Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Krefur Agnesi um hærri miskabætur „Þessi afsökunarbeiðni er hvorki fugl né fiskur," segir Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður um afsökunarbeiðni Morgunblaðsins vegna rangfærslna Agnesar Bragadóttur. Umbjóðandi hans, Ingi Freyr Vilhjálmsson, blaðamaður og fréttastjóri á DV, ætlar að halda máli sínu gegn Agnesi til streitu og fer fram á 2 milljónir króna í miskabætur, auk 500 þúsund króna vegna birtingar dómsins í fjölmiðlum. 2.2.2011 08:55
Morgunblaðið biðst afsökunar á rangfærslum Agnesar Morgunblaðið birtir í dag yfirlýsingu frá ritstjórum Morgunblaðsins þar sem beðist er velvirðingar á röngum fréttaflutningi Agnesar Bragadóttur um Inga Frey Vilhjálmsson, blaðamann og fréttastjóra DV, þar sem hann var sagður hafa réttarstöðu grunaðs manns í „njósnatölvumálinu" svokallaða. 2.2.2011 08:44
Tveir ofurölvi menn stöðvaðir í slagsmálum á Selfossi Lögreglan á Selfossi kom tveimur ofurölvi mönnum til aðstoðar þar sem þeir voru með tilburði til slagsmála á aðalgötu bæjarins á ellefta tímanum í gærkvöldi, en stóðu varla í fæturna vegna övlvunar. 2.2.2011 07:52
Afleitt veður á Hellisheiði, blint á Reykjanesbraut Afleitt veður er nú á Hellisheiði og ráðleggur lögreglan á Selfossi ökumönnum að leggja ekki á hana að svo stöddu. Þar er mjög blint og sumstaðar farið að draga í skafla. 2.2.2011 07:24
Vopnað rán í söluturni í Hólahverfi Vopnað rán var framið í söluturni í Hólahverfi í Breiðholti á tólfta tímanum í gærkvöldi. 2.2.2011 07:04
Höfnin seld upp í skuldir Fulltrúar Samfylkingarinnar, sem eru í minnihluta í byggðaráði Borgarbyggðar, vilja að 4,84 prósenta eignarhluti sveitarfélagsins í Faxaflóahöfnum verði seldur. 2.2.2011 06:30
Hvað er gert við mismuninn? Eygló Harðardóttir, Framsóknarflokki, hefur lagt fram fyrirspurn til mennta- og menningarmálaráðherra um nefskattinn og Ríkisútvarpið. Hún spyr hve mikið hafi verið greitt í nefskatt frá því að gjaldið var tekið upp og hversu há framlög ríkisins til RÚV hafa verið á sama tíma. 2.2.2011 06:00
Endurnýjað á kostnað ríkisins Framkvæmdasjóður fatlaðra mun leggja 27 milljónir króna í endurnýjun á húsnæði fyrir fatlað fólk í Kópavogi. Skrifað var undir samkomulag þess efnis í gær. 2.2.2011 05:00
Heiðruð fyrir sjálfboðastarf Hróshópurinn heiðraði í fyrradag fjölmarga einstaklinga og hópa fyrir framlag þeirra í þágu betra samfélags. Viðurkenningarnar voru veittar við athöfn í Tjarnarsalnum í Ráðhúsinu í Reykjavík en tilgangurinn með starfi Hróshópsins er „að heiðra sjálfboðastarf og vekja athygli á þeirri samfélagslegu meðvitund sem hefur komið fram í starfi margs konar grasrótarhópa sem hafa sprottið upp í kjölfar bankahrunsins“ eins og segir á vef hópsins. 2.2.2011 05:00
Lítil endurnýjun áhyggjuefni Sala á mótorhjólum hefur hrapað á undanförnum mánuðum og hefur ekki verið minni síðan árið 2002. Þetta má glögglega lesa úr tölum frá Umferðarstofu um nýskráningar innfluttra mótorhjóla, nýrra jafnt sem notaðra hjóla. 2.2.2011 05:00
Staða íslenskunnar verði tryggð í lögum „Íslenska er þjóðtunga Íslendinga og opinbert mál á Íslandi.“ Svo hljóðar fyrsta grein frumvarps til laga um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls sem mennta- og menningarmálaráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær. 2.2.2011 04:00
