Þorvarður Davíð sendi bróður sínum bréf og baðst afsökunar 11. apríl 2011 20:52 Ólafur Þórðarson tónlistarmaður
Þorvarður Davíð Ólafsson, sem var dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir helgi fyrir að veitast að föður sínum, Ólafi Þórðarsyni, tónlistarmanni, var haldinn miklum ranghugmyndum um föður sinn. Hann hélt meðal annars að hann væri milljónamæringur og skuldaði sér pening. Þetta sagði bróðir Þorvarðs í Kastljósi í kvöld. „Síðan hefur hann sagt sjálfur að það hafi ekki verið kveikjan að árásinni, en hann var búinn að vera með ásakanir í þessum dúr í hans garð," sagði Þórður Daníel Ólafsson, sonur Ólafs, og bætti því við að þær hafi staðið langt aftur í tímann og bróðir sinn hafi verið í kókaínneyslu í langan tíma. Aðspurður hvort að samskipti sín við bróður sinn hafi verið einhver frá árásinni segir Þórður Daníel: „Nei, þau hafa ekki verið nein, einu samskiptin eru bréf sem hann sendi mér þar sem hann í raun og veru biðst afsökunar og honum þyki þetta leitt. Þau hafa ekki verið nein fyrir utan það," sagði Þórður Daníel. Hann sagði að pabbi sinn sé ekki enn farinn að tjá sig en sé að verða líkari sjálfum sér. „Stundum finnst manni maður fá viðbrögð frá honum og stundum ekki," sagði Þórður Daníel. Helgi Pétursson, tónlistarmaður, var einnig gestur í Kastljósi og sagði að Ólafur væri enn meðvitundarlaus en segir að þau sem sjái hann reglulega finnist hann sýna þess merki að hann skynji umhverfi sitt. „Við pössum okkur á því að tala við hann en ekki um hann," sagði Helgi.
Mest lesið Virðist ekki vera hægt á Íslandi Innlent Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu Innlent Hiti geti mest náð átján stigum Veður „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Innlent Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Innlent Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Innlent Gaf fingurinn á Miklubraut Innlent Ráðist á pilt á heimleið Innlent Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér Erlent „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Erlent Fleiri fréttir Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Ráðist á pilt á heimleið Virðist ekki vera hægt á Íslandi Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Vestmannaeyingar fá að eiga Vestmannaeyjar Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Höfðu samband við dönsku herstjórnina á Grænlandi Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Glæný Maskínukönnun og jólaóveður Ársæll hringdi beint í utanríkisráðherra eftir fundinn Ósannað að fimmtán ára stúlka hafi stungið sextán ára pilt tvisvar Sameina Farice, Öryggisfjarskipti og hluta Neyðarlínunnar Gaf fingurinn á Miklubraut Birtir drög að lögum um lagareldi: Hyggst leggja niður Fiskeldissjóð Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Skemmdir í kirkjugörðum vegna aksturs utan vegar Ólýsanlegur harmur fyrir fjölskylduna og söfnun hleypt af stokkunum „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Vill leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ „Þetta hefur verið þungur tími“ Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar Sjá meira