Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lögreglumaður á leið heim stöðvaði þjóf Lögreglumaður, sem var á heimleið eftir vakt undir morgun, sá hvar maður var gangandi með stóran tölvuskjá í Skeifunni í Reykjavík. Þar sem honum varð strax ljóst að ekki var allt með felldu, stöðvaði hann ferð mansins og kallaði á liðsauka til að handtaka hann. 14.6.2011 07:46
Lítil umferð um helgina Umferð um nýliðna hvítasunnuhelgi var mun minni en verið hefur undanfarin ár að sögn lögreglumanna víða um land. Sérstaklega var rólegt yfir umferðinni um norðanvert landið og fyrir austan. 14.6.2011 07:44
Tonni landað fram hjá vigt Tveir menn hafa verið ákærðir fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrir brot á reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla. 14.6.2011 06:00
Sakaður um Gnarrisma „Ég þurfti að vinna á móti ákveðnu hugtaki sem nú er orðið þekkt í samfélaginu og kallast Gnarrismi. Það fannst mér mjög óréttlátt því ekkert sem ég sagði eða gerði í kosningabaráttunni var tengt því sem hann gerði," segir Haraldur Freyr Gíslason Pollapönkari og nýkjörinn formaður Félags leikskólakennara, um viðbrögð við framboði sínu. 14.6.2011 06:00
Skemmtiferðarskipið við Skarfabakka kostaði 83 milljarða Skemmtiferðaskipið Costa Pacifica kom til Reykjavíkur í morgun og liggur nú við Skarfabakka. Þetta er eitt stærsta skemmtiferðaskip sem kemur til landins í sumar en það er tæp 115 þúsund tonn. Þetta er risavaxið skip, 290 metrar á lengd, með 1500 káetur á 17 hæðum. Það tekur 3780 farþega og er með 1100 manna áhöfn. 13.6.2011 19:38
Ástandinu við Dyrhólaey líkt við stríð Aukin harka hefur færst í deiluna um lokun Dyrahólaeyjar. Umhverfisstofnun hyggst kæra skemmdarvarga til lögreglu en skiltum var stolið á Dyrhólaey og stjakað við starfsmönnum sem huggðust loka eyjunni fyrir mannaferðum. 13.6.2011 19:11
Umferð tekin að þyngjast Umferð til höfuðborgarinnar er tekin að þyngjast og má búast við talsverðri umferð um helstu umferðaræðar til og frá höfuðborgarsvæðinu í dag annan í Hvítasunnu, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu. Fjölmargir lögðu land undir fót á föstudaginn og var umferð meiri í gegnum umdæmi lögreglunnar á Akranesi, Borgarnesi og Selfossi, en gengur og gerist miðað við hefðbundnar helgar að sumri til. 13.6.2011 17:03
Rétt að ákæra Geir "Allt tal um að þetta hafi beinst að einum frekar en öðrum stenst ekki skoðun, né heldur tal um pólitíska herferð. Að öðru leyti vil ég ekki tjá mig um þetta og vísa til þess hvernig málið er komið. Ég held að menn gerðu rétt í að láta það fara sinn gang,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, um yfirlýsingar Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. 13.6.2011 16:30
Óskar eftir tilnefningum vegna fjölmiðlaverðlauna Umhverfisráðuneytið óskar eftir tilnefningum til fjölmiðlaverðlauna á Degi íslenskrar náttúru. Ríkisstjórnin ákvað síðastliðið haust, að tillögu Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra, að tileinka 16. september ár hvert íslenskri náttúru. Markmiðið með deginum er að beina sjónum landsmanna að náttúru landsins, gögnum hennar og gæðum. 13.6.2011 15:24
