Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ágætis byrjun fyrir sex vikna Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra mætti í gær á heilsugæsluna í Miðbæ í Reykjavík til að kynna norræna umhverfismerkið Svaninn fyrir nýbökuðum foreldrum sem þangað komu með börn sín í sex vikna skoðun. 27.10.2011 04:00
Bíll á breskum númerum tilbúinn til smygls á úrum Allt þýfið úr vopnuðu ráni í Michelsen úrsmiðum 17. október síðastliðinn fannst í bíl á breskum númeraplötum í gær. Búið var að búa bílinn undir að smygla þýfinu úr landi, en það var vel falið víðs vegar um bílinn. 49 úrum var stolið og er virði þeirra talið á bilinu 50 til 70 milljónir króna. 27.10.2011 03:30
120.000 króna rafmagnsreikningur Íbúar á Bíldudal eru ósáttir vegna svimandi hárra rafmagnsreikninga sem þeim er gert að greiða um næstu mánaðamót. Jón Hákon Ágústsson, íbúi á Bíldudal, er vanur að borga um 55 þúsund krónur mánaðarlega fyrir hita og rafmagn en fékk aflestrarreikning upp á 120 þúsund krónur fyrir næstu mánaðamót. 27.10.2011 03:00
Veiðar með ljósvörpu að hefjast Frumgerð togvörpu þar sem laserljós kemur í stað áþreifanlegs garns er tilbúin. Tilraunaveiðar hefjast áður en langt um líður og lofi þær góðu verður athugað hvort hægt verði að fara í framleiðslu, eða hvort frekari tilraunaveiðar séu nauðsynlegar. 27.10.2011 02:30
Varðskipi fagnað með fallbyssuskoti Þór, nýtt varðskip Landhelgisgæslunnar, lagði í gær í fyrsta sinn að íslenskri bryggju í höfninni í Vestmannaeyjum. Var skipinu vel fagnað af heimamönnum. 27.10.2011 02:00
Fækkað um allt að 25 störfum Störfum við Sjúkrahúsið á Akureyri mun fækka um 20 til 25 á komandi ári sökum niðurskurðar. 27.10.2011 02:00
Börn óléttra kvenna í ofþyngd gætu fengið ýmsa kvilla síðar á ævinni Börn kvenna í ofþyngd hafa tilhneigingu til að vera of þung og þjást af sykursýki síðar á ævinni. Ef móðir þjáist af of háum blóðþrýstingi á meðgöngu aukast líkur á að börnin fái hjarta- og æðasjúkdóma. 26.10.2011 19:15
Óljóst hver fær milljónina - mun borga með bros á vör "Þetta hefði ekki bara verið mikið tap, heldur hræðilegt ef málið hefði verið óupplýst um ókomna tíð,“ segir sonur Franks Michelesen, úrsmiðs, Róbert, en lögreglan tilkynnti í dag að hún væri búin að endurheimt þýfið, alls 49 úr, sem voru rænd í bíræfnu ráni í skartgripabúðinni á Laugaveginum, fyrir níu dögum síðan. 26.10.2011 17:50
Þýfið úr úraverslunarráninu fundið - einn handtekinn Þýfið úr ráninu frá Frank Michelsen úrsmiði er fundið. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu efndi til í dag. Verðmæti þýfisins skiptir milljónum. Við segjum nánar frá þessu síðar í dag. 26.10.2011 17:04
Harður árekstur á Skálholtsvegi Mjög harður árekstur varð á Skálholtsvegi skammt austan við Biskupstungnabraut um klukkan þrjú í dag. Ökumaður fólksbifreiðar á leið vestur Skálholtsveg er talinn hafa misst bifreið sína út í vegkantin og brugðist við með því að kippa í stýrið inn á veginn. Við það mun hann hafa misst stjórn á bifreiðinni sem fór yfir á rangan vegarhelming og framan á bifreið sem í því kom á móti. Ökumaður var einn í þeirri bifreið en í hinni var farþegi sem skarst talsvert. 26.10.2011 16:39
Torgið við Hörpu hlýtur norræn arkitektaverðlaun Torgið við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu hlaut verðlaun á Arkitekturmässan í Gautaborg sem haldin var í fyrsta skipti dagana 24. og 25. október. Áformað er að festa hana í sessi sem stærsta norræna viðburðinn meðal arkitekta, landslagsarkitekta og skipulagsfræðinga sem haldinn verði annað hvert ár. 26.10.2011 15:51
