Fleiri fréttir

Boðar endurfundi lýðveldisbarnanna

Fjöldinn allur af börnum fylgdi foreldum sínum á Þingvöll við stofnun íslenska lýðveldisins 17. júní árið 1944. Nú hefur Þór Jakobsson veðurfræðingur boðað til endurfunda hinna svokölluðu lýðveldisbarna í tilefni tímamótanna á lýðveldisdaginn næstkomandi föstudag.

Harkalega tekist á í þingsal

Þingmenn tókust harkalega á um minna kvótafrumvarp landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra við aðra umræðu um málið í gærkvöld. Umræðurnar stóðu frá um hálf ellefu til tuttugu mínútur í eitt í nótt, en þegar leið á tóku að heyrast framíköll og jafnvel hlátrasköll á tíðum.

Metfjöldi brautskráður á aldarafmæli Háskóla Íslands

Metfjöldi nemenda verður brautskráður frá Háskóla Íslands í dag en þá verður þess jafnframt minnst að hundrað ár eru liðin frá stofnun skólans. Brautskráningin fer fram í Laugardalshöll en alls verða 1.816 prófskírteini afhent; 1.138 í grunnnámi og 678 í framhaldsnámi.

Maður féll af mótorhjóli

Slys varð í Gnúpverjahreppi um fjögurleytið í nótt þegar maður féll af mótorhjóli. Hann var fluttur til Reykjavíkur í skoðun en er ekki talinn alvarlega slasaður.

Fréttaskýring: Íslendingum ber að borga

Eftirlitsstofnun EFTA hefur gefið út rökstutt álit um að Íslendingum beri að borga lágmarkstryggingar til eigenda innstæðureikninga Icesave. Málið fer fyrir dómstóla verði ekki greitt innan þriggja mánaða.

Stjórnlagaráð leggur til að kosningakerfinu verði bylt

Kjósendur munu geta valið frambjóðendur þvert á flokka og kjördæmi í alþingiskosningum verði róttækar tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á kosningakerfinu að veruleika. Þar er lagt til að atkvæðavægi skuli vera jafnt alls staðar á landinu.

Ingvi Hrafn og frú eiga ekki fyrir áfrýjun málsins

„Við erum dæmd fyrir skattalagabrot sem aldrei voru framin af ásetningi heldur vegna vanrækslu og afglapa löggilts endurskoðanda sem við treystum,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarpsstjóri ÍNN.

Forseti ESA: Nú verðið þið að borga

"Við höfum verið mjög þolinmóð og gefið lengri frest en aðrir fá. En nú verðið þið að borga,“ segir Per Sanderud, forseti Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA. ESA sendi stjórnvöldum áminningarbréf í maí í fyrra þar sem lýst var þeirri skoðun að Íslendingar hefðu ekki farið eftir tilskipun samnings Evrópska efnahagssvæðisins (EES) um innstæðutryggingar. Stjórnvöld svöruðu bréfinu í maí síðastliðnum og mótmæltu.

Hlaupagarpar komnir í Mývatnssveit

Fjórmenningarnir sem hlaupa nú um landið til að safna fé til styrktar krabbameinssjúkum börnum eru komnir í Mývatnssveit. Í gær var hlaupið frá Egilsstöðum og um Möðrudalsöræfi en þá lenti hópurinn í snjókomu, slyddu og slabbi. Einn úr hópnum átti afmæli og hafði á orði að hann hefði aldrei á sínum 42 árum fagnað afmæli í snjókomu.

Ingvi Hrafn: Ég er bara dæmdur maður

"Fjögurra ára martröð er lokið,“ segir sjónvarps- og blaðamaðurinn Ingvi Hrafn Jónsson sem í dag var dæmdur, ásamt eiginkonu sinni, til að greiða 23 milljónir fyrir skattalagabrot. Hann segir að ástæða ákærunnar sé vanræksla endurskoðenda.

Katrín Jakobsdóttir búin að eiga

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, eignaðist sextán marka strák í dag en það er þriðja barn hennar og eiginmanns hennar, Gunnars Sigvaldasonar. Fyrir eiga þau tvo stráka, þá Illuga og Jakob.

