Fleiri fréttir

Fiskifingur innkallaðir

Aðföng hafa ákveðið að innkalla Euro Shopper fiskifingur (en: fish fingers) í 900 gramma pappaöskjum. Ákvörðun um þetta var tekin í kjölfar tilkynningar frá ICA í Svíþjóð um að staðfest hafi verið að varan innihaldi afurð úr eggjum sem ekki er tilgreind í innihaldslýsingu. Varan var í dreifingu í verslunum Bónus og 10-11, en hefur verið tekin úr sölu á meðan merkingar eru endurbættar. Þar sem egg og afurðir úr þeim eru meðal þekktra ofnæmis- og óþolsvalda eru vörurnar varasamar fyrir ákveðna neytendahópa. Vörurnar eru öruggar og heilnæmar fyrir neytendur sem ekki hafa ofnæmi eða óþol fyrir eggjum og eggjaafurðum eða fiski og hveiti (glúten) sem eru tilgreind í innihaldslýsingu vörunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Aðföngum. Aðföng hvetja neytendur sem kunna að eiga vöruna til og hafa ofnæmi fyrir eggjum eða eggjaafurðum að henda henni eða skila við fyrsta tækifæri til næstu verslunar Bónus eða 10-11 gegn fullri endurgreiðslu. Einnig má hafa samband beint við Aðföng í síma 530-5645 eða í gegnum netfangið gaedastjori@adfong.is.

Öll börn fædd 2009 fá leikskólapláss

Foreldrar um 1.300 barna, sem fædd eru á árinu 2009 eða fyrr, hafa fengið boð um leikskólavistun eftir sumarleyfi í ágúst. Innritun barna í leikskóla Reykjavíkur stendur nú sem hæst, en eftir er að innrita á bilinu 200 og 300 börn. Stefnt er að því að öll börn fædd 2009 fái boð um leikskólapláss á árinu. Meðal annars er verið að skoða kosti þess að nýta betur húsnæði í eigu borgarinnar svo unnt verði að taka sem best á móti stærsta fæðingarárgangi sögunnar. Nýr leikskóli í Norðlingaholti mun taka til starfa í ársbyrjun 2012 og nokkrir sjálfstætt starfandi leikskólar hafa óskað eftir því að fjölga börnum. Áætlað er að innritun í borgarrekna leikskóla verði lokið í maí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Leikskólasvið hefur tekið í notkun nýtt innritunar- og innheimtukerfi, en með því skapast betri yfirsýn yfir barnfjölda, útskriftir úr leikskóla og inntökumöguleika í hverju hverfi og í hverjum skóla. Í þessu kerfi innrita leikskólastjórar sjálfir. Kerfið auðveldar þeim að hafa með sér samráð í hverju borgarhverfi, fara sameiginlega yfir umsóknir um leikskólapláss og uppfylla óskir foreldra, svo sem um að systkini dvelji í sama leikskóla. 6.865 börn dvöldu í leikskólum Reykjavíkur í byrjun ársins en gert er ráð fyrir að 7.118 leikskólarými verði í borginni í árslok. Inn í þeirri tölu eru einnig leikskólapláss í sjálfstætt starfandi leikskólum