Vorum oft hrædd um þá Tvíburarnir Bjarki Leó og Bjartur Elí byrjuðu fyrstu fimmtán vikur ævinnar á vökudeild Barnaspítala Hringsins. Foreldrar þeirra, Magnea og Finnur, gáfu deildinni brúðkaupsgjafir sínar til að þakka fyrir sig. 26.10.2011 15:30
Tvær konur í varðhald grunaðar um stórfelldan þjófnað Héraðsdómari úrskurðaði í dag tvær konur í gæsluvarðhald til 2. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um stórfelldan þjófnað úr verslunum á höfuðborgarsvæðinu. 26.10.2011 15:19
Blóðugur niðurskurður á Akureyri Sjúkrahúsið á Akureyri þarf að fækka störfum um tuttugu og fimm á næsta ári og skera niður í þjónustu á nokkrum deildum miðað við fjárlagafrumvarpið. Bæjarstjórinn vonast til þess að þingmenn endurskoði fjárlögin. 26.10.2011 19:45
Þór er kominn til Vestmannaeyja Varðskipið Þór kom til Vestmannaeyja eftir hádegi í dag. Samkvæmt áætlun verður það í Friðarhöfn til sýnis, allt þar til klukkan átta í kvöld. Eftir það siglir skipið frá Vestmannaeyjum og er gert ráð fyrir að það komi að Miðbakka Reykjavíkurhafnar klukkan tvö á morgun. Varðskipið verður til sýnis á Miðbakka á föstudag, laugardag og sunnudag frá klukkan eitt til fimm. 26.10.2011 15:12
Bæjarstjórnin harmar umræðu um Pál Bæjarstjórn Kópavogs harmar þá umræðu sem hefur átt sér stað í kjölfar ráðningar Páls Magnússonar í starf forstjóra Bankasýslu ríkisins. Páll var sem kunnugt er ráðinn til Bankasýslunnar, en tilkynnti í gær að hann hygðist ekki taka að sér starfið eftir að stjórn Bankasýslunnar sagði af sér. 26.10.2011 14:22
Sjúkrahúsið þarf að fækka starfsfólki um 25 Sjúkrahúsið á Akureyri þarf að fækka starfsmönnum sínum um tuttugu og fimm á næsta ári. Stjórnendur vinna nú að því að breyta endurhæfingar- og barnadeild í fimm dagadeild yfir sumartímann, draga úr skurðþjónustu, fækka rúmum á handlækningasviði og minnka aðra þjónustu eins og á bókasafninu. Forstjóri sjúkrahússins segir biðlista kunna að lengjast. 26.10.2011 13:21
Samfélagið er í uppnámi Kolbrún Björt Sigfúsdóttir hélt til Taílands í ágúst í ævintýraleit en hamfarirnar þarhafa breytt hversdeginum. Um þriðjungur af Taílandi er nú undir vatni eftir mestu flóð í landinu á síðustu 50 árum. 26.10.2011 13:00
Dýraverndarsinnar safna liði til að hreinsa víraflækjur Hreindýrstarfarnir tveir sem voru fastir saman með vírhönk á hornunum eru lausir hvor frá öðrum eftir að annar þeirra felldi hornin. Vírinn er enn fastur á hinum tarfinum. Dýraverndarsinnar hyggjast fylkja liði á svæðið og fjarlægja víraflækjur. 26.10.2011 12:41
Lögreglan nýtur mest trausts Lögreglan nýtur mikils trausts á meðal almennings, samkvæmt niðurstöðum könnunar MMR sem gerð var dagana 6-10 október. 26.10.2011 11:50
Krefst gæsluvarðhalds yfir þremur meintum búðaþjófum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að krefjast gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir þremur útlendingum, sem eru búsettir hér á landi, vegna mjög umfangsmikils búðaþjófnaðar að undanförnu. 26.10.2011 11:26
Ákærður fyrir að kýla lögreglumann Þrjátíu og sex ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa kýlt lögreglumann í andlitið í lögreglubifreið þann 27. desember 2009. Lögreglumaðurinn hlaut eymsli í andliti vegna árásarinnar. Málið gegn manninum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þar var sakborningi gefinn kostur á að lýsa yfir afstöðu til ákærunnar. Hann tók sér hins vegar frest og mun ráðfæra sig um það við verjanda sinn. 26.10.2011 10:31
