Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jóhanna búin að greiða atkvæði Jóhanna Sigurðardóttir greiddi atkvæði í Hagaskóla nú rétt eftir klukkan eitt í dag. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hafði áður greitt atkvæði utankjörfundar. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands greiddi atkvæði um ellefuleytið. 9.4.2011 13:46
Of langur tími líður að skýrslutöku Oft líða þrjár til fjórar vikur frá því að börn greina frá kynferðislegu ofbeldi þangað til skýrslutökur hefjast. Slíkt er of langur tími fyrir lítil börn sem eiga erfitt með að greina rétt frá atvikum eftir slíkan tíma. Mjög mikilvægt er að hraða skýrslutökum hjá þeim hópi og að fagaðili tali við þau eins fljótt og auðið er. 9.4.2011 13:30
Ögmundur ásælist ekki stól Steingríms Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra á samleið með félögum sínum í ríkisstjórninni í málefnum tengt Icesave. Þetta segir hann í nýjasta pistli á vefsíðu sinni. Þar gerir hann fjölmiðlaumfjöllun síðustu daga að umræðuefni og samskipti sín við samherja í VG. 9.4.2011 13:09
Amast ekki við eftirliti í klefum Ekki er ástæða til að gera athugasemdir við notkun eftirlitsmyndavéla í fangaklefum sem nýttir eru til að vista handtekna menn í stuttan tíma að mati Persónuverndar. 9.4.2011 13:00
Örlagaríkt einkanúmer „Þegar ég var á sjó í gamla daga kölluðu strákarnir mig Svera, til að stytta nafnið,“ segir Sverrir Arnar Baldursson, en hann keyrir um bæinn á Volvo með einkanúmerið SVERI. Númeraplatan hefur reynst örlagavaldur í lífi Sverris. Hann stofnaði fyrirtækið Sveri ehf. fyrir tveimur árum, en það starfar í fæðubótarefnabransanum. Hann valdi númeraplötuna þó ekki sjálfur. 9.4.2011 13:00
Kjörsókn betri en fyrir ári Kjörsókn hefur verið töluvert betri í morgun en í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave lögin í mars í fyrra. Ólafur Ragnar Grímsson forseti greiddi atkvæði á Álftanesi klukkan ellefu í morgun. 9.4.2011 11:46
Halda Gauraflokkinn í fimmta sinn KFUM verður með sérstakan sumarbúðahóp fyrir drengi með ADHD og skyldar raskanir í Vatnaskógi í fimmta sinn í sumar. Mikil eftirspurn hefur verið eftir plássi í þessum sérhóp á undanförnum árum, segir Ársæll Aðalbergsson hjá Vatnaskógi. Hann segir að Vatnaskógur sé nýfarinn að taka á móti umsóknum og það séu þegar nokkrar komnar. 9.4.2011 11:42
Íraksrannsókn ljúki fyrir 1. desember Utanríkismálanefnd telur nauðsynlegt að rannsóknarnefnd um stuðning íslenskra stjórnvalda við Íraksstríðið fari yfir 25 skjöl í utanríkisráðuneytinu sem varða málið og leynd hvílir yfir. 67 af 92 skjölum ráðuneytisins um Íraksmálið voru birt opinberlega í nóvember. Leyndin á skjölunum 25 er til komin þar sem þau varða samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir eða eru vinnuskjöl. 9.4.2011 11:00
Rannsaka tvö kynferðisbrotamál gegn sama brotaþola Rannsóknardeild lögreglunnar á Akranesi hefur til rannsóknar tvö mál er snúa að kynferðisbrotum gegn ungmenni. Lögreglan segir að málin tengist ekki að öðru leyti en því en að þau beinist gegn sama ungmenninu. Meintir brotamenn þekkjast ekki svo vitað sé og eru búsettir í sitthvoru sveitarfélaginu. 9.4.2011 10:43
Vélhjólagengi ætlar að láta greipar sópa í skotvopnaverslun Lögregla lét verslanir á landinu sem selja skotvopn nýlega vita af því að hún teldi hérlent vélhjólagengi ætla að komast yfir slík vopn með ólöglegum hætti. Voru verslunareigendur hvattir til að huga sérstaklega að öryggismálum sínum vegna þessa. 9.4.2011 10:00
Kjörstaðir opnaðir Íslendingar greiða atkvæði um Icesave-lögin í dag. Kjörstaðir opnuðu um allt land klukkan níu í morgun en nú þegar hafa um það bil tuttugu og fjögur þúsund manns greitt atkvæði utankjörfundar um allt land. Þar af voru fimmtán þúsund atkvæði greidd í Reykjavík. Tæplega þrjú þúsund Íslendingar greiddu atkvæði í Laugardalshöll í gær. 9.4.2011 09:41