Barnaníðingur í kjördeild í Icesave-kosningunum

Ágúst Magnússon, dæmdur barnaníðingur, sat í kjördeild í Laugardalshöll í Reykjavík í Icesave-kosningunum sem fram fóru um helgina. Kjósendur sem þekktu Ágúst frá fyrri tíð eða af myndum úr fjölmiðlum brá nokkuð þegar það sá hann gæta að því að reglum væri fylgt á kjörstað, merktum kjörstjórninni. Gunnar Eydal, formaður kjörstjórnar í Reykjavík, staðfestir að Ágúst Magnússon hafi þarna átt sæti. "Við vorum alveg grunlaus," segir Gunnar. Hann tekur fram að kjörstjórn krefjist þess ekki að fulltrúar skili inn sakavottorði, og bendir á að kjörstjórn ræður til sín fyrir hverjar kosningar allt að 600 manns, þar af um 400 sem starfa í kjördeildunum sjálfum. "Það er erfitt að ná þessum fjölda," segir hann. Ágúst sat í þessari kjördeild í nokkrum kosningum hér á árum áður og er hefð fyrir því að leitað sé til fólks sem áður hefur starfað í kjördeildum. Gunnar segist ekki hafa þekkt til fortíðar Ágústs, þegar blaðamaður innti hann eftir því. Hann segir að ef forsvarsmenn kjörstjórnar hefði vitað af því að hann hafi verið dæmdur fyrir barnaníð hefði þurft að skoða sérstaklega hvort honum væri sætt í kjördeildinni. "Við hefðum þá skoðað það en ég get ekki sagt til um hvað hefði komið út úr því," segir hann. Það verður því lagt mat á það nú hvort Ágúst tekur oftar sæti í kjördeild, með hliðsjón af dómum hans og þeim mögulegu óþægindum sem kjósendur verða fyrir að hitta hann á kjörstað. Margdæmdur og á yfir höfði sér nýja ákæru Ágúst er margdæmdur barnaníðingur. Árið 2004 var hann dæmdur fyrir að misnota sex pilta kynferðislega. Árið 2007 gekk hann svo í gildru Kompás þegar hann var enn í afplánun vegna brotanna árið 2004 en þá hélt hann að hann væri að fara hitta 13 ára gamla stúlku. Í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi kom síðan fram að Ágúst á yfir höfði sér ákæru fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn ungum misþroska manni fyrr á þessu ári. Ágúst var handtekinn á heimili sínu í síðasta mánuði og voru tölvur meðal annars gerðar upptækar á heimili hans. Í Kastljósi kom fram að hann hafi ekið með unga manninn á afskekktan stað og beitt hann kynferðislegri misnotkun. Í janúar í fyrra ákvað Fangelsismálastofnun að framlengja reynslulausn hans um eitt ár vegna þess að hann var talinn vera hættulegur. Ágúst var því á reynslulausn þegar hann braut gegn unga manninum.

Stal fullum poka af matvælum

Poka fullum af matvælum var stolið af íbúa í Vestmannaeyjum síðasta þriðjudag. Eigandinn var að bera muni úr bifreið sinni upp tröppur sem liggja að íbúð hans á Bárustíg 66.

Flestir segja sig úr Þjóðkirkjunni

Þann 1. janúar voru fullorðin sóknarbörn í Þjóðkirkjunni (18 ára og eldri) 183.697 eða 77,2% mannfjöldans. Fyrir ári síðan voru fullorðnir félagsmenn Þjóðkirkjunnar 3.000 fleiri og hlutfallið 78,8% af mannfjöldanum. Kaþólska kirkjan er næstfjölmennasta trúfélag landsins með 6.366 félagsmenn 18 ára og eldri. Utan trúfélaga voru 11.868 fullorðnir einstaklingar skráðir 1. janúar 2011, eða 5% mannfjöldans. Á síðasta ári voru8.483 utan trúfélaga, eða 3,6%, og fjölgar því fólki utan trúfélaga á milli ára. Um áramótin voru 14.846 í óskráðu trúfélagi eða með ótilgreinda trúfélagsaðild. Alls voru 6.810 breytingar á trúfélagsaðild skráðar árið 2010. Flestir skráðu sig úr Þjóðkirkjunni, alls 5.092. Það eru rúmlega helmingi fleiri en skráðu sig úr Þjóðkirkjunni árið 2009 (1.982). Flestir þeirra létu skrá sig utan trúfélaga, 3.619, en allnokkrir í einhvern fríkirkjusafnaðanna þriggja (960). Flestar nýskráningar voru utan trúfélaga árið 2010, alls 3.855. Af trúfélögum voru flestar nýskráningar í Kaþólsku kirkjuna (653). Flestir þeirra voru áður í óskráðu trúfélagi eða ótilgreindu (617).

Öll börn fædd á árinu bólusett

Öll börn fædd á árinu 2011 og síðar verða bólusett gegn pneumókokkasýkingum, og munu bólusetningarnar hefjast síðar í apríl, samkvæmt upplýsingum frá Landlæknisembættinu.

