Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Larry King aflýst í Hörpunni Hætt hefur verið sýningu þáttastjórnandans heimsfræga Larry King, sem hafði áætlað að heimsækja Ísland föstudaginn 23. september næstkomandi. Guðbjartur Finnbjörnsson, sem stóð að baki viðburðinum, segir ástæðuna vera dræma miðasölu. 8.8.2011 17:15
Þrettán óku undir áhrifum fíkniefna, sjö undir áhrifum áfengis Þrettán ökumenn voru teknir á höfuðborgarsvæðinu um helgina fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Voru tíu þeirra stöðvaðir í Reykjavík og þrír í Kópavogi. 8.8.2011 16:37
Friðarsinnar fleyta kertum á Tjörninni Friðarsinnar munu koma saman við Tjörnina í Reykjavík á morgun og fleyta kertum í minningu fórnalamba kjarnorkuárásanna á japönsku borgirnar Hírósíma og Nagasakí, þann 6. og 9. ágúst 1945. 8.8.2011 16:10
Sofnaði undir stýri - Minna slösuð en talið var Bílvelta varð við Baldursheimsveg við sunnanvert Mývatn í morgun. Ein stúlka var í bílnum og var hún flutt á sjúkrahús á Akureyri, en talið er að hún hafi sofnað undir stýri. 8.8.2011 15:41
Sextán umferðaróhöpp á Selfossi í vikunni Sextán umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á Selfossi í vikunni og urðu slys á fólki í fjórum þeirra. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á Selfossi. 8.8.2011 15:15
Þingfesting í Heiðmerkurmáli Þingfesting fer fram á morgun í máli manns sem varð barnsmóður sinni að bana í Heiðmörk. Maðurinn, sem er tuttugu og fimm ára gamall, er ósakhæfur að mati geðlækna. Hann var handtekinn við Landspítalann í Fossvogi í maí. Þangað hafði hann keyrt með lík barnsmóður sinnar í farangursgeymlu bílsins og gaf sig fram. Móðir mannsins segir kerfið hafa brugðist syni sínum, en hann var útskrifaður af geðdeild skömmu áður. Þingfestingin fer fram í Héraðsdómi Reykjaness. 8.8.2011 14:48
Lækkun á heimsmarkaðsverði gæti skilað sér heim á næstu vikum Magnús Ásgeirsson, innkaupastjóri eldsneytis hjá N1, segir mögulegt að bensínverð á Íslandi lækki á næstu vikum, en lækkun hefur orðið á bensíni á heimsmarkaði undanfarna daga auk þess sem verðið á Bandaríkjadalnum hefur lækkað úr um 118 krónum í rúmar 115 krónur á síðustu tveimur vikum. 8.8.2011 14:30
Taka við notuðum reiðfatnaði á Keflavíkurflugvelli Til að auðvelda hestamönnum að uppfylla reglur vegna smitvarna hefur Landssamband hestamannafélaga fyrir hönd félagasamtaka hestamennskunnar, nú samið við Fatahreinsunina Fönn um að taka við notuðum reiðfatnaði í rauða hliðinu á Keflavíkurflugvelli og skila fullhreinsuðum til eiganda fáum dögum síðar. Á síðasta ári kom upp alvarlegur faraldur smitandi hósta í íslenska hrossastofninum af völdum bakteríusýkingu sem ekki er álitinn mikill skaðvaldur erlendis. Sá atburður sýndi glögglega hversu viðkvæmur íslenski hrossastofninn er fyrir smitsjúkdómum. Þrátt fyrir þetta áfall er íslenski hrossastofninn enn laus við alvarlegustu smitsjúkdómana og mikilvægt er að viðhalda þeirri góðu stöðu með öflugum smitvörnum. Samkvæmt gildandi lögum og reglum er óheimilt að flytja inn notaðan reiðfatnað til landsins nema að undangenginni hreinsun og sótthreinsun samkvæmt reglum Matvælastofnunar. 8.8.2011 14:19