Vilja rannsaka blý í börnum Verið er að leggja drög að nokkuð umfangsmikilli rannsókn þar sem leitað verður að þungmálmum í hári barna á Ísafirði, í Vestmannaeyjum og á Kirkjubæjarklaustri. Hugmyndin að rannsókninni er tilkomin vegna mengunar frá sorpbrennslum í sveitarfélögunum þremur. 9.4.2011 09:00
Íslendingur í átta ára fangelsi í Danmörku Íslendingur fæddur 1978, Gunnar Jónsson, var fyrir nokkrum vikum dæmdur í átta ára fangelsi í Danmörku fyrir fíkniefnasmygl. Hann fór akandi með tæp tíu kíló af amfetamíni frá Hollandi til Danmerkur í gegnum Þýskaland og var handtekinn þegar hann kom yfir landamærin 17. nóvember síðastliðinn. Gunnar var búsettur á Íslandi. 9.4.2011 09:00
Kannanir benda til afar góðrar þátttöku Búast má við mjög góðri þátttöku í þjóðaratkvæðagreiðslunni um gildi Icesave-laganna sem fram fer í dag. Góð svörun hefur verið í þeim skoðanakönnunum sem gerðar hafa verið síðustu daga og í könnun Fréttablaðsins, þar sem spurt var sérstaklega hvort fólk ætlaði á kjörstað, kom fram að um 90 prósent hygðust taka þátt í atkvæðagreiðslunni. 9.4.2011 08:15
ESA vísaði til sérlaga um Ríkisútvarpið Í minnisblaði menntamálaráðuneytisins til menntamálanefndar Alþingis kemur fram að eftirlitsstofnun EFTA, ESA, vísi til sérlaga um Ríkisútvarpið ohf. í ákvörðun sinni um stöðu Ríkisútvarpsins (RÚV). Ákvörðun ESA varðar umbætur sem íslenska ríkið á að gera til að skilja á milli samkeppnisreksturs og almannaþjónustu í rekstri RÚV. 9.4.2011 07:30
Kallað eftir skýrari stefnu varðandi ESB Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, vék ekki einu orði að Icesave-málinu í ræðu sinni við setningu 31. flokksþings Framsóknar í Háskólabíói í gær. 9.4.2011 05:30
Mannslimurinn loks afhjúpaður á safninu Hið íslenzka reðasafn hefur nú afhjúpað fyrsta karlmannsliminn. Eins og kunnugt er ánafnaði Páll Arason, ferðafrömuður og athafnamaður úr Hörgárdal, safninu lim sinn að sér gengnum. 9.4.2011 04:30
Bannað að slíta eistu úr grísum Óheimilt er að gelda grísi, eldri en sjö daga gamla, án deyfingar. Einnig er óheimilt að slíta úr þeim eistun og klippa halann af þeim án brýnnar nauðsynjar. Kemur þetta fram í nýútgefinni reglugerð frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu um aðbúnað og heilbrigði svína. 9.4.2011 03:30
Meirihluti hafnar samkvæmt fyrstu tölum Mikill meirihluti hefur hafnað Icesave lögunum samkvæmt fyrstu tölum sem birtar hafa verið úr öllum kjördæmum. Ef tekið er landið í heild hafa 57,7% hafnað samningnum en 42,3% hafa sagt já. 9.4.2011 00:15
Munu hittast eftir helgi og fara yfir stöðu mála "Við höfum reiknað með að þetta yrði samþykkt en nú eru þær forsendur breyttar,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, aðspurður um hans viðbrögð við fyrstu tölum úr þjóðaratkvæðagreiðslunni en meirihluti þjóðarinnar hafnar Icesave samningnum. 9.4.2011 00:01
Menntskælingar keppa um hálfa milljón í söngkeppni "Það er engin kreppa í söngkeppninni. Kreppan er bara búin,“ segir Tindur Jensson, verkefnisstjóri hjá viðburðafyrirtækinu AM Events. 8.4.2011 20:15
"Mjög erfitt mál fyrir alla" Kennari við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi hefur verið kærður til lögreglu fyrir kaup á vændi og verður hann í leyfi frá störfum á meðan rannsókn málsins stendur yfir. 8.4.2011 19:33
Nýjar flugfreyjur mega ekki vera eldri en 30 ára Icelandair ætlar að yngja upp í flugfreyjuhópnum hjá sér í sumar og mega umsækjendur ekki vera eldri en 30 ára. Félagið hefur fyrirvaralaust breytt forsendum um undirbúning að starfi flugþjóna að mati framkvæmdastjóra Keilis. Það komi sér afar illa fyrir þá 40 nemendur sem nú séu að útskrifast sem flugþjónar frá Keili. 8.4.2011 19:09