Ökumaður tekinn tvívegis um helgina undir áhrifum fíkniefna Karl á þrítugsaldri var tekinn í tvígang fyrir fíkniefnaakstur um helgina. Fyrst var hann stöðvaður í Kópavogi á laugardagskvöld og færður á lögreglustöð en sleppt nokkru síðar en viðkomandi hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. 13.6.2011 15:08
Vefur lögreglunnar lá niðri vegna tölvuhakkara Heimasíða embættis spænska ríkislögreglustjórans lá niðri í um klukkustund í gærkvöld eftir að tölvuhakkarar réðust á síðuna. Málið er litið alvarlegum augum en embættið hefur ekki staðfest að samtökin Anonymous hafi staðið á bak við árásina. Yfirlýsing þess efnis birtist þó á heimasíðu samtakanna. Talið er að þau hafi ráðist á heimasíðu ríkislögreglustjórans vegna þess að þrír einstaklingar sem tengjast samtökunum voru handteknir á föstudaginn. 13.6.2011 14:50
Ræðu biskups beðið Mikil eftirvænting ríkir eftir ræðu Karls Sigurbjörnssonar, biskups, á kirkjuþingi á morgun þegar hann tjáir sig í fyrsta sinn um skýrslu rannsóknarnefndar þjóðkirkjunnar þar sem farið er fyrir biskupsmálið svokallaða og viðbrögð kirkjunnar tilgreind. Viðmælendur fréttastofu úr hópi presta segja að búast megi við uppgjöri. 13.6.2011 14:45
Hönnunarsafnið fékk Heklu að gjöf „Það er Hönnunarsafni Íslands sönn gleði að taka á móti Heklu. Erfitt er að nálgast verðlaunalampann sem er orðinn hluti af skandinavískri hönnunarsögu. Hekla er dæmi um afar vel heppnaða og fallega hönnun sem við Íslendingar eigum að þekkja. Við þökkum Íslandsbanka og Epal kærlega fyrir þetta frábæra framtak,“ segir Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands. 13.6.2011 12:56
Séra Baldur - þögnin knúði mig áfram Séra Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í Ölfusi, segir þögnina hafa knúið hann til þess að stíga fram í dag. Hann skammist sín fyrir að hafa tilheyrt því valdakerfi sem tók á málum fórnarlamba Ólafs Skúlasonar á sínum tíma. Í yfirlýsingu frá Baldri segir hann sig frá Kirkjuþingi, sem hefst á morgun, og biður fórnarlömb Ólafs Skúlasonar afsökunar á aðkomu sinni í málinu. 13.6.2011 12:54
Segir breytingar ógna fjárhagslegri stöðu Sjálfstæðisflokksins Allar breytingar á kvótakerfinu koma sér illa fyrir Sjálfstæðisflokkinn og ógnar fjárhagslegri stöðu flokksins, að mati þingmanns VG. Hann segir að það sé eins og að slíta pólitíska hjartað úr Framsóknarflokknum að breyta kvótakerfinu og að það hafi þurft konu að vestan til að berja í gegn breytingar á kvótakerfinu, en þar á þingmaðurinn við Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, formann sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis. Þetta er meðal þess sem fram kemur í pistli Björns Vals Gíslasonar, þingmanns VG, á heimasíðu hans. 13.6.2011 12:32
Vélarbilun í flugvél Icelandair Vélarbilun varð í flugvél Icelandair sem var nýlögð af stað frá Billund í Danmörku og var vélinni í framhaldinu snúið við. Farþegar bíða þess nú að gert sé við vélina, að því er Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi Icelandair segir. 13.6.2011 12:17