Nubia enn týnd Stúlkan sem lögreglan á Hvolsvelli lýsti eftir er enn ófundin. Hún heitir Nubia Silva, er fimmtán ára gömul og búsett á Hvolsvelli. Ekki er vitað um ferðir hennar síðan að kvöldi 5. ágúst síðastliðinn. Nubia Silva er er tæpir 160 sentimetrar á hæð, grannvaxin með dökkt sítt hár. Ekki vitað með vissu hvernig hún var klædd. Talið er að Nubia Silva sé á höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem hafa orðið varir eða vita um ferðir Nubiu Silva, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á Hvolsvelli í síma 488 4110. 8.8.2011 13:51
Kanna hvort hægt sé að lyfta rútunni með belgjum Kannað verður hvort hægt sé að lyfta tékkneskri rútu af botni Blautulóna með loftbelgjum, og draga hana svo að landi, en þar hefur hún verið á bóla kafi síðan á föstudag. 8.8.2011 13:05
Össur: Evrópa þarf að eiga stefnumót við veruleikann Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, segir að langvarandi frost á erlendum mörkuðum geti haft áhrif á viðskiptakjör Íslendinga. Ísland sé hins vegar betur í stakk búið en önnur ríki til að takast á við erfiðleika. 8.8.2011 11:58
Umboðsmanni Alþingis berst kvörtun vegna aðgerðarleysis FME Stjórnmálahreyfingin Hægri grænir, flokkur fólksins, hefur sent kvörtun til Umboðsmanns Alþingis og beðið embættið að úrskurða um hvort fjármálaráðherra hafi farið að lögum við stofnun, rekstur og niðurlagningu Spkef sparisjóðs og stofnun, rekstur og sölu Byrs banka. 8.8.2011 10:52
Hola myndaðist í jörðinni á Selfossi Hola myndaðist í götunni við Víðivelli á Selfossi í gær. Ekki er útilokað að um sé að ræða síðbúin eftirköst jarðskjálftans sem var á svæðinu árið 2008. "Krakkarnir okkar fundu holuna í gær. Þá var hún miklu minni en stækkaði eftir því leið á daginn," segir Sæunn Ósk Kristinsdóttir, íbúi við Víðivelli 10. Götunni var lokað fyrir umferð í gær og holan girt af til að koma í veg fyrir slys. Fulltrúar frá Árborg komu og skoðuðu holuna í morgun. Gatið í malbikinu er um hálfur meter í þvermál en undir því er stærra holrúm, líklega um tveir fermetrar. Jón Tryggvi Guðmundsson, tæki- og veitustjóri Árborgar, segir að holan verði skoðuð frekar í dag. Þá verður fráveitulögnin við götuna mynduð til að kanna hvort laus jarðefni hafi farið inn í skolplögn. Þó hefur ekki verið orðið vart við neina tregðu í lögnunum. Jón Tryggvi segir of snemmt að fullyrða um ástæður þess að holan myndast. "Það geta verið fleiri en ein ástæða fyrir jarðsiginu," segir hann. Að sögn Sæunnar Óskar er nokkuð langt síðan íbúar við götuna urðu varir við hálfgerða dæld í malbikinu. "Þetta var svona eins og öfug hraðahindrum," segir hún. Jarðskjálftinn 2008 var mjög öflugur og þurfti í kjölfar hans að rífa nokkur hús sem voru gjörónýt. Þar á meðal var húsið við Víðivelli 12 rifið, sem stóð skammt frá þar sem holan myndaðist. Tveir suðurlandsskjálftar riðu yfir samtímis í maí 2008. Þeir voru um 6,3 stig á Richter og fundust svo fjarri upptökunum sem á Ísafirði. 8.8.2011 10:42
Búist við umferðartöfum á Miklubraut Búast má við töfum á Miklubraut í dag og næstu daga. Unnið er að malbikun Miklubrautar frá Grensásvegi að Melatorgi og gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki 11. ágúst. Ein akrein er lokuð í einu og búast má við umferðarstöfum vegna þessa á Miklubraut. 8.8.2011 09:50
