Fleiri fréttir

Vill sjá hausa fjúka

„Í ríkisstjórnum þar sem menn gerðu faglegar kröfur og kysu gagnsæ vinnubrögð væru hausar farnir að fjúka, eftir þá útreið sem sjávarútvegsstefna ríkisstjórnarinnar hefur fengið," segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um skýrslu hagfræðinga um kvótfrumvarp ríkisstjórnarinnar. Sérfræðinganefndin gagnrýnir frumvarp núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jóns Bjarnasonar, um breytingar á stjórn fiskveiða harðlega. Frumvarpið geri nýliðun í greininni erfiða og álögur á útgerðina verði of miklar, að mati sérfræðinganna.

Flugmenn valda vonbrigðum

Icelandair lýsir yfir vonbrigðum með að Félag íslenskra atvinnuflugmanna hafi boðað til verkfallsaðgerða í formi yfirvinnubanns þrátt fyrir að flugfélagið hafi boðið flugmönnum sambærilegar launahækkanir og aðrir í samfélaginu hafa samið um að undanförnu, þar á meðal aðrir starfshópar Icelandair.

Stjórnvöld virði störf kennara

Skólameistari Menntaskólans á Akureyri segir mikilvægt að stjórnvöld meti og virði störf kennara því rannsóknir sýni að öflugt skólastarf sé langbesta forvörnin gegn rótleysi og lífsfirringu. Hann fagnar að náðst hafi kjarasamningur milli ríkis og kennara. Þetta er meðal þess sem fram kom í ræðu Jóns Más Héðinssonar, skólameistara, þegar Menntaskólanum á Akureyri var slitið 131. sinn í dag.

Lýst eftir pilti og stúlku

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Burkna Þór Berglindarsyni og Kolbrúnu Sigríði Kristjánsdóttur en ekki er vitað um ferðir þeirra frá því í hádeginu á fimmtudag þegar þau voru í Árbæjarhverfi.

Bera börur og safna áheitum

Hópur ungmenna frá björgunarsveit Suðurnesja gengur nú meðfram Reykjanesbraut með níðþungur börur en hópurinn lagði af stað í morgun frá samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð í Reykjavík.

Blómsveigur lagður á leiði Bríetar

Elsa Hrafnhildur Yeoman, forseti borgarstjórnar, mun leggja blómsveig á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, kvenréttindakonu og bæjarfulltrúa, í Hólavallakirkjugarði til að heiðra minningu baráttukvenna fyrir kvenfrelsi á á morgun Kvenréttindadaginn. Athöfnin hefst klukkan 14:30.

Flugmenn samþykkja yfirvinnubann

Flugmenn Icelandair hafa samþykkt yfirvinnubann sem hefst næstkomandi föstudag verði ekki búið að semja við þá um kjarabætur. Boðað yfirvinnubann þýðir að forfallist flugmaður kemur enginn sjálfkrafa í staðinn. Bannið kemur því til með að hafa áhrif á flugferðir Icelandair.

Lýst eftir 15 ára stúlku

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 15 ára stúlku, Kolbrúnu Sigríði Kristjánsdóttur. Kolbrún fór að heiman í Árbæjarhverfi síðastliðinn fimmtudag klukkan tólf á hádegi klædd í skærgræna íþróttapeysu, gráar íþróttabuxur og gráa íþróttaskó. Kolbrún er 168 cm að hæð, um 70 kg og með rautt sítt hár.

Snjóvarnargirðing ver kálgarð fyrir kanínum

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stendur í sumar fyrir könnun á kanínustofni borgarinnar. Er vonast til þess að í haust liggi fyrir nægar upplýsingar til að skipuleggja aðgerðir til að stemma stigu við fjölgun og útbreiðslu stofnsins. Villtum kanínum hefur fjölgað mikið undanfarin ár og ekki eru allir sáttir við tilvist þeirra.

Sérfræðingahópur Jóns gagnrýnir kvótafrumvarpið

Fimm manna sérfræðinganefnd sjávarútvegsráðherra gagnrýnir frumvarp ráðherrans um breytingar á stjórn fiskveiða harðlega. Frumvarpið geri nýliðun í greininni erfiða og álögur á útgerðina verði of miklar.

