Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stefnt að rammasamningi Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, vonast til þess að hægt verði að landa samningi við tannlækna fyrir lok vikunnar. „Við stillum þessu upp sem rammasamningi þannig að hver og einn geti gerst aðili að honum. Við vonumst til að ná tannlæknum inn á samning í byrjun september,“ segir forstjórinn en Sjúkratryggingar héldu kynningar- og umræðufund fyrir tannlækna í gær. 10.8.2011 04:00
Enginn óhreinn reiðfatnaður inn í landið „Ég tel þessa nýjung hafa þá þýðingu, að það sé óafsakanlegt, komi menn með óhreinan reiðfatnað til landsins, að setja hann ekki í hreinsun.“ Þetta segir Haraldur Þórarinsson, formaður Landssambands hestamannafélaga, um samning sem gerður hefur verið við Fönn um móttöku og hreinsun slíks fatnaðar í Leifsstöð. Það eru landssambandið, Félag hrossabænda og Félag tamningamanna sem standa að þessu framtaki. 10.8.2011 03:15
Eldur í ruslagámi Slökkviliðið var kallað til þegar eldur kviknaði í gámi við Fossvogsdal í Reykjavík nú á tíunda tímanum í kvöld. Eldurinn reyndist ekki vera mikill. 9.8.2011 22:05
Bíræfinna byssumanna leitað við Borgarfjörð Skotið var með haglabyssu á gröfu í malargryfju skammt frá bænum Þverholtum á Mýrum á þriðjudag fyrir viku. Nokkrar rúður brotnuðu í gröfinni og einnig urðu fleiri skemmdir á tækinu, að því er fram kemur á vef Skessuhorns. Skothvellirnir heyrðust til næstu bæja og sást til tveggja ungra manna á hlaupum og síðan í akstri á gömlum rauðum Volkswagen Golf sem líklegast var með númerið OG og þrjá tölustafi þar á eftir. 9.8.2011 21:00
Lauk þríþraut með hjálp gervilims Fyrsta konan til að ljúka heilum járnkarli með hjálp gervilims er nú hér á landi við tökur á alþjóðlegri auglýsingu fyrir stoðtækjaframleiðandann Össur. Hún segir samstarfið við fyrirtækið vera ómetanlegt og gera henni kleift að ná markmiðum sínum. 9.8.2011 20:09
Þóra ætlar að breyta áherslum á Nýju lífi "Ég er mjög spennt fyrir því að taka við þessu, segir Þóra Tómasdóttir fjölmiðlamaður. Hún var í dag ráðin ritstjóri Nýs lifs. Þóra segir að aðdragandinn að ráðningu hennar hafi verið skammur. Hún býst við að einhverjar breytingar verði gerðar á ritstjórnarstefnunni. En ekki liggi fyrir hverjar þær verða. 9.8.2011 19:50
Búið að slökkva eldinn á Nesvegi Búið er að slökkva eldinn sem kom upp á Nesvegi í kvöld. Sex manns voru í húsinu þegar eldurinn kom upp, en íbúðin þar sem eldurinn kviknaði í var hins vegar mannlaus. Allar rúður brotnuðu á hæðinni þar sem eldurinn kom upp og virðist mikill hiti hafa verið inn í húsinu. Núna er verið að reykræsta íbúðina. 9.8.2011 19:28
Eldur á Nesvegi Töluverður eldur er á Nesvegi í Reykjavík og hefur allt tiltækt lið slökkviliðsins verið sent á staðinn. Við segjum nánari fréttir þegar þær berast. 9.8.2011 19:13
Þráinn styður ekki fjárlög að óbreyttu Þráinn Bertelsson, þingmaður Vinstri grænna, vill að fundin verði sanngjörn lausn á fjármögnun Kvikmyndaskóla Íslands og segist að óbreyttu ekki styðja fjárlög nema það verði gert. Hann segir æskilegt að fjármögnun skólans verði tryggð. 9.8.2011 18:21