Bruggari handtekinn á Akranesi

Lögreglan á Akranesi lagði hald á liðlega 200 lítra af gambra og 17 lítra af landa í vikunni. Vísbendingar höfðu borist um að bruggun stæði yfir í íbúð í bænum.

Borgin greiðir ekki fyrir börn alkóhólista

Reykjavíkurborg stöðvaði allar greiðslur til SÁÁ um síðustu áramót vegna þjónustu fyrir fjölskyldur áfengis- og vímuefnasjúklinga. Engar greiðslur hafa komið frá borginni til göngudeildar SÁÁ vegna þessarar þjónustu en stærsti hluti fjárveitingarinnar fór í sálfræðiþjónustu fyrir börn áfengis- og vímuefnasjúklinga sem sýna einkenni um álag og streitu. Þessi börn eru fæst byrjuð að nota vímuefni og eru á aldrinum 8-14 ára. Þau eru í mestri áhættu allra að eiga í erfiðleikum vegna vímuefna í framtíðinni. Þetta kemur fram í frétt á vef SÁÁ en fyrirsögnin þar er: „Reykjavíkurborg hættir að greiða fyrir börn alkóhólista.“ Þar segir að á árunum 2008-2010 var í gildi samstarfssamningur milli Reykjavíkurborgar og SÁÁ um þjónustu fyrir fjölskyldur áfengis- og vímuefnasjúklinga. Ekkert bólar á nýjum samstarfssamningi eða þjónustusamningi. Forráðamenn SÁÁ bíða og halda úti óskertri þjónustu en nú alfarið á reikning SÁÁ. Fréttin á vef SÁÁ.

Garðyrkjumenn gegn ESB

Aðalfundur Sambands garðyrkjumanna lýsir andstöðu sinni við aðild Íslands að Evrópusambandinu og stuðningi við stefnu Bændasamtakanna í því máli.

Femínistar gagnrýna VG

Það er ekki í anda fæðingarorlofslaga að víkja Guðfríði Lilju Grétarsdóttur úr embætti þingflokksformanns þegar hún koma til baka úr fæðingarorlofi og hlýtur að vera á skjön við stefnu Vinstri grænna í jafnréttismálum, segir í ályktun Femínistafélags Íslands.

Minnka á magndrykkju

Í nýju frumvarpi fjármálaráðherra til breytinga á lögum um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins er lagt til að stofnunin verði án stjórnar og heyri beint undir fjármálaráðherra.

Vilja lög gegn dýrakynlífi

Stjórnmálamenn og dýraverndunarsamtök í Danmörku hafa kallað eftir löggjöf gegn kynlífi með dýrum eftir umdeilda heimildarmynd sem sýnd var nýverið í sjónvarpi.

Jafnmargir hlynntir og andvígir hernaði

Svipað hlutfall landsmanna styður hernaðaríhlutun aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Líbíu og er andvígt hernaðinum, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins.

Óvæntur stormur og eldingum laust niður

„Þetta er svolítið vetrarlegt,“ viðurkennir Þorsteinn Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, spurður um harðar sviptingar í veðrinu síðustu daga.

Nefnd þingmanna móti öryggisstefnu

Nefnd tíu þingmanna allra flokka sem sæti eiga á Alþingi verður falið að móta þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland nái þingsályktunartillaga sem utanríkisráðherra hefur lagt fyrir Alþingi fram að ganga.

Hópur fjárfesta kaupir MP Banka

„MP Banki er það lítill að hann þarf ekki að fara út í meiri háttar tiltektir. Hann hefur ekki þegið styrki eða fyrirgreiðslu frá hendi ríkisins. Það finnst mér skipta miklu máli,“ segir fjárfestirinn Skúli Mogensen, aðaleigandi MP Banka.

Lífeyrissjóðsstjóri átti rétt á að fá gögn

Synjun Fjármálaeftirlitsins (FME) um afhendingu umbeðinna gagna til Ingólfs Guðmundssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verkfræðinga, skorti lagastoð að mati umboðsmanns Alþingis.