Leita að manni á áttræðisaldri Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og björgunarsveitarmenn leita nú að 77 ára gömlum manni, Oddi Val Ólafssyni. Hann er með heilabilun og er óútreiknanlegur í hegðun, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. 8.4.2011 20:47
Sigurjón Árnason segir nei Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, ætlar að greiða atkvæði gegn Icesave samningunum í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun. Hann telur að minni áhætta sé fólgin í því að segja nei frekar en já. Rætt er við Sigurjón á Dv.is. 8.4.2011 19:51
Mannslimur afhjúpaður Reðasafnið á Húsavík er nú loks fulllimað því í dag tók safnið við eintaki af tegundinni Homo Sapiens Islandicus, af nítíu og fimm ára karlmanni. Getnaðarlimurinn, sem tilheyrði Páli Arasyni, var afhjúpaður að viðstöddu margmenni. Páll ánafnaði safninu lim sinn að sér látnum. Limur Páls fullkomnaði safnið en það geymir nú limi af öllum fjörtíu og sex tegundum spendýra á og í kringum landið. 8.4.2011 18:57
"Margir hrikalega illa farnir eftir þetta" Sex íslenskar konur í kringum tvítugt voru um borð í tveggja hæða skemmtiferðarbát sem hvolfdi skammt frá Strandbænum Sihanoukville í Suður Kambódíu í gær. Þær og aðrir farþegar sluppu naumlega en það þykir kraftaverki líkast að ein þeirra lifði slysið af þar sem hún var læst inni á baðherbergi neðst í skipinu. 8.4.2011 18:52
Þingmenn metast um Icesave Vaxandi spennu gætir meðal þingmanna vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave samninginn sem fram fer á morgun en þess má sjá glögg merki í skeytasendingum milli nokkurra þingmanna í kjölfarið á tölvupósti sem hagfræðingurinn Gunnar Tómasson sendi þingmönnum og nokkrum fjölmiðlamönnum fyrr í dag. Erfitt er að halda því fram að umræðan sé upplýsandi eða málefnaleg. 8.4.2011 18:11
Landfræði á hjólum og Jarðfræðistrætó Jarðfræði, landfræði og líffræði verða í forgrunni hjá Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands um helgina þegar sviðið heldur áfram að fagna aldarafmæli háskólans með fjölbreyttum viðburðum. Almenningi gefst kostur á að fara í þrjár áhugaverðar skoðunarferðir í fylgd vísindamanna sviðsins. 8.4.2011 17:43
Framsóknarmenn tóku lagið Framsóknarmenn komu saman í Háskólabíói í dag þegar flokksþing þeirra var sett. Stórsöngvarinn Egill Ólafsson leiddi flokksmenn meðal annars í fjöldasöng svo undir tók í húsinu. Það var hinn óopinberi þjóðsöngur „Ísland er land þitt" eftir Magnús Þór Sigmundsson sem varð fyrir valinu. 8.4.2011 17:01
Harður árekstur á Vesturlandsveginum Harður árekstur varð fyrir stundu á Vesturlandsveginum nærri Grafarholtinu. Að sögn sjónarvotts voru það sendibifreið og skutbíll sem lentu saman. 8.4.2011 16:30
Steingrímur J. í Harmageddon Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra verður gestur í útvarpsþættinum Harmageddon í dag . 8.4.2011 16:09
Backyard sýnd í Seattle og í Karlovy Vary Kvikmyndin Backyard í leikstjórn Árna Sveinssonar sem var frumsýnd síðastliðið haust hefur verið valin til sýninga á alþjóðlegu kvikmyndahátíðunum í Seattle (SIFF) og í Karlovy Vary í Tékklandi. 8.4.2011 15:41
Vigdís ætlar ekki gegn Birki Vigdís Hauksdóttir þingmaður framsóknarflokksins ætlar ekki að gefa formlega kost á sér til varaformennsku í flokknum. Þetta tilkynnti Vigdís á flokksþingi sem nú fer fram á Hótel Sögu fyrir stundu. Hún minnti þó á að allir framsóknarmenn séu kjörgengi en enn sem komið er hefur enginn lýst yfir mótframboði gegn sitjandi formanni og varaformanni. Vigdís segist þó hafa velt fyrir sér að bjóða sig fram en eftir að hafa farið yfir stöðuna hafi þetta verið niðurstaðan. Aðspurð hversvegna þetta hefði verið niðurstaðan segist Vigdís vilja gefa tiltölulega nýkjörinni forystu tækifæri og nefnir að einungis séu tvö ár síðan núverandi forysta var kosin. Hún segir flokksmenn vilja standa saman og vinna að því að ná upp fylgi flokksins að nýju. Kosið verður í embætti formanns og varaformanns á morgun. 8.4.2011 15:35
