hans og þrír framsóknarmenn hafa lagt fram á Alþingi.

Sjá næstu 50 fréttir