Vítisenglar sverja af sér kannabisræktendur

„Við könnumst ekkert við þetta. Það hefur enginn Vítisengill eða nokkur okkur tengdur verið handtekinn,“ segir Einar Marteinsson, forseti Hells Angels á Íslandi, en lögreglan tilkynnti á vef sínum í dag að tveir karlmenn grunaðir um að tengjast Vítisenglunum hefðu verið handteknir og væru grunaðir um kannabisræktun auk vopnalagabrota.

Rafmagn komið á í Vogahverfinu

Rafmagn er nú komið á í Vogahverfinu í Reykjavík að nýju en á fjórða tímanum varð það óhapp að verktaki sem vann við borun við Langholtsveg setti borinn í háspennustreng. Óhappið olli rafmagnsleysi í hluta hverfisins. Ekki er vitað til neinna óhappa vegna þessa en verktakar geta aflað sér allra upplýsinga um legu strengja hjá Orkuveitu Reykjavíkur, að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Rafmagnslaust í hluta Vogahverfis

Rafmagnslaust er í hluta Vogahverfisins í Reykjavík eftir að háspennustrengur bilaði. Vinnuflokkar frá Orkuveitu Reykjavíkur vinna að viðgerð og er vonast til að rafmagn komist aftur á innan stundar.

Metfjöldi sækir um í Háskóla Íslands

Metfjöldi umsókna hefur borist Háskóla Íslands vegna skólavistar á komandi haustmisseri, eða ríflega 9200 umsóknir. Á síðasta ári var fjöldinn 8.300. Rúmlega sex þúsund umsóknir um grunnnám bárust skólanum og nemur fjölgun slíkra umsókna á milli ára tæpum 14 prósentum. Þá fjölgaði umsóknum um framhaldsnám um tæp 12 prósent en þær reyndust rúmlega þrjú þúsund talsins Þegar horft er til einstakra sviða Háskólans bárust flestar umsóknir um grunnnám á Hugvísindasviði eða 1.735. .

Sjónvarpsstjóri dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi

Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarps- og blaðamaður, var í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir skattalagabrot. Þá var hann dæmdur til að greiða 15 milljónir króna í sekt. Eiginkona hans, fékk þriggja ára mánaða skilorðsbundinn dóm og þarf að greiða átta milljónir króna í sekt.

Dæmdur fyrir heimabankarán og frelsissviptingu

Karlmaður var dæmdur í 20 mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að hafa, ásamt tveimur öðrum karlmönnum, svipt mann á sextugsaldri frelsi sínu og neyða hann til þess að millifæra rúmlega hundrað þúsund krónur yfir í heimabanka eins af mönnunum.

Gagnvirk orkusýning opnar í Búrfellsstöð á morgun

Ný gagnvirk orkusýning um endurnýjanlega orkugjafa verður opnuð við hátíðlega athöfn í Búrfellsstöð laugardaginn 11. júní klukkan 15.00. Sýningin er hönnuð af Gagarín fyrir Landsvirkjun.

B&L og Ingvar Helgason til sölu

Miðengi ehf., SP Fjármögnun hf. og Lýsing hf. hafa falið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á 100% hlut í BLIH ehf, móðurfélagi Ingvars Helgasonar ehf. (“IH”) og Bifreiða og landbúnaðarvéla ehf. (“B&L”).

Flugmenn hugsanlega líka í verkfall - samningaviðræðum hætt í dag

Flugmenn Icelandair Group hf. og Icelandair ehf., hófu allsherjaratkvæðagreiðslu um tillögu að verkfallsboðun í formi yfirvinnubanns flugmanna í dag. Þetta kemur fram á vef félags atvinnuflugmanna en þar er greint frá því að upp úr hádegi hafi slitnað úr samningaviðræðum á milli ríkissáttasemjara og flugmanna.

Samþykktu fjárstyrk til svæða nálægt gosstöðvunum

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að veita nú 54,3 milljónir króna til úrbóta í kjölfar eldgosa í Grímsvötnum, Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi. Áður hafði ríkisstjórnin samþykkt 867,7 milljónir króna vegna ýmissa þátta og viðbragða í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi. Með þessari samþykkt um 54,3 milljónir til viðbótar eru heildarframlög úr ríkissjóði á árinu 2010 og 2011 vegna eldgosanna þriggja orðin 922 milljónir.

