Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ofurölvi ökumaður festi bílinn í óveðri Ofurölvi ökumaður missti bíl sinn út af veginum í Villingaholtshreppi, austan við Selfoss á tólfta tímanum í gærkvöldi og festi bílinn. 11.4.2011 08:05
Einn féll útbyrðis og annar fótbrotnaði Einn skipverji á hvalaskoðunarbátnum Knerri féll útbyrðis í nótt og ofkældist á meðan annar skipverji brotnaði illa á öðrum fæti. Hvalaskoðunarbáturinn var að draga skútuna Áróru, sem er upprunalega frá Ísafirði, til Húsavíkur þegar atvikið átti sér stað. 11.4.2011 08:02
Sérfræðingur segir allt óvíst um skaðabótamál Það er alls óvíst að Bretar og Hollendingar geti höfðað skaðabótamál gegn Íslendingum, jafnvel þótt EFTA dómstóllinn kæmist að þeirri niðurstöðu að Íslendingar hefðu brotið gegn EES samningnum í Icesave málinu. 11.4.2011 08:00
Ótrúlegt augnablik - náði myndum af eldingunni "Ég var fyrir utan pósthúsið í Garðabænum þegar ég ætlaði að taka grínmyndband til þess að setja á Facebook og óska öllum gleðilegt sumar,“ segir Sævar Már Kjartansson, sem fyrri hreina tilviljun náði myndbandi af eldingu sem sló niður sunnan við Hafnarfjörðinn. 11.4.2011 07:46
Elding lýsti upp Reykjavík Þremur eldingum sló niður austur af höfuðborgarsvæðinu laust fyrir klukkan hálf sjö í morgun með viðeigandi þrumum á eftir. Eldingarnar voru meðal annars vel sjáanlegar í Reykjavík. 11.4.2011 07:26
Ekki forsenda til að lækka lánshæfismat Ekki eru efnislegar forsendur til að lánshæfismat ríkissjóðs verði lækkað þrátt fyrir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave. Þetta er mat Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra. Hann segir að koma verði í ljós hvað alþjóðlegir lánveitendur aðhafist í kjölfar niðurstöðunnar. Áminningarbréfi Eftirlitsstofnunar EFTA verði svarað sem fyrst og málstað Íslands haldið kröftuglega á lofti. 11.4.2011 04:00
Skammtímasamningar líklegir Gylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ, segir í samtali við Fréttablaðið að í ljósi úrslita þjóðaratkvæðagreiðslunnar sé líklegra að nú verði gerðir kjarasamningar til skemmri tíma í stað þriggja ára eins og viðræður aðila vinnumarkaðarins hafi gert ráð fyrir fram að þessu. 11.4.2011 04:00
Ákveðinn í að endurheimta traustið „Ég hef ekki skipað mér í hóp þeirra sem hafa spáð hér dramatískum afleiðingum af því að samningarnir féllu í þjóðaratkvæðagreiðslunni þó að ríkisstjórnin hafi gert það,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. 11.4.2011 03:15
Rafmagni tvisvar slegið út á Vestfjörðum Rafmagni hefur slegið út tvisvar á Vestfjörðum í kvöld. Vísir hefur ekki nákvæmar upplýsingar um á hversu stóru svæði rafmagnsleysið er en þess hefur að minnsta kosti orðið vart á Ísafirði og í Bolungarvík. Daníel Jakobsson, bæjarstjóri á Ísafirði segir að rafmagnsleysið hafi varað í að minnsta kosti korter. "Það er komið rafmagn á höfnina og inni í firði en annars sýnist mér bara vera rafmagnslaust hér. Ég er bara kominn með kerti og kósý," segir Daníel Jakobsson bæjarstjóri. 10.4.2011 22:22
Búið að losa flesta farþegana Búið er að koma flestum farþegum sem sátu fastir í flugvélum á Keflavíkurflugvelli í dag úr vélunum. 10.4.2011 20:51
Björgunarsveitir hafa sinnt meira en 200 aðstoðarbeiðnum Björgunarsveitir Slysavarnafélagins Landsbjargar eru enn að störfum á suðvesturhorni landsins. Samkvæmt upplýsingum frá SL er enn mjög hvasst þó að mesta óveðrið virðist vera gengið niður. 10.4.2011 20:06