Biskupsritari Ólafs Skúlasonar segir sig frá kirkjuþingi "Ég hef sagt mig frá Kirkjuþinginu á morgun, þriðjudag. Ég tel að viðbrögð þess verði trúverðugri því færri sem þar eru sem komu við sögu,“ segir Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í Ölfusi og fyrrum biskupsritari Ólafs Skúlasonar. Hann biður Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur, Dagbjörtu Guðmundsdóttur og Stefaníu Þorgrímsdóttur fyrirgefningar. 13.6.2011 11:07
Stefnir á að leiða VG áfram Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna, segir ekkert benda til annars en að hann muni halda áfram sem formaður VG. „Hitt er þó ljóst að ég hef engin áform um að verða eilífur augnakarl, hvorki á formannsstóli Vinstri grænna né í stjórnmálum. Ég get vel hugsað mér að afhenda öðrum keflið þegar ég met það að tíminn sé réttur,“ segir Steingrímur. Nokkuð hefur verið ritað um hvort hann ætli sér að halda áfram sem formaður. Rætt er við Steingrím í helgarblaði Fréttablaðsins sem hægt er að nálgast hér. 13.6.2011 11:00
Ólafur Gaukur er látinn Ólafur Gaukur Þórhallsson gítarleikari og tónlistarmaður er látinn, áttræður að aldri. Ólafur fæddist í Reykjavík 1930 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri. Hann hóf ungur að aldri að spila með mörgum af vinsælustu hljómsveitum landsins, meðal annars KK sextett og stýrði svo sinni eigin hljómsveit um árabil. Hann rak sinn eiginn gítarskóla frá árinu 1975. Eftirlifandi eiginkona Ólafs er Svanhildur Jakobsdóttir söngkona og dagskrárgerðarmaður. 13.6.2011 10:00
Eldur í blaðagámi Kalla þurfti út dælubíl þegar tilkynnt var um eld í blaðagámi við Holtaveg í Reykjavík rétt um klukkan fjögur í nótt. Lítil hætta stafaði af eldinum þar sem gámurinn stóð talsvert frá nærlægum húsum. Það tók slökkviliðsmenn skamma stund að slökkva eldinn. 13.6.2011 09:42
Stútur ók of hratt Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann fyrir of hraðann akstur rétt eftir klukkan átta í morgun á Suðurlandsvegi við Kögunarhól, en hann mældist á 118 km. hraða. Þegar betur var að gáð kom í ljós að hann reyndist einnig ölvaður. Hann var sviptur ökuleyfi í framhaldinu. Um er að ræða karlmann á tvítugsaldri. 13.6.2011 09:33
Handteknir á Reykjanesbraut eftir að hafa kveikt í bíl Tveir karlmenn voru handteknir á Reykjanesbraut á sjötta tímanum í morgun grunaðir um hafa skömmu áður kveikt í bifreið að gerðinni Honda Civic í iðnaðarhverfi í Reykjanesbæ. Engann sakaði í eldsvoðanum en bifreiðin er gjörónýt. Mennirnir gista nú fangageymslur en þeir voru handteknir eftir ábendingar vitna. 13.6.2011 09:26
Fæðubótarefni eru illa merkt Fæðubótarefni eru oft illa merk og innra eftirliti þeirra fyrirtækja sem þau selja er oft ábótavant. Þetta var niðurstaða könnunar sem Matvælastofnun og Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna stóðu að síðastliðinn vetur. 13.6.2011 06:00
Þingmaður Framsóknar vill endurskoðun á lögunum Þingmenn fengu ekki réttar upplýsingar við samþykkt á lögum um útreikninga lána í desember síðastliðnum segir Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknar. Hún telur réttast að lögin verði tekin aftur upp á Alþingi. 12.6.2011 13:45
Þingmaður Sjálfstæðisflokks gagnrýnir breytingar á kvótakerfinu Minna kvótafrumvarp sjávarútvegsráðherra varð að lögum í gær eftir nokkur átök í þingsal. Þingmaður Sjálfstæðisflokks gagnrýnir breytingar á kvótakerfinu fyrir skort á heildarsýn, en þingmaður Vinstri grænna segist stoltur af áfanganum. 12.6.2011 13:27