Efnahagsbrotadeild sameinast embætti sérstaks sakskóknara Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og embætti sérstaks saksóknara sameinast þann 1. september, samkvæmt lögum nr. 82/2011 sem þá taka gildi. Við gildistöku laganna flyst rannsókn mála er undir efnahagsbrotadeild heyra og ákæruvald og þar með sókn þeirra mála sem þegar sæta ákærumeðferð fyrir dómstólum af hálfu ríkislögreglustjóra frá embætti ríkislögreglustjóra til embættis sérstaks saksóknara. Til viðbótar þeim starfsmönnum sem á undanförnum árum hafa flust frá ríkislögreglustjóra til sérstaks saksóknara flytjast 14 stöðugildi til sérstaks saksóknara við þessi tímamót. Fjárveitingar til efnahagsbrotadeildar færast einnig frá ríkislögreglustjóra til sérstaks saksóknara og nema þær alls um 124 milljóna króna á ársgrundvelli. Ríkislögreglustjóri mun áfram annast móttöku tilkynninga á grundvelli laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnum hryðjuverka. Í formála nýútgefinnar ársskýrslu embættis ríkislögreglustjóra skrifar Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri af þessu tilefni: „Ég hef lengi talað fyrir því að sett verði á fót sérstök eining til að fara með mál er varða efnahagsbrot og að hlutverk ýmissa ríkisstofnana á því sviði verði endurskoðað. Við bankahrunið lagði ég til við Björn Bjarnason, þáverandi dómsmálaráðherra, að stofnað yrði sérstakt embætti til að fara með mál sem vörðuðu hrunið. Á fyrsta fundi okkar Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra lagði ég áherslu á að næsta skref yrði að færa verkefni efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra til sérstaks saksóknara og að hafinn yrði undirbúningur að framtíðarskipan málaflokksins. Nú liggur þetta fyrir. Verkefni efnahagsbrotadeildar færast til sérstaks saksóknara hinn 1. september nk. Gert er ráð fyrir að samhliða þeirri breytingu verði skipuð nefnd til að endurskoða skipulag og tilhögun rannsókna og saksóknar í efnahagsbrotamálum og gera tillögur að heildarskipulagi til framtíðar. Þessari breytingu samfara færist ákæruvald frá ríkislögreglustjóra. Þar með lýkur þýðingarmiklu brautryðjendastarfi embættisins. Um árabil hef ég einnig hvatt til þess að skilja tollstjórn og sýslumannsverkefni frá lögreglustjórn. Mikilvæg skref hafa verið stigin í þessa átt og nú liggur fyrir Alþingi frumvarp innanríkisráðherra um aðskilnað sýslumannsverkefna frá lögreglustjórum og fækkun og stækkun lögregluliða. Jafnframt hef ég lagt á það áherslu að rétt sé að skilja ákæruvald frá lögreglustjórn. Við brottflutning ákæruvalds frá ríkislögreglustjóra er eðlilegt að sú skipan nái til allra lögreglustjóra landsins og að ákæruvaldið verði alfarið á ábyrgð ríkissaksóknara. Sú breyting myndi án efa efla tiltrú almennings á ákæruvaldinu og bæta meðferð sakamála." 8.8.2011 09:37
Hringdi á lögreglu vegna hávaða frá borholu Hvergerðingur hringdi í lögregluna á Selfossi um tvö leitið í nótt og sagðist ekki verða svefnsamt vegna hávaða frá borholu Orkuveitunnar við Hverafold. 8.8.2011 08:47