Biluð umferðarljós Umferðarljósin í Engidal í Hafnarfirði, Hafnarfjarðarvegur, Reykjavíkur, Fjarðarhraun og Álftanesvegur eru biluð. Þau blikka á gulu. Lögreglan segir að ekki sé búist við að hægt verði að laga þau fyrr en á morgun. 10.4.2011 19:24
Árni Þór tekur við af Guðfríði Lilju Guðfríður Lilja Grétarsdóttir var felld úr embætti þingflokksformanns Vinstri grænna í óvæntri kosningu um embættið á þingflokksfundi í dag. Árni Þór Sigurðsson, sem gengt hefur embættinu í fæðingarorlofi hennar, var kosinn í hennar stað. 10.4.2011 18:47
Gætu þurft að sitja í nokkra tíma í vélunum Hugsanlegt er að ekki verði hægt að reyna að hleypa farþegum, sem sitja fastir í flugvélum á Keflavíkurflugvelli, út úr vélunum fyrr en klukkan níu í kvöld, samkvæmt upplýsingum frá Isavia. Þó verður reynt fyrr ef mögulegt er. 10.4.2011 18:01
Talningu atkvæða lokið Talningu atkvæða við þjóðaratkvæðagreiðslu um gildi Icesave laganna lauk klukkan hálffjögur í dag. Samkvæmt skýrslum yfirkjörstjórna voru 232.422 kjósendur á kjörskrá og greiddu 175.114 manns atkvæði. 10.4.2011 17:17
Farþegar sitja fastir í vélunum Farþegar í nokkrum farþegaþotum sitja fastir í vélunum á Keflavíkurflugvelli. Ástæðan er sú að vegna vonskuveðurs komast farþegarnir ekki inn landganginn. Þeir þurfa því að bíða af sér veðrið. Ekki liggur fyrir um hve margar flugvélar er að ræða. 10.4.2011 16:43
Niðurstaðan má ekki sundra Íslendingum "Niðurstaðan þjóðaratkvæðagreiðslunnar má ekki sundra okkur né leiða til langvarandi deilna því brýnna er nú en nokkru sinni að við stöndum saman," sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, á Bessastöðum í dag. Hann segir að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar sýni að þjóðin geti leitt mál til lykta. Kenningin um að þjóðin geti ekki farið með vald í flóknum málum hafi reynst tilhæfulaus. 10.4.2011 15:21
Bretar og Hollendingar fá greitt úr Landsbankanum Bretar og Hollendingar munu frá greitt úr þrotabúi Landsbankans þrátt fyrir að "Nei“ hafi orðið ofan á í þjóðaratkvæðagreiðslunni í gær. Þetta hefur Jyllands Posten eftir Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra á blaðamannafundi sem hann hélt í Þjóðmenningarhúsinu í morgun. 10.4.2011 14:09
Miðlun biðst afsökunar Miðlun ehf hefur gripið til ráðstafana til að efla öryggiskerfi fyrirtækisins eftir að viðkvæmum persónuupplýsingum var stolið frá fyrirtækinu í haust. 10.4.2011 13:37
Niðurstaðan hefur ekki áhrif á samstarf við AGS Franek Rozwadowski, fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi, segir óvíst hvaða áhrif niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar muni hafa á íslenskt efnahagslíf. 10.4.2011 12:43
Fyrsta skrefið að svara áminningarbréfi EFTA Stjórnvöld munu svara áminningarbréfi frá Eftirlitstofnun EFTA frá 26. maí síðastliðinn að höfðu samráði við utanríkismálanefnd Alþingis. Af hálfu íslenskra stjórnvalda verður lögð áhersla á að meðferð málsins verði hraðað eins og kostur er þar sem óvissa um lyktir málsins er engum í hag. Þetta segir í tilkynningu frá ríkisstjórn Íslands vegna niðurstöðu kosninganna í gær þar sem Icesave samningunum var hafnað. 10.4.2011 11:28
Forsetinn boðar til blaðamannafundar - Vísir og Stöð 2 Extra í beinni Forseti Íslands hefur boðað til blaðamannafundar á Bessastöðum klukkan þrjú í dag. Þar mun hann fara yfir niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar í gær. Icesave lögunum var sem kunnugt er hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslunni, en það var einmitt á Bessastöðum þann 20 febrúar síðastliðinn sem forsetinn tilkynnti að hann myndi skjóta málinu til þjóðarinnar. 10.4.2011 10:36