Ekki vísbendingar um frekari óróa

Jarðskjálftahrina varð í Geitlandsjökli í sunnanverðum Langjökli um klukkan átta í morgun. Jarðskjálftahrinan stóð yfir í um 15 mínútur og mældust stærstu skjálftarnir rúmlega þrjú stig á richter. Sigþrúður Ármannsdóttir, landfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir skjálftana þó ekki hafa verið marga eða um tíu talsins.

Konan töluvert slösuð

Átta manns slösuðust í alvarlegu umferðarslysi á Reykjanesbraut í gærkvöldi. Ökumaðurinn sem olli slysinu er grunaður um ölvunarakstur.

Kjarasamningar í uppnámi

Svo gæti farið að kjarasamningar, sem náðust eftir margra mánaða viðræður, verði hleypt í uppnám í næstu viku vegna aðgerða sem ríkisstjórnin lofaði en aðilar vinnumarkaðarins telja hana ekki hafa efnt.

Harpa rýmd í miðjum tónleikum Helga Björns

Hátt í 2000 manns þurftu að yfirgefa Hörpu í hasti í gærkvöldi, á meðan tónleikarnir Dægurperlur Helga Björns stóðu sem hæst í Eldborgarsalnum, þegar brunavarnarkerfi hússins fór í gang.

Jarðskjálftahrina í Geitlandsjökli

Jarðskjálftahrina varð í Geitlandsjökli í sunnanverðum Langjökli um klukkan átta í morgun og stóð hún yfir í um 15 mínútur. Stærstu skjálftarnir voru rúmlega þrjú stig og fundust meðal annars í Húsafelli.

Tveir gistu fangageymslur á Akureyri

Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á Akureyri en fjöldi lagði leið sína í bæinn og sat að sumbli fram á morgun. Tveir gistu fangageymslur og var einn tekinn fyrir ölvunarakstur. Þá komu nokkur fíkniefnamál inn á borð lögreglu.

Á gjörgæslu eftir alvarlegt umferðarslys

Alvarlegt umferðarslys varð þegar kona keyrði aftan á bifreið á ferð á Reykjanesbrautinni í gærkvöldi, með þeim afleiðingum að bifreið hennar valt og hafnaði utan vegar. Konan var ein í bílnum þegar slysið átti sér stað og var hún flutt með sjúkrabifreið á Landspítalann í Fossvogi, þar sem hún liggur þungt haldin á gjörgæsludeild samkvæmt vakthafandi lækni.

Forsendubrestur gæti stytt kjarasamninga

Aðilar vinnumarkaðarins telja skorta á efndir stjórnvalda í mörgum af þeim lykilatriðum sem þau tiltóku í aðgerðaáætlun sinni vegna nýrra kjarasamninga. Því gætu forsendur samninganna verið brostnar.

Formaður SÁÁ vill skattleggja knæpur og næturklúbba

Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, segir óbeinan kostnað af næturlífi Reykjavíkur gríðarlegan og furðulegt að barir og skemmtistaðir beri ekki samfélagslegan kostnað í samræmi við þann óbeina kostnað ríkisins sem hlýst af. Í grein á heimasíðu SÁÁ segir Gunnar að nær allt lið lögreglu höfuðborgarsvæðisins sé haft á vakt um helgar, hópar verkamanna mæti undir morgun til að hreinsa götur og torg, læknar og hjúkrunarlið þurfi að gera að sárum þeirra sem verða undir í gleðinni og þá sé ótalinn gríðarlegur óbeinn kostnaður af áfengis- og vímuefnanotkun einstaklinga.

