Börn óléttra kvenna í ofþyngd gætu fengið ýmsa kvilla síðar á ævinni Erla Hlynsdóttir skrifar 26. október 2011 19:15
Börn kvenna í ofþyngd hafa tilhneigingu til að vera of þung og þjást af sykursýki síðar á ævinni. Ef móðir þjáist af of háum blóðþrýstingi á meðgöngu aukast líkur á að börnin fái hjarta- og æðasjúkdóma. Við sögðum frá því í fréttum okkar á sunnudag að þyngstu konurnar sem koma upp á fæðingadeild séu um 180 kíló. Nokkrum sinnum á ári fæða konur sem eru í kring um 150 kíló og er það daglegt brauð að konur á steypinum vegi yfir 100 kíló. „Það sem verið er að beina sjónum að núna er einmitt þetta að reyna að átta sig á áhættuþáttum hjá ófrískum konum til þess að reyna að hjálpa þeim að fyrirbyggja vandamál seinna í framtíðinni," segir Hulda Hjartardóttir, formaður Félags íslenskra fæðingar- og kvensjúkdómalækna. Algengasti fylgikvilli ofþyngdar móður á meðgöngu er sykursýki. Fæðingin gengur almenn verr hjá konum í ofþyngd og þær þarf oft að setja af stað eða taka þarf börnin með keisara, þó reynt sé eftir fremsta megni að aðstoða þær við að fæða eðlilega. Hulda segir að fylgikvillar ofþyngdar móður á meðgöngu hafi mest áhrif á móðurina. „En það hefur líka sýnt sig að börn kvenna sem eru of þungar hafa líka tilhneigingu til að verða of þung og þjást frekar af sykursýki seinna meir á ævinni, og það er eins og það fari ákveðin breyting í gang í móðurkviði hjá þessum börnum sem gerir það að verkum að þau þjást af ýmsum kvillum seinna meir á ævinni," segir Hulda. Í flestum tilfellum fæðast börn kvenna í ofþyngd alveg heilbrigð. „En ef það er líka hár blóðþrýstingur, ég tala nú ekki um vaxtarhindrun í hina áttina þá eiga þessi börn frekar á hættu að þjást af hjarta- og æðasjúkdómum sjálf síðar meir á ævinni. Þannig að heilsufar á meðgöngu virðist ná langt út fyrir meðgönguna, hefur áhrif síðar meir á ævinni," segir Hulda að lokum.
Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Fleiri fréttir Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Sjá meira