Rúmlega 500 tilkynningar um peningaþvætti en enginn dómur

Aðeins eitt dómsmál fjallaði um peningaþvætti og féll árið 2009. Það var svokallað TR-mál þar sem 13 manns voru ákærðir, aðallega fyrir hylmingu, en til vara fyrir peningaþvætti af gáleysi. Enginn var sakfelldur fyrir peningaþvætti. Athygli vekur því að samkvæmt ársskýrslu ríkislögreglustjóra um peningaþvætti þá kemur fram að 520 ábendingar bárust embættinu árið 2008. Ári síðar bárust embættinu 494 tilkynningar.

Viðskiptaráðherra óttast ekki dómstólaleiðina

Árni Páll Árnason, efnahags og viðskiptaráðherra, segist ekki óttast dómstólaleiðina en Eftirlitsstofnun EFTA hefur gefið Íslandi þrjá mánuði til að greiða lágmarksinnistæðutryggingu Icesave kröfuhafa, ella fari málið fyrir dóm. Árni Páll segir líklegt að greiðslum úr þrotabúinu verði lokið þegar dómur í málinu falli. Rök Íslands í málinu séu sterk.

Séra Karl Sigurbjörnsson tjáir sig ekki

Biskup Íslands, séra Karl Sigurbjörnsson, ætlar ekki að tjá sig um skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings fyrr en eftir fjóra daga. Fréttastofa óskaði eftir viðtali við Karl í ljósi þess að í skýrslunni kemur fram að hann hafi brugðist á margan hátt og gert mistök þegar biskupsmálið svokallaða kom upp árið 1996 þegar séra Ólafur Skúlason, þáverandi biskup, var sakaður um kynferðisbrot. Þá kemst nefndin að þeirri niðurstöðu að viðbrögð presta og annarra starfsmanna kirkjunnar þegar málið kom upp hafi einkennst af ráðaleysi og skorti á faglegum og vönduðum vinnubrögðum. Kirkjuþing verður haldið á þriðjudag og munu kirkjunnar menn ekki tjá sig um skýrsluna fyrr en þá. Uppgefin rök eru þau að skýrslan hafi fyrst verið birt í morgun og að menn þurfi tíma til að fara yfir hana.

Ólafur með ráðandi persónuleika - dró kirkjunnar menn í dilka

Persónuleiki Ólafs Skúlasonar, þáverandi biskups, hafði mikil áhrif á viðbrögð kirkjunnar manna þegar Ólafur var sakaður um kynferðisbrot árið 1996. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings sem birt var í morgun. "Þá verður ráðið af framburði þeirra sem fyrir nefndina komu að áhrif Ólafs Skúlasonar á samstarfsmenn sína og aðra starfsmenn kirkjunnar voru verulega mikil. Biskupinn hafi verið með mikinn og ráðandi persónuleika, hann hafi farið sínu fram og óhikað látið í ljósi afstöðu sína um stöðu málsins. Menn hafi verið dregnir í dilka sem annaðhvort "með honum eða á móti". Hafi hann þannig með framgöngu sinni haft mótandi áhrif á aðgerðir einstaklinga sem að málinu komu, hvort sem er á vettvangi kirkjuráðs, Prófastafélags Íslands eða stjórnar Prestafélags Íslands," segir í skýrslunni.

Handtóku meinta Vítisengla - með fíkniefni og haglabyssur

Tveir karlmenn á þrítugsaldri sem lögreglan telur að séu meðlimir Íslandsdeildar Hells Angels, voru handteknir á miðvikudag við iðnaðarhúsnæði í austurborginni. Við húsleit þar fundust rúmlega 120 kannabisplöntur á nokkrum ræktunarstigum.

Karl gerði mistök í máli Guðrúnar Ebbu

Rannsóknarnefnd Kirkjuþings kemst meðal annars að þeirri niðurstöðu að Karl Sigurbjörnsson biskup hafi orðið á mistök sem forseti kirkjuráðs varðandi úrlausn mála Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur varðandi erindi sem hún sendi í mars 2009 vegna meintra kynferðisbrota föður síns, Ólafs Skúlasonar.