Næturklúbbar ættu að greiða hærri skatt

"Kannski ættum við að rifja upp þetta hugtak; kostnaðarvitund. Og beita því á miðbæ Reykjavíkur. Þá myndum við skattleggja næturklúbbana svo þeir gætu staðið undir nauðsynlegri löggæslu, hreinsun gatna og aðhlynningu sjúkra. Stöðunum myndi þá hugsanlega fækka, opnunartíminn styttast og tekjur og gjöld úr sameiginlegum sjóðum vegna þessarar starfsemi leita jafnvægis." Þetta segir Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, í nýjum pistli á vef samtakanna. Þar segir hann að það sé víðar en í bankaheiminum sem menn einkavæða gróða en þjóðnýta tap. Gunnar Smári tekur dæmi af þrátt fyrir háa skatta á bíla og bensín sé ólíklegt að þeir standi undir því sem samfélagið þarf að greiða vegna umferðar slysa og mengunar, svo eitthvað sé nefnt. Þá bendir hann einnig á hversu lágt verð er á sætindum og gosi, og fer því kostnaður vegna heilsutjóns af ofneyslu þeirra ekki inni í vöruverð. Að mati Gunnars Smára ætti kostnaðarvitund þegar kemur að neyslu áfengis og vímuefna að leiða til hærri skattbyrði á næturklúbba. "Við gætum þá varið meira fé úr sameiginlegum sjóðum til velferðar og sinnt þeim sem eru veikir og hjálparþurfi. Þótt umfangsmiklar stuðningsaðgerðir hins opinbera til eflingar amfetamínsdrifins næturlífs fram á morgun í miðbæ Reykjavíkur séu ekki færðar undir sérstakan lið á fjárlögum eða fjárhagsáætlunum; þá eru þær staðreyndir engu að síður. Og það er síendurtekin ákvörðun ríkis- og borgarstjórnar að styðja myndarlega við bakið á þessari starfsemi og auka stuðninginn fremur en hitt. Á sama tíma og þessir aðilar taka ákvarðanir um að skerða framlög til þeirra sem glíma við neikvæðar afleiðingar þessarar starfsemi." Pistil Gunnars Smára má lesa í heild sinni á vef SÁÁ. http://www.saa.is/islenski-vefurinn/felagsstarf/pistlar/nr/117631/

Rólegheit í miðbænum - kalt og næðingur

Var á röltinu í miðborginni og getur sagt með mikilli ánægju að ástandið var mjög gott. Vart að sjá vín á fólki og drykkja ungmenna vart merkjanleg. Frekar fátt var í bænum enda kalt og næðingur Töluvert minna af hátíðargestum heldur en öllu jafna, svona fljótt á litið.

Fyrrverandi ballettmær í faldbúningi

Íslendingar voru flestir flottir í tauinu í dag en fyrrverandi balletmær bar þó af þeim flestum. Hugrún Halldórsdóttir hitti og ræddi við þessa einstaklega prúðbúnu konu í dag. Unnur Guðjónsdóttir, fyrrverandi balletmeistari Þjóðleikhússins, mætir iðulega í íslenska þjóðbúningnum niður í bæ á þjóðhátíðardaginn sjálfan, en í ár var hún sérstaklega prúðbúin. „Ég er núna í sérstaklega fallegum búningi af því þetta er faldbúningur en annars er eg vön að fara í upphlut. 0g hver er munurinn á þessum tveimur? Það er náttúrulega höfuðfatið, þetta er það sem kallað er faldur og þessi hringur um hálsinn, kraginn. Þetta er mikið eldri búningur en upphluturinn," segir hún. Unnur saumaði búninginn sjálf en silfrið lét hún smíða eftir munum úr þjóðminjasafninu. Þá ber hún spaða á höfði úr silfri en hann er vanalega úr taui. „Ég vil hafa þetta almennilegt. Og vekurðu ekki athygli? Jú jú, fólk er að spá í þetta. Mér finnst bara synd að það skuli ekki vera miklu fleiri í búningum. Ég meina ef ekki í dag, 200 ára fæðingarafmæli Jóns, nema hvað?"

Sirkus og sápukúlur - blómlegur bær á þjóðhátíð

Borgin bókstaflega blómstraði í dag þegar fagurmáluð andlit, full af gleði, virtust á hverju götuhorni. Viðamikil dagskrá var um alla borg og mátti sjá sirkusfólk á stultum, klifurgarpa og ungar stúlkur í skautbúningum. Haraldur Guðjónsson ljósmyndari var á ferðinni í allan dag og í meðfylgjandi myndasafni má líta afrakstur dagsins.