Fréttaskýring: Norðlingaalda og neðri hluti Þjórsár munu valda deilum Mun nást sátt um rammaáætlun? Unnið er að tillögu til þingsályktunar í iðnaðarráðuneytinu um hvernig kostir í rammaáætluninni verða flokkaðir. Um þrjá flokka er að ræða: virkjanakosti, verndunarkosti og biðkosti. Í síðastnefnda flokkinn falla þeir kostir sem ákveða á síðar hvernig verða nýttir; til verndunar eða virkjunar. 8.8.2011 08:30
Þjófur staðinn að verki í Skipholti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gómaði þjóf í Skipholti í Reykjavík í nótt þar sem hann var að brjótast inn í bíla. Hún fékk tilkynningu um grunsamlegt athæfi mannsins, og stóð hann að verki. 8.8.2011 07:59
Fóru fjórar veltur en sluppu ómeidd Erlend hjón, sem búsett eru hér á landi, sluppu ómeidd eftir að bíll þeirar fór útaf Þjórsárdalsvegi, í uppsveitum Árnessýslu í gærkvöldi, og valt fjórar heilar veltur. 8.8.2011 07:58
Hlekktist á í lendingu í Fljótum Þrír menn sluppu nær ómeiddir þegar lítilli flugvél þeirra hlekktist á í lendingu við Lambanes í Fljótum í gærkvöldi. Þeir fóru allir á heilsugæsluna á Sauðárkróki til skoðunar. Ekki er vitað um tildrög óhappsins, en vélin mun vera mikið skemmd. Rannsóknanefnd flugslysa mun að líkindum rannsaka málið. 8.8.2011 07:42
Féll í götuna á Grafningsvegi og axlarbrotnaði Bifhjólamaður slasaðist þegar hann missti stjórn á hjóli sínu á Grafningsvegi í gærkvöldi og féll í götuna. Hann axlarbrotnaði í fallinu en hjólið þeyttist út fyrir veg, hafnaði þar á steini og er talið ónýtt. Engar vísbendingar eru um hraðakstur. 8.8.2011 07:41
Banna böð í Laugarvatni vegna saurgerla Vegna E. colimengunar sem uppgötvaðist í sumar hefur Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bannað fólki að baða sig í Laugarvatni. Sveitarstjóri segir orsökina vera mengun úr holræsakerfi frá þéttbýlinu í kringum vatnið. 8.8.2011 07:00
Hanna íbúðabyggð í Vilníus THG Arkitektar fengu fyrstu verðlaun fyrir tillögu sína um hönnun og skipulag íbúðabyggðar í úthverfi Vilníus, höfuðborgar Litháens. „Fjárfestar í Vilníus komu að máli við okkur og báðu okkur um að taka þátt í þessari samkeppni,“ segir Ragnar Auðunn Birgisson, arkitekt hjá THG Arkitektum. 8.8.2011 06:00
Vill flytja fleiri verkefni til sveitarfélag „Ég er sannfærð um að því nær ákvörðunarvaldinu sem við erum, því markvissari verða áætlanirnar,“ segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, um fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um endurskoðun á hlutverki ríkisins. 8.8.2011 05:00
Byggðaráð krefur OR úrbóta Byggðaráð Borgarbyggðar krefst þess að Orkuveita Reykjavíkur hefji þegar í stað framkvæmdir við nýja vatnsveitu í Reykholtsdal og tryggi íbúum og fyrirtækjum nægjanlegt vatn. Þetta kemur fram í Skessuhorni. 8.8.2011 04:00
Tuttugu smiðir á skrá en engir fást í vinnu „Ég er búinn að selja tvö hús sem ég hefði viljað afhenda fyrir áramót en ég veit ekki hvernig ég á að fara að því þar sem ég fæ enga smiði. Ég er að skila húsi núna sem ég hefði átt að vera búinn að afhenda fyrir talsverðum tíma.“ 8.8.2011 04:00