Húsaleigumál 200 talsins á árinu

Neytendasamtökunum hafa borist í kringum 200 fyrirspurnir og erindi vegna húsaleigumála það sem af er ári. Samkvæmt tilkynningu frá samtökunum svarar þetta til um 800 erinda á ári, sem er helmingi meira heldur en var í fyrra. Árið 2009 voru rúmlega 200 fyrirspurnir af þessum toga.

Óþægilegt að vera bendlaður við svona mál

Lögreglan hefur á tæpum tveimur mánuðum fengið 23 tilkynningar um að óprúttnir aðilar hafi reynt að lokka börn upp í svartan bíl. Ekki eru allar þessar ábendingar á rökum reistar eins og leigubílstjóri hér í borg komst að fyrir helgi.

Kínverjar hyggjast sigla til Íslands um Norðurpólinn

Kínversk stjórnvöld áforma að senda ísbrjót yfir Norðurheimskautið til Íslands í sumar og yrði þetta í fyrsta sinn sem skip kæmi þessa leið frá Kyrrahafinu til Íslands. Jafnframt gæti leiðangurinn orðið heimssögulegur viðburður.

Nafn mannsins sem lést

Maðurinn sem lést í banaslysinu, sem varð á Langadal í gærmorgun hét Daniel Krzysztof Sakaluk. Hann var fæddur 1993 og til heimilis að Hólsgötu 6 Neskaupstað.

Fíkniefnasali handtekinn í Hafnarfirði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í Hafnarfirði á föstudaginn. Karl um þrítugt var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og viðurkenndi hann að fíkniefnin, 20 grömm af amfetamíni, hefðu verið ætluð til sölu.

Hluti Bankastrætis lokaður í fyrramálið

Lokað verður fyrir umferð niður Bankastræti, neðan Skólastrætis, í fyrramálið vegna framkvæmda á gatnamótum Austurstrætis og Lækjargötu. Yfirborð og snjóbræðsla hefur verið endurnýjuð á helmingi gatnamótanna og í fyrramálið hefst vinna við seinni helminginn. Áhersla er lögð á að þessi vinna taki skamman tíma og verður henni lokið fyrir páska. Endurgerð gatnamótanna er hluti af því að breyta Austurstræti í göngugötu. Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á truflun vegna framkvæmdanna, en eru jafnframt beðnir um að sýna aðgát og virða afmörkun vinnusvæða.

Lítið að frétta af kjaraviðræðum

Engin niðurstaða varð af fundarhöldum Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands en forystumenn þeirra hittust á fundi í hádeginu þar sem næstu skref í kjaraviðræðum voru rædd. Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA segir að á fundinum hafi menn borið saman bækur sínar en að engin sérstök niðurstaða hafi fengist.

Ungmenni lækka meðalaldurinn á borgarstjórarfundi

Á morgun munu fulltrúar Reykjavíkurráðs ungmenna sitja borgarstjórnarfund í Ráðhúsi Reykjavíkur ásamt borgarfulltrúum. Fundurinn fer fram í fundarsal borgarstjórnar og hefst kl. 14. Fundurinn verður sendur beint út á vef Reykjavíkurborgar. Þrátt fyrir að meðalaldur borgarstjórnar í Reykjavík hafi lækkað talsvert síðustu áratugina mun hann lækka verulega þriðjudaginn 12. apríl næst komandi en þá taka fulltrúar í Reykjavíkurráði ungmenna sæti á fundi með borgarstjórn sem fram fer í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fundarefnið eru málefni ungs fólks og ræddar verða tillögur frá ungmennaráðum í Reykjavík sem fulltrúar Reykjavíkurráðsins munu flytja á fundinum. Átta fulltrúar Reykjavíkurráðs ungmenna sitja fundinn ásamt sjö borgarfulltrúum og því má segja að ungt fólk myndi tímabundið meirihluta í stjórn borgarinnar. Ungu fólki liggur ýmislegt á hjarta og á fundinum verða ræddar tillögur sem snúa að aðstöðu til íþróttaiðkunar og félagsstarfs, baráttunni gegn einelti og vanlíðan, bættum strætósamgöngum og einfaldari gjaldskrá, málefnum Vinnuskólans, veggjalist og tónlistarnámi, auk þess sem fyrir fundinum liggur tillaga um að tillögur ungs fólks um málefni sem þau varða verði betur fylgt eftir af hálfu borgarstjórnar. Fundur Reykjavíkurráðs ungmenna og borgarstjórnar er orðinn að árvissum viðburði og í ár er tíundi fundurinn á dagskrá. Með þessu móti er ungu fólki gefið tækifæri á að koma tillögum sínum og ábendingum um eigin málefni milliliðalaust til þeirra sem stýra borginni á hverjum tíma. Reykjavíkurráð ungmenna er samráðsvettvangur ungmennaráða í Reykjavík en alls starfa átta ungmennaráð í hverfum borgarinnar.