Árás á æðstu stjórn ríkisins Vigdís Hauksdóttir Framsóknarflokki segir að tenging ómerktrar tölvu við tölvukerfi þingsins hafi verið árás á æðstu stjórn ríkisins. Í fyrirspurn til þingforseta spyr hún hvort athygli ríkislögreglustjóra hafi verið vakin á þeirri staðreynd. 2.2.2011 03:15
Formsatriðin mesti kosningaglæpur lýðræðissögunnar Formsatriðin sem réðu úrskurði Hæstaréttar, en höfðu engin áhrif á niðurstöðu kosningarinnar, eru mesti kosningaglæpur sem framinn hefur verið í vestrænu lýðræðisríki, fyrr og síðar. Þetta er í það minnsta sú ályktun sem Þórhildur Þorleifsdóttir, sem kjörin var á þingið, segir að hægt væri að draga eftir málstofu lagadeildar HÍ um úrskurð Hæstaréttar í dag. 1.2.2011 21:18
Tíu fræðirit tilnefnd til verðlauna Hagþenkis Tíu höfundar eru tilnefndir til viðurkenningar Hagþenkis 2010, sem kynntar voru í húsakynnum ReykjavíkurAkademíunnar í gær. Sigurvegarinn verður kunngjörður um miðjan næsta mánuð. 1.2.2011 21:00
Vistfræðingar fagna tillögum um náttúruverndarlög „Stjórn Vistfræðifélags Íslands fagnar meginatriðum tillagna að breytingum á náttúruverndarlögum. Hún telur það vera skref í átt til samræmingar íslenskrar löggjafar við lagasetningar vestrænna ríkja og við alþjóðasamninga og samvinnuverkefna sem Ísland er aðili að.“ 1.2.2011 22:00
Fréttaskýring: Hringlandi í meðferð milliríkjasamskipta Hvaða reglur og venjur gilda um samskipti íslenskra embættismanna við erlenda kollega sína? 1.2.2011 21:00
Sekt fyrir vanhirðu hrossa Karlmaður hefur verið dæmdur í fimmtíu þúsund króna sekt í héraðsdómi Norðurlands vestra fyrir að hafa vanrækt umhirðu á tveimur hrossum sem voru í hans eigu. 1.2.2011 21:00
Hreyfingin leggst gegn Icesave samningnum Hreyfingin telur nýja Icesave samninginn of áhættusaman til að hægt sé að samþykkja hann. Þetta kemur fram í nefndaráliti Þórs Saari, sem sæti á í fjárlaganefnd Alþingis. Þór segir í nefndarálitinu að skuldsetning ríkissjóðs og þjóðarbúsins sé nú þegar við þolmörk eða komin yfir þau og því sé of áhættusamt að bæta við skulda vegna Icesave sem geti numið 233 milljörðum króna. 1.2.2011 20:30
200 sóttu um starf húsvarðar í Hörpu Rétt tæplega tvö hundruð umsóknir bárust um starf húsvarðar í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu. Þórunn Sigurðardóttir, stjórnarformaður Ago, rekstrarfélags Hörpunnar, er ánægð með þann fjölda sem sækist eftir starfinu. 1.2.2011 20:00
Lögreglan stöðvaði sextán ára ökuþór Lögreglan stöðvaði í gær sextán ára gamlan pilt sem ók bíl í úthverfi borgarinnar um miðnætti. Eðli málsins samkvæmt hefur pilturinn ekki öðlast ökuréttindi. Þrír jafnaldrar piltsins voru með honum í bílnum. Lögreglan segir að þrátt fyrir ungan aldur hafi þessi sami ökumaður áður gerst sekur um umferðarlagabrot. 1.2.2011 19:56
Flýja til baka til Noregs vegna skattpíningar Sú þróun sem hófst á níundu öld, að Íslendingar flúðu Noreg vegna skattpíningar, hefur snúist við og flýja þeir nú til baka undan íslenskri skattpíningu. Þetta var sagt á Alþingi í dag í umræðum um skattamál þar sem ríkisstjórnin var sögð hafa hækkað alla skatta sem hægt væri að hækka. 1.2.2011 18:47
Stjórnlagaþingskosningar gætu farið fram 16. júní Forsætisráðherra hefur hyggst skipa nefnd til að finna lausn á þeirri stöðu sem upp er komin í kjölfar ákvörðunar Hæstaréttar um að ógilda kosninguna til stjórnlagaþings. Til greina kemur að kjósa á ný 16. júní ef það verður niðurstaða nefndarinnar. 1.2.2011 18:00
Munu flytja að Skjólbraut Fimm íbúar sambýlis við Borgarholtsbraut 51 munu á næstunni flytja í rýmra og betra húsnæði að Skjólbraut 1a sem mætir betur þörfum þeirra. 1.2.2011 17:57