Breskir ferðamenn fjölmennastir sem fyrr Flestir þeirra erlendu ferðamanna sem komu hingað til lands í fyrra, fljúgandi til Keflavíkur, eru breskir ríkisborgarar. Þeir voru rúmlega sextíu þúsund það ár. Þjóðverjar hafa rutt Bandaríkjamönnum úr öðru sæti og eru nú næstfjölmennastir í þessum hópi, rúmlega 54 þúsund. Þetta kemur fram í samantekt sem Hagstofan gaf nýverið út. 8.8.2011 03:15
Féll af vélhjóli Vélhjólamaður féll af hjóli sínu á Laugarvatnsafleggjaranum við bæinn Miðdal um þrjúleytið í dag. Hann var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir slysið þar sem hann er til skoðunar, en maðurinn mun hafa kennt eymsla í baki. Verið er að vinna að lagfæringum á veginum þar sem óhappið varð og því er lausamöl þar sem erfitt er að aka í. 7.8.2011 20:11
Leiguvél á leið til Skotlands Leiguvél er á leið til Inverness í Skotlandi til að sækja farþega Iceland Express. Ástæðan er sú að vél á vegum Iceland Express sem farþegarnir voru í millilenti þar af öryggisástæðum fyrr í dag. Um borð í vélinni voru 146 farþegar og áhöfn. Upplýsingafulltrúi Iceland Express segir að farþegarnir hafi fengið reglulega smáskilaboð um stöðu mála og fengið nóg af mat og drykk meðan þeir hafa þurft að bíða. 7.8.2011 19:32
Líst afar illa á útflutningsskatt "Versta hugmynd sem ég hef heyrt,“ segir framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins um tillögu Lilju Mósesdóttur að leggja tíu prósent skatt á útflutningsvörur Íslendinga. 7.8.2011 18:30
Lögreglan lýsir eftir Nubiu Lögreglan á Hvolsvelli lýsir eftir Nubiu Silva, 15 ára, til heimilis á Hvolsvelli. Ekki er vitað um ferðir hennar síðan að kvöldi 5. ágúst síðastliðinn. Nubia Silva er er tæpir 160 sentimetrar á hæð, grannvaxin með dökkt sítt hár. Ekki vitað með vissu hvernig hún var klædd. Talið er að Nubia Silva sé á Höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem hafa orðið varir eða vita um ferðir Nubiu Silva, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á Hvolsvelli í síma 488 4110. 7.8.2011 18:04
Eru strandaglópar í Skotlandi Flugvél Iceland Express frá Kaupmannahöfn sem lenda átti á Keflavíkurflugvelli klukkan hálffimm í dag, varð að lenda af öryggisástæðum á flugvellinum í Innernes í Skotlandi. Engin hætta reyndist á ferðum, en viðvörunarljós virðist hafa bilað. Um borð voru 146 farþegar og áhöfn. 7.8.2011 17:25
Miðbærinn ljómaði í gær Miðbærinn ljómaði allur um miðjan dag í gær þegar Gay Pride gangan stóð sem hæst. Fjöldi fólks lét sjá sig og þar á meðal var sjálfur borgarstjórinn, Jón Gnarr, sem sýndi stuðning sinn við jafnréttisbaráttuna með því að taka þátt í göngunni. Bjarni kvikmyndatökumaður á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis fangaði stemninguna í miðbænum og Fannar Scheving Edwardsson klippti myndskeiðið. 7.8.2011 15:36
Svissneskum hjónum bjargað úr Skyndidalsá Svissneskum hjónum var bjargað af þaki bíls sem sat fastur í Skyndidalsá, sem rennur í Jökulsá í Lóni. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg voru það félagar úr björgunarfélagi Hornafjarðar sem kom hjónunum til bjargar. Þau höfðu klifrað upp á þak bílsins um leið og hann festist. 7.8.2011 15:00
Hálf milljón safnaðist í skákmaraþoni Hálf milljón safnaðist á Skákmaraþoni íslenskra barna fyrir sveltandi börn í Sómalíu í gær en einnig verður teflt fyrir málstaðinn í dag. Alls hafa 30 milljónir safnast á styrktarreikning Rauða krossins frá upphafi söfnunar vegna hungursneyðar í Austur-Afríku. 7.8.2011 12:21