Kennari sendur í leyfi vegna gruns um vændiskaup Rannsóknarlögreglan framkvæmdi húsleit í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi á miðvikudaginn að fengnum dómsúrskurði samkvæmt fréttavef Skessuhorns. 8.4.2011 15:30
Ekkert minnst á Icesave í ræðu Sigmundar Davíðs Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins vill að flokkurinn einsetji sér að verða leiðandi stjórnmálaflokkur á Íslandi innan fimm ára, eða áður en aldarafmæli flokksins, gengur í garð. Þetta er á meðal þess sem fram kom í ræður formannsins á flokkþingi framsóknarmanna sem hófst í dag. "Í dag hefjum við vegferð til bjartra tíma. Í dag hefjum við á ný framsókn Íslands,“ voru lokaorð Sigmundar í annars yfirgripsmikilli ræðu þar sem farið var yfir helstu mál sem á Íslendingum brenna nú um stundir og til framtíðar. 8.4.2011 14:52
Vaknaði úr dái eftir 5 vikur "Það sem mér finnst mikilvægast þegar ég er búin að ganga í gegnum þetta ferli er að hafa góðan stuðning á bak við mig og mestu máli skiptir að hafa alltaf vonina, hugsa jákvætt og halda utan um hvort annað og styðja hvort annað því að svona áfall er gríðarlega erfitt fyrir alla í kringum manneskjuna sem veikist," segir Tinna Rut Einarsdóttir, 21 árs, sem komst til meðvitundar eftir 5 vikna svefn í öndunarvél aðeins 16 ára gömul. Tinna deilir hér erfiðri reynslu sinni en saga hennar staðfestir að kraftaverkin gerast enn. 8.4.2011 14:00
Sex íslenskar konur lentu í lífsháska í Kambódíu „Við erum bara á leiðinni út að borða,“ sagði ein af sex ungum konum um tvítugt sem lentu í lífsháska í Sihanouk ville í Kambódíu í gær þegar bátur sem þær voru á hvolfdi. 8.4.2011 13:33
Fær ekki Orkuveitugögn afhent Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og varamaður í stjórn Orkuveitunnar fær ekki afhendar fundargerðir stjórnar Orkuveitunnar frá stofnun hennar árið 2000 til ársins 2008. Hún segir ótækt með öllu að leynd skuli ríkja yfir þessum gögnum, sérstaklega í ljósi þess að gera eigi allsherjar úttekt á rekstrinum. 8.4.2011 13:02
Borgin býður út verkefni fyrir yfir 200 milljónir Borgarráð samþykkti í gær framkvæmdaáætlanir við endurgerð og endurbætur grunnskólalóða í Reykjavík fyrir 100 milljónir og við leikskólalóðir fyrir 35 milljónir samkvæmt tilkynningu frá borgaryfirvöldum. 8.4.2011 12:53
Verklag Davíðs ekki samboðið Seðlabankanum Efnahags- og viðskiptaráðherra segir verklag fyrrverandi formanns bankastjórnar Seðlabankans ekki samboðið stofnuninni. Þetta kom fram á ársfundi bankans í gær. 8.4.2011 12:51
Fundu hákarl og fíkniefni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann 250 kíló af unnum hákarli við húsleit í iðnaðarhúsnæði í Kópavogi fyrr í vikunni. 8.4.2011 12:41
Framsóknarmenn þinga Flokksþing framsóknarmanna var sett á Hótel Sögu í morgun en það mun standa yfir fram á sunnudag. Eftir hádegi verður setningarræða formanns og síðan almennar umræður fram eftir degi. Í kvöld verður svo unnið í málefnahópum en á morgun fara fram kosningar til formanns og varaformanns. 8.4.2011 12:11
Eva vonar að Icesave verði fellt Eva Joly segist vonast til þess að Icesave-frumvarpið verði fellt á laugardaginn samkvæmt grein sem hún skrifaði og birti í Morgunblaðinu í morgun. Þar skrirfar Eva: 8.4.2011 12:11
Tíu hafa sótt um hæli á þessu ári - allt karlar 10 einstaklingar hafa leitað hælis hér á landi á þessu ári allt karlar. Auk þeirra eru enn 11 umsóknir um hæli frá árinu 2010 til vinnslu hjá Útlendingastofnun. 8.4.2011 12:01