Vill að ráðningarferli vegna forstjóra OR verði rannsakað Kjartan Magnússon, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, vill að borgarlögmaður eða innri endurskoðandi borgarinnar verði falið að fara yfir ráðningarferli forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur. Kjartan ætlar að leggja fram tillögu þessa efnis á næsta borgarráðsfundi. 1.2.2011 17:34
Kjúklingabændur: Jafnræðisreglan gildi um þá eins og aðra Félag kjúklingabænda segir að sótt hafi verið um heimild til þess að fullelda salmonellugreindan kjúkling til þess að bjarga verðmætum. Þetta segja þeir tíðkast í nágrannalöndum okkar. 1.2.2011 17:14
Gert að afplána eftirstöðvar refsingar Hæstiréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að maður skyldi afplána 480 daga eftirstöðvar refsingar þegar hann rauf skilorð. 1.2.2011 16:51
Bjarni Ben vill að Alþingi endurskoði stjórnarskrána Í yfirlýsingu frá Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, hvetur hann til þess að Alþingi hefjist tafarlaust handa við endurskoðun stjórnarskrárinnar. Hann segir stjórnarskránna kveða á um að Alþingi eitt geti gert á henni breytingar og flokkurinn sé tilbúinn í umræður um auðlindaákvæði. 1.2.2011 16:30
Fáum aldrei leið hver á öðrum Í dag eru tíu ár frá því að útvarpsþátturinn Reykjavík síðdegis fór fyrst í loftið á Bylgjunni. Þorgeir Ástvaldsson settist þá við hljóðnemann ásamt Sighvati Jónssyni, en síðustu ár hefur Þorgeir notið liðsinnis Kristófers Helgasonar og Braga Guðmundssonar. Þeir félagar segja gott samstarf og fjölbreytt efnistök grunninn að góðu gengi. 1.2.2011 16:28
Þarf að draga úr notkun S-merktra lyfja Samkvæmt lyfjalögum er heimilt að binda notkun tiltekinna lyfja við notkun á sjúkrahúsum. Þetta eru svokölluð S-merkt lyf. Þessi lyf eru gjarna mjög dýr, ætluð til sérhæfðrar meðferðar og er ávísun og notkun þeirra háð ströngum skilyrðum. 1.2.2011 16:13
Viðræðurnar halda áfram Samningar hafa ekki enn náðst milli sveitarfélagsins Árborgar og forsvarsmanna Sólheima í Grímsnesi um rekstur Sólheima. 1.2.2011 16:00
Lak bankaupplýsingum á netið - Persónuvernd úrskurðar í Hraðpeningamáli Persónuvernd hefur úrskurðað að verktaki sem birti upplýsingar um lánastöðu viðskiptavina Hraðpeninga ehf. hafi brotið gegn lögum um Persónuvernd. Á vefsíðu mannsins var hægt að hlaða niður skjali með nöfnum viðskiptavina Hraðpeninga, kennitölu þeirra og bankanúmer og upplýsingar um útistandandi lán. 1.2.2011 15:58
„Hér ríkir bara sorg“ „Fólk er með sorgarbönd og það er flaggað í hálfa stöng," segir Þórunn Káradóttir Hvasshovd. Hún gegndi stöðu yfirgeislafræðings á röntgendeild St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Spítalinn sameinaðist Landspítalanum í dag og er rekinn undir heiti þess síðarnefnda. Þórunn hefur þó enn ekki fengið nýtt stöðuheiti. „Ég veit ekki hvaða titil ég ber nú en ég var yfirgeislafræðingur," segir hún. 1.2.2011 14:58
Konur á Suðurnesjum sameinast undir heitinu SKASS Samstaða kvenna á Suðurnesjum hefur vakið athygli en í september komu rúmlega 100 konur saman til að stofna SKASS, Samtök kraftmikilla, alvöru, skapandi Suðurnesjakvenna. SKASS eru opin samtök fyrir konur á Suðurnesjunum. Tilgangurinn er að efla tengslanet kvenna á svæðinu, fræðast og fræða, efla okkur sjálfar og um leið hvor aðra og styðja konur á Suðurnesjunum til dáða í námi og starfi. Einkunnarorð SKASS eru gleði, kraftur og sköpun. 1.2.2011 14:34