Þóra Tómasdóttir tekur við Nýju lífi Þóra Tómasdóttir, fyrrverandi dagskrárgerðarmaður í Kastljósi og blaðamaður á Fréttatímanum, var ráðin ritstjóri tímaritsins Nýs lífs í dag. Hún tekur við af Kolbrúnu Pálínu Helgadóttur. Kolbrúnu var sagt upp störfum. Fleiri breytingar hafa orðið hjá útgáfufélaginu Birtingi, því Ragnheiður Kristjónsdóttir, ritstjóri Séð og heyrt sagði upp störfum í dag, samkvæmt heimildum Vísis. 9.8.2011 17:44
Tæplega áttatíu keyrðu of hratt á höfuðborgarsvæðinu Tæplega áttatíu ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en í grófustu brotunum var ekið á 50-60 km hraða umfram leyfðan hámarkshraða samkvæmt dagbók lögreglu. 9.8.2011 16:56
Rútan komin upp á þurrt land Vel gekk að ná tékknesku rútunni upp úr Blautulónum í dag og komst hún loks á þurrt land um hálf þrjúleytið að sögn varðstjóra lögreglunnar á Hvolsvelli, sem fylgdist með aðgerðunum. 9.8.2011 16:42
Deilt um hvalveiðar Íslendinga: "James Bond skýtur þarna yfir markið" Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ætlar ekki að bregðast við opinberri fordæmingu leikarans Pierce Brosnan á hvalveiðum Íslendinga. Brosnan, sem er hvað best þekktur fyrir hlutverk sitt sem njósnarinn James Bond, er harðorður í garð Íslendinga í opnu bréfi þar sem hann hvetur Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, til aðgerða "Það er kominn tími til að senda Íslandi skilaboð sem ekki er hægt að hunsa: Viðskiptaþvinganir," skrifar Brosnan í bréfinu sem birtist í bandarískum fjölmiðlum á dögunum. Bjarni Harðarson, upplýsingafulltrúi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, segir Brosnan ekki fara með rétt mál að öllu leyti í bréfinu þar sem hann sakar Íslendinga um ómannúðlegar slátranir á hvölum og vill að þeir gjaldi fyrir það í eitt skipti fyrir öll. "Þarna skýtir James Bond yfir markið sem er nú heldur ólíkt honum," segir Bjarni í samtali við fréttastofu. Hann bendir raunar á að nokkuð sé síðan Brosnan hætti að leika njósnara hennar hátignar og kannski sé það ástæða þess að honum er farið að förlast. Stutt er síðan Barack Obama ítrekaði stuðning Bandaríkjastjórnar við hvalveiðibann og hafnar hann alfarið veiðum í vísindaskyni. Í yfirlýsingu sem Hvíta húsið sendi frá sér nýverið segir að Bandaríkjastjórn hafi verulegur áhyggjur vegna aðgerða íslenskra og norskra fyrirtækja til að endurræsa alþjóðlega verslun með hvalaafurðir. Bréf Brosnan má lesa hér í heild sinni á Huffington Post. 9.8.2011 15:47
Ber við minnisleysi en telur sig sekan Sakborningurinn í heiðmerkurmálinu ber enn við minnileysi en telur þó að ekki komi til greina að annar aðili gæti átt sök í málinu en hann sjálfur. 9.8.2011 15:00
Nemar við Kvikmyndaskólann ánægðir með viðbrögð Jóhönnu Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra tók í morgun á móti áskorun þess að efnis að gera tafarlaust samning við Kvikmyndaskóla Íslands og tryggja þannig rekstrarhæfi skólans. Á aðeins þremur sólarhringum hafa hátt í 3.300 manns undirritað áskorunina. 9.8.2011 14:29
Skólavörðustígurinn verður göngugata enn um sinn Ákveðið hefur verið að Skólavörðustígur neðan Bergstaðastrætis verði göngugata til mánudagsins 15. ágúst. Í tilkynningu frá borginni segir að með þessu séu yfirvöld að koma til móts við rekstraraðila við götuna sem óskuðu sérstaklega eftir því að áfram yrði lokað fyrir bílaumferð til þess að greiða fyrir aðgengi gangandi og hjólandi og til að efla mannlíf. 9.8.2011 14:24