Þröngt á þingi í alþingishúsinu

Háskóli Íslands fagnaði hundrað ára afmæli sínu í dag og því var haldin hátíðarsamkoma í þinghúsinu, þar sem háskólinn starfaði einmitt fyrstu þrjá áratugina.

Fékk á sig torfærubíl

Betur fór en á horfðist þegar torfærubíll sem var til sýnis á Selfossi í dag rann af stað og hafnaði á konu sem var að njóta hátíðarhaldanna. Konan er meidd á fæti en talin vera óbrotin. Torfærubíllinn var ásamt öðrum bílum til sýnis í brekku við hátíðarsvæðið í bænum og leikur grunur á að drengur sem fékk að setjast í bílinn hafi rekið sig í gírstöng með þeim afleiðingum að bíllinn rann af stað.

Kviknað í bíl við Hörpu

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út fyrr í kvöld þegar eldur kviknaði í bifreið sem stóð á bílastæðinu við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu í miðbæ Reykjavíkur. Vel gekk að slökkva eldinn og engin slys urðu á fólki. Töluverðar skemmdir urðu hins vegar á bílnum en upptök eldsins eru enn ókunn.

Skjálftahrina í Mýrdalsjökli - sá stærsti 3 stig

Skjálftahrina reið yfir Mýrdalsjökul á sjötta tímanum og var stærsti skjálftinn um 3 stig. Samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofunnar voru skjálftarnir um tíu talsins og flestir litir, en þar er tekið fram að um óyfirfarnar tölur er að ræða. Enginn skjálfti hefur mælst síðan á svæðinu, samkvæmt Veðurstofunni.

Átta ára gömul við stofnun lýðveldisins og man vel eftir því

Sautjándi júní var haldinn hátíðlegur á elliheimilum landsins þar sem boðið var upp á kökur og spilað og sungið fyrir íbúa. Símon Birgisson heimsótti Hrafnistu í Hafnarfirði og talaði við konu sem var átta ára gömul við lýðveldisstofnun, Kristín H. Tryggvadóttir, fyrrum skólastjóra og Svarfdælingur í húð og hár. "Ég man eftir 1944, 17. júní. Það voru svo mikil hátíðarhöld heima í svarfaðardal, við sundlaugina. Það voru leikfimisýningar, sund. Ísland var látið fljóta á lauginni. Mér fannst þetta alveg hreint stórkostlegt að upplifa þetta,“ segir hún. 17. júní hefur einnig sérstaka merkingu í huga Kristínar, en hún útskrifaðist sem stúdent úr menntaskólanum á Akureyri á þessum degi. "Svo þetta fer í hjartað á mér þegar rennur upp þessi dagur," segir Kristín. Spurð út í þá tíma sem við lifum núna, hrunið og kreppuna segir Kristín að græðgin hafi orðið mönnum að falli. "Og kannski ágætt á tímamótum sem þessum að hugsa um framtíðina? Já, ég er sammála þvðí Þó ég eigi ekki langt eftir þa hugsar maður um börnin sín og barnabörnin og vill þeim allt vel. En ég trúi ekki öðru en við eigum góða framtíð. Ísland er svo gott land, ef fólkið reynir að standa sig, segir hún.

Handteiknað kort af Reykjavík - tvö ár í vinnslu

"Þetta er búið að taka tvö ár og þrjú þúsund klukkustundir," segir Snorri Þór Tryggvason, verkefnastjóri og einn eigenda Borgarmyndar sem var að gefa út nýtt kort af miðbæ Reykjavíkur. Kortið er sérlega eftirtektarvert þar sem þar er hvert götuhorn og hver gluggi handteiknaður.

Prúðbúnir Grímugestir

Gestir Grímunnar voru allir í sínu fínasta pússi í gær, eins og vera ber, ekki síður en verðlaunahafar. Leiksýningin Lér Konungur kom sá og sigraði á Íslensku leiklistaverðlaununum í gær, en hún hreppti alls sex Grímuverðlaun. Arnar Jónsson, sem fer með titilhlutverkið í sýningunni, var valinn leikari ársins og Unnur Ösp Stefánsdóttir hlaut verðlaun fyrir besta leik í kvenhlutverki.