Advice fundar með blaðamönnum Advice, hópurinn sem barðist gegn samþykkt Icesave samningana, heldur núna blaðamannafund í Þjóðmenningarhúsinu um niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Icesave lögunum var hafnað í atkvæðagreiðslunni í gær. 10.4.2011 10:19
Fjórir gistu fangageymslur vegna líkamsárásar Fjórir gistu fangageymslur lögreglunnar á Selfossi í nótt vegna líkasmárásar fyrir utan veitingastaðinn Hvíta húsið. Þar varð ágreiningur milli manna sem endaði með því að einn maður var laminn nokkuð illa að sögn lögreglunnar. Talið er að hann hafi úlnliðsbrotnað. Hann var fluttur á heilsugæsluna á Selfossi og svo á slysadeild í Reykjavík til nánari skoðunar. Lögreglan segist ekki vita hver þáttur hvers og eins af þessum fjórum í árásinni hafi verið. Málið verður rannsakað og rætt við mennina í dag. 10.4.2011 09:20
Banaslys á Möðrudalsöræfum Ökumaður lést í bílveltu í Langadal á Möðrudalsöræfum snemma í morgun. Tveir voru í bílnum og sá sem lifði slysið af gerði lögreglu viðvart. Lögreglan á Egilsstöðum segir að ekki liggi fyrir hvers vegna bíllinn valt. 10.4.2011 09:18
Vel smurt ofan á grunnlaunin Næstum 500 þúsund króna munur er á lægstu grunnlaunum sérfræðinga í Stjórnarráðinu og hæstu heildarlaunum sérfræðinga. Almennt er mikill munur á grunnlaunum og heildarlaunum starfsmanna Stjórnarráðsins. 10.4.2011 07:00
Íslendingar höfnuðu Icesave Tæp 60 prósent Íslendinga greiddu atkvæði gegn Icesave samningunum í þjóðaratkvæðagreiðslunni í gær. Talningu er lokið í öllum kjördæmum. Hvarvetna var öruggur meirihluti fyrir því að hafna samningunum. Mest var andstaðan í suðurkjördæmi en þar greiddu um 73% atkvæði gegn samningunum. Minnst var andstaðan við samningana í Reykjavíkurkjördæmi norður en þar greiddu 53% atkvæði gegn samninginum. 10.4.2011 01:35
Reykjavík suður eina kjördæmið sem segir Já Reykjavík suður er eina kjördæmið á landinu sem meirihluti er fyrir því að samþykkja Icesave samninginn. Þegar talin hafa verið 10569 atkvæði segja 53,9% já við samningnum og 46,1% segja nei. Á kjörskrá í kjördæminu eru 44.463. 9.4.2011 23:37
Margrét: Þjóðaratkvæðagreiðslur komnar til að vera Margrét Tryggvadóttir, formaður þingflokks Hreyfingarinnar, segir að hún hafi búist við því að niðurstaða Icesave kosningarinnar færi á þann veg sem flest bendir til samkvæmt fyrstu tölum. Að meirihluti hafnaði lögunum. Hún segir mikilvægt að halda áfram að nota beint lýðræði. „Ég myndi vilja nota beint lýðræði meira, og kannski í skemmtilegri málum," sagði Margrét Tryggvadóttir í samtali við RÚV. 9.4.2011 23:45
Bjarni: Málið áfram í ágreiningi „Þetta mál snýst ekki um Sjálfstæðisflokkinn og það snýst ekki um mig,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins við RÚV, spurður um stöðuna eftir að fyrstu tölur birtust í kosningunum. Þær sýna að mikill meirihluti hafi hafnað Icesave lögunum. 9.4.2011 23:34
Steingrímur: Meiri munur en ég átti von á Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segist ekki hafa reiknað með eins miklum mun í Icesave kosningunum eins og raun ber vitni samkvæmt fyrstu tölum úr landsbyggðarkjördæmunum. Um 62 prósent hafna samningnum og já segja um 37 prósent. 9.4.2011 23:23
Jóhanna: Vissulega vonbrigði "Mér finnst margt benda til þess að Nei-ið verði ofan á í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu, það veldur vissulega vonbrigðum," segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, aðspurð um fyrstu viðbrögð við fyrstu tölum úr þjóðaratkvæðagreiðslunni. 9.4.2011 23:20