Viðbúnaðarstig á Reykjavíkurflugvelli Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu lýsti yfir viðbúnaðarstigi þegar tilkynnt var um vélarbilun í lítilli einkaþotu sem óskaði eftir viðbúnaðarlendingu um klukkan níu í morgun. Lögreglan lokaði Suðurgötu við Vesturenda Reykjavíkurflugvallar þegar vélin kom inn til lendingar. 26.10.2011 09:06
Varðskipið Þór kemur til Eyja í dag Nýja varðskipið Þór er nú suður af landinu og væntanlegt til Vestmannaeyja klukkan tvö í dag, eftir mánaðar siglingu frá Chile, þar sem skipið var smíðað. 26.10.2011 07:51
Ölvaður ökumaður slapp ómeiddur úr bílveltu Ölvaður ökumaður slapp ómeiddur þegar hann velti jepplingi sínum á mótum Lönguhlíðar og Háteigsvegar í gærkvöldi. 26.10.2011 07:28
Hrina bílþjófnaða gengur yfir höfuðborgarsvæðið Hrina bílþjófnaða hefur gengið yfir höfuðborgarsvæðið síðustu vikurnar. Að sögn lögreglu hefur rúmlega einum bíl verið stolið á höfuðborgarsvæðinu á dag, að meðaltali, það sem af er mánuðinum. 26.10.2011 07:26
Fjögur innbrot í borginni í nótt Brotist var inn á fjórum stöðum á höfuðborgarsvæðinu í nótt og verðmætum stolið í öllum tilvikum. Farið var inn í tvö fyrirtæki og tvö íbúðarhús og er verið að fara yfir hvers er saknað. Þjófarnir komust undan í öllum tilvikum, líklega á bílum. 26.10.2011 07:17
Tveir með stöðu grunaðs í lífeyrissvikamáli Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er langt komin með rannsókn sína á máli þar sem í ljós kom að Tryggingastofnun hafði haldið áfram að greiða út ellilífeyri á bankareikning konu í tíu ár eftir að hún lést úti í Bandaríkjunum. 26.10.2011 06:00
Fylgdarþjónusta notar myndir af Ásdísi Rán „Blessaður vertu, fólkið í Búlgaríu er ekki jafn þröngsýnt og á Íslandi, það myndi enginn trúa því að þetta væri ég hérna úti,“ segir Ásdís Rán Gunnarsdóttir, ofurfyrirsæta í Búlgaríu. 26.10.2011 06:00
Innbrotafaraldur í Þorlákshöfn Innbrotafaraldur hefur geisað í Þorlákshöfn undanfarnar helgar. Að sögn lögreglunnar á Selfossi, sem rannsakar málin, virðast þau tengjast. Íbúarnir ræða nú nauðsyn þess að koma upp eftirlitsmyndavélum á hringtorgi við bæinn og vegum sem liggja að honum. 26.10.2011 05:30
Norðmenn ráða för í samstarfi um þyrlur Íslendingar hafa boðið út þyrlukaup í samstarfi við Norðmenn og munu, að því gefnu að Norðmenn samþykki eitthvert tilboð, eignast björgunarþyrlu fyrir árið 2020 sem gæti kostað fimm milljarða. 26.10.2011 04:30
Frábiður sér hnýsni í kortafærslur „Við erum bara komin í þjóðfélag sem George Orwell lýsti í bók sinni 1984. Hið vakandi auga ríkisins hefur eftirlit með þér,“ segir Jón Magnússon, lögmaður og fyrrverandi alþingismaður, sem hefur stefnt Persónuvernd fyrir dómstóla og krafist ógildingar á úrskurði hennar. 26.10.2011 03:00
Vill að hvarf Valgeirs Víðissonar verði rannsakað aftur „Ég trúi því að hann hafi verið myrtur,“ segir Unnur Millý Georgsdóttir, en barnsfaðir hennar, Valgeir Víðisson, hvarf sporlaust árið 1994. Unnur Millý hefur óskað eftir fundi með Ögmundi Jónassyni, dómsmálaráðherra, þar sem hún hyggst biðja hann um að taka upp rannsókn á málinu á ný. 25.10.2011 17:57
Þór til Íslands á morgun - fjögur ár á leiðinni Varðskipið Þór er nú komið inn í íslenska leitar- og björgunarsvæðið og verða Vestmannaeyjar fyrsti viðkomustaður þegar komið er til Íslands samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Leggst varðskipið að bryggju í Friðarhöfn á morgun klukkan tvö og verður skipið opið til sýnis milli tvö og átta. 25.10.2011 17:30