Tuggið í takt á Hrafnistu í Kópavogi Heimilisfólkið á Hrafnistu í Kópavogi efndi til grillveislu í hádeginu í dag. Þar var boðið upp á grillkjöt og ís í góða veðrinu, og liprir harmonikuleikarar sáu til þess að allir gátu tuggið í takt í veislunni. 9.8.2011 14:24
Lokað þinghald í Heiðmerkurmáli Þinghald verður lokað í máli manns sem varð barnsmóður sinni að bana í Heiðmörk fyrr á þessu ári. Saksóknari fór fram á lokað þinghald og var samið um að það yrði raunin. Þingfesting málsins fór fram í Héraðsdómi Reykjaness klukkan tvö. Maðurinn, sem er tuttugu og fimm ára gamall, er ósakhæfur að mati geðlækna. Hann var handtekinn við Landspítalann í Fossvogi í maí. Þangað hafði hann keyrt með lík barnsmóður sinnar í farangursgeymlu bílsins og gaf sig fram. Móðir mannsins segir kerfið hafa brugðist syni sínum, en hann var útskrifaður af geðdeild skömmu áður. 9.8.2011 14:16
Gengur vel að ná rútunni upp úr Blautulónum Vel gengur að ná rútunni upp úr Blautulónum að sögn varðstjóra lögreglunnar á Hvolsvelli, en unnið hefur verið að því að koma rútunni á þurrt land frá því í gærkvöldi. 9.8.2011 14:05
Strandveiðar stöðvaðar á vestursvæði á miðnætti Strandveiðar verða stöðvaðar á svonefndu vestursvæði, eða frá Snæfellsnesi að Súðavík við Ísafjarðardjúp, frá og með miðnætti í kvöld, þar sem bátarnir eru umþaðbil að klára ágústkvótann. 9.8.2011 13:19
Krabbameinssjúk móðir: "Fékk djöfullegt bréf frá Tryggingastofnun" "Ég hef svo miklar áhyggjur af fjármálum að ég er byrjuð að taka róandi. Af og til á milli kvíðakasta yfir þessu man ég eftir þessum lífshættulegu veikindum mínum, áhyggjur fyrir þeim komast ekki með tærnar þar sem fjármálaáhyggjurnar hafa hælana," segir Rakel Sara Magnúsdóttir, 28 ára tveggja barna móðir sem greindist með eitlakrabbamein árið 2004. Hún fékk beinmerg frá litla bróður sínum á síðasta ári en það dugði ekki til. Krabbameinið er komið aftur og Rakel Sara er í enn einni krabbameinsmeðferðinni. Hún hefur þegið bætur frá Tryggingastofnun þar sem hún hefur verið óvinnufær vegna veikinda. Nú þarf hún hins vegar að endurgreiða hluta bótanna og fjárhagsstaðan verri en nokkru sinni fyrr. "Fyrir nokkrum dögum fékk ég djöfullegt bréf frá Tryggingastofnun sem er að rukka mig um nokkur hundruð þúsund vegna ofgreiddra bóta. Þessar svokölluðu ofgreiddu bætur voru nógu ömurlegar og hvað þá eftir að búið er að lækka þær um 70 þúsund," segir Rakel Sara á bloggsíðu sem hún heldur úti og segir frá baráttu sinni við krabbameinið. "Dagurinn sem bréfið kom, byrjaði ég á því að kasta upp og leggjast upp í rúm og hágráta. Ég hef ekki grátið síðan ég bugaðist þarna einu sinni í mergskiptunum, ég er greinilega að bugast núna og get ekkert gert í því," segir hún. Rakel Sara hafnaði viðtali þegar blaðamaður hafði samband við hana, hún sagðist búin andlega en velkomið væri að vitna í bloggið hennar. Hún er nýlegar byrjuð aftur í rabbameinsmeðferð og fékk stóran frumuskamt fyrir rúmri viku. "Ég er ekki orðin alvöru veik en það er að skella á núna. Ég er búin að vera svo lengi í þessu veikindum að mér finnst ég oft ekki fá skilning á því að ég er lífshættulega veik. Það er eins og sumt fólk sé bara búið að gleyma því að ég er veik af