Dagur tekur sigurlagið - myndband Siguratriði Söngkeppni Framhaldsskólanna árið 2011 kemur úr Tækniskólanum í Reykjavík. Það var tvítugur piltur, Dagur Sigurðsson, sem sigraði keppnina en hann söng lagði Helter Skelter eftir Bítlana. 9.4.2011 22:44
Tækniskólinn í Reykjavík vann Söngkeppnina Dagur Sigurðsson 20 ára nemandi í Tækniskólanum í Reykjavík bar sigur úr býtum í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fór fram á Akureyri í kvöld. Hann söng lagið Helter Skelter eftir Bítlana en hann samdi sjálfur íslenskan texta við lagið. 9.4.2011 22:17
Segir kosningaúrslitin tvísýn Sigríður Andersen, hjá Advice hópnum sem berst gegn samþykkt Icesave samningsins, telur að kosningaúrslit verði tvísýn. 9.4.2011 22:10
Spennandi að sjá hvað kemur út úr þessu „Já, ég held að menn séu mjög spenntir að sjá hvernig þetta fer,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson, einn af aðstandenum Áfram-hópsins, aðspurður hvort stemming verði á kosningavöku hópsins í kvöld. Meðlimir hópsins ætla að hittast á Póstbarnum við Austurvöll klukkan tíu í kvöld. 9.4.2011 22:03
Kjörstöðum hefur verið lokað Kjörstöðum hefur nú verið lokað um allt land í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave málið. 9.4.2011 22:01
Betri kjörsókn í Suðvesturkjördæmi en í fyrra Kjörsókn í Suðvesturkjördæmi klukkan 20:00 í kvöld var 61,5% og höfðu 37.264 kosið. Í síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu í fyrra höfðu ívið færri kosið eða um 33 þúsund manns á sama tíma eða 55,6%. Kjörsókn í síðustu alþingiskosningum var þó töluvert betri eða 71,2%. 9.4.2011 21:13
Slökkvistarfi lokið í Grafarvogi Búið er að slökkva eldinn sem kom upp í flokkunarstöð Sorpu í Grafarvogi fyrr í kvöld. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað út í kvöld þegar eldboðið barst. Slökkvistarf tók um klukkutíma, en tveir menn munu vakta svæðið fram eftir kvöldi. 9.4.2011 20:02
Bein útsending frá söngkeppninni Vísir sendir beint frá söngkeppni framhaldsskólanna í kvöld. Útsendingin er hafin og hægt er að horfa með því að smella á „Horfa á myndskeið með frétt“. 9.4.2011 19:53
Steingrímur fundar með blaðamönnum um Icesave Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hyggst hitta blaðamenn til að ræða væntanlega niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um svokallaða Icesave-samninga. Fundurinn fer fram á morgun klukkan 11. 9.4.2011 19:26
Allt tiltækt slökkvilið í Gufunesi Allt tiltækt lið slökkviliðsins hefur verið kallað að sorpstöðinni í Gufunesi þar sem eldur kom upp nú fyrir stundu. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hve mikill eldurinn er. 9.4.2011 19:10
Óvíst hvaða áhrif yfirlýsingar Vigdísar hafa Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands óttast um orðstír Íslands verði Icesave samningarnir felldir og greiddi atkvæði með samningunum. Stjórnmálafræðingur segir þetta sýna á skemmtilegan hátt hvernig málið hreyfir við fólki. 9.4.2011 19:01
Framsóknarmenn vilja ræða ESB áfram Tillaga um að slíta viðræðum við Evrópusambandið var felld á flokksþingi Framsóknarflokksins sem fram fer nú um helgina. Það er óhætt að segja að fundarmenn skiptist í tvær fylkingar varðandi þetta málefni því einungis fimm atkvæði skildu að. Alls greiddu 169 atkvæði gegn tillögunni en 164 greiddu atkvæði með henni. 9.4.2011 17:10
Senda flöskuskeyti til að mótmæla kosningafyrirkomulaginu Áhöfnin á Málmey er búin að vera á sjónum í 29 daga, en kemur heim á morgun. Þeir fengu ekki kost á að greiða utankjörfundaratkvæði og ákváðu að mótmæla með því að senda flöskuskeyti frá sér í dag. 9.4.2011 16:46