Stöðvuðu landaframleiðslu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði landaframleiðslu í iðnarhúsnæði í Hafnarfirði á sunnudag. 25.10.2011 17:21
Bjóða 45 þúsund börnum í mat Sendiráð Norðurlandanna í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, munu gefa 45 þúsund börnum í 125 ríkisskólum í höfuðborg Bandaríkjanna holla og næringarríka máltíð á Norræna matardeginum sem haldinn verður á morgun. Sendiráð Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar standa fyrir matardeginum í samvinnu við skólayfirvöld í Washington. 25.10.2011 16:47
Skulda Lundúnarborg 242 þúsund krónur Íslenska sendiráðið í Lundúnum skuldar borgarsjóði Lundúnarborgar 242 þúsund krónur. Ástæðan er sú að það kostar að aka inn í miðborg Lundúna. Fulltrúar sendiráðsins, rétt eins og aðrir þurfa að una þessu, en þeir greiða ekki hverja ferð fyrir sig heldur safna í reikning. 25.10.2011 15:52
Unglingar teknir á stolnum bíl Lögreglan handtók um helgina tvo unglingspilta í Arnarnesi í Garðabæ. Lögreglan hafði veitt stolnum fólksbíl eftirför frá Hafnarfjarðarvegi og þegar bíllinn var stöðvaður kom í ljós að ökumaðurinn reyndist vera 16 ára gamall. Félagi hans, ári yngri, sat í framsætinu. 25.10.2011 12:57
Fundu snák í Breiðholti Lögreglumenn geta átt von á ýmsu í starfi sínu eins og glögglega kom í ljós í Breiðholti á dögunum. Í húsi í hverfinu reyndist vera snákur. „Dýrið var tekið í vörslu lögreglu og síðan flutt að Keldum þar sem gerðar voru viðeigandi ráðstafanir,“ segir í tilkynningu. 25.10.2011 12:55
Flestir bera traust til Gæslunnar Langflestir bera traust til Landhelgisgæslunnar af öllum þeim stofnunum sem spurt var um í könnun MMR sem gerð var á dögunum. Næstflestir bera mest traust til sérstaks saksóknara, en fæstir bera traust til landsdóms. 25.10.2011 12:49
Helgi segist ekki hafa gengið of langt í gagnrýni á Bankasýsluna Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, segist ekki hafa gengið of langt í gagnrýni sinni á stjórn bankasýslu ríkisins. Stjórnin sagði af sér í gær en Helgi segir nauðsynlegt að endurreisa trúverðugleika stofnunarinnar. Þingmaður Sjálfstæðisflokks vill hins vegar að hún verði lögð niður. 25.10.2011 12:06
Strákar nota Netið meira til upplýsingaöflunar en stelpur Fimmtán ára gamlir strákar nota tölvu mun meira til upplýsingaöflunar en stelpur, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem gerð var til að meta tölvu og netnotkun og til að meta færni nemenda við að vinna með og meta upplýsingar á netsíðum. 25.10.2011 10:15
Aspirnar fjarlægðar í Vonarstræti og Tjarnargötu Vinna er hafin við að endurnýja trjágróður í Vonarstræti og Tjarnargötu. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að Gráreynir, garðahlynur og skrautreynir munu leysa aspirnar sem þar hafa staðið af hólmi, en rætur þeirra hafa eyðilagt hellulagnir og hitalagnir. Hellulögnin í götunni verður einnig lagfærð. Nýju trén fá gott vaxtarrými, en gengið verður frá svokölluðu rótarburðarlagi undir hellulögðum svæðum þannig að rætur skemmi ekki út frá sér. Auk trjánna verða settir niður 540 krókusar sem blómstra snemma á vorin. Verklok eru áætluð 25. nóvember. 25.10.2011 10:04
Starfsmenn komu í veg fyrir eldsvoða Starfsmönnum í vörumiðstöð Samskipa vð Kjalarvog í Reykjavík tókst með snarræði að slökkva eld sem kviknaði í rafmótor við loftræstikerfi í húsinu í gærkvöldi. 25.10.2011 07:39
Rækju úr Ísafjarðardjúpi landað eftir níu ára hlé Rækju úr Ísafjarðardjúpi var landað á Ísafirði og í Bolungarvík í gærkvöldi eftir níu ára hlé vegna veiðibanns. 25.10.2011 07:27