Íshellir hrundi á mann

Maður var fluttur á slysadeild með þyrlu um hádegisbilið eftir að þak á manngerðum íshelli féll á hann. Slysið átti sér stað í Bláfellshálsi á Kili og sinnti lögreglan á Selfossi útkallinu. Þá voru kallaðar til björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar. Um var að ræða hóp kvikmyndagerðarmanna sem var við tökur á Kili. Þar höfðu þeir búið til íshelli og var maðurinn inni í hellinum þegar hluti þaksins hrundi yfir hann. Mögulegt er talið að maðurinn sé hryggbrotinn og jafnvel með innvortis blæðingar.

Ásmundur Einar: "Ótrúleg vinnubrögð"

Ásmundur Einar Daðason þingmaður VG er ekki sáttur við vinnubrögð félaga sinna í þingflokki VG en í gær var Guðfríður Lilja Grétarsdóttir sett af sem þingflokksformaður. Árni Þór Sigurðsson var kjörinn formaður í hennar stað en Guðfríður Lilja var að snúa til baka úr fæðingarorlofi.

Bíða eftir myndum úr kjúklingabúum Matfugls

Starfsfólk Matfugls vinnur nú hörðum höndum að því að svara hópi áhugafólks um velferð dýra sem hefur á Facebook-síðu Matfugls óskað eftir myndum sem teknar eru inni í kjúklingabúum Matfugls til að neytendur geti betur áttað sig á aðstæðum á íslenskum kjúklingabúum. Sirrý Svöludóttir, markaðsstjóri Yggdrasils ehf., setti fyrst inn fyrirspurn til Matfugls þar sem hún sagðist vilja sjá aðstæður með eigin augum þar sem umræðan um verksmiðjubúskap hefur verið hávær að undanförnu. Fjöldi fólks hefur í kjölfarið tekið undir með Sirrý og óskað eftir bæði upplýsingum og myndum. Sigurveig Káradóttir, matgæðingur sem gert hefur úttekt á gæðum hráefnis í mötuneytum skóla, leggur einnig orð í belg. „Hef líka áhuga á að vita meira um hvernig málum er háttað hér á landi. Og að fá almennt frekari upplýsingum frá framleiðendum um aðbúnað dýra og eins þau aukaefni sem sett eru í matinn og af hverju þau eru sett. Hér er að vakna upp hópur sífellt kröfuharðari neytenda, og í raun kjörið tækifæri fyrir þá framleiðendur sem vilja fylgja þeirri jákvæðu þróun eftir að vakna strax til meðvitundar og koma til móts við þann hóp," segir hún. Sirrý heldur úti vefsíðu sem hún kallar „Lífrænt vottað blogg" þar sem hún greinir frá fyrirspurn sinni til Matfugls. http://svoludottir.wordpress.com/2011/04/09/kjuklingabu-a-facebook/ Facebook-síðu Matfugls má finna hér en þar kemur fram að búist er við að þeir séu að vinna að svörum og búist við að birta þau á síðunni á morgun. http://www.facebook.com/#!/pages/Matfugl-ehf/468525455393

Icesave hefur engin áhrif á aðildarviðræður við ESB

Synjun Icesave-samkomulagsins í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag hefur engin áhrif á aðildarviðræður Íslendinga við Evrópusambandið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stefan Fule stækkunarstjóra sambandsins og Michel Barnier framkvæmdastjóra innri markaðar bandalagsins. „Niðurstaða kosninganna hefur ekki áhrif á aðildarviðræðurnar sem nú standa yfir og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins styður heilshugar.