því að ég lít vel út og er með hár á hausnum," segir hún. Í samtali við fréttastofu tekur Rakel Sara fram að hún skilji ekki af hverju Tryggingastofnun rukki hana um endurgreiðslu, en dettur helst í hug að dagpeningar sem hún hafi fengið þegar hún var í beinmergsskiptunum hafi orðið til þess að stofnunina telur hana hafa fengið of mikið greitt. Þeir dagpeningar hafi þó komið frá Tryggingastofnun sjálfri. Rakel Sara segir erfitt að þiggja fjárhagsaðstoð og líði hreinlega eins og "aumingja" en eftir hvatningu frá lesendum bloggsíðunnar sem sögðust vilja leggja henni lið fjárhagslega hefur Rakel Sara birt þar reiknisnúmerið sitt sem er 0117-26-7989 og kennitalan 080583-4949. Bloggsíða Rakelar Söru er hér. http://rakelprinsessa.blog.is/blog/rakelprinsessa/ 9.8.2011 13:00
Nýjar þjónustuíbúðir aldraðra rísa við Sléttuveg Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, og Guðmundur Hallvarðsson, stjórnarformaður Sjómannadagsráðs, hafa undirritað þjónustusamning um rekstur þjónustukjarna fyrir aldraða í Reykjavík. 9.8.2011 12:28
Engar hækkanir á vaski eða tekjuskatti einstaklinga Forystumenn ríkisstjórnarinnar segja að engar hækkanir verði á virðisaukaskatti eða tekjuskatti einstaklinga í fjárlögum næsta árs. 9.8.2011 11:57
Íslenskir listamenn taka nýtt merki í notkun BÍL - Bandalag íslenskra listamanna hefur tekið í notkun nýtt merki, hannað af Kristjáni E. Karlssyni. Þá hefur heimasíða BÍL verið uppfærð og endurnýjuð í stíl við nýja merkið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir að höfundir merkisins segi um það: „Ef vel er að gáð má finna vott af íslenskri formgerð í notkun mynsturs, þó er form merkisins að hluta byggt upp eins og MANDALA (sem þýðir hringur), með föstum kjarna, miðpunkti (Bandalagið). Í heild sinni rúmar það hugmyndir eins og t.d.: listir, upphrópun (Sjáðu mig!), hljóðbylgjur, útgeislun, sköpunarkraft, hringleikhús, örveru, guðlega veru - sjálfa listagyðjuna ef vel er að gáð... Hringformið hefur jú sterka tilvísun í form sólarinnar með allri sinni útgeislun enda oft látin tákna sjón og skynjun. (sbr. Sólin sem augu Seifs í grískri goðafræði). En með einfaldri litabreytingu er hægt að gefa merkinu mismunandi dýpt og skírskotun eftir þörfum. " Nýja vefsíðu BÍL má sjá hér. 9.8.2011 11:32
Ársverkum lögreglunnar fækkar Fækkun á ársverkum lögreglumanna nemur 11% frá árinu 2006 samkvæmt ársskýrslu Ríkislögreglustjóra fyrir árið 2010. Í skýrslunni er ástæða fækkunarinnar sögð vera sú að embættin hafi oft ekki ráðið í þær stöður sem losnað hafa, vegna niðurskurðarkröfu sem þau hafa þurft að mæta af hálfu stjórnvalda. 9.8.2011 11:25
Lögreglan ætlar að kanna ökurita tékknesku fjallarútunnar Nú er verið að flytja stóra beltagröfu á dráttarbíl eftir Fjallabaksleið Nyrðri, áleiðis að Blautulónum, til að ná tékkneskri fjallarútu upp úr lónunum, þar sem hún hefur verið á kafi frá því á laugardag. 9.8.2011 11:14
Malbikun við Kringluna Unnið verður í dag við malbikun á Kringlunni, austur akrein við innkeyrslu að bílastæðahúsi við Kringluna. Byrjað var um klukkan hálf átta í morgun, götukaflanum þá lokað og verður hann lokaður fram að hádegi. Einnig verður unnið við malbikun á rampa frá Kringlunni inn á Miklubraut þegar ekið er til austurs. Byrjað verður á þeim kafla strax á eftir fyrri kaflanum og kaflinn hafður lokaður fram eftir degi. Frárein frá bensínstöð inn á Miklubraut lokast einnig. Ökumenn eru beðnir að fara eftir vegmerkingum og aka með gát. 9.8.2011 11:03