Kynslóðaskipti í miðbænum

Vinir Sjonna tóku lokalagið á barna- og fjölskylduskemmtun á Arnarhóli sem lauk klukkan hálf fimm. Mikil stemning var í bænum og börnin létu það heldur minna á sig fá en foreldrarnir þó veðrið væri ekki upp á sitt besta. Brot úr leiksýningunum Eldfærunum og Ballinu á Bessastöðum voru meðal þess sem sýnt var á sviðinu við Arnarhól í dag, auk þess sem Yesmine Olsson var með Bollywood-danssýningu. Hátíðahöld fóru í heildina vel fram í dag. Aðeins einn maður var handtekinn vegna ölvunarláta, en engin hætta stafaði af honum. Nú má búast við eins konar kynslóðaskiptum í miðbænum, eldra fólk og börn, hverfa og ungmenni sækja þangað í meira mæli til að fylgjast með kvölddagskránni. Í miðbænum eru tónleikar bæði við Arnarhól og á Ingólfstorgi en formlegri dagskrá lýkur klukkan tíu.

Tónlistarhúsið "Made in China"

Árrisulir vegfarendur vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið þegar þeir gengu fram hjá Hörpu, ráðstefnu- og tónlistarhúsi, í morgun og ráku augun í risastóran merkimiða sem festur hafði verið á suðurhlið hússins og á stóð: "Made in China" sem á íslensku útleggst: "Framleitt í Kína." Ekki er vitað hverjir voru þarna á ferð en merkingin fékk að hanga uppi til hádegis. Engar skemmdir urðu á byggingunni vegna uppátækisins. Þó ekki liggi ljóst fyrir hvaða skilaboðum var þarna verið að koma á framfæri eru uppi getgátur um að gjörningurinn tengist því að kínverskir verkamenn hafa verið einna iðnastir manna við uppbyggingu tónlistar- og ráðstefnuhúss Íslendinga.

Hott hott í Hveragerði

Börnum í Hveragerði var boðið að bregða sér á hestbak við grunnskóla bæjarins og þótti þeim það góð skemmtun, þrátt fyrir eilitla rigningu. Hestamannafélagið Ljúfur stóð fyrir viðburðinum, sem var aðeins einn af fjölmörgu sem íbúum Hveragerðis stendur til boða í dag. Yngstu börnin fá að fara í Leikjaland í íþróttahúsinu, keppt er í knattspyrnu og dagurinn verður kvaddur með kvöldvöku sem hefst í Lystigarðinum klukkan hálf níu. Meðal þeirra sem fram koma er söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir sem gerði garðinn frægan í Eurovision hér um árið.

Opið hús á Alþingi - þar var Háskóli Íslands í 29 ár

Fjöldi manns mætti á opið hús á Alþingi í dag í tilefni af hundrað ára afmæli Háskóla Íslands, sem fyrstu 29 árin hafði aðsetur í alþingishúsinu. Háskólinn hafði aðstöðu á fyrstu hæð þinghússins og þar var í dag lögð áhersla á að miðla upplýsingum um sögu Háskóla Íslands, einkum þann tíma sem háskólakennsla fór fram í Alþingishúsinu á vegum læknadeildar, lagadeildar, guðfræðideildar og heimspekideildar. Önnur hæð þinghússins var einnig opin almenningi en þar var að finna muni og fróðleik um Jón Sigurðsson.

Skýjað yfir miðbæ Reykjavíkur

Mikil mannmergð er í miðbæ Reykjavíkur þar sem fólk er saman komið til að fagna 17. júní. Hátíðardagskrá gengur samkvæmt áætlun. Að sögn lögreglu hafa engin vandamál komið upp og allt gengið eins og í sögum. Fyrir hálfri klukkustund hófst hátíðardagskrá á Hrafnseyri, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar, til heiðurs afmælisbarninu. Þar eru forseti Íslands og forsætisráðherra, auk fleiri mektarmenna saman komin. Hátíðargestir á Akureyri skemmta sér vel. Nokkuð rigndi þar í morgun en stytti upp um hádegið og vonir standa til að hann lafi þurr..