Fjögur umferðaróhöpp á Vestfjörðum

Í vikunni sem var að líða voru fjögur umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglunnar á Vestfjörðum. Miðvikudaginn 6. apríl varð útafakstur á Holtavörðuheiðinni, um að ræða minniháttar óhapp og ekki slys á fólki. Fimmtudaginn 7. apríl varð óhapp í Vestfjarðargöngunum með þeim hætti að ekið var utan í vinnulyftu Vegagerðarinnar þar sem unnið var við viðgerð á ljósum. Ekki urðu miklar skemmdir og ekki slys á fólki. Föstudaginn 8. apríl varð bílvelta á Súðavíkurhlíð, þar hafnaði bifreið utan í vegriði með þeim afleiðingum að hún valt. Ökumaður og farþegi voru fluttir með sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Ísafirði til skoðunar, um minniháttar meiðsl að ræða. Sunndaginn 10. apríl hafnaði bifreið út fyrir veg á veginum um Þröskulda, um minniháttar óhapp var að ræða og ekki slys á fólki. Sjö ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæminu í vikunni. Einn ökumaður var stöðvaður á Ísafirði fyrir of hraðan akstur, þrír í nágreni við Hólmavíkur og þrír á Holtavörðuheiðinni. Sá sem hraðast ók, var mældur á 120 km/klst., þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst.

Kannanir MMR reyndust nærri úrslitunum

Niðurstöður kannana MMR í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave þann 9. apríl síðastliðinn reyndust mjög nærri úrslitum kosninganna. Í tilkynningu frá MMR segir að þannig hafi niðurstöður beggja kannana MMR sem birtust í vikunni fyrir kosningarnar verið innan vikmarka frá niðurstöðum kosninganna. Kannanir MMR voru jafnframt þær fyrstu sem sýndu fram á meirihlutastuðning við "nei" atkvæði.

Eldingu laust niður í Hellisheiðarvirkjun

Eldingu laust niður í Hellisheiðarvirkjun í morgun og olli umtalsverðu tjóni. Raforkuframleiðsla datt niður í um klukkutíma en er nú aftur komin í gang.

Ævintýrið heldur áfram hjá loðdýrabændum

Verð fyrir íslensk minkaskinn hækkaði um fimm til sjö prósent á uppboði í Kaupmannahöfn í morgun og hefur aldrei í sögunni verið jafn hátt. Verðið hefur tífaldast frá því það var lægst fyrir tuttugu árum.

Fautaárás á Selfossi - tólf yfirheyrðir

Tilkynnt var um kröftug slagsmál við skemmtistaðinn Hvíta húsið á Selfossi um klukkan fjögur á sunnudagsmorgun. Lögreglumenn sem voru skammt frá fóru þegar á staðinn og er þangað kom var hópur fólks skammt frá skemmtistaðnum.

Jafnréttisstofa telur mál Guðfríðar Lilju á gráu svæði

Árni Þór Sigurðsson, nýkjörinn þingflokksformaður VG vísar því alfarið á bug að brotin hafi verið jafnréttislög þegar hann tók við stöðu þingflokksformanns Vinstri grænna í stað Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur sem gegndi embættinu, áður en hún fór í fæðingarorlof. Jafnréttisstofa telur málið á gráu svæði.

Breytingar á stjórnarsamstarfi útilokaðar

Nær útilokað er talið að breytingar verða á skipun stjórnarsamstarfsins. Þá hefur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn skilning á þeirri stöðu sem upp er komin og unnið er að því að sannfæra lánshæfisfyrirtækin um að lækka ekki lánshæfið.

Sjá næstu 50 fréttir