Rútan enn á bólakafi Ellefu tékkneskir ferðamenn sluppu naumlega þegar rúta með þeim innanborðs sökk í Blautulóni á Fjallabaksleið nyrðri í Vatnajökulsþjóðgarði síðdegis í gær. Þeir náðu að synda í land í átta gráðu köldu vatni en rútan er enn föst á margra metra dýpi. 7.8.2011 12:03
Vill sérstakan skatt á útflutningsfyrirtækin Setja ætti sérstakan skatt á vörur sem fluttar eru út frá landinu, segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður utan flokka. Lilja sagði í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun að með því að leggja um 10% skatt á útflutningsfyrirtæki væri hægt að ná inn 80 milljörðum í ríkissjóð án þess að útflutningsfyrirtæki, eins og sjávarútvegsfyrirtæki finndu mikið fyrir því. 7.8.2011 11:51
Viðey verður hinsegin í dag Viðey fagnar Hinsegin dögum í dag með skemmtilegri fjölskyldudagskrá og regnbogaveitingum í Viðeyjarstofu. Söngur, leikir og andlitsmálning verða í boði og jafnframt verður efnt til ljósmyndakeppni meðal gesta. 7.8.2011 10:13
Veitingastað lokað vegna ölvunar starfsmanna Veitingastaðnum Langa Manga á Ísafirði var lokað í nótt vegna þess að starfsmenn staðarins voru ölvaðir. Samkvæmt heimildum Vísis var ekki mjög fjölmennt á staðnum og því gekk ágætlega að rýma hann. 7.8.2011 10:03
Grunur um að hundi hafi verið stolið í innbroti Brotist var inn í íbúð í fjölbýlishúsi í Norðurmýrinni í Reykjavík laust eftir miðnætti í nótt. Innbrotsþjófarnir fóru inn um svefnherbergisglugga og höfðu á brott með sér tvær fartölvur. Húsráðendur sakna einnig chihuahua-hunds, en ekki er ljóst hvort að hinir óprúttnu aðilar hafi tekið hann með sér eða hann hreinlega sloppið út. Málið er í rannsókn. 7.8.2011 09:23
Reyna að planka sig upp í hæstu einkunn Tveir Íslendingar og Breti planka við fræg kennileiti í Árósum til að hljóta hæstu einkunn fyrir skólaverkefni. Gjörningurinn hefur vakið athygli einnar af stærstu sjónvarpsstöðvum Danmerkur. 6.8.2011 21:30
Of lítil nýliðun í matvælaiðnaðinum Matvæla-og veitingafélag Íslands beitir sér nú fyrir því að hvetja ungt fólk til að læra þjóninn, kokkinn og bakarann og mennta sig í kjötiðnaði. Töluvert vantar af matreiðslumönnum til starfa, einkum yfir sumartímann, og skortur er á iðnmenntuðum í hinum greinunum. Níels Olgeirsson, formaður Matvís, hefur áhyggjur af þessari þróun. 6.8.2011 20:45
Rúmlega 26 milljóna vinningur í lottó Heppinn lottóspilari fékk allar tölur réttar í úrdrætti dagsins, og vann þar sem rúmar 26 milljón krónur. Miðinn var seldur í Happahúsinu, Kringlunni. 6.8.2011 20:28
Nafn mannsins sem lést við köfun Íslenski maðurinn sem lést við köfun við Eyrasundsbrú síðastliðinn fimmtudag hét Gunnar Hrafn Hrafnbjargarson og var 35 ára gamall. 6.8.2011 19:30
Ástandið á leigumarkaði í Reykjavík grafalvarlegt Ástandið á leigumarkaði í höfuðborginni er orðið svo slæmt að tugir manna berjast um hverja íbúð sem losnar. Þess eru dæmi að fólk leigi íbúðir án þess að sjá þær. Formaður félags leigumiðlara segir ástandið grafalvarlegt og bregðast þurfi við sem fyrst. 6.8.2011 18:45