Baulað á borgarstjórann Mörghundruð manna fundur tónlistarfólks og nema baulaði á Jón Gnarr borgarstjóra þegar hann ávarpaði mannfjöldann framan við ráðhúsið nú fyrir stundu. 1.2.2011 14:07
Frestun slæm fyrir nemendur lögregluskólans Frestun um mánuð á grunnnámi í Lögregluskóla ríkisins hefur komið illa við suma væntanlegra nemenda. Þeir hafa sagt upp vinnu sinni og gert ráðstafanir varðandi húsnæði miðað við að námið hæfist í dag, 1. febrúar, eins og til stóð. 1.2.2011 14:00
Hörður Torfa afhenti forsetanum beiðni um náðun nímenningana Hörður Torfason söngvaskáld fór með bréf til embættis forseta Íslands þar sem hann hvetur forsetann til þess að náða níumenninganna verði þeir fundir sekir. Hann segist telja að þau skilyrði sem þarf að uppfylla fyrir náðun séu fyrir hendi, og hvetur fólk til þess að gera slíkt hið sama. 1.2.2011 13:54
Funamálið: Skortur á fagmennsku og jafnvel vanræksla Málefni sorpbrennslunnar Funa á Ísafirði var til umfjöllunar hjá umhverfisnefnd Alþingis í morgun. Þar var farið yfir greinargerð Ólínu Þorvarðardóttur, nefndarmanns og þingmanns Samfylkingarinnar, þar sem hún tók sama löggjöf um umhverfismál og upplýsingaskyldu stjórnvalda. 1.2.2011 13:38
Tónlistarnemar mótmæla fyrir utan ráðhús Reykjavíkur Á þriðja hundrað manns mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði til tónlistarskóla fyrir ráðhús Reykjavíkur. Mótmælin hófust formlega með tónlistaratriði klukkan hálf tvö. Þá verða lög eins og Maístjarnan, Ísland ögrum skorið og fleiri lög sungin. 1.2.2011 13:21
Segir hrun blasa við í tónlistarkennslu Reykjavíkurborg hefur boðað allt að átján prósenta niðurskurð á fjárveitingum til tónlistarskóla á komandi skólaári. Viðræður ríkis og borgaryfirvalda standa þó yfir og segir formaður menntaráðs Reykjavíkur að hún sé bjartsýn á að ná niðurskurðartölunni niður í ellefu prósent. 1.2.2011 12:30
Laugardalshrottinn ákærður Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á þrítugsaldri fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir hrottalega líkamsárás í Laugardal í Reykjavík síðastliðið haust. 1.2.2011 12:15
Öllum sagt upp á Læknavaktinni Öllum starfsmönnum Læknavaktarinnar 110 manns var sagt upp störfum í gær en samningur Læknavaktarinnar við Heilbrigðisráðuneytið rann út um áramótin. 1.2.2011 12:06
Jóel á leiðinni heim Jóel Einarsson, litli drengurinn sem fæddist á Indlandi fyrir jól, er á leið heim til Íslands. 1.2.2011 12:05
Staðfesti aldrei meðflutning Sigmundur Ernir Rúnarsson Samfylkingunni stendur ekki að frumvarpi um að norsk-rússnesku skáldkonuninni Marie Amelie verði veittur íslenskur ríkisborgararéttur. 1.2.2011 12:00
Starfslokasamingur sparisjóðsstjóra: „Það á að taka mig af lífi" Geirmundur Kristinsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri, segir fréttir um starfslokasamning sinn hjá Sparisjóði Keflavíkur opinbera aftöku. Honum hafi verið stillt upp við vegg og fréttirnar skaði bæði hann og hans fjölskyldu. 1.2.2011 11:52
Doktor Gunni gagnrýnir auglýsingar í Húsdýragarði „Við höfum að leiðarljósi að auglýsingar eða kostunarsamningar séu raunveruleikatengdir," segir Tómas Óskar Guðjónsson, forstöðumaður Húsdýra og Fjölskyldugarðsins. Tónlistarspekúlantinn Gunnar Lárus Hjálmarsson gagnrýnir Húsdýragarðinn á bloggsíðu sinni og birtir mynd af leiktæki sem er þakið skiltum frá Atlantsolíu. 1.2.2011 11:32
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent