Fleiri fréttir

Yngri en 18 ára mega ekki fara í ljósabekki

Fólki yngra en 18 ára verður óheimil notkun sólarlampa, í öðrum tilgangi en læknisfræðilegum, á sólbaðsstöðum og öðrum sambærilegum stöðum um næstu áramót.

Stálu yfir 20 þúsund sígarettum

Sígarettum að verðmæti á aðra milljón króna var stolið úr söluskálanum Björkinni á Hvolsvelli í nótt. Þjófarnir brutu rúðu og komust þannig inn, að því er fram kemur á vefnum Sunnlenska. Þar kemur líka fram að þjófarnir virðast hafa gengið hreint til verks og stolið ákveðnum sígarettutegundum en látið aðrar vera.

Tólf mánaða fangelsi fyrir árás á lögreglumann

Karlmaður sem réðst á lögregumann í sumar hefur verið dæmdur í 12 mánaða fangelsi. Maðurinn kýldi lögregluvarðstjóra í andlitið þegar að hann var við skyldustörf aðfaranótt fimmtudagsins áttunda júlí síðastliðinn. Maðurinn játaði brot sitt. Hann hafði áður hlotið skilorðsbundinn fangelsisdóm vegna líkamsárásar og rauf því skilorð með árásinni á lögreglumanninn.

Samið við lækna fyrir áramót

Samningur sjálfstætt starfandi heilsugæslulækna við Sjúkratryggingar Íslands rennur út um áramótin. Samningnum var sagt upp í sumar þegar Álfheiður Ingadóttir var heilbrigðisráðherra. Steingrímur Ari Arason segir að verið sé að vinna að því að gera nýjan samning og á von á að takist.

Dóttirin fær ekki svínaflensusprautu

„Við erum búin að hringja og hafa samband við fimm eða sex heilsugæslustöðvar og fáum alltaf sama svarið. Hún fær ekki svínaflensusprautu,“ segir Víkingur Birgisson. Hann er afar ósáttur við að tvítug dóttir hans fær ekki bólusetningu gegn svínainflúensu á heilsgæslustöð á höfuðborgarsvæðinu þar sem hún er búsett á landsbyggðinni. Dóttir Víkings stundar nám í Reykjavík.

Töluverðar seinkanir hjá Iceland Express

Töluverðar seinkanir hafa verið á flugi Iceland Express í þessari viku. Framkvæmdastjóri félagsins segir aðstæður hafa verið óviðráðanlegar.

Steingrímur segir ekkert hæft í sögu um samstarf við Framsókn

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir ekkert hæft í þeim sögusögnum að viðræður séu hafnar við Framsókn um að ganga inn í stjórnarsamstarfið og segir undarlegt að menn séu að kjafta um slíkt. Þá kallar formaður Framsóknar fréttirnar „spuna."

Allir fimmtán í landsdómi þurfa að taka afstöðu til kröfu Sigríðar

Að óbreyttum lögum þurfa allir fimmtán dómendur í landsdómi að taka afstöðu til þeirrar kröfu saksóknara Alþingis að fá aðgang að gögnum rannsóknarnefndar Alþingis, en þjóðskjalavörður hefur neitað um aðgang að nauðsynlegum gögnum, eins og yfirheyrslum rannsóknarnefndar og tölvupóstum Geirs H. Haarde.

Falskur kúnnalisti Catalinu kærður til lögreglunnar

„Ég veit að einn skjólstæðingur minn hefur leitað til lögreglu vegna málsins og ætlar að kæra þetta,“ segir Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður, en til hans hafa leitað nokkrir einstaklingar vegna þess að þeir eru nefndir á nafn á fölskum kúnnalista Catalinu Ncogo.

Furðustrandir mest seld í Eymundsson

Furðustrandir, bók Arnaldar Indriðasonar, var mest selda bókin í Eymundsson á þessu ári, samkvæmt nýjustu tölum. Á eftir Arnaldi kemur bókin „Ég man þig“ eftir Yrsu Sigurðardóttur og því næst Svar við bréfi Helgu eftir Bergsvein Birgisson. Mest selda fræðibókin var bókin

Hærra frístundagjald

Hækkanir verða á gjaldskrá frístundaheimila og frístundaklúbba Reykjavíkur á næsta ári. Við breytinguna hækkar frístundagjaldið um 20% og gjald á síðdegishressingu um 35%. Þetta þýðir að fyrir fólk með eitt barn í 5 daga vistun með síðdegishressingu hækkar gjaldið úr 10.515 krónum á mánuði í 12.940 krónur á mánuði.

„Einhverjir alveg að missa sig í spunanum“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segist hafa séð nokkrar furðufréttir að undanförnu. Í gær spurðist af þreifingum um mögulega aðild Framsóknarflokksins að ríkisstjórninnni. Sigmundur gefur lítið fyrir það á samskiptavefnum Facebook. „Nú eru einhverjir alveg að missa sig í spunanum. Búinn að sjá nokkrar furðufréttir,“ skrifar formaðurinn.