Prjónað á almannafæri Prjónað verður á almannafæri á Austurvelli þann 16. júní næstkomandi, en viðburðurinn er hluti af "alþjóðlega almenningsprjónadeginum" eða "World Wide knit in public day". Verður þetta í fyrsta skiptið sem dagurinn er haldinn hátíðlegur á Íslandi. 12.6.2011 12:20
Gæti unnið alþjóðlegan meistaratitil. Hinn ungi og efnilegi skákmaður Hjörvar Steinn Grétarsson náði sínum fyrsta áfanga að alþjóðlegum meistaratitli í gær. 12.6.2011 10:30
Kjarasamningur Kjalar samþykktur Atkvæðagreiðslu um kjarasamning Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs er lokið. Samningurinn var samþykktur með miklum meirihluta, eða áttatíu og níu prósentum. 12.6.2011 10:14
Erilsöm nótt á Selfossi Nóttin var erilsöm og erfið hjá lögreglunni á Selfossi, en þar fór fram dansleikur á vegum útihátíðarinnar Kótelettunnar og var verulega fjölmennt. Mikið var um ölvun og slagsmál en lögregla býst ekki við að fá margar kærur inn á borð til sín eftir nóttina þar sem enginn slasaðist. Tveir gistu fangageymslur lögreglunnar þar í bæ fyrir ölvun og óspektir. 12.6.2011 09:44
Sektuð fyrir veiðiþjófnað Hjón úr Mosfellsbæ sem renndu fyrir lax fyrir eigin landi við Tungufljót í Árnessýslu hafa verið dæmd til að greiða tuttugu þúsund króna sekt hvort fyrir veiðiþjófnað. Hjónin voru við stangveiðarnar í júlí í fyrra þegar lögregla kom að eftir ítrekaðar ábendingar. 12.6.2011 08:30
Ekki má leggja við inngang Hörpu „Menn geta ekki lagt beint fyrir framan inngang bygginga. Það ættu þeir að vita sem hafa ekið bifreið,“ segir Höskuldur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu. 12.6.2011 07:00
Mæðgin útskrifuðust saman Sextíu og fimm ára kona, sem var kúabóndi í Dalasýslu, flutti til höfuðborgarinnar á gamals aldri og skellti sér í áttunda bekk Grunnskóla. Hún útskrifaðist með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í dag ásamt syni sínum sem einnig fékk sína meistaragráðu í hendur. 11.6.2011 20:23
Upptaka skattsins ekki mistök Tíu stórfyrirtæki hafa hætt starfsemi hér á landi vegna skattlagningar á vaxtagreiðslur, en þrátt fyrir það segir fjármálaráðherra að ekki hafi verið gerð mistök við upptöku skattsins. Nú stendur til að afleggja hann. 11.6.2011 20:13
Fyrrverandi ritstjóri sagði nauðsynlegt að ákæra Geir Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, sagði við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, að hann ætti engan annan kost en að taka þátt í að ákæra Geir H. Haarde, ella fyki traust á flokknum út í veður og vind um langa framtíð. 11.6.2011 19:58
Minna kvótafrumvarp samþykkt Minna kvótafrumvarp sjávarútvegsráðherra varð að lögum í kvöld en hart hefur verið tekist á um málið síðustu daga. Hafa þá alls 25 frumvörp orðið að lögum síðan á fimmtudag. 19 þingmenn greiddu atkvæði á móti frumvarpinu en 30 greiddu atkvæði með því. 11.6.2011 19:33
Vanræktu að skrá bréf um kynferðisbrot Bréf Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur um kynferðisbrot föður hennar var ekki skráð í skjalaskrá Biskupsstofu Íslands fyrir en einu og hálfu eftir að hún sendi bréfið. Karl Sigurbjörnsson biskup sagði við rannsóknarnefnd Kirkjuþings að í bréfinu væru alvarlegar ásakanir gagnvart látnum manni. 11.6.2011 19:23