„Stórskaðlegt íslenskum sjávarútvegi"

„Þetta frumvarp er ekki aðeins stórskaðlegt íslenskum sjávarútvegi og öllum sem við hann starfa heldur efnahag þjóðarinnar í heild. Frumvarpið fær falleinkunn í þessari hagfræðiúttekt," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landsambands íslenskra útvegsmanna um frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á stjórn fiskveiða. Niðurstöðu sína byggir Friðrik á ítarlegri greinargerð sérfræðihóps sem sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra skipaði til þess að fara yfir hagræn áhrif frumvarpsins. Í greinagerðinni segir meðal annars að frumvarpið leiði til þess að mun erfiðara verður fyrir fyrirtækin að halda áfram rekstri og vart réttlætanlegt hjá mörgum þegar raunverulegt verðmæti eigna verður langtum meira en virði skulda. Friðrik segir að öllum hljóti að vera orðið ljóst að draga þurfi frumvarpið til baka og hefja vinnu við undirbúning að gerð frumvarps um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða með aðkomu fulltrúa allra þeirra sem í sjávarútvegi starfa,

Eftirmynd hins forna Fitjakaleiks tekin í notkun

Í dag verður tekinn í notkun nýr kaleikur í Fitjakirkju í Hvanneyrarprestakalli. Hann er eftirmynd hins forna Fitjakaleiks sem var í Fitjakirkju, en hefur verið á Þjóðminjasafni Íslands frá 1915. Í tilefni af þessu er dagskrá í Fitjakirkju þar sem sagt er frá sögu kaleiksins og kaleikinn sem silfurgrip. Þá veðrur guðsþjónusta í Fitjakirkju þar sem kaleikurinn verður helgaður. Dagskráin hófst klukkan tvö á því að dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson fornleifafræðingur frá Danmörku flutti erindið: fjalla um : Hinn forni kaleikur Fitjakirkju - Saga, greining og hugleiðingar Næst á dagskránni er: 14:30 Ívar Þ. Björnsson leturgrafari sem gert hefur nýjan Fitjakaleik fjallar um gripina af sjónarhóli silfursmiðsins 15:00 Guðsþjónusta í Fitjakirkju - helgaður nýr Fitjakaleikur sem er gjöf frá kirkjubændum. Prestar: Flóki Kristinsson og Kristján Valur Ingólfsson. Organisti: Steinunn Árnadóttir. Einsöngur: Bjarni Guðmundsson 16:00 Kirkjukaffi að gömlum og góðum sið

Hestur stöðvaði umferð við Vesturlandsveg

Hestur stöðvaði alla umferð við Vesturlandsveginn upp úr hádeginu þar sem hann gerði sig heimakominn á miðjum veginum. Hesturinn hafði sloppið úr gerði sínu við Mosfellsbæ, rétt neðan við Vesturlandsveg. Ökumenn hemluðu snarlega þegar hrossið lét sjá sig en ekki er vitað til þess að nein slys hafi orðið. Nokkrir ökumanna fóru út úr bílum sínum, náðu hestinum og komum honum aftur í gerðið. Umferð um Vesturlandsveginn er því aftur komin í eðlilegt horf eftir smáværilegar tafir í báðar áttir.

Lagði blómsveig á leiði Jóns Sigurðssonar

Forseti borgarstjórnar, Elsa Hrafnhildur Yeoman, lagði blómsveig frá Reykvíkingum á leiði Jóns Sigurðssonar nú um hádegisbilið. Föngulegur hópur gekk fylktu liði frá Austurvelli að kirkjugarðinu við Suðurgötu þar sem Jón hvílir og lék Lúðrasveit Reykjavíkur fyrir göngunni, undir stjörn Lárusar Grímssonar. Nú tekur við fjölbreytileg dagskrá í miðbæ Reykjavíkur. Hópakstur Fornbílaklúbbsins og sýning á fornbílum verður við Arnarhól, börnin geta fylgst með ævintýrum Lilla í Brúðubílnum milli hálf tvö og hálf þrjú, og Sirkus Íslands verður með götuleikhús og sirkusskóla á Ingólfstorgi. Heildardagskrá yfir viðburði í Reykjavík má finna hér. http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-4515

"Atorka, ráðdeild, framsýni og þollyndi"