Varað við hálku

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar ökumenn við hálku í efri byggðum og á fáförnum götum, en búið er að salta aðal umferðaræðar. Einn ökumaður missti stjórn á bíl sínum í óvæntri hálku laust fyrir miðnætti og hafnaði á ljósastaur, en maðurinn slapp ómeiddur.

Gómuðu þjófa

Lögreglumenn handtóku tvo þjófa þegar þeir voru að brjótast inn í bíl við Hjaltabakka í Reykjavík í nótt. Síðan var brotist inn í gám við Malarhöfða og einhverjum verðmætum stolið, og loks var tilkynnt um innbrot í bústað við Hafravatnsveg en ekki er ljóst hverju var stolið þar. Þjófanna er leitað og sömuleiðis ræningjans, sem rændi peningum og tóbaki úr verslun 10-11 við Melabraut í Hafnarfirði í gærmorgun. Sá huldi andlit sitt með klúti og þekkist því ekki á upptökum úr eftirlitsmyndavélum.

Björgunarsveitir leituðu manns í vondu skapi

Björgunarsveitir á Suðurlandi fundu á sjöunda tímanum í morgun, mann sem saknað var í Grímsnesi í nótt. Björgunarmenn voru kallaðir út um klukkan hálf fjögur í nótt til að leita að honum eftir að hann hafði yfirgefið samferðafólk sitt í fússi í sumarbústað í Grímsnesi. Það leitaði hans í fyrstu en kallaði svo eftir aðstoð. Maðurinn fannst á gangi, kaldur og þreyttur á veginum við bæinn Laugabakka, skammt frá Selfossi. Honum var ekið til síns heima, eftir viðkomu á lögreglustöðinni, þar sem honum rann endanlega reiðin út í samferðafólkið.

Eldur í íbúðarhúsi á Egilsstöðum

Eldur kviknaði í íbúðarhúsi á Egilsstöðum seint í gærkvöldi. Þegar slökkvilið kom á vettvang var eldur laus í þvottahúsi og gekk slökkvistarf vel. Engan íbúanna sakaði og reykræsti slökkviliðið húsið. Eldsupptök eru ókunn.

Hrikalegt áfall segir nemandi

Fimm nemendur sem til stóð að útskrifuðust af útstillingabraut Iðnskólans í Hafnarfirði hafa óskað eftir fundi með menntamálaráðherra til að ræða þá ákvörðun stjórnenda skólans að leggja námið niður án fyrirvara frá áramótum.

Kennurum fjölgaði um 43 prósent en nemum um 2,6

Á árunum 1998 til 2008 fjölgaði stöðugildum kennara við grunnskóla um 43 prósent og annarra starfsmanna um 63 prósent. Á sama tíma fjölgaði nemendum grunnskólanna um 2,6 prósent.

Gunnar vanhæfur en neitaði samt að víkja

Bæjarráð Kópavogs hefur óskað eftir áliti bæjar­lögmanns á því hvort bæjarfulltrúi sem lýsi sig vanhæfan í máli og taki ekki þátt í afgreiðslu þess geti samt tekið þátt í umræðu um málið.

Nauðganir og ofbeldi á jólum

Tvö nauðgunarmál og þrjú heimilisofbeldismál eru nú til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Öll atvikin áttu sér stað yfir jólahátíðina.

Saksóknara Alþingis neitað um brýn gögn

Útlit er fyrir að Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, þurfi að leita til dómstóla til að freista þess að fá aðgang að 61 skýrslu sem tekin var af fólki hjá rannsóknarnefnd Alþingis og tölvupóstsamskiptum Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra.

Samið um rekstur Sólheima út janúar

Rekstur Sólheima í Grímsnesi verður með óbreyttu sniði út janúar hið minnsta samkvæmt bráðabirgðasamkomulagi sem stjórnendur Sólheima og bæjaryfirvöld í Árborg náðu í gær. Nota á janúarmánuð til að reyna til þrautar að semja um framhaldið.

Rændi 10-11 með hulið andlit

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu leitaði í gær manns sem rændi 10-11 verslun á Melabraut í Hafnarfirði í gærmorgun.

Lánastofnanir fá sextíu daga

Lánastofnanir hafa 60 daga frest til útreikninga á ólögmætum gengisbundnum bíla- og fasteignaveðlánum eftir að frumvarp um gengisbundin lán varð að lögum í gær. Samkvæmt lögunum skal uppgjör fara fram innan 90 daga frá gildistöku þeirra.

Fatlaðir studdir á vinnumarkaði

Vinnumálastofnun og Reykjavíkurborg hafa undir­ritað samkomulag um vinnumarkaðsaðgerðir fyrir fatlað fólk og samstarf varðandi þjónustu og vinnumarkaðsúrræði fyrir atvinnuleitendur sem njóta félagsþjónustu hjá Reykjavíkurborg.