Vilja nefndarfund um stöðuna á mörkuðum Fulltrúar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks í Efnahags- og skattanefnd hafa óskað efti fundi í nefndinni sem fyrst í þessari viku til þess að ræða þær hræringar sem nú eru á alþjóðamörkuðum. 9.8.2011 10:59
Engar afbókanir til Lundúna Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir félagið ekki hafa orðið vart við neinar afbókanir á flugum til London vegna óeirðanna sem standa nú yfir í höfuðborg Bretlands. 9.8.2011 10:49
Handtekinn fyrir að skilja barn eftir í bíl Íslenskur fjölskyldufaðir var handtekinn í Bandaríkjunum fyrir að skilja tveggja ára dóttur sína eftir sofandi í bíl í steikjandi hita. Hann kom heim í gærmorgun eftir að hafa verið í farbanni í New Jersey í þrjár vikur. Fréttastofa RÚV greindi frá málinu í gær. Foreldrar stúlkunnar skildu hana eftir í bílnum á meðan þau fóru inn í verslun, ásamt eldri börnum sínum. Þegar þau komu út var búið að kalla til lögreglu enda ólöglegt að skilja börn eftir í bílum í Bandaríkjunum. Alls hafa 22 bandarísk börn dáið úr hita í bílnum það sem af er þessu ári en í síðasta mánuði fór hitinn yfir 40 stig á þessu svæði. Í samtali við RÚV segir fjölskyldufaðirnn að heimska og hugsunarleysi hafi ráðið því að stúlkan var skilin eftir. Hann vildi annars ekki veita fréttastofu viðtal. Honum var sleppt úr fangelsi sama dag og hann var handtekinn gegn því að hann skildi vegabréf sitt eftir. Móðirin fékk að fara aftur til Íslands með börnin eftir viðtal við barnaverndaryfirvöld. "Íslenski sendiherrann beitti sér í málinu og lýsti því í bréfi hvernig alsiða væri á Íslandi að láta lítil börn sofa úti á almannafæri, í barnavögnum og bílum. Niðurstaðan varð sú að saksóknari bauð föðurnum að láta málið niður falla ef hann játaði á sig ósæmilega hegðun á almannafæri og greiddi sekt," segir á vef RÚV. 9.8.2011 10:05
Auðgunar- og hegningarlagabrotum fjölgar Hegningarlaga- og auðgunarbrotum fer fjölgandi milli ára, samkvæmt ársskýrslu Ríkislögreglustjóra fyrir árið 2010. Kynferðisbrotum, manndrápum og líkamsmeiðingum fer hinsvegar fækkandi. 9.8.2011 10:01
Þrjár nauðganir til lögreglunnar Þrjú nauðgunarmál hafa borist á borð kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjölfar síðustu verslunarmannahelgar. Öll atvikin áttu sér stað á höfuðborgarsvæðinu og konurnar fóru allar á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi fyrir þolendur kynferðisofbeldis. 9.8.2011 10:00
Bubbi hefur selt fleiri en 320 þúsund plötur „Ég held að það sé hægt að fullyrða að þetta sé einstakur árangur," segir Eiður Arnarsson, útgáfustjóri Senu og stjórnarmaður í félagi hljómplötuframleiðenda. 9.8.2011 09:19
Tvær vikur í leikskólaverkfall Virkja þarf verkfallsnefnd leikskólakennara því að öðru óbreyttu eru tæpar tvær vikur uns þeir leggja niður vinnu, eftir að fundi í kjaradeilu kennaranna og sveitarfélaganna lauk í Karphúsinu í gær, án samkomulags. 9.8.2011 08:45