Forsætisráðherra sagði íslenskt samfélag hafa styrkst að flestu leyti frá stofnun lýðveldisins og það væri fyrirmynd annarra þjóða á fjölmörgum sviðum, í hátíðarræðu sinni á Austurvelli í morgun. "Atorka, ráðdeild, framsýni og þollyndi voru orðin sem Jón Sigurðsson valdi til hvatningar íslenskri þjóð á öndverðri nítjándu öld. Þessi hvatningarorð eiga ekki síður erindi við okkur í dag og við skulum heiðra minningu þessa baráttumanns með því að hafa þau að leiðarljósi," sagði Jóhanna. Hún sagði Íslendinga nú hafa tækifæri í kjölfar efnahagsáfallsins til þess að byggja upp réttlátara þjóðfélag, þar sem virðing fyrir öllum hópum og stéttum er í öndvegi, þar sem öllum eru sköpuð jöfn tækifæri til þess að láta til sín taka á mismunandi sviðum allt eftir kostum, eiginleikum og hugðarefnum hvers og eins. Jóhanna vitnaði í Jón Sigurðsson sem sagði "Það þarf annað en hjalið tómt til að hrinda Íslandi á fætur aftur, það þarf atorku og ráðdeild og framsýni og þollyndi." Hún stappaði Íslendinga í stálinu og hvatti þá til að líta bjartsýnir til framtíðar. Ræða Jóhönnu í heild sinni; http://www.forsaetisraduneyti.is/radherra/raedur_greinar_JS/nr/6810

Bifreið valt við Þjórsárbrú

Ungur karlmaður missti stjórn á bifreið sinn í lausamöl rétt austan við Þjórsárbrú um hálfáttaleytið í morgun með þeim afleiðingum að bíllinn fór útaf veginum og valt. Ökumaðurinn var einn í bílnum og slapp með minniháttar meiðsli en bifreiðin er ónýt.

Saka kaþólskan prest um kynferðislegt ofbeldi

Mál tveggja manna sem saka presta og starfsmann kaþólsku kirkjunnar á Íslandi um andlegt og kynferðislegt ofbeldi er til meðferðar hjá fagráði um kynferðisbrot. Annar mannana segir kennslukonu og skólastjóra Landakotsskóla hafa misnotað sig kynferðislega á löngu tímabili. Fjallað er um málið í Fréttatímanum í dag. Mál tveggja manna sem saka presta og starfsmann kaþólsku kirkjunnar á Íslandi um andlegt og kynferðislegt ofbeldi er til meðferðar hjá fagráði um kynferðisbrot. Annar mannana segir kennslukonu og skólastjóra Landakotsskóla hafa misnotað sig kynferðislega á löngu tímabili. Mennirnir sem stíga fram og segja sögu sína í Fréttatímanum í dag eru um fimmtugt. Brot gegn þeim eru fyrnd og hinir meintu gerendur látnir. Annar maðurinn segist hafa orðið fyrir grófu kynferðislegu ofbeldi af hálfu sér A. George, sem var á þeim tíma skólastjóri Landakotsskóla, og Margrét Müller, þýskrar kennslukonu við skólann. Séra George var einn af valdamestu mönnum kaþólsku kirkjunnar hér á landi og sæmdur riddarakrossi fyrir störf sín. Margrét Müller var kennslukona við skólann. Hún bjó í einum af turnum skólans þar til hún svipti sig lífi. Lýsingar mannana, sem birtast í Fréttatímanum, eru sláandi. Þar er ofbeldið sagt hafa haldið áfram í sumarbúðum fyrir krakkana í Ölfusi. Í niðurlagi greinarinnar er sagt að fréttaflutningur á síðasta ári af kynferðisbrotum kaþólskra presta út í heimi hafi ýtt við mönnunum og fengið þá til að stíga fram með sögu sína. Þeir hafi skrifað Pétri Bürcher, biskupi kaþólikka hér á landi, bréf en fengið þau svör ekkert yrði aðhafst af hálfu kaþólsku kirkjunnar hér á landi.

