Innlent

Biskupsritari Ólafs Skúlasonar segir sig frá kirkjuþingi

"Þegar ég lít til baka yfir þetta tímabil sé ég eftir að hafa verið þarna og iðrast þess að hafa ekki einfaldlega sagt mig úr stjórn Prestafélagsins,“ segir séra Baldur.
"Þegar ég lít til baka yfir þetta tímabil sé ég eftir að hafa verið þarna og iðrast þess að hafa ekki einfaldlega sagt mig úr stjórn Prestafélagsins,“ segir séra Baldur. Mynd/JSE
„Ég hef sagt mig frá Kirkjuþinginu á morgun, þriðjudag. Ég tel að viðbrögð þess verði trúverðugri því færri sem þar eru sem komu við sögu," segir Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í Ölfusi og fyrrum biskupsritari Ólafs Skúlasonar. Hann biður Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur, Dagbjörtu Guðmundsdóttur og Stefaníu Þorgrímsdóttur fyrirgefningar.

Rannsóknarnefnd þjóðkirkjunnar telur að Karli Sigurbjörnssyni og öðrum vígðum þjónum kirkjunnar hafi orðið á mistök í starfi er ásakanir á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi komu fram árið 1996 og 2009. Skýrslan var gerð opinber á föstudaginn.

Var of háður Ólafi

„Rannsóknarnefnd sú sem Kirkjuþing stofnaði til til þess að rannsaka viðbrögð kirkjunnar við ásökunum á hendur Ólafi Skúlasyni gerir sérstakar athugasemd við það að ég skuli hafa tekið ákvörðun um að sitja fundi stjórnar Prestafélags Íslands í febrúar og mars 1996 þegar málefni sem snertu kynferðisafbrot þáverandi biskups voru til umfjöllunar. Málið var þá til umfjöllunar hjá Siðanefnd Prestafélagsins. Hún gerir einnig athugasemdir við það að aðrir stjórnarmeðlimir hafi ekki kosið mig út," segir Baldur í yfirlýsingu sem birtist á bloggsvæði hans á Eyjunni.

Þar segir hann gagnrýni rannsóknarnefndarinnnar réttmæta. Hann hafi verið of nálægur málinu og of háður Ólafi. „Ég átti auðvitað að segja mig frá þessu strax. Það var auðvitað ekki hægt að búast við því að ég væri hæfur til að fjalla um þessi mál þar sem það snerti svo mjög minn yfirmann. Þegar ég lít til baka yfir þetta tímabil sé ég eftir að hafa verið þarna og iðrast þess að hafa ekki einfaldlega sagt mig úr stjórn Prestafélagsins."

„Eiga alla mína samúð og stuðning"

Baldur segist hafa hugleitt ýmislegt í tengslum við málið og ætla að tjá sig ennfrekar síðar. „Og þær Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, Dagbjört Guðmundsdóttir og Stefanía Þorgrímsdóttir eiga alla mína samúð og stuðning og virðingu. Ég hef áður beðið Sigrúnu og Dagbjörtu fyrirgefningar persónulega fyrir mína hönd og kirkjunnar og ítreka það hér og bið Stefáníu að sjálfsögðu fyrirgefningar líka."

Kirkjuþing kemur saman á morgun en þá mun Karl Sigurbjörnsson, biskup, tjá sig í fyrsta skipti um innihald skýrslunnar og niðurstöður rannsóknarnefndarinnar.

Kirkjuþing fer með æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar. Á kirkjuþingi eiga sæti 29 kjörnir fulltrúar, 12 vígðir menn og 17 leikmenn, auk þess biskup Íslands, tveir vígslubiskupar og einn fulltrúi guðfræðideildar Háskóla Íslands með málfrelsi og tillögurétt.

Yfirlýsingu Baldurs.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×