Sjávarútvegsfyrirtæki fá MSC-vottun

Vottunarstofan Tún hefur staðfest að fyrirtækin Sjóvík ehf. og Fram Foods Ísland hf. uppfylli kröfur Marine Stewardship Council (MSC) um rekjanleika sjávarafurða sem upprunnar eru úr MSC-vottuðum sjálfbærum fiskveiðum.

Vilja auka ýsukvóta án tafar

Stjórn Landssambands smábátaeigenda skorar á Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra að bæta nú þegar 20 þúsund tonnum við áður útgefinn heildarafla í ýsu.

Fyrirskipaði fjölda morða

Igor Izmestjev, fyrrverandi öldungadeildarþingmaður í Rússlandi, var í gær dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa fyrirskipað fjölda morða.

Níu ára gamall ökumaður stöðvaður

Níu ára gamall ökumaður var stöðvaður í morgun eftir að hann hafði ekið í gegnum Héðinsfjarðargöngin. Drengurinn var þó ekki einn í för því afi hans, karlmaður á níræðisaldri hafði leyft honum að aka.

Nafn mannsins sem lést

Ökumaður vöruflutningabifreiðarinnar er lést í umferðarslysi í Langadal í Húnavatnssýslu í gærkvöldi hét Hilmar Tómasson til heimilis að Valagili 21 á Akureyri.

Herjólfur siglir í Landeyjahöfn á morgun

Landeyjahöfn hefur ekki lokast vegna sandburðar eins og reiknað var með og því hefjast siglingar Herjólfs aftur þangað samkvæmt áætlun í fyrramálið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi.

Gálgafrestur keyptur á Sólheimum

Framkvæmdastjóri Sólheima í Grímsnesi fundaði með framkvæmdastjóra Sveitarfélagsins Árborgar í morgun. Þar var tekin sú ákvörðun að ganga til formlegra samningaviðræðna um framtíð Sólheima. „Það þarf að fara í það mjög hratt og sjá hvort það er hægt að ná ásættanlegri niðurstöðu,“ segir Guðmundur.

Fjórar stórar áramótabrennur í Reykjavík

Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir því að söfnun á borgarbrennur hefjist á morgun. „Best er að fá hreint timbur og bretti á brennurnar,“ segir Þorgrímur Hallgrímsson, rekstrarstjóri á hverfastöð Framkvæmda- og eignasviðs, á vef Reykjavíkurborgar.

Ósáttur flugfarþegi: „Þetta er búið að taka á taugarnar“

„Við bara biðum og biðum og biðum í troðfullri vél í sjóðandi hita. Við sátum í vélinni í rúma fjóra tíma áður en okkur var tilkynnt að vélin færi ekki í loftið. Allan þennan tíma færðu flugþjónarnir okkur bara vatn," segir ósáttur viðskiptavinur Iceland Express sem átti bókað flug frá Berlín í gærkvöldi. Vélin átti að fara klukkan átta um kvöldið að staðartíma en farþegar bíða enn.

Völvan spáir stjórnarslitum, óeirðum og byltingu

Upplausn verður við stjórn landsins, ríkisstjórnin springur og einnig sú sem tekur við og bylting verður í þjóðfélaginu, af slíku tagi að búsáhaldabyltingin verður barnaleikur einn í samanburðinum. Þetta segir Völva vikunnar um árið sem senn gengur í garð.

Féhirðir Frímúrara dæmdur í sex mánaða fangelsi

Sextugur karlmaður, fyrrum féhirðir Frírmúrarareglunnar á Húsavík, var skömmu fyrir jól dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að draga að sér rúmar sex milljónir úr sjóðum reglunnar á átta ára tímabili. Þá var hann einnig dæmdur fyrir umboðssvik og skjalafals.

Ögmundur segir of snemmt að spá fyrir klofningi VG

Lilja Mósesdóttir íhugar að segja sig úr þingflokki Vinstri grænna vegna þeirrar gagnrýni sem hún hefur þurft að þola eftir að hún sat hjá í atkvæðagreiðslu um fjárlagafrumvarpið. Ögmundur Jónasson, dómsmálaráðherra, segir of snemmt að spá fyrir um hvort Vinstri grænir séu við það að klofna.

Mývetningar fagna metanóli en Alcoa gefst ekki upp

Oddviti Mývetninga fagnar hugmyndum um metanólverksmiðju við Kröflu. Alcoa heldur sínu striki og reiknar með að halda áfram viðræðum við Landsvirkjun eftir áramót um álver við Húsavík.

Reyna að ná samkomulagi um rekstur Sólheima

Nú stendur yfir fundur stjórnar Sólheima á Grímsnesi með forsvarsmönnum Sveitarfélagsins Árborgar en á fundinum verður reynt að ná samkomulagi um áframhaldandi rekstur Sólheima.

Sjá næstu 50 fréttir