Útför Ólafs Gauks á mánudag

Útför Ólafs Gauks Þórhallssonar, tónlistarmanns, fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 20. júní 2011 klukkan 13:00. Ólafur Gaukur fæddist 11.ágúst 1930 en lést á hvítasunnudag, 12. júní, 2011. Dóttir Ólafs, Anna Mjöll, óskaði eftir því að tilkynning um útförina yrði birt. Foreldrar Ólafs Gauks voru Bergþóra Einarsdóttir frá Garðhúsum í Grindavík og Þórhallur Þorgilsson magister í rómönskum málum. Ólafur Gaukur var einn helsti brautryðjandi dægurtónlistar á Íslandi sem gítarleikari, lagahöfundur, hljómsveitarstjóri, útsetjari,, textahöfundur, plötuútgefandi og kennari. Hann útskrifaðist úr kvikmyndatónlistarháskóla Dick Grove í Los Angeles árið 1984. Aðeins fimmtán ára gamall stofnaði Ólafur Gaukur sitt fyrsta tríó og á menntaskólaárum sínum, hóf hann að leika með vinsælustu danshljómsveitum landsins, meðal annars KK sextett og einnig stýrði hann eigin hljómsveitum og mun Sextett Ólafs Gauks og Svanhildur vera þeirra þekktust. Ólafur Gaukur stofnaði Gítarskóla Ólafs Gauks árið 1975 og rak hann til æviloka. Fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar hlaut Ólafur Gaukur ýmsar viðurkenningar. Hann var útnefndur til verðlauna fyrir bestu tónlist í kvikmynd, fyrir myndina Benjamín Dúfu á Berlin Film Festival í Þýskalandi árið 2006. Heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna hlaut hann árið 2006. Árið 2008 var hann sæmdur hinni Íslensku Fálkaorðu, sama ár var hann kjörinn heiðursfélagi í Félagi tónskálda og textahöfunda og árið 2009 sæmdu gítarleikarar hann Gullnöglinni. Ólafur Gaukur lætur eftir sig uppkomin börn. Eftirlifandi eiginkona Ólafs Gauks er Svanhildur Jakobsdóttir.

200 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar - hátíðardagskrá um allt land

Í dag eru 200 ár liðin frá því að Jón Sigurðsson sjálfstæðishetja fæddist á Hrafnseyri við Arnarfjörð og verður fæðingu hans minnst með mikilli hátíðardagskrá um allt land. Hátíðarmessa verður haldin í Minningarkapellu Jóns á fæðingarstað hans og munu forseti Íslands og forsætisráðherra flytja ávarp á útisviði þar um hálf þrjúleytið. Í Reykjavík hófst formleg dagskrá með guðþjónustu í Dómkirkjunni en á Austurvelli um ellefuleytið en þaðan lagði skrúðganga af stað nú í hádeginn í kirkjugarðinn við Suðurgötu, þar sem forseti borgarstjórnar mun leggja blómsveig á leiði Jóns. Á Akureyri hefst hefðbundin hátíðardagskrá í Lystigarðinum Heiðursvörður en þar verður meðal annars Hugvekja og bænagjörð í Akureyrarkirkju.

Örn Bárður vill biskup og forystu kirkjunnar frá

Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur í Neskirkju og stjórnlagaráðsfulltrúi, hvetur forystu kirkjunnar til að stíga til hliðar í grein í Fréttablaðinu í dag. Hann segir að viðbrögð yfirstjórnar kirkjunnar við skýrslu rannsóknarnefndar þjóðkirkjunnar hafi valdið honum vonbrigðum. Hann gagnrýnir einnig kirkjuþing og spyr af hverju biskup hafi ekki vikið úr þingsal og leyft þinginu að ræða málið að honum fjarstöddum. Hann spyr einnig hvort enginn hafi orðað þann möguleika að biskup þyrfti hugsanlega að segja af sér. Hann segir að forysta kirkjunnar geti nú sýnt auðmýkt með djarfmannlegu verki; stigið til hliðar og viðurkennt að henni hafi mistekist í málinu. sáttargjörð verði ekki í reynd fyrr en hrein iðrun hafi átt sér stað, og þjóðin þoli illa hálfkák í alvarlegu máli sem þessu.

Sjá næstu 50 fréttir