Eignirnar nema yfir einum milljarði króna Eignir nokkurra Íslendinga og félaga í eigu þeirra, sem hafa verið frystar að beiðni sérstaks saksóknara í tengslum við rannsókn á Kaupþingi, nema yfir einum milljarði króna. Ekki hefur verið gefið upp hverjir eiga þar í hlut þar sem rannsóknin er á viðkvæmu stigi. 11.6.2011 19:18
Rannsókn á láti Sigrúnar Mjallar ábótavant Jón Þór Ólason, lektor í refsirétti, telur rannsókn lögreglu á láti Sigrúnar Mjallar Jóhannesdóttur ábótavant. Fullt tilefni hafi verið til að rannsaka hvaðan læknadópið kom sem dró hana til dauða. Þrjár manneskjur sitja nú á sakamannabekk í Noregi vegna meintrar aðildar að láti fimmtán ára stúlku sem lést af banvænum eiturlyfjaskammti í fyrra. 11.6.2011 19:05
Þarf að hætta þessari lánsveða-vitleysu Viðskiptaráðherra segir lífeyrissjóðina standa í vegi fyrir því að undið sé ofan af skuldavanda fólks með lánsveð, og hafi til þess stjórnarskrárvarinn rétt. Hann segir að í framtíðinni þurfi að hætta þessari lánsveða-vitleysu, eins og hann kallar það. 11.6.2011 18:59
426 brautskráðir frá Háskólanum á Akureyri Brautskráning Háskólans á Akureyri fór fram við hátíðlega athöfn í dag þegar 426 kandídatar voru útskrifaðir með háskólapróf, en með því hefur háskólinn útskrifað nærri fjögur þúsund nemendur á sínum 24 starfsárum. 11.6.2011 16:54
Uppvakningaganga í Reykjavík Miðbær Reykjavíkur iðaði af lífi í dag þegar fjöldi manns streymdi út á göturnar í svokallaðri uppvakningagöngu, en slíkar göngur hafa áður vakið athygli víðsvegar um heiminn. Ekki er vissa um það hvort hér sé um að ræða fyrstu uppvakningagönguna sem gengin er á Íslandi, en víst þykir að hún sé sú fjölmennasta. 11.6.2011 16:25
Löggan sektar háskólanema og fjölskyldur Lögreglumenn eru í óðaönn við að sekta bíla fyrir utan Laugardalshöllina, en þar stendur nú yfir seinni hluti brautskráningar frá Háskóla Íslands. 11.6.2011 15:23
Dyrhólaey opnuð í leyfisleysi Hlið, lokanir og upplýsingaskilti voru tekin niður við inngang að friðlandinu á Dyrhólaey aðfararnótt föstudagsins 10. júní, en opnun svæðisins er háð leyfi frá Umhverfisstofnun. Þetta segir Þorsteinn Gunnarsson, ábúandi á Vatnsskarðshólum, en hann telur umhverfisstofnun hafa veitt skemmdarvörgum hjálparhönd með því að bregðast ekki við tilkynningu um málið fyrr en á föstudagskvöldið. Allan daginn hafi Dyrhólaey því verið opin og umferð streymt um svæðið, en þar sé æðarvarp nú á afar viðkvæmu stigi. 11.6.2011 14:57
Ræddu misnotkun Rítalíns á Bessastöðum Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, bauð íslenskum og erlendum fyrirlesurum ráðstefnu, sem haldin var á vegum SÁÁ, til Bessastaða í gær og ræddi þar meðal annars um vímuefnavarnir og -meðferð auk þeirra neikvæðu áhrifa sem hafa hlotist af af sívaxandi misnotkun Rítalíns hér á landi. 11.6.2011 14:04
Gerir ráð fyrir mótframboði í formannskjöri Bjarni Benediktsson segist gera ráð fyrir mótframboði í formannskjöri á Landsfundi Sjálfstæðisflokksin í haust í viðtali við Morgunblaðið í dag. Hann segist jafnframt líta svo á að það hafi verið rétt að fylgja sannfæringu sinni í Icesavemálinu. 11.6.2011 13:49