Skýrsla um biskupsmálið: Ráðaleysi og skortur á vönduðum vinnubrögðum

Rannsóknarnefnd kirkjuþings hefur lokið við gerð skýrslu um viðbrögð og starfshætti þjóðkirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi um kynferðisbrot. Skýrslan er rúmlega 300 síður að lengd en nefndinni var falið að leggja mat á viðbrögð kirkjunnar eftir að ásakanirnar komu fram á sínum tíma. Nefndinni var hinsvegar ekki ætlað að "fjalla um sannleiksgildi ásakana um kynferðisbrot sem fram hafa komið á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi."

Endist ekki ævin til þess að borga námslánin

Af þeim sem hófu endurgreiðslu námslána árið 2010 skulduðu um 16 prósent námsmanna meira en 6 milljónir króna og samtals rúmlega 40 prósent af heildarskuldum hópsins. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Ríkisendurskoðunar þar sem lánasjóður íslenskra námsmanna (LÍN) er skoðaður.

Hitastig sjávar sem um hávetur

Fimm íslensk skip leituðu að norsk-íslenskri síld í veiðanlegu magni norðaustur af landinu nú í byrjun vikunnar. Til þessa hefur leitin lítinn árangur borið, segir í frétt á heimasíðu HB Granda.

Grunaður um rúm 40 auðgunarbrot

Sú ákvörðun innanríkisráðherra að veita Geirmundi Vilhjálmssyni lausn frá starfi fangelsisstjóra á Kvíabryggju um stundarsakir, var rétt samkvæmt niðurstöðu nefndar fjármálaráðuneytis um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Geirmundur, sem taldi ákvörðunina óréttmæta og síðar óupplýsta, sætir rannsókn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna meintra auðgunarbrota hans á kostnað fangelsisins.

Ákærðir fyrir milljónaþjófnaði

Lögreglustjórinn á Eskifirði hefur ákært tvo menn um tvítugt fyrir að brjótast ítrekað inn og stela munum að verðmæti á þriðju milljón króna. Mennirnir eru einnig ákærðir fyrir fjársvik.

Snjór í öllum fjöllum kringum borgina

Það snjóaði í nótt í öll fjöll, sem eru í sjónmáli frá höfuðborgarsvæðinu. Esjan var meðal annars alhvít alveg niður að rótum undir morgun.

Samningaviðræðum slitið

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands og Flóafélaganna slitu í gærkvköldi viðræðum við samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Fangelsisrefsing fyrir skjalafals

Rúmlega tvítugur karlmaður, með ríkisfang í Kongó, hefur verið dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir skjalafals.

Samkomulag um þinglok á morgun

Formenn þingflokkanna og forseti Alþingis náðu samkomulagi um að þinglok verði á morgun gegn því að ýmsum málum verði frestað til haustsins.

Stakk konu tvisvar í höfuð

Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir fimmtugri konu, Bergþóru Guðmundsdóttur, sem dæmdi hana í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir ýmis brot. Konan var meðal annars dæmd fyrir að stinga aðra konu tvívegis í höfuðið með eldhúshnífi í fyrra

Ísland ákjósanlegt til rannsókna

Alþjóðleg ráðstefna á vegum SÁÁ var sett í gær, en þar er umræðuefnið vímuefnafíkn og afleiðingar hennar. Dagskráin hófst með málþingi og umræðum, en í dag fer fram aðalráðstefnan þar sem íslenskir og erlendir fræðimenn fara yfir málin, með sérstakri áherslu á amfetamín- og rítalínneyslu.

Um þrjú hundruð lömb drápust vegna campylobactersýkingar

Á þriðja hundrað lömb drápust á Leiðólfsstöðum í Dölum á Sauðburði. Svæsin camphylobactersýking kom upp í ánum á bænum og ljóst er að tjónið hleypur á milljónum króna. Þetta kemur fram í Bændablaðinu í dag.

Sjá næstu 50 fréttir