Dularfullt hitamál í Laugardalnum Dularfullur reykur fór að stíga upp úr jörðinni skammt frá nýju Laugardalshöllinni laust fyrir miðnætti og kallaði lögregla út starfsmann frá Orkuveitunni, ef heitavatnsleiðsla væri ef til vill farin að leka. 9.8.2011 07:55
Nemendur í Kvikmyndaskólanum skora á Jóhönnu Hópur nemenda úr Kvikmyndaskóla Íslands ætlar að mæta á tröppur stjórnarráðsins klukkan hálf níu til að afhenda forsætisráðherra áskorun um að gera tafarlaust viðunandi samning við skólann og tryggja þannig rekstur hans. 9.8.2011 07:48
Ekki lagt til að hækka matarskattinn Ekki var tilkynnt um hækkun á virðisaukaskatti á matvæli, að loknum sameiginlegum þingflokksfundi stjórnarflokkanna í gærkvöldi. Þingmannanefnd á vegum stjórnarflokkanna hefur meðal annars skoðað þann möguleika til að stoppa upp í fyrirsjáanlegt fjárlagagat á næsta ári. 9.8.2011 07:46
Kæra útgáfu leyfis frá Orkustofnun Bæjarstjórn Hveragerðis hefur sent iðnaðarráðuneytinu kæru vegna útgáfu rannsóknarleyfa í Grændal í Ölfusi. Leyfið var gefið út 10. maí og hefur sætt mikilli gagnrýni, þar með talið frá iðnaðarráðherra sem fór fram á munnlegan rökstuðning fyrir veitingunni. 9.8.2011 07:00
Hækkun vasksins í skoðun Meðal þeirra leiða sem eru til skoðunar til að auka tekjuöflun ríkisins er að koma á einu virðisaukaskattþrepi. Þingmannanefnd á vegum stjórnarflokkanna hefur skoðað hvaða leiðir séu færar í aukinni tekjuöflun. Hún hefur meðal annars tekið vaskinn til skoðunar. Nefndin hefur fundað undanfarna daga og seinnipartinn í gær var haldinn fundur með formönnum stjórnarflokkanna. Að því loknu var haldinn sameiginlegur þingflokksfundur stjórnarflokkanna. 9.8.2011 06:00
Jarðvarmi nýttur við saltgerð Hópur frumkvöðla hefur endurvakið aldagamla framleiðsluaðferð í nýstofnuðu saltvinnslufyrirtæki á Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi. „Við notum jarðvarma. Aðferðin er sú umhverfisvænsta sem völ er á því aðrir nota gas eða brenna eldiviði,“ segir Garðar Stefánsson, sem er einn eigenda fyrirtækisins Saltverk Reykjaness. 9.8.2011 06:00
Kjarnorkuárása á Japan minnst Kertum verður fleytt í kvöld til minningar um fórnarlömb kjarnorkuárása Bandaríkjanna á japönsku borgirnarHiroshima og Nagasaki. Í Reykjavík fer athöfnin fram við Tjörnina og hefst klukkan 22.30. Borgarstjóri mun flytja ávarp. Á Akureyri verður kertum fleytt á tjörninni við Minjasafnið. Áki Sebastian Frostason flytur ávarp. 9.8.2011 06:00
Töpuðu tugum hrossa á afrétt „Það er mjög slæmt ef verið er að hamast í stóðhrossum á afrétti.“ 9.8.2011 05:15
Í Póllandi eru fæstir erlendir Einungis 0,1% íbúa Póllands eru útlendingar. Þetta er lægsta hlutfall allra EES-ríkja sem hafa viðlíka tölur á takteinum fyrir árið 2010. Þetta má lesa í nýrri skýrslu frá Hagstofu ESB. 9.8.2011 04:00
Tveir grunaðir um laxveiði í sjó Fiskistofa hefur á undanförnum vikum lagt hald á að minnsta kosti ellefu ólögleg net í sjó. Þar af að minnsta kosti fjögur laxanet sem tekin voru upp í Skagafirði í síðustu viku. Það mál er til rannsóknar, að sögn lögreglu, en tveir menn liggja undir grun um notkun þeirra. Laxanet eru ólögleg og liggur há sekt við notkun þeirra. 9.8.2011 03:00
Nubia Silva fundin Nubia Silva sem lögreglan á Hvolsvelli lýsti eftir um helgina er fundin og er heil á húfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. 8.8.2011 21:21